Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 13

Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MANIMLÍFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 C 13 MATUR OG DRYKKUR /Hvemig geta grátur ogkossar stublab ab bættri heilsuf Koss eða lýsi eftir Jóhönnu Sveinsdóttur Undanfarinn áratug hefur al- mennur heilsufarsáhugi farið vaxandi. Hann hefur m.a. komið fram í því að einbiínt er á ákveðna fæðuflokka og þeim annað hvort fundið allt til for- áttu eða þeir hafnir upp til skýjanna, út frá almennri holl- ustu eða til- teknum sjúk- dómum, einkum lcrabbameini, magabólgum og -sári, háþiýstingi og hjarta- og æðasjúkdómum. Svo dæmi séu nefnd er of mikil saltpétursneysla talin geta valdið magabólgum, krabbameini í maga og náttúru- leysi — en saltpétur er t.a.m. að fínna í hangikjöti, osti og ýmsum unnum matvörum. Þá er ríkuleg neysla á dýrafítu (í mjólk og mjólkurafurðum og kjöti) talin geta verið skaðleg hjarta- og æðakerfí. Þetta má flest til sanns vegar færa og því gera margir sér far um að „gæta sín í mataræði" og jafnframt að forðast yfírlýsta skaðvalda eins og reykingar, í þeirri von að halda góðri heilsu, lausir við ógnir krabbameins og kransæðastíflu. En það vill bara oft gleymast að maður er ekki aðeins samansafn líffæra og hann er annað og meira en það sem hann borðar. Æ fieiri læknar eru nú orðnir kjamsannfærðir um (i krafti reynslu og rannsókna) að flestir sjúkdómar séu af geðrænum toga, með rætur í sjúklegum tilfínn- ingum eins og reiði og þunglyndi, tákn um það að eitthvað hafí farið úrskeiðis í lífí sjúklingsins, viðvörun um að hann þurfí að taka aðra stefnu; sjúk- dómurinn verði þá leið til að flýja und- an lífsháttum sem virðast _ innihalds- lausir. í þessari merkingu mætti e.t.v. kalla hann hugleiðslu í vest- urlenskri mynd. í bók sem er nýkomin út í íslenskri þýðingu Kærleikur, lækningar, kraftaverk, eftir bandaríska skurðlækninn Bemies S. Siegel er fjallað á afar sannfær- andi hátt um þessi mál, einkum með tilliti til sjúklinga sem lækn- ast hafa af krabbameini af sjáifs- dáðun. Þessa bók ættu allir að lesa, ekki einungis þeir sem þekkja erfíða sjúkdóma af eigin raun, heldur ekki síður þeir sem er umhugað að viðhalda góðri heilsu. Nokkur dæmi þessu til staðfestingar: — Tilfínningaleg einurð og sátt við sjálfan sig leiðir til betri líkam- legrar heilsu, eins og vísindamenn eru nú að komast að raun um. Árið 1979 komust læknamir Walter Smith og Stephan Bloom- fíeld að því að þeir sem er létt um að gráta fá sjaldnar kvef en þeir sem haida aftur af táranum. Tilfínningar sem fá ekki útrás draga úr vömum ónæmiskerfísins (bls. 166). — Þótt erfítt sé að rannsaka kærleik vísindalega em læknavís- indin farin að staðfesta áhrif hans. Við Menninger Foundation í Top- eka í Kansas hefur verið staðfest að fólk sem er ástfangið hefur minni mjólkursýru í blóði og verð- ur því síður þreytt, og það hefur meira af endorfínum, sem gerir það léttara í bragði og síður næmt fyrir sársauka. Hvítu blóðkomin bregðast líka betur við sýkingum og því fær þetta fólk sjaldnar kvef (bls. 182). — Tíðni krabbameins hjá heimavinnandi húsmæðmm er 54 prósent hærri en hjá fólki al- mennt, og 157 prósentum hærri en hjá konum sem vinna utan heimilis. Ástæðan getur einfald- lega verið vaxandi óánægja konu með hlutverkið sem heimavinn- andi húsmóðir, ef það uppfyllir ekki þarfír hennar. Það er oftast ekki hlutverkið sjálft sem um er að ræða heldur að konunni fínnist hún vera óftjáls (bls. 84). — Fráskilið fólk fær oftar krabbamein, hjartasjúkdóma, Iungnabólgu, háan blóðþiýsting og deyr af slysförum heldur en gift fólk eða einstætt, ekkjur eða w. ekkjumenn. Tíðni lungnakrabba- meins meðal giftra manna er held- ur ekki nema þriðjungur á við það sem hún er meðal þeirra sem em einstæðir, og hinir fyrmefndu geta reykt þrisvar sinnum meira en hinir en haft samt sömu krabbameinstíðni (bls. 78). — Tryggingafélög hafa enn fremur komist að því að ef konan kyssir bónda sinn þegar þau kveðjast á morgnana lendir hann síður í umferðarslysi og lifir fímm ámm lengur (bls. 182). Já, að mörgu ber að hyggja í lífínu; ekki síst að reiðast og gráta um leið og tilefni gefst, svo og að elskast og kyssast, og koss á morgnana getur e.tv. fremur stuðlað að langlífi en sopi af lýsi... Mercedes Benz 190D, 1986. Mjög fallegur bíll. Mazda 626 XL, 1986. Mjög góður bíll. Mest ekinn erlendis. Volvo 360,1984. Upplýsingar í símum 687666 og 985-20006. TRÚMÁL/£r ekki hœgt ab trúa á Gub án þess ab fara í kirkju? Náiðsamband Hvað er ekki „hægt“? Gætir þú ekki verið þokka- legur eiginmaður án þess að vera að hafa fyrir því að tala við konuna þína eða hlusta á hana? Kemstu ekki í betra sam- band við hana með því 'til dæmis að fara á fjöll á frídögum og hugsa til hennar, þegar þú hrífst af fögra landslagi? Ellegar þá með því að njóta tónlistar eða annarra dásemda? En að tala við hana? Er það ekki óþarfi? Og er ekki hægt að vera ágætis eiginkona upp á það að umgangast manninn eins og hann sé nánast ekki til, hafa hann svona í bak- höndinni en meðhöndla hann eins og hann sé heymarlaus og mállaus og tilfínningalaus? Og getur bam ekki náð eðlileg- um, góðum þroska án þess að heyra mömmu sína yrða á sig og án þess að læra að tala til hennar og blanda geði við hana? Fjarstæðar spumingar. Eða hvað? Ámóta íjarstæðar og spum- ingin þín, vinur. Hvorki meira né minna. Vitaskuld er hægt að umgangast hvem sem er eins og hann sé bara loft. Þannig koma menn fram við þá, sem þeim er lítið gefíð um. Og spyija sjálfa sig ósjálfrátt: Hvað get ég komist af með minnst í sam- neyti við hann eða hana? Þú hittir maiga í daglegu lífí, sem þú gerir þér ekkert far um að blanda geði við, samskiptin em ópersónuleg, hlutlaus. Margvísleg mannleg við- skipti era þess eðlis, að þau fara fram án þess að hugur mæti hug eða nein persónuleg snerting eigi sér stað. Þegar þú ert að fá af- greiðslu í búð eða banka, þá er þér ekki umhugað um annað en að rétt sé farið með tölur og með þig sem númer eða hlut á færibandi. Það gegnir öðra máli ef um náin sam- bönd er að ræða, þar sem mikið er i húfí um það, að hugsun, tilfínning- ar, vilji mætist vitandi vits, gefí og þiggi. Það gegnir öðra máli, ef þú átt veralega mikið undir því, að annar hlusti á þig og skilji þig og að þú hlustir á hann og skiljir, hvað honum býr í bijósti. Til þess að við getum rætt þessa spumingu þína verðum við að átta okkur á, hvers kyns Guð við eram að tala um. Ég vona að það sem ég er búinn að. segja gefí þér hugmynd um, hvað ég meina með því orði. Vitaskuld er hægt að trúa á ein- hvem guð án þess að fara nokkurn tíma í kirkju. Guðir era margir. Réttara sagt: Þær myndir, sem menn gera sér af Guði eða guðum era margar, óteljandi. Orðið trú getur líka verið margrætt. En hér eram við sem sagt að tala um kristna trú, Guð kristinna manna. Ég vona að ég gæti trúað á hann og fundið návist hans og blandað geði við hann þó að það ætti fyrir mér að liggja að komast aldrei í kirkju vegna veikinda, já, jafnvel „þó missi ég heym og mál og róm“ (Sb. 437). Þeir era margir, sem hafa lifað nánd hans og náð með sérstaklega ótvíræðum hætti í ein- angran, á sjúkrabeði, í fangaklefa. Við slíkar aðstæður geta menn orð- ið glöggsærri og næmari á framleg- ar lífsstaðreyndir en áður. Og menn geta óvænt lifað slík atvik, að menn sjái lífið og veraleikann skyndilega í nýju ljósi. Victor Grabbs, flug- stjóri, lenti í árekstri við aðra flug- vél, brot úr sekúndu skildi milli lífs og dauða. Það var kraftaverk að nokkur komst lífs af sagði hann í blaðaviðtali, þar sem hann lýsti slysinu. En lokaorð hans í viðtalinu voru þessi: „Héðan í frá ætla ég að fara oftar í kirkju á sunnudögum og sleppa golfínu." Hvað var hann að fara með þess- um orðum? Veltu því fyrir þér þang- að til við fínnumst næst, því ég kemst ekki Iengra í dag. eftir dr. Sigurbjörn Einarsson Brottfór S. desember 30% lcegra vöruveró en í London. Gist á hinu glæsilega Manour House Hotel. Verb kr. 20.900.- stgt'. Innifalid: Flug, ferbir til ogfrá fugvel/i, gisting og morgunverdur. Upplýsingar í síma 622218. BÓRGARFÉLAGAR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.