Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 44

Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 44
44 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 ,IÍ)KAГ „MINNA, - engin venjuleg mamma“, neftiist ný bók sem kemur út nú fyrjr jólin hjá ísafoldarprentsmiðju. Þar lýkur Helga Thorberg sögu móður sinnar, Guðfínnu BreiðQörð, eins og segir á bókarkápu. Guðfínna Breiðíjörð lést fyrir þremur árum, en í handriti því sem dóttir hennar hefur búið til prentunar segir hún frá baráttu sinni við þunglyndi og þeirri reynslu að vera lokuð inni á geðdeild árum saman. I baráttunni við þennan algenga sjúkdóm hafði hún betur að lokum. Bókin er sett saman úr þessu handriti og tengingum dóttur hennar sem ávarpar hana í annarri persónu. Hér birtist brot úr bókinni og neftiist það „Lokað“. árgreiðslustofan gekk vel í fyrstu en svo fórstu að breyta og stækka við þig auk þess sem reksturinn þoldi iila öll flottheitin. Þú hættir að hvílast og varst andvaka á nóttunni en enginn gerði sér grein fyrir því að veikindi þín brutust út í að vinna og vinna einsog bijáluð manneskja. Sjálf varstu farin að finna að þú varst á leiðinni yfir um en vildir ekki viðurkenna það. Þú byrjaðir á að hafa samband við sálfræðing en fannst þú verða svo háð honum að þú gætir ekki tekið neinar ákvarðanir án þess að bera þær undir hann. Þig vant- aði alltaf einhvern tii að tala við um þín mál hvort sem það var í sambandi við reksturinn eða okk- ur systumar. Þegar þú varst í vanda þurftir þú að tala við ein- hvem. Einn dag var svo komið að þú skrifaðir bara einhverjar tölur á ávísanirnar í bankanum. Þá varstu orðin miklu veikari en þú og aðrirgerðu sér grein fyrir. Sá dagur rann upp að þú ákvaðst að fara ALDREI aftur í vinnuna. Síminn hringdi og þú varst spurð afhveiju þú kæmir ekki, tvær konur sem áttu pantað- an tíma þannan morgun biðu eft- ir þér. Næsti dagur var alltaf upppantaður svo að þú máttir aldrei verða veik. Það var bara einn þátturinn í því langvarandi álagi sem þú gast ekki lengur ris- ið undir. Læknir kom og vitjaði þín. Þú varst lögð inn á tauga- deildir, bæði á Borgarspítalann þar sem reynd var lyfjameðferð og eins inn á Farsóttaheimilið þar sem þú fékkst raflosts-meðferðir. Þær komu þér ekki að neinu gagni. Þú hélst illa inni á þessum deildum. Svo fór því að lokum að á úti- hurðina á nýju RAFFÓ var settur miði sem á stóð „LOKAГ. Þú hafðir miktar áhyggjur af því hvað yrði nú um nemana sem þú varst búin að taka ábyrgð á að lykju sínu námi. En nemarnir þínir voru eftirsóttir og þeir voru allir komn- ir á áfhamhaldandi samrting hjá bestu stofunum. Þú hefðir getað sparað þér þær ábyggjurnar. Það tókst ekki að selja hárgreiðslu- stofuna, hún mátti lognast út af um leið og þú sjálf. Uppgjöf þín var endanleg þegar þú hættir að geta komið lífi þínu og tilveru heim og saman. Þú gast ekki sætt þig við að bogna. Þá vildir þú ekki lifa lengur og fórst að endurtaka sjálfsvígstil- raunirnar. Þú hafðir verið á opn- um deildum fram að því og stund- um strokið af þeim en eftir sjálfsv- ígstilraunir þínar var farið að loka þig inni á Kleppsspítala. Þennan ákveðna dag reika ég niður að sjónum. Eg hafði lært að synda þarna milli klet- tanna. Núna undrast ég hve stutt er á milli þeirra, mér hafði fund- ist það svo óralangt þegar ég var stelpa. Ég fer að sparka í tóma plastbrúsa og fleira drasl sem rekið hefur upp í fjöruna, síðan fer ég að klifra í klettunum. Þang- ið er sleipt og ég renn niður í eina skoruna, missi annan skóinn minn en læt hann eiga sig. Ég sest á einn klettinn og sit þarna óralang- an tíma að mér finnst. Það er að falla að. Sjórinn gerir mig hrædda, drunurnar þegar hann sogast inn i klettaskoruna og út aftur, en jafnframt hressir það mig að fá gusurnar í andlitið. Ég stend upp, reyni að virða fyrir mér umhverfið og sé þá nokkur hús á stangli uppi í hraun- inu sem ég hafði ekki veitt neina sérstaka athygli áður. Dettur mér þá í hug að fara þangað. í angist minni er ég að draga tímann þar til ég framkvæmi það sem ég er ákveðin í að gera, að binda enda á þetta líf mitt. Ég get ekki lifað lengur. Eg rangla upp að einu húsinu og banka á dyrnar. Ung kona kemur til dyra, mig minnir að lítill krakki hafi ríslað sér á gólf- inu. Ég stama eitthvað og bið hana að gefa mér vatnsglas að drekka. Hún gerir það. Eg sest við eldhúsborðið og spyr hvað klukkan sé. Ég hef á tilfinning- unni að konunni finnist eitthvað skrýtið við komu mína. Hún spyr einskis. Síðan þakka ég fyrir mig og fer út og niður að sjónum aftur. Ég fer úr kápunni, reyni að fóta mig í klettunum, missi hinn skóinn og læt mig detta í sjóinn. Ég byija að taka sundtökin. Ég syndi lengi að mér finnst en fer að þreytast og um leið verð ég ofsalega hrædd. Fötin þvælast fyrir mér, ég sný við og syndi aftur upp að klettunum. Eg skríð þarna holdvot í blautu þanginu og sest á klettinn. Allt í einu sé ég tvo menn standa í fjörunni skammt frá og horfa á mig skríða þarna. Þá veifa ég til þeirra og kalla á hjálp. Þeir fara til baka inn í Fjörð. Eftir óratíma að mér finnst kemur bíll og lögreglumaður kemur gang- andi á móti mér. Hann styður mig inn í bílinn og ég segi bara: „Inn á Klepp“. Þar sem ég sit við hliðina á lögreglumanninum spyr ég sjálfa mig aftur og aftur: „Af hveiju gerði ég þetta? Af hveiju gerði ég þetta?“ En ég virðist ekki fá neitt svar við þessari algjöru upp- gjöf á lífinu. Ó, þessi hugur sem maður ræður ekkert við og af hveiju alltaf þessi hræðsla. Þegar ég kom svo aftur inn á deildina var ég tekin úr blautum fötunum, dembt í bað og höfð á lokaðri deild í langan tíma. Ég fór því í sama sinnuleysið og áður. Hversu oft þú reyndir sjálfsvíg á þessum tíma veit ég ekki. Enda skiptir það ekki máli. Sjálf var ég 15 ára þá. Ég vissi þó að ekki var allt með felldu. Þú hafðir ver- ið í burtu af heimilinu vegna þess- ara sjúkrahúslega svo að ég dvaldist meira heima hjá vinkon- unum en ella. Margar ’ mæðra þeirra hafa vitað hvemig ástatt var heima hjá mér. Eins og svo margar mæður oft áður undir slíkum kringumstæðum opnuðu þær heimili sín án þess að spyija margs. Það var bara lagt á borð fyrir einn til viðbótar. Ég var heppin, ég átti góðar vinkonur. Mæður þeirra reyndust mér vel. Einn daginn kom einhver hjúkrun- arkona heim og sagði mér að þú værir komin inn á Kleppsspítala. Eitthvað hafði gerst sem var mjög erfitt að segja frá enda var forð- ast að ræða slíkt. Þetta sem hafði gerst var eitthvað sem átti ekki að gerast. Ég skildi það ekki þá og ætli ég hafi ekki þess vegna reynt að gleyma því. Alla vega hef ég ekki gert mér grein fyrir því hve alvarlegt þetta var. Þegar ég kom að heimsækja þig gastu ekki talað við mig. Þú vildir ekki tala við neinn þá. Vanlíðan þín var svo mikil. Auðvitað var erfitt að koma og heimsækja þig. Sér- staklega þegar lyklinum var snúið í skránni og hurðinni læst á eftir mér. Ég var alltaf hrædd um að mér yrði ekki hleypt út aftur. Þegar ég ætlaði út væri komin ný vakt sem ekki vissi að ég væri bara í heimsókn. Mér fannst líka óþægilegt að sjá þessar konur sem voru með þér. Mér fannst þær mjög skrýtnar. Þær komu alltaf mjög laumulega til mín, horfðu í kringum sig og gengu alveg upp að mer og hvísluðu: „Áttu síga- rettu?“ Mér fannst þær auðvitað mjög dularfullar og fannst þú ekki eiga heima á meðal þeirra. En þú varst samt þarna. Lást all- af uppi á rúminu þínu og gast ekki talað við mig. Yfirleitt sat ég hjá þér smástund og varð feg- in að sleppa út aftur. En samt er mamma alltaf mamma. Hvað svo sem hún gerir, þá breytir það ekki því að hún er „hún mamma". Ég held að ég hafi bara sætt mig við þetta. Hvað annað gat ég gert? Ég held að böm standi allt- af með foreldrum sínum, sama á hveiju gengur. Fyrir okkur systumar þurfti nú að fá nýtt heimili og auðvitað vomm við oft einmana og söknuð- um þín. Það var ekki gott að vita af þér þama, þér leið svo illa og ekkert virtist ætla að rofa til. Við Kristín sem vomm alltaf mjög samrýmdar fómm fljótlega til Lellu, föðursystur okkar. Kristín var komin með kærasta og var talsvert með honum og á hans heimili. Gyða var trúlofuð og kom- in í sambúð. Hún hafði eignast soninn Sigurð sem varð þér mjög kær. Kristín fór síðan til Dan- merkur í skóla og var þar nær óslitið við nám í 6 ár. Ég var í landsprófi en stundaði námið illa. Ég vann svo sem sætavísa í Gamla bíói á kvöldin fyrir vasapeningum og þóttist vera svaka skvísa. Ég gerði mína unglingauppreisn, fleygði auðu prófblaðinu í Sverri Kristjánsson sagnfræðing og var komin inn á Hressó með klíkunni fyrir kl. 9 í morgunkaffi. Mér fannst ég voðalega töff. Ég fékk að sjálfsögðu ekki góða einkunn á jólaprófunum og sá fram á að ná ekki landsprófinu um vorið. Þá fleygði ég skólatöskunni minni inn á borð í versluninni hjá föður- systur minni, sagðist vera hætt í skóla og skellti svo rækilega á eftir mér hurðinni að rúðan í henni brotnaði. Ég var send til Danmerkur eft- ir jólin. Föðursystumar voru fleiri. Nú var röðin komin að Rönnu. Þín beið hins vegar að kljást áfram við þunglyndið næstu árin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.