Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
Verslunar-, skrifstofu- og
lagerpláss til leigu
★ 470m2glæsileg verslunarhæð.
★ 600m2skrifstofuhúsnæði.
★ 1470m2lagerhúsnæðimeð
tvennum innkeyrsludyrum.
Hér er um að ræða nýbyggingu sem stendur á
einum besta stað í Skeifunni. Við húsið eru upphit-
uð einkabílastæði. Lóð erfullfrágengin.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofunni, ekki í síma.
verkprýói hf
SÍÐUMÚLA10,108 REYKJAVÍK, P.O. BOX8712,
SÍMI688460.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Sóleyjargata o.fl.
Birkihlíð
Lindargata 39-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Skúlagata
Laufásvegur 58-79 o.fl.
Háteigsvegur
Sæviðarsund
KOPAVOGUR
Kársnesbraut 77-139 o.fl.
ARBÆR
Þingás
Það sem orð karl-
mannsins eru lög
Benazlr — Má ekki styggja klerkana
ÞRETTÁN ára gamalli stúlku er
rænt og nokkrir menn, nágrann-
ar hennar í þorpinu, nauðga
henni síðan hver á eftir öðrum.
Vegna þess, að konur eru ómerk-
ar orða sinn er framburður henn-
ar ekki tekinn gildur fyrir rétti
en mennimir halda því fram, að
hún hafi lagst með þeim af fusum
og frjálsum vilja. Stúlkan er því
dæmd í fimm ára fangelsi fyrir
að hafa tælt veiklundaða karlana
út í hórdóm.
essi saga er enginn uppspuni,
heldur lifandi dæmi um órétt-
lætið og miskunnarleysið, sem felst
í pakistönsku „Zina-reglunum“,
íslömsku lögunum, sem flokka
framhjáhald, hórdóm og nauðgun
með glæpum gegn ríkinu. Frá árinu
1983 hefur konum hins vegar verið
bannað að bera vitni og' því geta
eiginmennimir hæglega losað sig
við þær og komið þeim á bak við
lás og slá með því einu að saka þær
um framhjáhald. Lögum samkvæmt
er raunar leyfilegt að grýta þær í
hel fyrir slíkan glæp.
Um þessi mál er fjallað í nýrri,
breskri mynd, sem heitir „Hver vill
kasta fyrsta steininum?" Var hún
tekin í Pakistan á laun og segir
sögu nokkurra kvenna, sem hafa
verið fangelsaðar samkvæmt Zina-
reglunum.
„Meira en 3.000 konur verða
fyrir barðinum á þessum lögum á
ári hveiju. Jafnvel þegar um nauðg-
un er að ræða em konurnar taldar
ábyrgar og minnsta refsing er 30
vandarhögg. Þær fá enga lögfræði-
lega aðstoð og fæstar hafa nokkurn
kost á að ræða við lögfræðing,"
segir Sabiha Sumar, sem skrifaði
handritið og tók þátt í að gera þessa
heimildarmynd en hún var frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Lon-
don nú nýlega.
Jafnvel þótt konumar njóti að-
stoðar lögfræðings má ekki láta
þær lausar gegn tryggingu fyrr en
réttarhöldin hefjast og stundum
þarf að bíða eftir því í nokkur ár.
Hefst myndin á því, að ein konan,
Roshan Jan, með andlitið falið á
bak við blæjuna, segir frá 16 mán-
aða fangelsisvist meðan beðið var
réttarhaldanna.
„Það hófst með því, að maðurinn
minn fékk sér aðra konu án þess
að bera það undir mig. Ég fór þá
fram á skilnað en hann brást við
með því að saka mig um að hafa
hlaupist á brott með öðmm manni.“
Eiginmaðurinn kemur líka fram
í myndinni og viðurkennir, að hann
hafi mútað lögreglunni til að taka
ákæmna gilda vegna þess, að „það
var um heiður minn að tefla“. Æra
konunnar skipti engu máli og hún
fékk engum vömum við komið.
Önnur kona, Ghulam Sahina að
nafni, segir frá því, að hún hafi
setið í fjögur ár í fangelsi vegna
þess, að hún reifst við nágranna
sinn, karlmann, sem síðan kærði
hana fyrir að hafa brotið gegn
Zina-reglunum.
Shaheeda Parveen var dæmd til
að vera giýtt í hel vegna þess, að
síðara hjónaband hennar jafngilti
hórdómssök. „Blóðið fraus í æðum
mér, ég gat ekki komið upp orði
fyrir skelfingu. Ég hef þekkt kon-
ur, sem hafa brennt sjálfar sig til
bana vegna þess, að þær vissu, að
réttlætið var ekki ætlað þeim,“ seg-
ir Shaheeda.
Shaheeda var heppin því að dóm-
urinn yfir henni vakti almenna
hneykslun og hún og Ahmed, seinni
Jólakaffi Hringsins
verður á Hótel íslandi sunnudaginn 4. desember og
hefstkl. 14.00.
Kökuhlaðborð og happdrætti. Skemmtiatriði: Edda
Björgvins o.fl.
Mætið vel og styrkið Barnaspítalasjóðinn.
Kvenfélagið Hringurinn.
/// ÚTFUJTNINGSRÁÐ ÍSLANDS
boðar til haustfunda með útflytjendum, þar sem fjallað verður um
stefnumótandi markaðsáætlanir fyrirtækja.
Þriðjudaginn 6. desember fyrir útflytjendur sjávarafurða í samvinnu við Sam-
tök fiskvinnslustöðva og Félag Sambands fiskframleiðenda.
Miðvikudaginn 7. desember fyrir útflytjendur véla og tækja fyrir sjávarútveg
í samvinnu við Félag íslenskra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna.
Fimmtudaginn 8. desember fyrir útflytjendur iðnaðarvara og þjónustu í sam-
vinnu við Félag íslenskra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna.
Aðalræðumenn á fundunum verða Bandaríkjamennirnir dr. Jerome B. Bright-
man, framkvæmdastjóri International Marketing Institute, og Lewis E. Brandt,
framkvæmdastjóri International Trade Services Group.
Fundirnir verða haldnir á Hótel Sögu í ráðstefnusal A og hefjast kl. 10.00.
Þátttökugjald er kr. 3.000,- og er hádegisverður og kaffi innifalið.
/yay
Nánari upplýsingar og skráning þátttakenda er á skrifstofu # # íslenskt
Útflutningsráðs í síma 688777. / / veit á gott