Morgunblaðið - 14.08.1988, Page 52

Morgunblaðið - 14.08.1988, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 Margret Jónsdóttir Blönduósi Fædd 23. janúar 1915 Dáinn 19. júní 1988 Margrét hvarf hljóðlega úr þess- ari jarðvist, án allrar fyrirferðar. Hún hafði heldur aldrei verið gefín fyrir að láta á sér bera, hvorki í orðum né athöfnum. En hún var heil og sönn í öllu og traustur vinur vina sinna. Helga, skólasystir Möggu, rakti lífsferil hennar í minningargrein sem birtist 13. júlí sl. svo að ég tfni aðeins til fáein minningabrot. Ég var 13 ára þegar ég sá Möggu fyrst leika í Kvennaskólanum á Blönduósi í leikritinu „Upp til Selja". Hún var falleg stúlka með ljóst, sítt hár og lék af svo miklum krafti að eftir varð tekið. Ég dáði hana sem leikkonu æ síðan. Margrét Valdimarsdóttir, móðir Möggu, var góð leikkona og hafði fallega söngrödd. Hún féll frá í blóma lífsins, daginn eftir að Magga fæddist. Magga hlaut nafn hennar og leik- og sönghæfileika í vöggu- gjöf. Magga talaði alltaf um fósturfor- eldra sína og fóstursystur með mik- illi ást og virðingu og' samband ! systranna var einstaklega náið og kærleiksríkt. Fósturfaðir hennar, Jakob Karls- son, var útibússtjóri Eimskipafé- - Minning lagsins á Akureyri og mikill at- hafnamaður. Hann rak umfangs- mikið bú á Lundi og var þar jafnan margt í heimili. Systumar ólust upp við öll algeng störf, úti sem inni. Magga minntist líka oft á góðan heimilisanda og margt var sér til gamans gert innan vébanda heimil- isins. Margrét var ákaflega dugleg og vinnusöm kona og hafði oft mikið umleikis. Það var merkilegt hve mikinn tíma hún hafði til félags- starfa auk alls annars. Ég kynntist henni fyrst er við lékum saman í sýningum Leikfélags Blönduóss. Ég hafði raunar kviðið því að leika með svo sviðsvönu fólki, Möggu, Bjama og Tómasi. En ekkert þeirra var þannig gert að setja sig á háan hest gagnvart óvönum og þau tóku mér öll vel. Magga var ekki afskiptasöm við unga leikara þó að hún hefði langa reynslu að baki. Ef ég ætlaði að leita ráða hjá henni var viðkvæðið jafnan: „Blessuð góða, vertu eins og þér fínnst eðlilegast." Magga saumaði og annaðist bún- inga í mörg ár og alltaf var sauma- stofan á heimili hennar. Ég hljóp til hennar eða hún kom til mín ef ég þurfti leiðsagnar við og við áttum þá margar skemmtilegar stundir saman. t MARÍA HELGADÓTTIR frá Klettstíu er andaðist í sjúkrahúsi Akraness 6. ágúst sl. verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi mánudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Vandamenn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRÍMANN STEFÁNSSON, Blómsturvöllum, Mosfellsbæ, lést í Landspítalanum 12. ágúst sl. Sveinn Frímannsson, Sædfs Vigfúsdóttir, Ásdís Frimannsdóttir, Jónas Björnsson, Halldór Vignir Frímannsson, Lilja Dóra Victorsdóttir og barnabörn. t INGIBJÖRG THORS veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Marta, Ingibjörg, Margrét, Stefanía og Thor Ó. Thors. t Minningarathöfn um EGIL SIGURÐSSON, Álafossi, sem lést í Borgarspítalanum 9. ágúst, verður haldin fimmtudaginn 18. ágúst í Lágafellskirkju kl. 14.00. Jarðsett veröur frá Helgafells- kirkju í Helgafellssveit föstudaginn 19. ágúst kl. 14.00. Ferð verð- ur frá Umferðarmiðstööinni kl. 9.00 sama dag. Þeim sem vildu minnast hans, er bent á minningarsjóð Þórleifar Siguröardóttur, Ijósmóður, Arnarstöðum. Siguröur Sigurðsson Þorbrandur Sigurðsson. t Öllum þeim sem á einn eða annan hátt heiöruðu minningu hús- móðurinnar í Byggðarhorni, Sandvíkurhreppi, Árnessýslu, JÓNÍNU SIGURJÓNSDÓTTUR, sendum við alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug með ósk um guðsblessun. Geir Gissurarson, Gissur Geirsson, Ásdis L. Sveinbjörnsdóttir, Úlfhildur Geirsdóttir, Sigvaldi Haraldsson, Hjördis Geirsdóttir, Þórhallur Geirsson, Gisli Geirsson, Ingibjörg K. Ingadóttir, Brynhildur Geirsdóttir, Kristján Einarsson, barnabörn og barnabarnabarn. Magga lagði oft of mikið á sig fyrir Leikfélagið þó að heilsan væri farin að bila — að okkur fannst mörgum - en hún vildi aldrei láta sitt eftir liggja ef Leikfélagið átti í hlut Við vorum saman í saumaklúbbi í nokkur ár og ég veit að vinkonur hennar, sem með okkur voru, minn- ast eins og ég þeirra góðu stunda. Því fylgir einkennileg tilfínning að geta ekki komið við hjá Möggu í Blöndubyggð 4 þegar gengið er götuna með ánni. Éða farið í heim- sókn og rætt saman um lífíð og tilveruna. Ég hvfldist svo vel ef ég var ein með Möggu, hún var hæg- lát, greind og skilningsrík og ég fræddist um margt frá liðnum tímum. Magga var bömum sínum góð og ástrík móðir og vildi hafa fjöl- skylduna sem oftast í kringum sig. Það var ákaflega gestkvæmt og erilsamt hjá Margréti og Ágústi alla tíð, einkum þegar þau önnuð- ust bensínafgreiðsluna. Ágúst lést 1984. Þau hjón voru bæði góðir og Stórborgin skæra Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Skær ljós stórborgarinnar („Bright Lights, Big City“). Sýnd í Bíóhöllinni. Bandarisk. Leikstjóri: James Bridges. Handrit: Jay Mclnerney eftir samnefndri sögu hans. Framleiðendur: Mark Rosenberg og Sydney Pollack. Kvikmynda- taka: Gordon Willis. TónUst: Don- ald Fagen. Helstu hlutverk: Michael J. Fox, Kiefer Suther- land, Phoebe Cates, Swoosie Kurtz og Frances Sternhagen. Uppaöldin bandaríska á sína skrásetjara og einn af þeim er rit- höfundurinn Jan Mclnemey sem árið 1984 skaust uppá stjömuhim- ininn með hinni hálf-sjálfsæfísögu- legu skáldsögu „Bright Lights, Big City“ sem fjallaði um sjálfseyðing- arhvöt Manhattanuppans og kók- aínsniffarans Jamie Conway, bar- áttu hans við sjálfan sig, sorglegar minningar og æsandi næturlífíð í New York. Eftir mikla framleiðsluerfíðleika var sagan fest á fílmu og það er erfítt að sjá á myndinni, sem sýnd er í Bíóhöllinni, af hveiju bókin vakti jafnmikla athygli og raun bar vitni (prentuð í 19 upplögum, þýdd á 15 tungumál). Það er eins og eitt- hvað mikið hafí farið úrskeiðis á leiðinni frá blaðsíðunum á tjaldið. Fyrri helmingur myndarinnar, sem kynnir Conway (Michael J. Fox) til sögunnar og lýsir lifnaði hans og kringumstæðum í New York, er hraður og efnilegur og vekur hlátur og forvitni, myndaður af New York-sérfræðingnum Gord- on Willis. Conway er að reyna að vera rithöfundur en smátt og smátt er eins og gæðaduftið’ frá Bólivíu sé að taka völdin; honum gengur hræðilega í vinnunni, minningin um móður hans sem lést úr krabba- meini fyrir ári þjáir hann og eigin- kona hans, glæsileg sýningarstúlka, hefur hringt frá París til að segja að hún sé hætt með honum. Útlitið ekki bjart en hann hefur alltaf næturlífið og bólivíuduftið í nösun- um þótt það sé frekar erfítt að ímynda sér að snörli í nefninu á fjölskylduleikaranum Michael J. Fox. Hvað um það. Myndinni hefur tekist að hanka mann hingað til. En síðan liggur leiðin niðurávið. Fox verður æ ólíklegri í hlutverkinu sér- + Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug viö frá- fall og útför MÁLFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Þórólfsgötu 12A, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til sr. Jóns Bjarmans og starfsfólks deildar 14G, Landspítalanum. Gísli Bjarnason, Sigurður Kristjánsson, Sigurður Valur, ÓlafurWaage, Gunnþórunn Birna, Guöbjörg Björnsdóttir, Jón Valgeir, Elias Bjarni, Magnús Þorkell og barnabörn. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjof um gerð og val legsteina. \ 1 S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48-SÍMI 76677 LE Mi Hamars GSTEINi $ J S (0 0) o OSAIK H höfða 4 — Sími gegnir Blöndósingar. Ég kveð þau með virðingu og þökk. „Senn verður gröfín gróin grösum úr jarðarfeldi. Fram undan liggur flóinn, fagurrauður að kveldi." (Höf. ókunnur) Innilegar samúðarkveðjur til bama hennar og fjölskyldna og systra hinnar látnu. „Þó við skiljum um stund, þá mun fagnaðarfund okkar fljótt bera aftur að höndum, því að hjólið fer ótt, því að fleyið er flótt, er oss flytur að glólundarströndum." (Jónas Hallgrímsson) Ég þakka Möggu vináttu og tryggð liðinna ára. Guð blessi minn- ingu hennar. Þessi mynd sem hér fylgir er af Möggu í hlutverki ömm- unnar í „Franska ævintýrinu". Þá átti hún 25 ára leikafmæli. Helga Guðmundsdóttir Vinir i sukki; Kiefer Sutherland og Michael J. Fox í myndinni Skær ljós stórborgarinnar, sem sýnd er i Bíóhöllinni. staklega í tilfinningahlöðnum atrið- um; stóru ástæðumar fyrir því að svo illa er komið fyrir söguhetj- unni, dauði móðurinnar og hvarf ástarinnar, sem hugmyndin hefur verið að rekja í afturhvörfum, eru að mestu klipptar í burtu og vekja aldrei samúð. Dianne Wiest, sem leikur móðurina, er næstum öll klippt úr myndinni og fráhvarf Con- ways úr sukkinu, þegar hann hefur loks fundið ró í sínum beinum, er spilað á væmnum nótum (lýst á einfeldningslega táknrænan hátt þegar hann skiptir á skæslegu uppasólgleraugunum og brauð- hleifí). Bíógestir hlógu iðulega þeg- ar engin ástæða var til sem er skýrt dæmi um rangar áherslur leikstjór- ans James Bridges („The China Syndrome"). Kiefer Sutherland leikur vin Con- ways og er næstum alveg óútskýrð persóna eins og fleiri í þessari mynd en Kiefer er frábærlega eðlilegur frammi fyrir myndavélunum. Hinir öldruðu Jason Robards og John Houseman fara með gestahlutverk og eru augnayndi, sérstaklega Rob- ards í hlutverki fyllibyttu. Blómastofa Friöfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öli kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öli tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.