Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 DAGDRAUMAR Bubbi hitti Megas fyrst í þrítugsafmœli hans á Mokka og nú, 13 árum síðar, senda þeir frá sér sameiginlega plötu eftir Vernharð Linnet BLÁIR DRAUMAR heitir nýja skífan þeirra. Þeir hafa ekki unnid skífu saman fyrr þó þeir hafi ferðast syngjandi með gítarana um dreifðar byggðir landsins og sungið einn og einn dúett saman á plötu. Einhvernveginn hefur þjóðin það á tilfinningunni að Bubbi og Megas hafí alltaf verið saman, í það minnsta efftir sjónvarpsviðtalið sem Megas tók við Bubba, og Bubbi við Megas — seinna. Þeir eiga líka fleiri sameiginlegt en tónlist- ina — hafa ruglað meira en gerist og gengur — en nú eru þeir lausir við flest nema kaffið. Bláir draumar er ólík fyrri skífum þeirra félaga að mörgu leyti, en þó er eðlið hið sama. Blúsinn gægist víða fram og djassinn er sterkur í hljóðfæraleiknum. Þó er þetta engin djassplata — langt frá því - heldur er andinn ekki ósvipaður því er gerðist á dægurla- gaplötum fyrir daga rokksins. Sá andi ríkir öðru ofar á nýútkominni geislaskífu með Hauki Morthens þar sem endurútgefin eru tuttugu og §ögur laga hans frá fyrri tíð og það er dálítið gaman að því að gítar- leikarinn á plötu Bubba og Megasar er Jón Páll Bjarnason sem var gítar- isti í tríói Gunna Sveins (Gunnars Reynis) sem Haukur sötíg með og má finna lag með á disknum. „Ég vildi fá annað gítarsánd en hefur verið á plötum mínum,“ sagði Bubbi er ég hitti þá félaga um dag- inn. „Þess vegna varð Jón Páll fyr- ir valinu.“ Bubbi er ekki ókunnur djassinum. „Ég var á Django Rein- hard flippi lengi og lærði fyrst og fremst ryþmaleikinn af meistaran- um. Það notfærði ég mér á ísbjarn- arblús. Af öðrum Frakka lærði ég margt í gítarpikki. Marcel Dadi heitir hann — meiriháttar snilling- ur.“ Það eru fleiri hljóðfæraleikarar en Jón Páll á Bláum draumum. Tómas R. Einarsson slær bassa og Björn Baldursson trommur, Össur Geirsson blæs í básúnu og Ólafur Flosason í óbó, og svo kemur Kenn- eth Knudsen á hljómborð. Kenneth Knudsen er einn fremsti hljómborðsleikari Evrópu og muna hann allir sem voru á tónleikum hans, Niels-Hennings og Palle Mikkelborgs í Bláa tjaldinu á N’art-hátíðinni í Reykjavík. Hann hefur leikið með allskonar hljóm- sveitum í Danaveldi: djass, rokk og bræðing. Píanóið er aðalhljóðfæri hans á Bláum draumi en hljóðgervl- amir em þandir á stundum. Megas útsetti tónlist sína í höfuðatriðum en Kenneth útfærði sumt. Eitt ynd- islegt ljóðasöngslag er á skífunni: Megas syngur við píanóundirleik Kenneths. Þar áttu fleiri hljóðfæri að vera en Kenneth fékk því ráðið að við það var hætt. Þegar Bubbi er annars vegar er blúsinn hins vegar og þama er hver blúsinn öðmm betri — ég hef ekki heyrt betri blúsrödd í Evrópu og Kenneth og Jón Páll fara á kostum í sólóum sínum. Bubbi var að koma frá Svíþjóð og Megas frá Tælandi þegar ég hitti þá fyrir stuttu, en hvenær hitt- ust þeir fyrst? „Það var þegar Megas hélt uppá þrítugsafmælið sitt á Mokkakaffi árið 1975. Ég var að koma af vertíð og fór inná Mokka. Dagur sló mig um peninga og þama var Megas. Ég fór með hann heim til mín og spilaði fyrir hann heilan helling." „Ég var nú heldur gloppóttur á þessum ámm,“ segir Megas. „Ég man ekkert eftir þessum tónleikum. Ég man fyrst eftir áð hafa heyrt í Bubba nokkm síðar. Þá kom ég heim til hans og hann lék fyrir mig lög eftir sig við ljóð Þórarins Eld- jáms og Magnúsar Ásgeirssonar." „Ég gleymi aldrei þegar ég heyrði í Megasi fyrst,“ segir Bubbi. „Ég sat við bláa eldhúsborðið heima þegar tónleikaútgáfan af Spáðu í mig var spiluð í útvarpinu. Það var eins og ég hefði orðið fyrir fall- byssuskoti. Og það var rokkfílingur í þessu lagi þó það væri leikið á einn kassagítar. Ég söng ekki mörg lög Megasar en það var strákur með mér í hass- klíku sem var fjandi glúrinn að flytja þau lög. Ég keypti allar íslenskar plötur sem komu út og miðað við þær vom textamir mínir ekki svo afleitir. En þegar ég heyrði Megas varð mér fyrst Ijóst að það var framtíð í tónlistinni — það var hægt að syngja annað en dægur- flugur. Ég hafði alltaf efast um sjálfan mig. Ég vildi ekki leika opinberlega fyrr en ég væri orðinn nógu góður. En þegar átti að fara að kýla á hlutina guggnaði ég og fór á vertíð, ætlaði ekki að fá neina sleggju í hausinn. En það var að duga eða drepast. Bob Dylan gaf út fyrstu plötu sína tvítugur og ég var að verða tuttugu og þriggja. Ég varð að hrökkva eða stökkva. Þá skildi ég við konuna, tróð fötunum mínum í glastpoka, greip gítarinn og gerði ísbjarnar- blús.“ Þeir félagar héldu sambandinu áfram. „Ég kom til Megasar á Berg- staðastrætinu," segir Bubbi. „Komst í smásögurnar hans og alla þessa texta — möppumar með efn- inu sem ekki átti að gefa út. Megas las yflr textana mína, sumum henti hann, í öðmm fann hann nothæfa línu. Ég átti við skrifblindu að stríða og hafði hvorki lært stafsetningu né málfræði í skóla — aftur á móti hafði ég alltaf lesið mikið af Ijóðum og Megas kenndi mér mikið.“ Megas tekur við: „Ég hætti þeg- ar Bubbi byrjaði. Ég var ekkert að þvælast fyrir honum á þessum ámm. Þá vann ég á Eyrinni og var í Myndlistarskólanum. Ég kom ekki fram aftur fyrr en 1983. Bubbi hermdi upp á mig gamalt loforð og ég dró upp úr pússi mínu eitt af því fáa sem ég hafði samið í hvíldinni: Fatlafól. Tolli vildi aftur á móti hafa mig sem eins konar lukkutröll á sinni plötu: The Boys from Chicago. Það var skemmtileg, groddaleg og heiðarleg plata sem hlaut verri viðtökur en hún átti skilið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.