Morgunblaðið - 14.08.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÖST 1988
33
Upptakan i kirkjunni undirbúin.
Guðný leikstjóri lengst til vinstri
og- á fremsta bekk má sjá
bæjarstjórahjónin í Ólafsvík,
Kristján Pálsson og Sóleyju Höllu
Þórhallsdóttur, í hlutverkum
sínum. Bak við kirkjudyrnar eru
þær Martin Coucke og Kristín
Pálsdóttir og á miðju gólfi er
Micha, aðstoðarmaður Peters
Hassensteins
kvikmvndatökumanns, að mæla
ljósið. I kirkjudyrunum stendur
Umbi og fyrir framan hann er
Guðrún Þorvarðardóttir sminka.
Hægra megin í kirkjunni sitja
meðal annarra séra Rögnvaldur
Finnbogason á Staðarstað og
ívar Webster körfuboltamaður.
nokkuð sem íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn væru ekkert allt of
vanir.
Alls starfa tuttugu og fimm
manns við myndina fyrir utan leik-
ara og flestir hafa verið á staðnum
frá því að tökur hófust þann 20.
júlí síðastliðinn, nema smiðimir sem
hafa unnið við leikmyndina frá 1.
júní. Um síðustu helgi þegar við
vorum í heimsókn voru um fímmtíu
manns að störfum.
Allir eigendur Kvikmyndafélags-
ins Umba voru þar á meðal og
unnu hörðum höndum öll störf sem
féllu til. Auk þeirra Halldórs og
Guðnýjar eiga þær Kristín Páls-
dóttir, Elín Þóra Friðfínnsdóttir ogf
hljóðkonan Martin Coucke í fyrir-
tækinu. Martin er belgísk og kynnt-
ust þær Guðný á kvikmyndaskólan-
um. Þær hafa haidið sambandi
síðan sem hefur orðið til þess að
þetta er fimmta íslenska kvikmynd-
in sem Martin vinnur við.
Leikmyndin fellur vel að umhverfinu, en allt sem þarna sést er byggt á staðnum. TU vinstri sést „búng-
aló“ Gúdmanns Syngmanns. Þá kirkjan og niðri við sjóinn er gömul rúta þar sem prímusaverkstæði
séra Jóns er tíl húsa. Lengst tíl hægri eru svo bæjarhúsin.
Sigurður Siguijónsson (Umbi), Guðný og Ralph Christian sem fer
með statístahlutverk. Hann starfar jafnframt fyrir Magma-Film og
er aðstoðarframkvæmdastjóri myndarinnar.
kominn í hempuna utan yfír múnd-
eringuna.
Guðný sagðist hafa haft ákveðna
leikara í huga frá upphafí. Fijótlega
eftir að ákvörðun um töku myndar-
innar hafði verið tekin talaði hún
við alla leikarana.
„Það er nauðsynlegt að tryggja
sér leikarana með góðum fyrirvara.
Svo þurfa þeir að vita af þessu í
tima út af ýmsu öðru, svo sem
hárvexti og þess háttar."
Guðný og Halldór voru ánægð
með hvemig myndatakan hafði
gengið. Að vísu hefur gengið á
ýmsu. Til dæmis fauk hluti af leik-
myndinni. En þrátt fyrir það stand-
ast tímaáætlanir nokkum veginn.
Þau brugðu á það ráð að taka upp
inniatriði í versta veðrinu.
— En höfðuð þið aðstöðu til að
taka upp inniatriði hér á staðnum?
„Við bjuggum hana tíl,“ svöruðu
þau.
Fyrirhugað er að ljúka tökum á
Snæfellsnesi 20. ágúst. Þá hefjast
tökur inniatriða á Skeggjastöðum í
Mosfellssveit Þar hafa Umbafélag-
ar tekið upp áður Skilaboð til
Söndru og Stellu í orfofi. Inniatrið-
um verður lokið á tveimur tíl þrem-
ur vikum.
Frumsýning eftir áramót
— Og hvenær fá landsmenn að
sjá árangurinn?
„Hugmyndin er að vinna mynd-
ina eins hratt og mögulegt er, en
líklega næst ekki að ljúka við hana
fyrir jól. Fljótlega eftir áramót ætti
hún að verða frumsýnd. Annars fer
það svolítið eftir tíðarfari," sagði
Halldór. „Það hefur sýnt sig að það
þýðir ekkert að reyna að frumsýna,
hvorki leikrit né nýjar islenskar
kvikmyndir, ef veðrið er vont. Það
skiptir svo miklu máli að aðsókn
sé góð í byrjun."
Umbi fékk tíl liðs við sig þýska
kvikmyndatökumanninn Peter
Hassenstein. Hann hefur áður kom-
ið við sögu hér á landi þvi hann
kvikmyndaði einnig Brekkukots-
annál á sfnum tíma.
Þá voru öll tæki tekin á leigu og
voru flutt hingað í sérstökum flutn-
ingabfl. Guðný sagði að það væri
þægileg tilhugsun að vita tíl þess
að öll tæki virkuðu alltaf. Það væri
í áruhreinsun á Arnarstapa
En nú höfðu allir lokið við að
borða og byijað var að undirbúa
næsta atriði sem tekið var upp í
kirkjunni. Að ýmsu þurftí að huga
áður en hægt var að byrja. Sólin
hafði loksins brotíst fram og það
varð tíl þess að koma þurftí upp
segli til þess að byrgja hana og ná
fram sömu birtu og verið hafði þeg-
ar annað atriði var tekið upp í kirkj-
unni daginn áður.
Elín Þóra reyndi að segja Hall-
dóri tíl þegar hann var að færa
bflana á hlaðinu. Hún studdist við
mynd sem tekin var daginn áður
því bflamir þurftu auðvitað að
standa á nákvæmlega sama stað.
„Dóri," kallaði hún. „Þú verður
að færa bflinn nær kirlgunni og
aðeins framar." Þegar hann var
búinn að því horfði hún á myndina
og hrópaði „Nei, nú fórstu allt of
langt. Þú verður að bakka svolítið."
Svona gekk þetta þangað til hún
varð loksins ánægð með árangur-
inn.
Smám saman gekk þetta allt upp
og leikarar og statistar fóru inn í
kirkjuna. Þá átti eftir að sminka
og snurfusa og allt tók sinn tíma.
Fólkið sýndi ótrúlega þolinmæði
enda tók langan tíma að undirbúa
atriði sem tók örfáar mínútur að
kvikmynda.
En allt tókst þetta að lokum og
þegar tökum var lokið þakkaði
Guðný fólkinu fyrir þolinmæðina
og virtist ánægð með árangurinn.
Nokkurra daga frí var framund-
an og fólkið kvaddist á kirkjutröpp-
unum að gömlum sið. Sumir ætluðu
að drífy sig í bæinn — höfðu ekki
komið þangað f háa herrans tíð —
og aðrir ætluðu í áruhreinsun á
Snæfellsássmótinu á Amarstapa.
Engin þreytumerki voru að sjá á
þessum hressa fólki.
Textí: Ásdfs H&raldsdóttír
Myndir: Kristján G. Amgrímsson
GóÖ leiðtilaðfæmfólk
aftur til bókmenntanna
— segir Peter Hassenstein kvikmyndatökumaður
„Ég varð ástfanginn af landinu
þegar ég var hér við tökur á
Brekkukotsannál árið 1972,“ sagði
Peter Hassenstein
kvikmyndatökumaður þegar ég náði
loksins tali af honum. „Hrifning mín
hefur haldist síðan.“
Peter Hassenstein hefur í millitfðinn gert
tvær heimildamyndir hér á landi. Önnur fjall-
aði um íslenska rithöfunda, en hin um Hall-
dór Laxness.
„Ég hef haldið góðu sambandi við Halldór
og Qölskyldu frá þvf ég kom hingað fyrst og
hef talað við þau í síma reglulega. Þetta sam-
band leiddi til þess að Guðný hafði samband
við mig og lét mig vita um áform sín um að
gera þessa kvikmynd. Okkur samdist svo um
að ég myndi kvikmynda hana.
Ég var að gera kvikmynd í Berlín og henni
lauk ekki fyrr en viku áður en tökur áttu að
hefjast hér. En þeir voru svo almennilegir að
skipuleggja vinnuna þannig að ég gat komið
hingað í tæka tíð.
Það hefur verið rpjög gaman að koma aft-
ur og vinna með þessu fólki. Það vinnur
bæði mikið og vel. Hér er margt mjög vel
gert og má í því sambandi minna á leikmynd-
ina eftir Karl Júlíusson sem er á heimsmæli-
kvarða.
- Er erfitt að gera kvikmynd eftir skáld-
sögu?
„Það er alltaf erfitt að gera kvikmynd eft-
ir skáldsögu. Margir halda því fram að það
sé ekki hægt — maður verði að lesa söguna.
En ég held að nú gefi sífellt færri sér tfma
til að lesa vegna þess að fólk horfír svo mikið
á sjónvarp eða myndbönd. Þess vegna held
ég að þetta sé leið tíl þess að færa fólk aftur
til bókmenntanna.
Fyrir mig sem kvikmyndatökumann skiptír
máli að gera réttu myndimar. Þessi mynd
er ekki venjuleg kvikmynd. Þetta er ekki
spennumynd heldur frásögn. Sögur Halldórs
Qalla um fólk og landslag og eru mjög góð-
ar. Þess vegna líkar mér svo vel við þær.
Mér finnst Guðný vera að gera stórkostlega
hluti og hún tekur hlutverk sitt alvariega,"
sagði Peter Hassenstein að lokum.