Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988
Hnallþórukökur í
sendiferðabíl
Þegar við komum sáum við hvar
verið var að hlaða alls kyns kökum
og kræsingum inn í sendiferðabfl.
Þegar betur var að gáð kom í ljós
að þetta voru ekki alvörukökur
heldur gervikökur sem notaðar voru
við upptöku á atriði með henni
Hnallþóru um morguninn.
Við vorum komin á mitt bæjar-
hlaðið á milli floúðarhússins og kirkj-
unnar. Ég spurði hvort staðurinn
hefði verið valinn vegna þess að
þama hefði kirkja verið til staðar.
Þessi athugasemd mín vakti hlátur
Elínar Þóru, sem sýndi okkur leik-
myndina. En ekki var laust við að
ofurlítillar ánægju gætti í röddinni
þegar hún sagði mér að fyrir 1.
júní hefðu engin hús verið þama.
Kirkjan, kirkjugarðurinn, bærinn,
„búngalóinn", verkstæðið og jafnvel
kartöflugarðurinn tilheyrði allt leik-
myndinni sem hönnuð er af Karli
Júlíussyni. Satt að segja þótti mér
þetta ótrúlegt. Elsti hluti bæjarins
var gamall torfbær. Við hliðina á
honum var annað hús í sama stfl,
úr timbri en með jámþaki. Við hann
hafði verið byggður enn annar bær
og síðan bætt við hann eftir þörf-
um, hæð, skúr og öðrum skúr. Fyr-
ir utan var olíutankur og gömlu
reiðhjóli var stillt upp við útidym-
ar. Það var eins og húsin hefðu
verið þama frá ómunatíð. Sama
má segja um kirkjuna, dæmigerða
íslenska sveitakirkju, hvítmálaða
með rauðu þaki. Það hefði verið
gaman að geta skroppið inn í bæinn
og litast um, en handan framhliðar-
innar var ekkert.
Það var komið matarhlé og
starfsfólk og leikarar bmgðu sér inn
í forláta tjald sem mér var sagt að
hefði verið notað í Falklandseyja-
stríðinu. Þama var borinn fram
matur og í biðröðinni sem þar
myndaðist ægði saman alls kyns
fólki. Margir voru í gallabuxum og
þykkum ullarpeysum — greinilega
starfsfólk — en þama voru líka
uppábúnar fínar frúr, Indveijar,
þeldökkur bflstjóri í einkennisbún-
ingi sem koma við sögu í Kristni-
haldi undir Jökli.
Alltaf ætlunin að
gera þessa kvikmynd
Það er kvikmjmdafélagið Umbi
sem gerir myndina í samvinnu við
þýska kvikmyndafélagið Magma-
Film. Umbi hefur áður gert kvik-
myndimar Skilaboð til Söndru og
Stella í orlofí. Guðný Halldórsdótt-
ir, dóttir Halldórs Laxness, leikstýr-
ir myndinni, en framkvæmdastjóri
hennar er Halldór Þorgeirsson eig-
inmaður hennar. Við notuðum
tímann í matarhléinu og spjölluðum
saman um tildrög myndarinnar og
fleira.
„Það var kominn einhver fiðring-
ur í okkur,“ sagði Halldór, „en auð-
vitað var margt annað sem kom
til. Þjóðverjarnir hjá Magma-Film
vildu gera gamanmynd með okkur.
Víð vorum ekkert æst í að gera
gamanmynd og stungum upp á að
gera Kristnihaldið í staðinn."
Guðný sagði að nafn félagsins
gæfí til kynna að ætlunin hafi frá
upphafí verið að gera þessa kvik-
mynd. Spumingin hefði hins vegar
verið sú hvenær þau væru orðin
nógu rík og nógu skóluð.
Gamanmyndin Stella í orlofí gekk
nokkuð vel og gaf draumnum byr
Peter Hassenstein, Halldór Þorgeirsson og Guðný
Halldórsdóttir ræða málin.
Veðrið hefur ekki beinlínis
leikið við fólkið sem vinnur nú
við að kvikmynda Kristnihald
undir Jökli eftir Halldór
Laxness. Blaðamaður
Morgunblaðsins og ljósmyndari
ákváðu að bíða ekki eftir góða
veðrinu og héldu af stað á
Snæfellsnesið í
slagveðursrigningu og roki til
fundar við hópinn. En viti menn.
Þegar örskammt var á
leiðarenda birti upp og var
ágætt veður þessa dagsstund
sem við fylgdumst með tökum.
Ekki sástþó Snæfellsjökull.
Baldvin Halldórsson, sem leikur séra Jón Primus, á tali við Guðnýju Halldórsdóttur leik-
stjóra fyrir framan kirkjuna.
undir báða vængi. Hún gerði þeim
kleift fjárhagslega að byija að und-
♦ irbúa töku Kristnihaldsins.
Guðný var spurð að því hvenær
henni hefði dottið í huga að gera
kvikrnynd eftir þessari sögu.
„Ég var alltaf hrifín af hugmynd-
inni, enda hefur sagan verið í miklu
uppáhaldi hjá mér,“ sagði hún.
„Þegar ég fór í kvikmyndaskóla í
London gaf faðir minn mér kvik-
myndaréttinn og síðan hef ég haft
þetta á heilanum. Mér finnst ég
skilja persónumar í sögunni svo
ofboðslega vel. Ég vil þó taka það
fram að ég hef ekki hugsað mér
að leikstýra kvikmyndum sem gerð-
ar em eftir bókum föður míns. Þessi
saga lá bara svo ljós fyrir.“
— Hvenær hófst undirbúnings-
vinnan?
Fjármagnað með
ýmsum kúnstum
„Undirbúningurinn hófst í maí í
fyrra, en endanleg ákvörðun var
tekin í september þegar við fómm
út og hittum handritshöfundinn,
Gerald Wilson," sagði Halldór.
„Wilson er Kanadamaður, búsettur
Fylgst með
tökumá
kvikmyndinni
Kristnihald
undir Jökli
í London, og er viðurkenndur hand-
ritshöfundur. Hann hefur gert ótal
kvikmyndahandrit og unnið meðal
annars hjá bandaríska kvikmynda-
fyrirtækinu Universal. Við vildum
hafa skothelt handrit vegna þess
að oft hefur verið fundið að íslensk-
um kvikmyndahandritum og þau
ekki talin nógu góð.“
„Sannleikurinn er sá að ég ætl-
aði að skrifa handritið en guggnaði
á því,“ bætti Guðný við. „Mér fannst
ég ekki geta verið allt í senn, leik-
stjóri og handritshöfundur auk þess
að klippa myndina. Það var betra
að fá góðan gmnn til að byggja á.“
— En var ekki óþægilegt að fá
handritið á ensku?
„Nei það skipti engu máli. Bókin
hefur verið þýdd á ensku og síðan
snaraði Guðný verki Wilsons yfír á
íslensku," sagði Halldór.
Þau sögðust vera ánægð með
handritið og samstarfíð við Wilson.
Hann kom og heimsótti þau á töku-
staðinn. Þá var hífandi rok og flóð
og leikmyndin á kafi. Þrátt fyrir
það leist honum vel á og þótti mik-
il upplifun að koma til íslands.
Magma-Film hefur sérhæft sig í
gerð heimildarkvikmynda á Norður-
löndunum en fyrirtækið er nú að
söðla um og fara yfir í leiknar
myndir. Það hefur gert samning
við þýska sjónvarpsstöð um fjár-
mögnun 33% myndarinnar, sem er
hlutur Magma-Film, og sögðu þau
Guðný og Halldór að áhætta þeirra
væri ekki nálægt því eins mikil og
íslendinganna sem að sögn þurfa
að fjármagna sinn hluta með kúnst-
um.
„Já, með ýmsum kúnstum sem
við erum ekki alveg búin að fínna
upp ennþá," sagði Guðný. „Við för-
um bara íslensku bjartsýnisleiðina."
Umbi fékk 10 milljóna króna
styrk frá Kvikmyndasjóði, en þau
segjast eiga eftir að útvega slatta
í viðbót, eða svona um það bil 16
milljónir.
Jón Prímus í
snjáðum samfesting
Á meðan á samtalinu stóð virtum
við leikarana fyrir okkur sem sátu
og snæddu úti í náttúrunni. Allir
voru í búningum og tilbúnir í upp-
töku á næsta atriði. Þarna voru
persónur sögunnar komnar ljóslif-
andi og auðvelt fyrir hvem sem
lesið hefur söguna að geta sér til
um hver fór með hvaða hlutverk.
Sigurður Sigutjónsson leikur
Umba, umboðsmann biskups, sem
er stærsta hlutverkið. Guðný sagði
að hann væri við tökur upp á hvem
einasta dag og á kvöldin ef svo ber
undir. Ekki fór heldur á milli mála
hvem Baldvin Halldórssón lék.
Hann var í hlutverki séra Jóns
Prímusar, í snjáðum samfesting
með úfíð grátt hár. Brátt var hann