Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 30
30 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
GÁRUR
eftir Elínu
Pálmadóttur
Nashymingarnir í heimsókn
Dragðu stólinn þinn að hengi-
fluginu og ég skal segja þér
sögu“, sagði Scott Fitzgerald
gjarnan áður en hann byrjaði
frásögn, hvatti áheyrandann til
að varpa sér út í óvlssuna, logna
sögu eða sanna. En þessi gamla
saga er dagsönn, skaust upp úr
gleymskunnar dái undir frétta-
lestri i vikunni.
Banaslys hafði orðið á götu-
horni. Tvö ung börn orðið undir
bíl og lágu eftir í valnum. Bíllinn
horfinn. Þetta gerðist á Ásvalla-
götunni, fyrir framan hús Jóns
Asbjörnssonar, hæstaréttar-
dómara. Síðdegis barst Vísir í
húsið með fréttum af atburðin-
um. Jón var vanur að koma upp
til fólksins á efri hæðinni, rabba
við það og fá að lita i Vísi. Nú
kom húsmóðirin á móti honum
í miklu uppnámi: Hefurðu heyrt
Jón hvað gerðist hér fyrir utan?
Er þetta ekki skelfilegt? Jón leit
á blaðið og sagði: Jú, en ég má
ekki segja neitt um það eða
mynda mér skoðun á því fyrir-
fram. Það kann að koma til
Hæstaréttar! Þegar atburðurinn
hefur nú af gefnu tilefní rifjast
upp og verið nokkrum sinnum
frá honum sagt, hafa viðbrögðin
gjarnan orðið: Fyrr má nú vera
grandvarleikinn! Heiðarleiki
getur nú gengið of langt!
Ætli hafi ekki orðið eitthvert
verðfall á grandvarleikanum
síðan fyrrnefnt atvik gerðist fyr-
ir nokkrum áratugum. Allt á
víst sinn tíma og verður þá að
beita afstæðiskenningunni. Úr
því að til eru mismunandi stig
af grandvarleika, hvernig ætli
hann stigbeygist þá? Kannski:
heiðarlegt - löglegt en siðlaust -
löglegt og siðlaust? Miðstigið
„löglegt en siðlaust" var fyrir
nokkrum árum gripið á lofti af
vörum ungs stjórnmálamanns.
Þess timi liklega kominn. Er enn
neikvætt og brúklegt, ef dæma
má af nýlegum viðbrögðum við
áfengiskaupum hæstaréttar-
dómara. Efsta stigið „löglegt og
siðlaust” virðist enn ekki fá mik-
ið viðnám. En viðhorfsbreyting-
ar læðast gjarnan að hægt og
hljótt.
Á sinn máta eins og hjá Nas-
hyrningum Ionescos, ' sem
franski leikarinn Éric Eychenne
flutti á frábærri einsmanns sýn-
ingu í Iðnó í vikunni. „Nas-
hyrningur laus i borginni! Ertu
ekki hissa? Þetta ætti ekki að
vera leyft!“ eru fyrstu viðbrögð
vinar sögumanns þegar nas-
hyrningur birtist i borginni. Eru
fáir fyrst en fjölgar ört. Og með-
an hver manneskjan af annarri
breytist í slíka skepnu, sem
ryðst rymjandi og bramlandi um
borgina, þrasa vinirnir og sam-
starfsfólkið um hvort þetta séu
nashyrningar með eitt horn eða
tvö og þá hvort það séu Afrikun-
ashyrningar eða Asíunashyrn-
ingar. Æ fleiri fylla flokk nas-
hyrninganna, taka smám sam-
an upp þeirra hegðun. Þegar
hneykslaði vinurinn heyrir að
Monsieur Boeff af skrifstofunni
sé orðinn að nashyrningi segir
hann nú:„Hvað með það? Er það
svo slæmt! Þegar allt kemur til
alls eru nashyrningar ekkert
svo ólikir okkur og eiga sama
rétt á að lifa...Er okkar hugar-
heimur eitthvað æskilegri en
þeirra?....Mannlegt gildismat er
fallið! Þú ert ekkert annað en
viðkvæmur og hlægilegur gam-
all auli, minn kæri“. Og þarmeð
tekur vinurinn að breytast í
skepnu. Varla nokkur maður
eftir sem ekki hefur látið sann-
færast af meirihlutanum og tek-
ið sinnaskiptum. Að lokum hef-
ur sögumaður aðeins eina
manneskju, skrifstofustúlkuna
Daisy. E.t.v. megna þau gegn
margnum, ef þau eignast börn
og bjarga mannkyninu? En
nei....
„Daginn eftir æddu nashyrn-
ingarnir um allar götur. Klukk-
utímum saman sást ekki ein
einasta mannvera. Húsið okkar
hristist undan hófaslögum
skemmdavarganna, nágranna
okkar.„Komi það sem koma vill.
Hvað gerum við? “spyr Daisy.
„Allir orðnir sjóðandi vitlausir.
Heimurinn er sjúkur“. „Ekki
læknum við hann“. „Við getum
ekki náð sambandi við neinn.
Skilur þú hvað þeir segja?“ „Þeir
geta ekki talað“. „Hvað veist þú
um það?“....Hvernig ætlarðu að
bjarga heiminum, Daisy, ef þú
vilt ekki að við eigum barn?“
„Kannski eru það við sem þarf
að bjarga. Kannski erum við
sjálf afbrygðileg. Kemurðu auga
á nokkurn annan sem er eins
og við?“ „Daisy, ég vil ekki heyra
þig segja þetta! Eg fullvissa þig
um að við höfum rétt fyrir okk-
ur“. „Hvilíkt yfirlæti! Enginn
heilagur sannleikur er til! Það
er umheimurinn sem hefur rétt
fyrir sér, hvorki ég né þú" „ Jú,
Daisy, ég hefi rétt fyrir mér. Þú
skilur mig og ég elska þig eins
og maðurinn einn getur elskað
konu, það er min sönnun“. „Ég
skammast mín dálítið fyrir jsað
sem þú kallar ást, þetta sjúklega
ástand...því er ekki hægt að líkja
við þessa frábæru orku sem
streymir frá öllum þessum dýr-
um sem umkringja okkur“. Og
morguninn eftir er Daisy lika
horfin. Fylgir fjöldanum eins og
allir hinir, orðin að skepnu.
Saga Ionescos og leikrit flaug
um heiminn og er enn í fullu
gildi. Fyrrum var það gjarnan
heimfært upp á nasistana og
valdatöku þeirra meðan fólkið
sneri sér undan og ræddi um
smámuni. Nú þykir það áminn-
ing og aðvörun um hvernig sið-
gæði og mannlegt samfélag get-
ur breyst í skepnuskap ef borist
er viðnámslaust með straumn-
um. Við skyldum þó ekki vera
byijuð að veita viðnám?
Hið árlega jólahlaðborð okkar er nú
komið á sinn stað í Skrúði. Við bjóðum
jsér ósvikna jólastemmningu og frábær-
an mat í hverju hádegi og á hverju kvöldi
fram til 22. desember. Þorláksmessu-
skatan verður síðan framreidd í hádeg-
inu eins og venja ertil!
Tilvalið fyrir vinina, vinnufélagana og
aðra að koma í Skrúð eða leigja einkasal
og gera sér glaðan dag mitt í erii jóla-
undirbúningsins.
Sími 91-29900
miílOÖQK «k
Ármúla 8
Síml 82275
Visa og Euro
Greiðslukjör
byrjendanámkeið
Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt
byrjendanámskeið í notkun einkatölva
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-tölva
• Stýrikerfíð MS-DOS
• Ritvinnslukerfið WordPerfect
• Töflureiknirinn Multiplan
• Umræður og fyrirspurnir
Tími: 6., 8., 13. og 15. desember kl. 20-23
Innritun í símum 687590 og 686790
__
Borgartúni 28.