Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 48
48 C______
BAKÞANKAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
Veiting
gull-
vasksins
Eitt sinn sagði maður í mín
eyru, ég kann ekkert illa við
drukkna menn, bara ef þeir
byr]a ekki að tala um hvað þeir
eru merkilegir.
mmmmmmmm^m Ég get ekki að
þvi gert að
stundum finnst
mér Sjónvarpið
og Stöð 2 vera
eins og tveir full-
ir kallar. Það er
æ ofan í æ verið
eftir Olof að segja lands-
Gunnarsson mönnum á hvora
stöðina sé meira horft, ein stöðin
ætlar nú bráðum að lána hinni
brauðristina sína og annaðhvort
er fyrir fólk að standa á fætur
og saga tækið í tvennt og senda
þeim sinn hvorn helminginn eða
bíða af sér vaðalinn. Og þegar
þessir tveir miðlar geta ekki
malað meira hvor um annan,
sem reyndar tæplega hendir, þá
flytja þeir inn útlendan fjöl-
miðlaóð, það er verið að veita
Lverðlaun út í heimi fyrir skásta
tónlistarmyndbandið á liðnu ári
og umslögin eru komin upp á
senu og við eigum öll að standa
á öndinni. Ef svo fer fram sem
horfir þá kemur sjónvarpið til
með að fjasa hamingjusamt um
sjálft sig alla tuttugustu og fyrstu
öldina og kannski gott betur.
Má ekki aðeins breyta til? Má
ekki rétt aðeins koma öðrum að?
Ekki rithöfundum og ekki list-
málurum, nei, nei, þeir fá nú nóg
að beija bumbur, en hvað með
_ ->að gefa pípulagningamönnum
sjansinn. Ég á marga góða vini
í þeirri stétt og mig dreymir um
að sjá Háskólabíó fullt út úr dyr-
um. Þar gefur að líta margan
þrekinn píparann í sæti. Þarna
eru lærlingar, sveinar og gamlir
meistarar. Meistararnir gefa
hver öðrum í nefið og það ríkir
spennuþrungin stemmning í
salnum. Fyrst er nokkrum fyrir-
tækjum veitt verðlaun, það
koma þijú umslög á sviðið, veitt
er viðurkenning fyrir innflutn-
ing á fallegasta sturtubotninum
í ár. Verslunin Vald Poulsen,
gjöriði svo vel, gefa þeim herra-
mönnum gott klapp. Hver kom
haganlegast fyrir vaski á síðasta
ári undir risi í gömlu timbur-
-—>húsi? Vitaskuld Guðlaugur
Samúelsson pípulagningameist-
ari frá Keflavík. Hver fær sil-
fursturtubotninn i ár? Hver fær
gullvaskinn? Það ríkir ógnar eft-
irvænting þegar gullvaskurinn
er veittur. Gullvaskurinn er á
stærð við vindlakassa og stendur
á fallegum tekkfæti. Hann
hreppir miðaldra pípari frá
Húsavík. Hann þarf að þerra
burt tár þegar hann stendur á
sviðinu, og síðan kemst hann
svo að orði að í raun og veru
beri sér ekki verðlaunin, heldur
meistara sínum, sem fyrstur
hafi kennt sér muninn á múffu
og nippelformúffu og afgamall
pípulagníngaþjarkur, svo stirður
áratuga þrældómi að gnestur
i hveijum lið er leiddur á sviðið.
Það drynur i rauðum tóbaksklút-
um út í sal þegar sigurvegarinn
afhendir sinum gamla meistara
glóandi gullvaskinn.
En sjónvarpið, sem ekkert
getur séð i friði, er komið á stað-
inn og viðtalskúlunni er otað
upp í andlitið á þessum tveim
heiðursmönnum í tilefni af
þessu einstæða atviki. Seinna
um kvöldið er myndin svo sýnd
á Stöð eitt, með góðfúslegu leyfi
Stöðvar tvö.
Nokkrum dögum síðar fara
~ gtöð eitt og tvö í hár saman.
Niðurstöðum kannana um hvor
þeirra hafi haft fleiri áhorfendur
að fréttinni ber engan veginn
saman.
IÐUNNARBÓK E R GÓÐ BÓK
Gunnlaugur Guðmundsson
HVER ER ÉG?
Bóhn um stjömuspeki
Tilfinmngar, ástir, hœfileikar, veikleikar,
heilsufar. Langar þig til að vita meira um
sjálfan þig og ástvini þínaP Viltu skyggnast
undir yfirborðið og komast að því hver eru
hin ráðandi ófl í tilfinningalífi og ástum,
hvar styrkur eða veikleiki hvers felstP Hver er
ég? Bókin um stjömuspeki varpar Ijósi á ótal
margt í fariþínu, makaþíns, bama ogvina.
Pú getur lœrt að gera stjömukort fyrirþig
og þína. Hver er ég? eftir Gunnlaug Guð-
mundsson er glœsilegasta ogjafnframt ítarleg-
asta verk sem út hefur komið á íslensku um
stjömuspeki. Hver er ég? . . . bók sem þú
notar . . . aftur og aftur.
IÐUNN
Brœðraborgarstúj 16 ■ sími 28555