Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 26
26 C MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 FÓLK j fjölmiðlum ■ EREZKU blöðin The Daily Telegraph og The Independent hófii útgáfu á fylgiritum á laug- ardögum í september sl. og hún hefiir gengið vel. Salan á The Daily Telegraph hefiir aukizt um 60.000 eintök á laugardögum og upplagið er komið í 1.180.000 eintök. Laugardagssala Theln- dependents hefur aukizt um rúm 80.000 eintök (25%), í 456.000 eintök. ■ JÓN Tryggvason leiksljóri og kvikmyndagerðarmaður stað- festi í samtali við Morgunblaðið, að hann hygðist hætta hjá Frost Film hf. um stundarsakir. Sagð- ist hann vera með margt í bígerð, m.a. að gera stuttar leiknar kvik- myndir, og þá á eigin vegum, og væri hann að kanna hver áhugi sjónvarpsstöðva væri fyrir því efiii. Jón er nú aðstoðarleikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur um þessar mundir. ■ ÚTBREIÐSL A brezka blaðs- ins The Sun jókst í 609.000 ein- tök i lok október sl. ■ MARGIR þættir sem Stöð 2 framleiðir eru styrktir af ýmsum aðilum eins og menn hafa vafa- laust tekið eftir, og var Sig- hvatur Blöndahl markaðsstjóri Stöðvar 2, inntur eftir því hvem- igþaðgengi fyrir sig. Sagði hann, að Stöðin óskaði eftir að- ilum sem reiðu- búnir væru til aðtakaþátti kostnaði við framleiðslu þáttanna, en hagur þeirra sem styrktu þættina væri að sjálfsögðu kynningin, svo og vildu þessir aðilar stuðla að gerð þátta sem væru þeim þókn- anlegir og tengdu þá ákveðinni ímynd. Ekki vildi Sighvatur gefa það upp hvað það kostaði að vera styrktaraðili, en sagði að mínútu- lega séð væri það ódýrara, auk þess sem kynningin væri í mörg- um tilfellum betri en nokkur auglýsing að hans mati. Erlendis væri það algengt að sjónvarps- stöðvar væru reknar eingöngu með þessum hætti. ■ BREZKU blöðin The Daily Telegraph og The Independent hófu útgáfii á fylgiritum á Iaug- ardögum í september sl. og hún hefiir gengið vel. Salan á The Daily Telegraph hefur aukizt um 60.000 eintök á laugardögum og upplagið er komið i 1.180.000 eintök. Laugardagssala The In- dependents hefur aukizt um rúm 80.000 eintök (25%), í 456.000 eintök. ■ FYRIR stuttu voru stofnuð samtök starfsmannafélaga Ríkisútvarpsins, SSR, og sagði Ævar Kjartansson útvarpsmað- ur, í samtali við Morgunblaðið að þetta væri tilraun til að ná öllum félags- mönnum sam- an, en þeir hafa sl. (jögur 4r verið í smærri félögum innan BSRB, BHM og ASÍ. Tilgangur- inn með stofii- un samtakanna er sá, að koma fram út á við og að sjá um hagsmuni félagsmanna eins og t.a.m. hvað snertir vinnu- stað og starfsskilyrði. Þau munu þó ekki senya um kaup og kjör, verður það áfram gert í hinum minni félögum. Ævar hefiir það hlutverk að kalla stjómina sam- an, og í næstu viku verður fyrsti formaður samtakanna að öllum líkindum kosinn. ÍSLENSKAR FRÉTTASTEFNUR 2 Höfiun brotist útúreinangrun í umfiöUun um pólitík - segir Kári Jónasson, fréttastjóri Útvarps Fréttir Útvarps eru samofnar sögu útvarps hér á landi. Fyrsta fréttin var send út í desem- ber árið 1930 og greindi hún frá skipskaða. Allar götur síðan hafa fréttamenn Útvarpsins daglega sagt landsmönnum til sjávar og sveita frá helstu atburðum innan- lands og utan. Þrátt fyrir tækni- og fjölmiðlabyltingar og margvís- legar menningarróstur eru fréttir Útvarps enn vinsælasta dagskrár- efni ljósvakamiðlanna. Kári Jón- asson, fréttasijóri Útvarps, sagði að þar á bæ væri það grundvallar- regla að almenningur gæti trúað því sem hann heyrði í fréttum en að öðru leyti mótaðist fréttastefn- an af þjónustu við alltlandið og miðin. Þegar hann hafði þetta mælt endurómuðu í huga blaða- manns ótal tilkynningar um að kennsla félli niður vegna óveðurs eða þá að Ólafsfjarðarmúli væri ófær litlum bílum. „Hlutverk okk- ar er það víðtækt að það má líkja því við staðarblað í smáþorpi jafnt sem alþjóðlega fréttastofu," sagði Kári. Fréttamat Útvarps annars veg- ar og sjónvarpsstöðvanna hins vegar taldi Kári að væri ólíkt vegna þess að sjónvarpsstöðvar þyrftu að leggja mikið upp úr fréttamyndum. Hann gerði ekki mikið úr þeirri tilgátu að vegna aukinnar fréttasamkeppni á allra síðustu árum hefði orðið ringul- reið sem lýsti sér t.a.m. í að fá- fengileg einkafrétt yrði aðalfrétt. Hann benti auk þess á að ekki væri raunhæft að bera kvöld- fréttatíma Útvarpsins saman við sjónvarpsfréttatímana því í Út- varpinu væru fréttir sagðar 19 sinnum á sólarhring en einu sinni til tvisvar á sjónvarpsstöðvunum. Fréttir að morgni og í hádegi eru ekki endurteknar að kvöldi nema að fundist hafi á þeim nýr flötur. Erlendar fréttir eru t.d. miklu meira áberandi fram yfír hádegi en vikja síðan fyrir innlendum þegar degi tekur að halla. Þetta þýðir það m.a. að kvöldfréttatími Útvarps er ekki yfírlit yfír helstu innlendu og erlendu atburði dags- ins. Kári viðurkenndi að yfírbragð fréttanna væri ekki fastmótað. Moreunblaðið/Sverrir Kárl Jónasson: „Hlutverki fréttastofu Útvarps má líkja við staðar- blað í smáþorpi jaftit sem alþjóðlega fréttastofu." Við samanburð á aðalfréttatímum Sjónvarps, Útvarps og Stöðvar 2 dagana 14.—19. nóvember kom m.a. í ljós að: I Fréttamat fréttastofanna er ólíkt. I Heildarsvipur á aðalfréttaþáttum er óljós. I Útvarpið hefiir mismunandi áherslur, - norskar sjáv- arútvegsfréttir í hávegum hafðar. I Útvarp leggur mikla áherslu á stjórnmálafréttir. Það stafaði einnig af því að oft væri verið að vinna efn- isatriði á elleftu stundu. Fréttir af norskum sjávarút- vegi voru þá viku sem saman- burðarathugunin fór fram næsta daglegt brauð hjá Útvarpi en sáust hins vegar ekki í sjónvarpi. Þó svo fréttastefna Útvarps sé rótgróin þá teygja rætumar sig tæpast í gegnum alla íslandssög- una og til strandar þeirrar sem BAKSVIÐ eftir Asgeir Fridgeirsson I Ingólfur ýtti fleyi sínu frá. Kári gaf þá skýringu að . þróun mála í norskum sjávarút- vegi hefði mjög mikil áhrif á íslenskan útveg og þar með íslenskt efnahagslíf. Auk þess væri Útvarpið í skeytasam- bandi við 4 norrænar fréttastofur og einnig væri fréttaritari Útvarps í Ósló nokkuð iðinn. Stjórnmál eru fyrirferðarmikil í fréttum Útvarps. Pólitískar þreifíngar og vangaveltur em daglega og er af sem áður var þegar fréttir úr heimi stjórnmála vom bragðlausar og í skeytastíl. Kári sagði að fréttastofa Útvarps hefði allt fram á síðustu ár verið í viðjum úreltra fréttareglna sem nú væm í endurskoðun. Hann minntist þess þegar hann, fyrstur útvarpsfréttamanna um miðjan síðasta áratug, spáði og spekúler- aði um stöðu mála í beinum út- sendingum frá Alþingi. „Mörgum þótti þetta alls ekki við hæfí,“ sagði Kári og brosti. „Við höfum vísvitandi brotið okkur út úr þeirri einangmn sem við vomm í og teljum okkur nú í fararbroddi hvað varðar pólitískar fréttir og fréttaskýringar." Þessi frétta- stefna ásamt svipaðri þróun á sjónvarpsstöðvum og dagblöðum hefur leitt til þess að fjölmiðlar hafa nú meiri áhrif á gang stjóm- mála. Samhliða þessu hafa stjóm- málamenn lært betur inn á fjöl- miðlana að mati Kára og frétta- menn þekkja betur en áður klæki og kenjar stjómmálamanna. Fyrirjól Sú var tíðin, að jafnskjótt og jólafasta gekk í garð, upphófst í útvarpinu mikill söngur jólasálma, og sjóð sá konsert linnulaust árið á enda, ef ég man rétt. Var talið að ekki myndi veita af allri aðven- tunni til að búa vort synduga hugar- far með þessum hætti undir þau miklu tíðindi sem í vændum vom. Þetta var á gelgjuskeiði Ríkisút- varpsins, áður en menn höfðu Iært að fóta sig á því hála svelli sem dagskrá þeirrar stofnunar hlaut að verða. En ekki leið á löngu þar til menn áttuðu sig á því, að öllu má ofgera, og jafnvel sálmalög jólanna, sem mjög em hreinar tónlistar-perlur, þyldu ekki svo hóflaust hnjask, og illa færi á því, að purkunarlaus hversdags-brúkun yrði langt komin að slíta utan af þeim hátíðleikann þegar sjálf helgistundin rynni upp. Það var því viturlega ráðið að hlífa þeim við svo hættulegri ofnotkun og spara þau til síns rétta tíma. En til þess að aðventan fengi samt að gegna hlutverki sínu, einn- ig á þessum vettvangi, var farið að leika í útvarpið „léttari" jólalög, sem minni helgi var talin á hvíla, og hefur sá siður haldizt um langt skeið. Þetta em lög sem á einhvem hátt tengjast jólahaldi, en em yfir- leitt ekki sungin í kirkjum, og þykja því betur hæfa í bland við fagnaðar- boðskap prangara fyrir jólin en sjálf sálmalögin. Þetta er góður siður. Tónlist af þessu tagi er til þess fallin að ylja upp hugskotið með hollri bjartsýni í myrkasta skammdeginu og minna með notalegri hógværð á námunda hátíðarinnar. Þó er eitt lag í þessum góða flokki, sem ævinlega fer langt með að leggja mitt tilvonandi jólaskap í rústir. En það er lag sem nefnist White Christmas, og hefur í útvarpinu verið kallað Hvít jól, en ætti aldrei að vera nefnt á íslenzku. Þessi hrylli- lega melódía er einhver sá væmnasti tónasam- setningur, sem oss kristnum mönnum er boðið upp á, og það þegar sízt skyldi. En því miður er þetta það sönglag, sem hvað oft- ast kliðar í útvarpi á jólaföstu. Út yfir tekur, þegar óhræsið hann Bing sálugi Crosby er látinn mjálma þessa vellu út yfír landslýð- inn. Ég leyfi mér að skora á forráðamenn Ríkisút- varpsins að leitast við að rækta með sér til- hlýðilegt ofstæki gegn þessu lagi, svo það fái helzt aldrei á þeirra vegum að dilla sér á öldum ljósvakans. Helgi Hálfdanarson M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.