Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 C 47*" Satchmo rakar sig, á myndinni til vinstri. Þegar hann kom til landsins fékk hann viðeigandi móttökur eins og sjá má á myndinni að of- an. A myndinni til hægri ræð- ir hann við blaðamann Morgunblaðsins í A M íbúðinni á Hótel Sögu. I SÍMTALID ER VIÐ PÁL HEIÐAR JÓNSSON ÚTVARPSMANN Hefaldm hætt alveg 27509 -Halló? Páll Heiðar Jónsson? - Hann talar. Blessaður, Sveinn Guðjónsson á Morgunblaðinu. - Já, sæll vertu. Ég heyrði í þér í útvarpinu um daginn eftir langt hlé. Ég Jhélt á tímabili að þú værir alveg hættur. Hvar hefurðu alið manninn? Ég var í launalausu leyfí í tæpt ár og hef aðallega fengist við þýð- ingar á kvikmyndum. En nú er ég byrjaður aftur á fullu. Ég hef nú aldrei hætt alveg á útvarpinu, en tekið mér frí svona inn á milli þann- ig að það hefur kannski minna heyrst í mér heldur en hér á árum áður. En þú ert sem sagt bytjaður aftur og þá væntanlega með ein- hveija fasta þætti? - Það er tvennt sem ég hef ver- ið að vinna að undanfomu. Annars vegar er ég umsjónarmaður með þætti sem er sendur út á laugar- dagsmorgnum á rás eitt sem heitir „í liðinni viku". Þetta er svona umræðuþttur með gestum og við skiptumst á um að stjóma honum, annan hvern laugardag, við Sigrún Stefánsdóttir. Hins vegar hef ég tekið að mér eins konar ritstjórn á tilteknum efnisflokkum sem fræðslu- og skemmtideild sér um. Þetta er sam- settur þáttur með ýmsu efni sem við köllum „Á vettvangi" og hann er sendur út fyrri hluta vikunn- ar, á mánudögum, þriðjudögum og mið- vikudögum klukkan sex. Ég á að heita ritstjóri fyrir þessu og kem kannski ekki ýkja mikið fram sjálfur. En við emm þijú með þáttinn og með mér starfa ágætisfólk, annars vegar Bjarni Sigtryggsson, sem er nú gamal- kunnur útvarpsmaður og svo ný- liði, sem er mjög ánægjulegt að hafa þama við störf. Það er kona sem heitir Guðrún Eyjólfsdóttir og byijaði núna í október." Þannig að þú hefur nóg á þinni könnu heyri ég? - Já, svo er ég líka ábyrgur að hluta fyrir þáttum sem eru á mið- vikudagskvöldum. Þeir hafa fengið samheitið „Samantekt um“ og síðan kemur efnið, sem er sitt af hveiju tagi. Við réðum á vaðið í byijun október með þátt um loðnu- veiðar og loðnuvinnslu, sem ég stjómaði. Þátturinn verður viku- lega í vetur með mismunandi um- sjónarmönnum, en ég hef hönd í bagga með vinnubrögðunum. Hvenær komstu aftur til starfa? - Ég átti strangt til tekið ekki að byija aftur fyrr en fyrsta nóvem- ber en var kvaddur til starfa í byij- un október vegna forfalla. Reyndar fór ég síðastliðið sumar í skemmti- legt útvarpsverkefni með öðmm manni. Við gerðum samsetta heim- ildarþætti um sfldarævintýrið á Si- glufirði. Þetta var gert að frum- kvæði útvarpsíns á Akureyri, fyrir fram- lag úr svokölluðum „Menningarsjóði út- varpsstöðva", -eins konar hliðarverkefni og ég held að það fari ekki á dagskrá fyrr en eftir áramót. En þetta var einstak- lega skemmtilegt. Já, þú ert greini- lega að komast í þitt gamla form og það er ánægjulegt að fá að heyra í þér aftur. Ég kveð bara að sinni. - Já, þakka þér fyrir, blessaður. Lögðust rokkmóðir til hvíldar efitir etfiði kvöldsins VORIÐ 1957 urðu tímamót í skemmtanamenningu íslendinga. Þá hélt rokkæðið innreið sína og í frétt Morgunblaðsins hinn 3. maí það ár segir svo frá þeim atburði: „í fyrrakvöld hélt rokk- hljómsveit Tony Crombie hljómleika í Austurbæjarbíói. Þá skeði það, sem komið hefiir fyrir í flestum löndum, en ekki fyrr hér norður á íslandi, að unglingar voru gripnir hamslausu rokkæði og tóku að dansa rokk af miklum móði í sjálfum bíósalnum, í göngunum milli sætaraðanna, og varð af þessu slíkt uppnám og ærsl að lögreglan þusti á vettvang og skipaði rokkfólkinu að fara í sæti sín. En unglingarnir létu sér ekki segjast og á Snorrabraut- inni að loknum hljómleikunum hófst rokkið aftur, á malbikinu þar innan um bílana, í úðarigninu einni stundu eftir miðnætti." 1957:Rokkað á malbikinu fyrir framan Austurbæjarbíó. Ifréttinni lýsir blaðamaðurinn hamförum hinnar bresku rokk- hljómsveitar á sviðinu og segir síðan: „Oft hefur það heyrst að íslendingum sé ekki gefið að flíka tilfinningum sínum eða láta and- artakshrifningu ná yfirhöndinni en ekki varð það séð á þessum hljómleikum. Þar var því líkast sem eintómir Suðurlandamenn væru saman komnir í áheyrenda- hópnum, hrópin og köllin, blístrið og ýlfrið yfirgnæfði stundum hinn taktfasta rokkslátt hljómsveitar- innar, húfum, höttum og yfir- frökkum var þeytt hátt í loft upp, unglingarnir stóðu upp í sætum sínum, böðuðu út höndunum og hrópuðu með mögnuðu hljómfall- inu unz hámarkinu var náð, þegar hópur unglinga stökk upp og tók til að rokka með æðisgengnu hátt- arlagi um allan salinn ...“ Og þannig heldur lýsingin áfram þar til lögreglumenn hlupu framan frá dyrum salarins niður gangana og stilltu til friðar. Rokkdans á malbiki Að hljómleikunum loknum neit- aði mannfjöldinn að fara út en FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍÐ FRÁINNREIÐ ROKKSINSÁ ÍSLANDI söng og stappaði í um hálftíma og heimtaði meira spil, að því er blaðamaður Morgunblaðsins seg- ir. „Ekki vildu Englendingamir þó leika meira, sem vel mátti skilja, þar sem þeir voru örmagna eftir það sem á undan var gengið og lögðust nokkra stund til hvíldar að boði framkvæmdastjóra hljóm- sveitarinnar. Æddi þá mannfjöld- inn úr út húsinu og hóf rokkdans á malbikinu fyrir utan kvik- myndahúsið. En tónlistina vantaði og innan stundar fóru hinir ungu dansendur hver heim til sín og lögðust rokkmóðir til hvfldar eftir erfiði kvöldsins." Rokkaði - lá fót- brotinn eftir Þannig hófst rokkæðið á ís- landi og áhrifin létu ekki á sér standa. Viku síðar, hinn 11. maí 1957, birtist baksíðufrétt í Morg- unblaðinu þar sem Oddur frétta- ritari á Skaganum greinir frá óförum ungs manns sem fótbraut sig í hamslausum rokkdansi. Fréttin er svohljóðandi: „Rokkið hefur tekið sinn toll hér um slóðir, því ungur maður hér í bænum er nú rúmliggjandi heima hjá sér, fótbrotinn eftir rokk. Þetta gerðist um síðustu helgi í Logalandi í Reykholtsdal, að lok- inni söngskemmtun þar sem stig- inn var dans, gamlir og nýir af miklu fjöri. Þá gerðist það er rokk- lagið dunaði að tveir ungir Akur- nesingar hrifust þar sem þeir stóðu úti í einu horni danssalarins og tóku að rokka. Gerðist það þá, að sá þeirra sem svipt var, kom svo illa niður, að hann stóð ekki upp aftur. Kom í ljós að hann hafði fótbrotnað á vinstra fæti, og það var ekkert smávegis brot, því báðar pípurnar voru brotnar. Það stóð til að flytja unga piltinn á sjúkrahúsið, en þar er allt yfirfullt, svo hann liggur nú heima hjá sér.“ Sv.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.