Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 39
„Það versta er, að það veit eng- inn hvaða hús eða hverfi verða næst fyrir valinu,“ sagði ráðvilltur Búkarestbúi en þar er fólki tilkynnt með aðeins tveggja vikna fyrirvara, að það verði að koma sér burt. A nóttinni lýsa rafsuðuglamparn- ir upp myrkrið þar sem verið er að vinna við nýju stjómarmiðstöðina en; hana á að vígja 23. ágúst á næsta ári. Er sá dagur eins konar þjóðhátíðardagur í Rúmeníu, hald- inn til minningar um „frelsunina" og innreið sovésku heijanna árið 1944. Enginn veit þó hvort Nicolai Ce- ausescu Rúmeníuforseti ætlar að setjast þama að; hvort satt sé, að reist hafi verið grafhýsi yfir hann sjálfan í miðri byggingasamstæð- unni eða hverjir eigi að búa í blokk- unum við breiðstrætið, sem liggur frá stjómarmiðstöðinni, alls 12 km langan veg. Blokkimar em ekki ólaglegar til að sjá en þær einkennast af yfir- þyrmandi tilbreytingarleysi. Er það einnig haft eftir erlendum sendi- manni, að íbúðirnar séu bæði litlar og dimmar. Ef fólk bregður undir sig betri fætinum og ætlar til dæm- is að vera við messu á sunnudegi er eins gott fyrir það að halda sig við gangstígana. Sá, sem stígur á grasflatimar, á yfir höfði sér að missa ijórðung mánaðarlaunanna í sekt. Að sælqa messu er heldur ekki litið hým auga af stjómvöldum enda ,',hatar Ceausescu kirkjur". Metropolitan-kirkjan í Búkarest stendur þó enn en það er búið að fela hana innan um blokkirnar. Rúmenar, sem taka þá áhættu að tala við erlendan fréttamann, eiga sér allir þann draum að kom- ast úr landi. Enginn trúir því, að neitt muni breytast. Ungur maður tók þannig til orða, að líkurnar á því, að fólkið fengi að halda í þorp- in sín og menningararfinn, væm jafn miklar og að Dóná færi að renna í öfuga átt. -VICTORIA CLARK SEVEN seas VÍTAMÍN DAGLEGA GERIÐ GÆÐA SAMANBURÐ KÓREANSKT GINSENG (§)t orenco HEILDSÖLUDREIFING Laugaveg: 16, sími 24057. éaei aiaAjai^nioaoM D MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 C 39 SÆNSK GÆÐAVARA JUVEL ER BÆÐIÓDÝRT OG GOTT JUVEL ER ÁN ÓÆSKILEGRA AUKEFNA S.S. BRÓMATS OG BLEIKIEFNA I bakstur og til matargerðar. JUVEL í JÓLABAKSTURINN! JUVEL HVEITI Samtök Áhugafólks Um Varnir Gegn Alnæmi STOFNFUNDUR 5. DESEMBER 1988 KL. 20.30 í FUNDARSAL HÓTEL LINDAR Ijúkdómurinn alnæmi er orðinn áþreifanlegt vandamál á íslandi. Hann hefur þegar náð mikilli útbreiðslu meðal íslendinga og því miður bendir ekkert til þess að barátta okkar við hann verði auðveldari en annarra vestrænna þjóða. Alnæmi herjar á fólk í blóma lífsins, einkum milli tvítugs og fertugs, fyrst homma og aðra karlmenn, sem lifa kynlífi með eigin kyni, stunguefnaneytendur svo og rekkjunauta þessara einstaklinga, konur jafnt sem karla. Sjúkdómurinn breiðist þannig út um allt þjóðfélagið og fer ekki í manngreinarálit, eins og dæmin sanna. síðustu þremur árum hafa heilbrigðisyfir- völd staðið fyrir upplýsingamiðlun í skólum landsins, í blöðum og sjónvarpi, auk útgáfu fræðslu- bæklinga og heimsókna á vinnustaði. Reynt hefur verið að miðla upplýsingum sem víðast og til sem flestra. Samt virðist sem margir telji að þetta vand- amál komi þcim ekki við. Mikilvægt er að reyna að reyna að leiðrétta þennan misskilning því að alnæmi getur snert mann átakanlega ef ættingi eða vinur smitast, þótt sá hinn sami telji enga hættu á að smitast sjálfur. Nýlegar skoðanakannanir benda til þess að hér þrífist hræðsla og fordómar gegn smituðum einstakl- ingum. Það er staðreynd að smitað fólk á í miklum erfíðleikum með að halda atvinnu sinni og að fínna sér öruggt húsnæði. Samfélag, sem kennir sig við mannúð og jafnrétti, getur ekki orðið vitni að slíku, án þess að leita úrbóta. Það er því nauðsynlegt, að almenningur láti nú málið til sín taka, og stofni samtök um varnir gegn alnæmi. 1 ið teljum að aðalverkefni slíkra samtaka, sé að fara nýjar leiðir til að uppfræða fólk um sjúkdóm- inn og stofna til umræðu- og fræðsluhópa til að auka þekkingu og skilning. Með aukinni umfjöllun er unnið gegn því viðhorfi, að alnæmi komi almenningi ekki við. Með auknum skilningi hrekjast fordómar á braut en það er nauðsynlegt skref til þess að veita megi smituðu og sjúku fólki stuðning í baráttu þess fyrir mannsæmandi lífi til jafns við aðra í þjóðfélag- inu. Slíkur stuðningur.m.a. með fjársöfnun, hlýtur að vera annað aðalverkefni samtaka áhugafólks, en mikilvægt er að þau móti sjá.lf stefnu sína eftir því sem styrkur og þekking vex. Áhugahópar af þessu tagi eiga sér margar fyrirmyndir erlendis og hafa víðast reynst ómetanlegur bakhjarl í baráttunni við alnæmi. |ið bjóðum þér að taka þátt í stofnfundi samtakanna mánudagskvöldið 5. desember kl. 20.30 í fundarsal Hótel Lindar, Rauðarárstíg 18. F.h. undirbúningsnefndar Auður Matthíasdóttir félagsráðgjafi læknir Vilborg Ingólfsuóttn deildarstjóri essemm/siA 2305

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.