Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 43

Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 C 43 Pálína Eggertsdóttir Bryrýólfur Bjarkan skoðun á því hvaða bækur séu áhugaverðastar af þeim sem nú eru að koma út en margt af þessu eru áreiðanlega góðar bækur. Það eru sennilega veiðibækumar sem ég hef mest gaman af. Annars les ég miklu minna núna en áður, sjálfsagt er það sjónvarpið sem á sinn þátt í því. Ég kaupi bækur aðeins til jólagjafa og hef venjulega fengið 5 eða 6 bækur í jólagjöf sjálf- ur. Gullskipið fiindið Þeir V agn Leví og Ivar Rafn Jónsson voru að skoða barna- og unglingabækur. Við spurðum hvaða bók þeir litist best á af þeim sem þama voru í boði. Gullskipið fundið eftir Ármann Kr. Einarsson, það er áreiðanlega skemmtileg bók, sagði Vagn Leví. Annars höfum við líka mjög gaman af teiknimyndabókum svona eins og bókunum um Lukku Láka, sagði Ivar Rafn. - En hvað um sjónvarpið og mynd- böndin, glepur þetta ekki frá bók- lestri? Jú, það fer mikill tími í sjónvarps- glápið en krakkar lesa áreiðanlega mikið ennþá. Bókin heldur velli þrátt fyrir samkeppnina, sögðu þeir félagar. Engin jól án bóka í Bókaverslun ísafoldar í Austur- stræti var töluvert um að vera og nóg að gera í afgreislunni. Pálína Eggertsdóttir, eða Stella í ísafold eins og hún er oftast kölluð, gaf sér þó tíma til að svara nokkrum bókaspurningum. Já, það er komin þó nokkur hreyfing í bóksöluna og má segja að hún hefyist snemma í ár, sagði hún. Bækumar virðast seljast vel þrátt fyrir samdráttinn í efna- hagslífinu. Fólk talar mikið um auraleysi en það er eins og enginn geti hugsað sér jól án bóka. Fólk neitar sér kannski um hangikjötið til að geta keypt bækur. Eða ef til vill er skýringin sú að það er ekki hægt að kaupa íslenskar bækur í Glasgow. - Hvað um bókaverðið í ár? Ég tel að bókaforlögunum hafi tekist að halda verðinu mjög lágu núna og reyndar sér til skaða. Bókaverðið núna er mjög sann- gjarnt og hefur hækkað lítið frá því í fyrra. Sem dæmi mætti taka Sögu Reykjavíkur eftir Pál Líndal. Hún kostaði í fyrra um 4.400 krón- ur en kostar nú um 4.900 krónur. Það er ekki mikil hækkun miðað við flest annað. Bókagerð virðist eitt af því fáa sem við íslendingar emm samkeppnisfærir í miðað við aðrar þjóðir, verð á innbundnum bókum hér er lægra en vísast hvar annars staðar í nágrannalöndunum. Hvers vegna öku- ljós í dagsbirtu? A Til Velvakanda. umferðarlögum sem tóku gildi 1. mars 1988 , 112 gr., segir : „Umferðarráð á að vera stjóm- völdum og öðrum til ráðuneytis um umferðarmál, það á að fylgjast með þróun umferðarmála erlendis og hagnýta reynslu og þekkingu ann- ara þjóða á því sviði." Hér á landi miðnætursólar er dags- birta meiri en í flestum löndum öðrum. Þrátt fyrir það er ísland eina landið í heiminum þar sem lög- boðið er að nota ökuljós, þ.e. tvis- ara sinnum 50 - 60 W, í dagsbirtu. í öðmm Iöndum er það bannað og liggja við sektir ef útaf er bmgðið. Ég vil spyija umferðarráð af hverju svo sé. Það ætti ekki að verða er- fitt um svör ef ráðið hefur farið að áðurnefndum lögum. Einnig væri fróðlegt að fá svör við því hvort umferðarslysum hefur fækkað með tilkomu ökuljósa í dagsbirtu. Mér er ekki gmnlaust um að ökuhraði hafi aukist í seinni tíð. Ökuljós í björtu og bílbelti geta skapað falskt öryggi. Eflaust mætti fækka slysum með því að fram- fylgja lögum um ökuhraða. Þeim verður ekki fækkað með ökuljósum í dagsbirtu. Kostnaður vegna óþarfa ökuljósa er milljónir króna á ári og hækkar í hlutfalli við hækk- un bensínverðs. Ég skora á um- ferðarráð að kynna sér þekkingu annara þjóða og hagnýta sér hana í sambandi við margumtalaða öku- kennslu og fleira og á ég ekki við Norðurlönd ein þegar ég tala um aðrar þjóðir. Ég vona svo að okkur takist að bæta umferðarmenningu okkar, ekki mun af veita.“ Ökumaður spurt og svarað ÁSDÍS SVEINBJÖRNSDÓITIR, SELFOSSI Eru væntanlegar minni pakkningar af ijóma heldur en pelafemur? Ernýijóg- úrtísinn nokkuð væntan- legur í neytend- aumbúð- um? Birgir Guðmundsson mjólkur- bússljóri Mjólkurbús Flóamanna. PyiD Það er ekki í ráði að fram- UlHll leiða ijóma í minni pakkn- ingum en pelafemum. Við höfum ekki fengið neinar óskir um það frá neytendum að ijómi verði seldur í minni pakkningum en að sjálfsögðu myndum við athuga þetta ef nógu stór hluti neytenda óskar þess. Varðandi jógúrtísinn er það að segja að hann er einungis framleidd- ur fyrir íshöllina sem hefur einka- rétt á þessari ísblöndu frá banda- rísku fyrirtæki. Þessi framleiðsla verður að fara í gegnum ísvélar sem fæstir hafa aðgang að og er því þýðingarlaust að setja hana í neyt- endaumbúðir. PETREA FRIÐRIKSDOrriR, REYKJAVÍK WT Em bingóseðlar Stöðvar I 2 og Styrktarfélags Vogs undanþegnir verðstöðvun? Þeir hækkuðu nýlega úr 150 krónum í 250 krónur. Pyip Mat lögfræðings Verðlags- uTHIl stofnunar var að þetta félli ekki undir ákvæði um veiðstöðvun. Umrædda seðla er hvorki hægt að flokka undir vöm né þjónustu held- ur er um að ræða eins konar happ- drætti þar sem tengsl era á milli vinningsupphæðar og verðs bingó- spjalda. Dómsmálaráðuneytið veitir leyfí fyrir starfsemi happdrætta og leggur væntanlega mat á hlutfall vinninga af heildarapphæð í þessu tilviki eins og hjá öðram happ- drættum. ANNA P. SIGURÐARDÓTTIR, KEFLAVÍK. nT Mig langar til að spyija I íþróttaíréttamenn Morgunblaðsins hvers vegna svo lítið hefiir verið fjallað um körfu- bolta í íþróttafi'éttum blaðsins. Skapti Hallgrímsson íþrótta- fréttamaður. Körfuknattleikur hefur að mínu mati fengið sann- gjama umfjöllun á síðum Morgun- blaðsins í vetur. Segja má að alvar- an heijist þó ekki fyrr en í vor , er úrslitakeppnin fer fram en nokk- ur lið deildarinnar eru þegar komin með annan fótinn þangað; UMFN, Valur, ÍBK og KR. Haukar, ÍR og Grindavík gætu vissulega blandað sér í baráttuna, en samt sem áður er spennan ekki ýkjamikil nú. Þeir leikir sem telja má „alvöra“-leiki það sem af er hafa fengið góða umfjöllun en það segir sig sjálft að varla er hægt að búast við að leikir þar sem telja má áhorfendur á fíng- ram beggja, eða jafnvel annarar handar, séu mjög vinsælir. SVAR HREINN GARDABÆ, HAFLIÐASON, nT Ætlar sjónvarpið að I sýna aftur Bonanza þættina? Guðmundur Ingi Kristjánsson hjá Sjónvarpinu. Pyip Þessir þættir vora fram- ulRR leiddir fyrir löngu og sýndi sjónvarpið þá fyrir nokkrum áram. Það er ekki fyrirhugað að endur- sýna þá. Veislan kostar aöeins kr. 950 ogþetta færðu: OG TILAÐKÓRÓNA \ŒISLUNA!!! HÚSIVERSLUNARINNAR - KRINGLUNNI - SÍMI685018 - 33272. VERIÐ VELKOMIN T^eitiitgahöllin Veitingahöllin býður til meiríháttar veislu allar helgar fram aðjólum fyrirþá, sem eru í starfsönnum og jólaundirbúningi heima. Rússneskt síldarsalat, karrýsíld, sherrysíld, seitt rúgbrauð og smjör, graflax m/sinn- epssósu og ristuöu brauði, heita sjávarrétti í Thermidorsósu, ofhbakaðan saltfisk að hætti Portúgala, blandaðan skelfisk í hvítvínshlaupi m/franskri dressingu, sveitapaté m/rífsberjasósu, svínarúllupylsu m/kjöthlaupi, sviðasultu m/rauðbeðum, kaltjólahangikjöt m/uppstúfí oggrænum baunum, villibráðarkryddað buffmeð rjómasósu, ítalskan Lasagne rétt, kara- mellurönd, rís a’la mande, ávaxtaterta. Innifalið í verðinu eru okkar landsfrægu rjúkandi rjómasúpur, 20 tegunda salatbar ogkaífi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.