Morgunblaðið - 20.12.1988, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1988
Heilsubótarj ólamatur
Þá er komið að jólamatnum, sem að þessu sinni er helgaður þeim sem þurfa að
hugsa um heilsuna og mega ekki borða okkar hefðbundna jólamat. Þeim mat
voru gerð mjög góð skil í fostudagsblaðinu 2. desember sl. og mér finnst því að bera
í bakkafullan lækinn að koma með meira af slíku. Fólk sem ekki þolir fítu og
sykur þarf líka sinn jólamat. Sumir hugsa sem svo að ekki sé hægt að búa til fítu-
og sykurlítinn hátíðarmat, en það er reginmisskilningur.
Engin ástæða er til að steikja í
mikilli fítu og alls ekki harðri fítu,
við getum glóðað matinn í staðinn,
og sósur og ídýfur þurfa ekki endi-
lega að vera með ólíusósu (may-
onnaise) eða ijóma, það fæst sýrð-
ur ijómi með 10% fítuinnihaldi og
hægt er að sía súrmjólk í kaffí-
pappírspoka og nota í ídýfur. Ögn
af hreinum ijómaosti í sósuna bæt-
ir mikið en fer ekki eins illa i mann
og ijómi og smjör. Fitulítill matur
fer vel í alla og hægt er að vera
vel saddur án þess að stynja af
vanlíðan á eftir.
Forréttur
FyUtir sveppir
10 stórir sveppir,
1 stór sneið magurt beikon,
1 msk. sherry eða eplasafi,
20 g rifinn mjólkurostur (17%)
1 harðsoðið egg eða harðsoðnar
hvítur af tveimur,
fersk steinselja,
*/4 tsk. oregano,
1 msk. parmesanostur,
nýmalaður pipar,
1 sitróna i bátum.
1. Holið sveppina að innan, eða
takið stilkinn af þeim, þá á að
vera nægilega stór hola inn í
sveppina. Þerrið sveppina vel með
eldhúspappír, þvoið þá ekki. Legg-
ið þá á eldfast fat, þannig að
holan snúi upp.
2. Saxið leggina af sveppnum
smátt.
3. Skerið fítu úr beikoninu,
skerið það síðan smátt. Setjið í
pott og sjóðið í eigin feiti við lítinn
hita í 5 mínútur.
4. setjið sveppaleggina og
shenyið út f og sjóðið áffam í 7
mínútur. Hrærið í og gætið þess
að þetta brenni ekki. Athugið að
allt alkóhól gufar upp við suðu.
5. Harðsjóðið eggin, saxið
smátt og setjið út í (setjið saxaða
hvítuna út í ef þið notið ekki rauð-
una).
6. Takið pottinn af heliunni,
skerið mjólkurostinn í örlitla ten-
inga og setjið saman við. Saxið
steinseljuna og setjið hana ásamt
oregano útí.
7. Pyllið sveppina með mauk-
inu, stráið parmesanosti yfír.
8. Hitið bakaraofn í 190°C,
blástursofh f 170°C, setjið í miðj-
an ofninn og bakið í 10 mínútur.
9. Setjið 2 sveppi á hvem smá-
disk, skerið 3/4 hluta sítrónunnar
f báta og berið með, en kreistið
V4 hluta yfir sveppina og berið
fram.
Meðlæti: Ristað brauð skorið í
hom.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Aðalréttur
Lax í álpappírsbögglum
5 stórar laxasneiðar,
safí úr V2 sítrónu,
IV2 tsk. salt,
nýmalaður pipar,
1 meðalstór blaðlaukur (púrra),
V4 tsk. salt,
V2 dl vatn,
3 tsk. ijómaostur án bragðefna,
álpappír,
5 tómatar og nokkrar steinse-
ljugreinar.
1. Skafíð roðið af sneiðunum,
hreinsið úr þeim blóð og skerið
af ugga.
2. Kreistið safa úr V2 sítrónu,
hellið yfír sneiðamar. Stráið á þær
salti og malið pipar yfir. Látið
bíða í 15 mínútur.
3. Kljúfíð blaðlaukinn, þvoið
vel, skerið í sneiðar. Setjið vatn
og salt í pott og sjóðið laukinn í
því við hægan hita í 7 mínútur.
Hrærið þá ijómaost út í soðið.
4. Klippið niður 5 búta af ál-
pappír, leggið laxasneiðamar á
pappírinn. Setjið síðan blaðlauk-
inn og soðið yfír. Lokið pappímum
vel að ofan, ekki má renna út úr
honum.
5. Hitið bakaraofn í 200°C,
blástursofn í 180°C, setjið ál-
pappírsbögglana í ofninn og bakið
í 20—30 mínútur.
6. Setjið hvem böggul á disk,
klippið ofan í pappírinn og borðið
upp úr honum.
7. Skerið tómatana í rif, sem
hanga saman að neðan, leggið 1
tómat með á diskinn og setjið
steinseljugrein ofan á. Berið soðn-
ar kartöflur og hrásalat með.
Athugið: Þetta er hægt að út-
búa löngu áður, en gæta verður
þess að setja laukinn ekki heitan
á laxinn, ef þetta á að geymast.
En bögglamir geta verið í kæli-
skápnum þar til þeim er stungið
í ofíiinn.
Ábætisréttur
. Jógúrtís eða búðingxir
með jarðarbeijum
1 lítil dós jógúrt án bragðefna,
1 lítil dós sýrður ijómi, 10%
feitur,
1 pk. Royal gelatin dessert með
eða án sykurs,
1 bolli sjóðandi vatn,
300 g frosin jarðarber.
1. Leysið hlaupduftið upp í 1
bolla af sjóðandi vatni. Helmingi
minna magni en gefíð er upp.
Látið kólna án þess að hlaupa
saman.
2. Þíðið jarðarberin til hálfs,
meijið sfðan með gafði.
3. Blandið saman sýrðum ijóma
ogjógúrt, setjið hlaupsafann sam-
an við. Látið í kæliskáp í nikkrar
mínútur eða þare til þetta byijar
að hlaupa saman. Setjið þá jarðar-
berin út í og hellið í skál og látið
sfðan standa $ kæiiskáp ( 2 klst.
4. Ef þið búið til ís úr þessu,
setjið þið skálina í frystikistuna,
þegar þið eruð búin að setja jarð-
arberin út í. Látið fíjósa í 15
mínútur, hrærið þá í með gaffli,
seljið aftur f fíysti, hrærið aftur
í eftir 30 mínútur, en látið sfðan
fíjósa alveg.
.
*
%
AFAR
HAGSTÆÐ
VERÐ !
Barnaskíðapakkar
_________frá kr. 7.990.-
Unglingaskíðapakkar
frá kr. 9.300.-
Fullorðinsskíðapakkar
frá kr. 12.030.-
ATH.!
Tökum notaöan skíðabúnað upp í nýjan.
SPORT|
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
Conan á Rauða torginu
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Belushi og Schwarzenegger f eldlínunni.
Sýnd í Regnboganum.
Bandarisk. Leikstjóri: Walter Hill.
Handrit: Harry Kleiner, Walter
Hill og Troy Kennedy Martin.
Framleiðendur: Walter Hill og
Gordon Carroll með Mario Kassar
og Andrew Vajna. Kvikmynda-
taka: Matthew F. Leonetti. Helstu
hlutverk: Arnold Schwarzeneg-
ger, James Belushi, Peter Boyle
og Ed O’Ross. Carolco. 1988.
A tímum þíðu í samskiptum stór-
veldanna verður til mynd eins og í
eldlínunni („Red Heat“), sem sýnd
er um jólin í Regnboganum. Það er
brasðralagsmynd austurs og vesturs
í búningi dæmigerðrar Walter Hill-
hasarmyndar með Amold Schwarz-
enegger í hlutverki Conans villi-
manns í rússneskum einkennisbún-
ingi og James Belushi í hlutverki
amerísku götulöggunnar, jafn kjaft-
for og kollegi hans er þögull. Sam-
vinna þeirra er nauðsynleg svo hafa
megi hendur í hári rússnesks eitur-
lyfjasmyglara á götum Chicagoborg-
ar. Við ættum öll að vita hvemig
sagan endar, það sem skiptir máli
er hvemig hún gengur frarn að því.
Þegar Walter Hill er annars vegar
er stutt í klisjuna og þótt Rússinn
og Ameríkaninn séu óvenjulegt par
er persónugerðin löngu kunn úr fjöld-
anum öllum af löggufélagamyndum
síðustu ára og það er lítil nýjung í
öðru; Schwarzenegger er iðulega
myndaður þannig að hann sýnist
mikilfenglegri en hann er, hann er
þögulli en Kremlarmúrinn og sterk-
ari en Jámtjaldið og fær fyrir starfs-
félaga Belushi, sem þolir hann ekki
í fyrstu en fjandskapurinn þróast í
vinskap þegar á líður. Rússinn fellur
ekkert í stafí yfir Ameríkunni heldur
glottir að henni kaldhæðnislega en
nú er það ekki Schwarzenegger sem
fær alla bestu brandarana, sem ger-
ir hann óvenju dauflegan, heldur
Belushi, sem gerir símalandi hlut-
verki sínu ágæt skil. Meginefni
myndarinnar er þeirra samband og
samvinna og hraðinn, hasarinn og
spennan dettur mikið til niður í karp-
inu á milli þeirra.
Það er vitað mál að þegar Hill
hefur Rambó-framleiðenduma Mario
Kassar og Andrew Vajna, Amold
Schwarzenegger og skemmtilegan
löggufélaga í liði með sér, má alltaf
búast við spennandi hasar af og til
og léttum húmor. Og slíkt er hér að
fínna en í þetta skiptið er minni has-
ar en oft áður, slappari spenna og
húmorinn, sem snýst auðvitað mest
um Rússa í Ameríku, er svosem nógu
rnikill en ekkert endilega bráðsniðug-
ur. Það má vissulega hafa gaman
af mörgu í myndinni en stundum er
atburðarásin svo hæg að maður miss-
ir niður þráðinn.
Allt ber það að sama brunni.
Walter Hill verður að hressa eitthvað
uppá sig ef hann ætlar ekki að láta
nýju, ungu hasarleikstjórana vaða
yfir sig.
Hluti myndarinnar var tekinn í
Moskvu, sem er í sjálfu sér mæli-
kvarði á þeim breytta hugsunargangi
sem myndin er sprottin úr. Fyrir
nokkrum árum hefði verið óhugsandi
fyrir hvem sem er að kvikmynda
ameríska hasarmynd f kringum
Kreml; sérstaklega Kassar og Vajna,
sem mjög eru bendlaðir við svokall-
aðan Rambófasisma. En vegir glasn-
ost eru órannsakanlegir.