Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 rimi). nnsH eir hafa undarleg áhugamál þessir tölvunarfræðingar," segir Pjetur G. Hjaltason hugsi og tottar pípuna sína. Sjálfur segist hann vera heimakær fjölskyldumaður sem Iiggi í bókum, en viðurkennir þó að tölvan hafi verið ein dellan af mörgum sem hann hafi fengið um ævina. En þegar hann stofnaði fyrirtækið Hugbúnaður sf. ásamt bræðrum sínum og fleiri góðum mönnum, þá var stefnan í upphafi sú, að velja verkefni sem þeir hefðu gaman af, því þetta átti ekki að vera neinn stórgróðabisness heldur skemmtilegt lífsstarf. Pjetur segist hafa tekið eftir því að forritarar eigi margt sameigin- legt þegar um áhugamál er að ræða. „Margir stunda siglingar og álíka íþróttir, eiga jeppa sem þeir þeys- ast um landið á, og fá yfírleitt dellu fyrir flestu sem er á tæknisviði. Já, ég held þeir vilji bara hafa líf í kringum sig.“ — Og þú ert líka „dellukarl“? „Ég var mikið í siglingum hér áður fyrr, og ég á jú jeppa sem ég ferðast á um landið, því mér fínnst gott að vera í ró og friði upp á íjöll- um. Annars hefur mig alltaf langað í flugið, hver veit nema það rætist einhvem tíma! En ég er ekkert gef- inn fyrir íþróttir, var í antisportista- félaginu í menntaskóla, og mínar dellur kannski frekar verið á raf- eindasviði.“ Það var í Menntaskólanum í Kópavogi sem Pjetur komst í fyrstu tölvuna, og síðar fór hann á nám- skeið í háskólanum í tölvunar— fræði.„Reyndar fór ég í bygginga- verkfræði, en var alltaf með aðra löppina hjá'strákunum í tölvudeild- inni. Eftír þrjú ár sá ég að ekkert vit var í þessu og fór að vinna við forritun hjá Verkfræðistofnun Há- skólans." Pjetur hefur enga tölvu heima, því fjgár fímm árum ákvað hann að flytja tölvumar, og fyrirtækið, af heimilinu þar sem það hafði ver- ið síðan ’82 og í vinnuna, eins og hann segir. Fyrirtækið starfar á ákveðnum sviðum, hefur séð um tölvusam- skipti fyrir ýmis fyrirtæki, svo og skeytakerfí fyrir Veðurstofuna og forritað m.a. fyrir Visa og Pjárfest- ingarfélagið. Éinnig hafa þeir verið BOKAORMURINN „Eg er heimakær fjölskyldumaður sem liggur • í bókum, en tölvan var ein af dellunum sem ég hef fengið." með tölvumyndir og tölvugrafík og forritað búðarkassakerfi. Starf Pjeturs er einkum fólgið í kerfis- forritun, sem er grunnforritunin í kerfínu. Þegar ég spyr hann hvort það sé í rauninni ekki kúnstin á bak við þetta allt saman, þá glottir hann og segir að tölvur séu nú svo óskap- lega vitlausar, þær geri allt sem þeim sé sagt. „En það er skemmtilegt að fíkta f þessu og það er ákveðin list að skrifa falleg forrit, svona eins og að tefla fallega skák. En menn verða ekki auðugir á þessu þótt það sé einhver tíska að halda það. í skoðanakönnun sem gerð var kom egar snjór er kominn niður í miðjar hlíðar á Esjunni, fer tölvun- arfræðingurinn frá Snæfellsnesi, Bjami Júlíusson, að ókyrrast því þá vill hann komast í qupu. Á bak við hann blasir fjallið út um gluggann og reynir að lokka hann frá tölvunni sem trónir fyrir framan hann, en það gengur oft treglega því bæði skipa háan sess í huga hans. Hann fór suður á. sínum tíma til að nema rafmagnsverkfræði, en „kynntist" tölvunni og kennir nú tölvunarfrasði við Háskóla íslands og er annar eigandi fyrirtækisins TölvuMyndir hf. „Það er nauðsynlegt að fá frí frá tölvunni og fara í veiðimennsku, laxveiðar á sumrin og qúpu á vet- uraa. En svo kemur þessi dauði tími á árinu sem gerir mann alveg ómögulegan, svo nú ætla ég að læra að hnýta flugur á útmánuð- um,“ segir Bjarni hressilega. Ég spyr hann í gamni hvort hon- ‘ um þyki ekki orðið vænt um tölv- una sína? „Jú, mér þykir bara vænt um hana,“ segir Bjami og klappar „ungfrúnni“ aðeins. Ég sit nú við hana dtjúgan tíma hvem dag og það er ágætis tilfínning að finna hvemig vélin fylgir öllum skipunum manns. Mér er sagt að flugmenn fái þessa sömu tilfinningu!" — Er kannski allt tölvuvætt heima hjá þér? „Nei, nei! segir hann með mikilli áherslu, ég er með eina tölvu heima, annars er heimili mitt bara ósköp venjulegt.“ Og ég trúi honum alveg því skrif- stofa hans er prýdd hugmyndarík- um og heimilislegum listaverkum bama hans. Bjami er kvæntur Jónu Vigfúsdóttur og eiga þau 3ja ára dreng og 11 ára stúlku. Hann fór í framhaldsnám til Bandaríkjanna og tók masters- gráður í tölvunarfræði og rekstrar- hagfræði. Árið 1986 stofnaði hann ásamt Friðrik Sigurðssyni fyrirtæk- ið Tölvumyndir hf. „Við Friðrik kynntumst í menntaskóla og það var skrifað í stjömumar að við myndum gera eitthvað saman síðar. Við sérhæfðum okkur í tölvu- VEIDI- MAOURINN „Það er nauðsynlegt að taka frí frá tölvunni og fara í laxveiðar á sumrin og rjúpu á veturna." grafík og höfum verið með slík verk, en það er ekki stór markaður fyrir grafísk verkefni innanlands. Fyrir- tækið hefur stækkað og leitað fanga víðar og höfum við mest ver- ið í gagnasafnsverkefnum, en reyn- um þó að hafa þessa myndrænu framsetningu að leiðarljósi. Við komum inn á markaðinn á góðum tíma, sáum um hugbúnað fyrir kosningasjónvarpið á Stöð 2, og höfum einnig verið með skák- búnaðinn fyrir heimsbikarmótið. Síðan höfum við unnið mikið fyrir ríkisstofnanir og almenn fyrirtæki, erum núna með stórt verkefni fyrir ÍSAL. Við kepptum við Bandaríkja- menn um það verk og höfðum bet- ur. Var það mjög ánægjulegt því yfírleitt hafa íslensk fyrirtæki farið halloka fyrir þeim erlendu." Bjarni segist forrita lítið nú orðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.