Morgunblaðið - 20.12.1988, Síða 51
RRP'r JTTíRwfaRflrr ns 5TTTr>ArfTJI.fn5T<í. .ffTGATSVIUDHÖM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1988
oe
51
80* W 60* 40’ 20’ 0* 20* 40”E
iVWií'Vr^
v. % > - y.
Meginstraumar við yfirborð í Norður-Atlantshafi.
hafa varað fólk við að neyta sjávar-
afurða vegna vaxandi efnamengun-
ar í sjó.
Þörungaplágnr og selafár
- Ný viðhorf
Á þessu ári höfum við orðið vitni
að óvenjulegum atburðum í lífríki
hafsins. Þörungaplágur og selafár
sem gengið hafa í Norðursjó og á
nærliggjandi innhöfum eru að
mínum dómi merki þess að mikil
röskun hafi orðið í lífkerfi viðkom-
andi hafsvæða. Mér er það fullljóst
að vísindamenn eru ekki á einu
máli um ástæður þessara atburða.
Menn spyija: Af hveiju hafa allir
þessir atburðir orðið nú á þessu
ári? Víst er að losun efna í sjó hef-
ur ekki aukist svo á milli ára að
það geti skýrt þessar tíðu uppákom-
ur nú á þessu ári í samanburði við
fyrri ár. Því miður er allt of lítið
vitað um langtíma áhrif ýmissa
mengunarefna á lífkerfi hafsins.
Umfangsmestu rannsóknir á
áhrifum mengunar á lffríki sjávar,
sem gerðar hafa verið, eru tvímæla-
laust í sambandi við olíumengun,
enda var olían lengi tálin eini alvar-
legi mengunarvaldurinn í sjó. Það
sem vekur athygli í þessum rann-
sóknum er að það eru ekki hin stóru
olíumengunaróhöpp sem raska
lífkerfí hafsins. Mörgum er í fersku
minni stóru olíulekamir frá skipun-
um „Torrey Canyon", „Argo Merch-
ant“ og „Ámoco-Cadiz", eða þegar
olíuleiðsla sprakk á „Bravo“-bor-
pallinum í Norðursjó á síðasta ára-
tug, en í öllum þessum óhöppum
fóru hundruð þúsunda tonnna af
olíu í sjó á tiltölulega litlu svæði. í
þessum tilvikum sýndi það sig að
áhrífin voru tímabundin, en minnk-
uðu og hurfu smátt og smátt, og
lífríkið náði sér að fullu aftur. Hlið-
stæðar rannsóknir á svæðum þar
sem um er að ræða stöðuga losun
olíu, þó í litlu magni sé, hafa hins
vegar leitt í ljós veruleg áhrif á
vöxt og tímgun lífvera. Spyija má
hvort hliðstæð hegðun eigi ekki
einnig við um önnur efni og efna-
sambönd, sem eru ýmist framandi
eða jafnvel finnast í einhveiju
magni í sjónum, og að áhrif á
lífkerfið sé frekar háð álagi í tíma-
lengd, en heildarmagni mengunar-
efna. Hvort sem þessi skoðun er
rétt eða ekki, þá er hitt augljóst
að ný viðhorf þurfa að ráða ferðum
ef takast á að snúa þróuninni við.
Þau viðhorf sem ríkt hafa meðal
margra ríkja, að hafið eigi að nota
eftir megni til förgunar úrgangs,
og ekki sé um að ræða mengun
nema sýnt hafí verið fram á að svo
sé, hafa ekki náð að halda í horf-
inu, hvað þá að draga úr mengun
heimshafanna.
ísland hefur lagt til og fengið
samþykkt á alþjóðavettvangi að
sönnunarbyrði verði snúið við, að
því er varðar geislavirkan úrgang.
Með því að sönnunarbyrði er snúið
við er átt við að sýnt sé fram á það
áður en viðkomandi starfsemi er
hafin, að hún valdi ekki aukinni
mengun í sjó. Slík viðhorfsbreyting
þarf að koma til almennt að mínum
dómi.
Rétt er þó að undirstrika að til
þess að okkur verði sem best ágengt
á alþjóðavettvangi verðum við auð-
vitað að hafa hlutina í lagi heima
fyrir.
Lokaorð
Eftirtaldar aðgerðir eru að mfnu
áliti forgangsverkefni okkar til að
vemda hafið gegn mengun þegar
litið er til lengri tíma:
1. Auka þarf mælingar á meng-
unarefnum í sjó, hafsbotni, og
sjávarlífvemm hér við land.
Rannsóknir þarf að efla á meng-
unaráhrifum fiskeldis á átranda-
svæðum.
2. Stórauka þarf fræðslu um
mengunarmál meðal allra lands-
manna, í þeim tilgangi að upp-
ræta það sinnuleysi og þann
sóðaskap, sem eiga stærstan þátt
í þeirri mengun sjávar, sem nú
viðgengst hér.
3. Bæta þarf móttökuaðstöðu
til söfnunar úrgangsolíu, einkum
frá skipum, í höfnum og frá aðil-
um í landi. Nauðsynlegt kanna
að reynast að setja skilagjald á
þá olíu sem myndar úrgang.
4. Efla þarf eftirlit með notk-
un þeirra efna í landi sem leiða
af sér hættulegan úrgang og
tryggja sómasamlega förgun
þeirra (sbr. PCB o.fl. efni). Jafn-
vel banna notkun sumra þeirra..
5. Á alþjóðavettvangi þarf að
nást samþykki fyrir algjöru banni
við losun þrávirkra efna sem
safnast upp í lífkeðjunni. Þá verði
komið á öfugri sönnunarbyrði
fyrir losun allra nýrra efna í sjó.
Ennfremur að aðgerðir til að
draga úr mengun sjávar taki fullt
tillit til hinna lögmætu nota hafs-
ins, auk hinnar hefðbundnu skil-
greiningar á mengun.
HöfUndur er siglingam&lastjóri.
Jf
X
o
í
#
//•RÖNNING
•//f// heimilistæki
KRINGLUNNI 8-12/103 REYKJAVlK/SlMI (91)685868
#
I
Jf
fást hjá
Tóms tundahúsinu,
ótal gerðir, bæói stórar
og litlar en umfram allt ,
fallegar, þægar og jtitWl
góöar. Erhægtaó
jólagjöf fyrir litiö AfW
fólk?
Laugavegi 164, sími 21901
■■■■■■■■■■■■■■i
mælasektir