Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 C 45 400 sem ekki eru á f læðiskeri Bandarískatímaritið Forbes birtinýlega árlegan lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina og kemur þar fram, að fjölmiðla- jöfiirinn Rupert Murdoch hafi orðið fyrir mestum skakkaföllum að undanförnu. Á einu ári hefiir hann tapað helmingi eigna sinna, sem voru 2,2 milljarðar dollara, rúmlega 100 mil^jarðar ísl. kr., og hefur hrapað úr áttunda sæti Í29. Hrunið á verðbréfamörkuðunum í október í fyrra lék Murdoeh illa eins og marga aðra en saman- lagðar eignir 400 auðugustu mann- anna eru þó þær sömu og fyrir ári eða 220 milljarðar dollara. Til að komast í þennan öfundsverða hóp verða menn að eiga minnst 225 milljónir dollara eða rúmlega 10,5 milljarða ísl. kr. Auðugasti Bandaríkjamaðurinn er enn sem fyrr Sam Walton, sem nú stendur á sjötugu. Hann á Wal- Mart-verslanakeðjuna, þriðju stærstu smásöluverslunina í Banda- ríkjunum með 15,9 milljarða dollara sölu árlega. Á einu ári hefur auður- inn hans Waltons þó minnkað um 1,8 milljarða dollara og stendur nú í 6,7 milljörðum. Getur hann kennt októberhruninu um það. Annar ríkasti maðurinn er John Werner Kluge, hálfáttræður að aldri og eigandi Metromedia. Er hann metinn á 3,2 milljarða doll- ara. Sá þriðji er Henry Ross Perot, 58 ára gamall eigandi Electronic Data Systems í Dallas í Texas, en hann er sagður eiga þijá milljarða dollara í handraðanum. Árið 1979 tókst honum að bjarga tveimur starfsmanna sinna úr fangelsi í íran og bauðst til að greiða fyrir frelsi bandarískra gísla þar og í Líbanon. Samkvæmt Eoröes-listanum, sem rauhar er birtur án ábyrgðar, er 51 milljarðamæringur í Banda- ríkjunum. Af þeim 400 ríkustu hafa 87 auðgast á fasteignaviðskiptum, 75 á framleiðslu ýmiss konar, 73 á ijölmiðlarekstri, 65 á fjármálastarf- semi, 30 á olíuvinnslu, 21 á verslun- arrekstri og aðeins 16 hafa fundið sitt fé í landbúnaðinum. Mjög stór hópur þessara auð- manna fæddist með fullar hendur fjár; 154 fengu ríkidæmið í arf. Hefur þeim þó fækkað allmikið frá árinu 1982 en þá voru þeir 206 talsins. Á listanum eru 52 mann- anna nýgræðingar og komu í stað jafn margra, sem féllu burt. Forbes-tímaritið nefnir nokkrar líklegar leiðir til að komast á auð- mannalistann og má af þeim nefna kapalsjónvarp, fasteignaviðskipti, rekstur verslanamiðstöðva og lista- verkasölu. -BEN BARBER Scania 141 6xDx2 1980 Úrvals bíll ekinn aðeins 230 þús km. Nýmálaður, nýr pallur, yfirfarið drif og gírkassi, Robson-drif. Bíllinn er vel dekkjaður og í toppstandi. Til sýnis í Skógarhlíð 10, Reykjavík. Upplýsingar hjá sölumönnum. ÍmtfN H.F. sími 20720. Hjólkoppaúrval, verð frá kr. 1495,- settið 4 stk. Öryggisþríhymingur kr. 462,- naust BORGARTUNI26 SÍMI 622262 Rúllugardínur í afturglugga, verð frá kr. 840,- Hjólatjakkur 1,5 tonn, kr. 4490,- Hjólatjakkur 2 tonn, kr. 4990,- Aukaluktaúrval, verð frá kr. 2200 settið Tímaljós (tímabyssur) verð frá kr. 2264,- Stillimælar, verð frá kr. 2310,- Ómissandi hallamælir fyrir alla bíla, verð kr. 1890,- HERRAHÚSIÐ LAUGAVEGI 47flDfMltfr Glæsilegt úrval af herrafatnaði frá -IPfolbe - Danmörk VW. Cfiti PRINCIPE - Hollandi MILLIBAR CIAO - Ítalíu lierra^ húsió> dZSGBBBÆBSlEBBBEBi r 47 tqörgwSur Herrahúsiðl Sími 29122 - 17575. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.