Morgunblaðið - 14.08.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 14.08.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ.-SUNNUDAGUR 14.ÁGÚSTU988 41 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Islenskukennari óskast til að kenna útlendingum íslensku á kvöldin. Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir 19.8 merktar: „í - 4351“. Afgreiðslustarf Starfskraftur á aldrinum 30-50 ára óskast til afgreiðslu á lottó- og skafmiðum. Tvískiptar vaktir. Vinnutími mánudaga til föstudaga frá kl. 10.00-14.00 og 14.00-19.30 og annan hvern laugardag kl. 10.00-16.30. Umsóknir sem greini aldur og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 18. ágúst merkt: „September - 4347“. Ritari Erum að leita að ritara til starfa. Starfið felst í aðstoð við rekstur skrifstofunnar, bókhaldi, ritvinnslu o.fl. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á ensku. Skriflegar umsóknir óskast með upplýsingum um menntun og fyrri störf. Strengur verk- og kerfisfræöistofa, Síðumúla 29, sími 685130. Rafmagns- verkfræðingur Rótgróið innflutnings- og verkfræðifyrirtæki á rafmagnssviði, staðsett í Austurborginni, vill ráða rafmagnsverkfræðing til framtíðar- starfa. Starfið getur verið laust strax eða eftir nánara samkomulagi. Starfssvið: Samskipti við erlend fyrirtæki, inn- lenda viðskiptavini, útreikning tilboða, ráðgjöf og önnur skyld verkefni. Góð tungumálakunnátta m.a. nokkur þýsku- kunnátta er skilyrði, einnig þarf að vera fyrir hendi áhugi á tæknilegum viðskiptum. Góð launakjör eru í boði ásamt góðri vinnuað- stöðu. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsókn- ir f fyllsta trúnaði. Umsóknafrestur er til 27. ágúst nk. GuðntTónsson RÁÐCJÖF & RÁÐN l NGARÞJÓN USTA TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI62132? Portafgreiðslumenn Fyrirtækið er ein stærsta byggingavöruverslun landsins. Starfið felst í timburafgreiðslu og öðru tilfall- andi. Hæfniskröfur eru að viðkomandi séu traustir og reglusamir. Kostur er ef umsækjendur eru með lyfjarétt- indi. Afgreiðslustörf Sama fyrirtæki óskar eftir að ráða starfsmenn við kassaafgreiðslu. Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með reynslu af tölvuskráningu. Áhersla er lögð á snyrtimennsku og þægilega framkomu. í boði fyrir ofangreind störf er þægileg vinnu- aðstaða og góð laun fyrir hæfan starfsmann. Um heilsdagsstörf er að ræða og verða ráðn- ingar sem fyrst. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-5. Afleysmga- og rádnmgaþjónusta Lidsauki hf. Skólavörðustig ta - 101 ReyKjavik — Simi 621355 Setning - íhlaupavinna Við leitum að vönum starfskrafti, sem áhuga hefur á að vinna við tölvusetningu (innskrift) í íhlaupavinnu eftir samkomulagi. Góð vélrit- unar- og íslenskukunnátta er nauðsynleg. Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 99, 222 Hafnarfirði, fyrir 27. ágúst. PRISMA Bæjarhrauni 22, 220 Hafnarfirði. menntamála- ráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vantar stundakennara í: íslensku, myndlist; raf- eindatækni, viðskiptagreinar, efnafræði og stærðfræði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist skólameistara Fjöl- brautaskólans í Breiðholti fyrir 20. ágúst næstkomandi. Menn tamálaráðuneytið. Framkvæmdastjóri - landsbyggðin Verslunarfyrirtæki á landsbyggðinni, (innlend og erlend viðskipti), vill ráða fram- kvæmdastjóra til starfa. Viðkomandi getur hafið störf á tímabilinu október til áramóta. Staðgóð viðskiptamenntun, reynsla í við- skiptalífinu og góð bókhaldsþekking er skil- yrði. Góð enskukunnátta er nauðsynleg, þekking í Norðurlandamálum er æskileg. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Aðstoðað verður við útvegun húsnæðis. Allar nánari upplýsingar eru veittar í trúnaði á skrifstofu okkar. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst nk. Gudni TÓNSSON RÁDCJÖF & RÁÐNI NCARÞJÓN USTA TÚNGÓTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl1621322 Laus störf hjá sjónvarpinu Starf dagskrárgerðarmanns í innlendri dag- skrárgerð. Góð almenn menntun er nauðsyn- leg og æskilegt að viðkomandi hafi reynslu eða mepntun í gerð sjónvarpsþátta. Starf ritara dagskrárstjóra innlendrar dag- skrárdeildar. Þekking á ritvinnslu og góð vélritunarkunnátta er nauðsynleg og gott vald á íslensku og einhver málakunnátta. Viðkomandi þarf að hafa hæfileika til að vinna sjálfstætt. Starf rafeindavirkja við útsendingar í sjón- varpi. Unnið er í vaktavinnu. Laun samkvæmt samningum RSÍ. Umsóknarfrestur um fyrrnefnd störf er til 22. ágúst nk. og ber að skila umsóknum til Sjón- varpsins, Laugavegi 176, á eyðublöðum sem þar fást. RIKISUTVARPIÐ Starf í 3-4 mánuði Við leitum að starfskrafti sem getur tekið að sér starf seinni hluta þessa árs og í byrj- un þess næsta. Starfið er fólgið í sölu, dreif- ingu og innheimtu á dagbókum. Starfið getur verið að hluta til heimavinna. Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða. Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 99, 222 Hafnarfirði, fyrir 27. ágúst. Vanir afgreiðslu- menn óskast í byggingavöruverslunina og verkamenn í portafgreiðslu. Upplýsingar hjá verslunarstjóra á staðnum. Bygginga vöruverslun Sambandsins, Krókhálsi 7. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVfK Ahugavert starf Okkur vantar starfsmann að Vistheimilinu við Holtaveg frá 1. september n.k. Á heimil- inu búa 5 fjölfötluð börn og unglingar. Æski- legt er að umsækjandi sé þroskaþjálfi eða hafi hliðstæða menntun. Upplýsingar gefur Inga í síma 31188. Landspítalinn, handlækningadeild 11 G Hjúkrunarfræðingar óskast á handlækn- ingadeild 11 G frá 1. september nk. Um er að ræða vaktavinnu 80-100% starf og nætur- vaktir 60% starf. Unnið 3ju hverja helgi. Sjúkraliði óskast í 80-100% starf á hand- lækningadeild 11 G frá 1. september nk. Vaktavinna, unnið 3ju hverja helgi. Nánari upplýsingar um framangreind störf gefur Ingibjörg Einarsdóttir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, sími 601366. Landspítalinn, bæklunarlækningadeild Hjúkrunarfræðingar óskast á bæklunar- lækningadeild 12 G og 13 G frá 1. septemb- er nk. Um er að ræða vaktavinnu 80-100% starf og næturvaktir 60% starf. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Einars- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 601366. Landspítalinn - Barnaspítali Hringsins Deildarstjóri óskast á barnadeild 12 E sem er almenn lyflækningadeild. Ráðningartími eftir samkomulagi. Hjúkrunarfræðingar óskast á vökudeild, barnadeildir I og II. Litlar deildir, 12 og 14 rúm. Góður aðlögunartími með reyndum hjúkruna- rfræðingi. Fjölbreytt og skapandi starf. Góð vinnuaðstaða. Gott bókasafn og möguleikar á símenntun. Sveigjanlegur vinnutími. Sjúkraliðar óskast á vökudeild, ungbarna- deild og lyflækningadeild nú þegar eða eftir samkomulagi. Litlar þægilegar deildir. Góður aðlögunartími. Fjölbreytt og áhugavert starf. Góð vinnuaðstaða. Sveigjanlegur vinnutími. Nánari upplýsingar um framangreind störf gefur hjúkrunarframkvæmdastjóri, Hertha W. Jónsdóttir, sími 601033. Reykjavík, 14. ágúst 1988, Ríkisspítalar - Landspítali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.