Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 Marteinn kokkur kominn í móttökuna að gogga karfann í skolkarið á meðan strákarnir láta trollið fara. Allt kapp var lagt á að ganga vel frá aflanum í lestiná. Boltaþorskur gaf sig helst um miðja nótt. Ferskfiskútflutningsbannið TEKJUSKERÐINGIN HJA OKKUR NEMUR 50% sagði Sœvar Ólafsson skipstjóri á SólfaraAK 170 „Fjöldi sjómanna er urrandi reiður út af gámaútflutnings- banninu, þó það hafi ekki farið hátt, enda hefur tekjuskerðingin verið um 50%. Við höfum góðan samanburð við Fönix KE sem hefur fiskað svipað magn hér á Eldeyjarslóðinni en fengið að setja í 7 gáma í þéssum mánuði og gerir aflaverðmætið hjá hon- um yfir fjórar milljónir á meðan við rétt losum tvær milljónir króna, heimalandað," sagði Sæv- ar Ólafsson, skipstjóri á Sólfara AK 170, þegar Morgunblaðið heimsótti hann á miðin út af Eld- ey fyrir skömmu. Sólfari var á rækju síðastliðið sumar Sólfari AK er frá Akranesi en áhöfnin er frá Sandgerði, nema hvað vélstjórin er Skagamaður. Sólfari var á rækjuveiðum í fyrra sumar með frystiútbúnað um borð en útgerðin gekk ekki nægilega vel og því var gripið til þess ráðs að kasta rækjuútbúnaðinum í land og gera skipið út á troll og fiska fyrir gámaútflutning. Sævar Ólafsson, skipstjóri á Sól- fara, var með Reyni GK frá Sand- gerði og vann mikið björgunarafrek síðastliðið haust er hann bjargaði tveim mönnum í innsiglingunni til Sandgerðis eftir að bátur þeirra sökk. Þegar Reynir GK þurfti að fara í slipp bauðst honum Sólfari AK og hugðist hann breyta til og tvö- falda laun sín því aflanum af Reyni GK var alltaf landað á föstu verði til eigenda bátsins sem eru með verkun. Erlendi markaðurinn þolir meira „Sem dæmi um tekjuskerðinguna sem við höfum orðið fyrir má nefna, að við fengum 7 tonn af mjög væn- um þorski sem seldist á fískmarkað- í morgunsárið voru hífð 5 tonn af ufsa og ýsu. Eldey í baksýn. Sólfari AK togar á karfaslóðinni austur af Eldey.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.