Morgunblaðið - 20.12.1988, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1988
FYRIR ALLA FJOLSKYLI
HVERS VEGNA ER NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN AÐ FLYTJA INN ULLARVÖRUR? <
Er íslenska ullin ekki nógu góð? Jú íslenska ullin er fróbœr, en hún hefur eínn ókost s'
fyrir okkur sem erum að veslast upp f siðmenningunni. Hún er í grófara lagi
og við sem erum með áróður uppi um það að allir eigi að vernda húðina og líkamann
fyrir kulda heyrum þau svör aö hún stingl. Við í Náttúrulækningabúðinni höfum þá skoðun að allir þeir sem unna
útiveru skuli eiga góð ullarnærföt. Því viljum við bjóða landsmönnum öllum, kornabömum, börnum og fólki á öllum
aldri, ullarnærföt úr merinoull sem er fíngerðari og mýkri en nokkur önnur fjárull.
Merinouli fyrlr: Ungbarnið í kerru og vagni, barnið í lelk og útiveru, skíðafólk, göngufólk, hestafólk, rjúpna-
veiðimenn, sjómenn, iðnaðarmenn og alla þá sem starfa sinna vegna þurfa að vinna í
ta klætt sig róttum
ÚTSÖLUSTAÐIR
100% ANGÓRA
Húfa, trefill og vettlingar
úr íslenskri angóru
frá FÍNULL
allt í einum pakka.
VERÐ KR. 2.390
FRAMLEIÐSLA - HEILDSALA - SMÁSALA
V/ÁLAFOSSVEG - SÍMI91 -666006
REYKJAVÍK: Álafossbúöin, Vesturgötu 2 • Árbæjarapótek, Hraunbæ 102B • Breiðholtsapótek, Módd • Droplaugarstaðir,
verlsun • Ellingsen, Grandagarði • Garðsapótek, Sogavegi 10 • Heilsumarkaðurinn, Hafnarstræti 11 • Holtsapótek, Lang-
holtsvegi 84 • Ingólfsapótek, Kringlunni • Laugavegsapótek, Laugavegi 16 • Lyfjabúðin Iðunn, Laugavegi 40 • Madam,
Glæsibæ • Skátabúðin, Snorrabraut 60 • Sportval v/Hlemm • Sportval, Kringlunni • Veiðivon, Langholtsvegi 111» KÓPA-
VOGUR: Bergval, Hamraborg 11 • GARÐABÆR: Apótek Garðabæjar • HAFNARFJÖRÐUR: Apótek Norðurbæjar, Mið-
vangi • Hafnarfjarðarapótek, Strandgötu 34 • Hannyrðabúöin, Strandgötu 11 • KEFLAVlK: Vinnufatabúðin, Hafnargötu 32
• MOSFELLSBÆR: Apótek Mosfellsbæjar • Fínull hf. v/Álafossveg • AKRANES: Sjúkrahúsbúðin • STYKKISHÓLMUR:
Hólmkjör • BÚÐARDALUR: Kaupfélag Hvammsfjarðar • (SAFJÖRÐUR: Sporlhlaðan • BOLUNGARVlK: Einar Guðfinns-
son hf. • FLATEYRI: Brauðgerðin • PATREKSFJÖRÐUR: Verslun Ara Jónssonar • TÁLKNAFJÖRÐUR: Bjarnabúð •
HÓLMAVlK: Kaupfólag Steingrímsfjarðar • VARMAHLlÐ: Kaupfélag Skagfirðinga • SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfiröingabúð
• SIGLUFJÖRÐUR: Veiðafæraversl. Sig. Fanndal • AKUREYRI: Parls, Hafnarstrætl • DALVlK: Dalvlkurapótek • Versl-
unin Kotra • ÓLAFSFJÖRÐUR: Valberg • HÚSAVfK: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar • MÝVATN: Verslunin Sel, Skútu-
stöðum • EGILSSTAÐIR: Kaupfélag Hóraösbúa • SEYÐISFJÖRÐUR: Verslun E.J. Waage • HÖFN: Kaupfélag A-Skaft-
fellinga • HELLA: Rangárapótek • SELFOSS: Vöruhús KÁ • HVERAGERÐI: Heilsubúðin, Heilsuhæli NLFI • ölfusapótek
• VESTMANNAEYJAR: Mozart.
~------
Ljósmynd/Laxakort
Ungnr veiðimaður með fallega veiði,
„Hvar er veiði-
stöng'in mín?“
Fylgja verður eft-
ir meðbyr stang-
veiðiíþróttarmnar
Veiöi
.....4-----------------
Gumundur Guðjónsson
„Þegar litla tveggja ára gamla
stelpukomið sá fossinn í Þjórsár-
dalnum um Verslunarmannahelg-
ina, fór hún öll að iða í bamastóln-
um sínum og sagði svo önug þeg-
ar hún var ekki losuð úr honum
með hraði, „hvar er veiðistöngin
mín“. Þetta er reyndar bam for-
eldra sem bæði ganga með alvar-
lega veiðibakteríu, en samt er
þessi vakning hjá baminu að
mörgu leyti táknræn fyrir
ákveðna sveiflu á íslandi í dag.
Sífellt fleiri böm em að ánetjast
sportinu og með þeim í vaxandi
mæli, foreldramir. Þetta er óðum
að verða að fjölskyldusporti og
þátttakendumir skipta nú þegar
þúsundum, líklega meira að segja
tugþúsundum.
Þetta hefur gerst æði hratt,
segja má að ofvöxtur hafí hlaupið
í sportið. Ofvöxtur, vegna þess
að það veldur þessu ekki, á öllum
sviðum. Því þarf að huga að.
Landssamband Stangveiðifélaga
hefur bmgðið hart við, gengist
fyrir „Veiðidegi fjölskyldunnar"
síðustu árin og það sást kannski
best í sumar hvað stangveiði er
orðin vinsæl, en fjöldi þátttakenda
var ótrúlega mikill þrátt fyrir að
segja megi að veiðidaginn hafi
bókstaflega rignt niður. LS hefur
undir forystu Rafns Hafnfjörðs
rekið mikinn áróður fyrir stang-
veiði sem fjölskyldusporti, látið
prenta veggspjöld og slagorð af
öllum stærðum og gerðum, nú
sfðast á sérstaka mslapoka fyrir
veiðimenn. Allt þetta er góðra
gjalda vert og þarft. Og gott til
þess að vita að LS hafí bmgðið
jafn hart við og orðið furðu mikið
ágengt sérstaklega er mið er tek-
ið af því að það er að mestu fjár-
svelt samband og því ekki líklegt
til stórræðanna.
Vandinn er sá, að mikilvægt
er að grípa til mikilla aðgerða,
einmitt nú, meðan meðbyrinn er.
Hvemig er t.d. með veiðivötnin
okkar? Líklega em þau flest ofset-
in, sem sagt fuli af dvergsilungi
sem ekki er spennandi að veiða.
Þá skortir margan nýliðann
fræðslu, bæði um veiðitæki, veiði-
tækni og veiðivötnin. Það em
margir á leiðinni til fyrirheitna
landsins, þeir læra að hnýta flug-
ur, afla sér upplýsinga og þreifa
sig áfram. En fjöldinn er mikill
og alit of margir vita ekki nógu
vel hvemig þeir eiga að snúa sér.
Það þarf að hressa upp á eitthvað
af þessum ofsetnu veiðivötnum,
því margir munu ekki hafa þolin-
mæði til þess að reyta upp einn
og einn titt. Þetta heitir veiðiskap-
ur vegna þess að málið snýst um
að veiða físk. Það er hægt að
njóta útiveru og fallegrar náttúm
án stangar.
Nú hefur Landssamband Veiði-
félaga hafíst handa við að kynna
veiðivötn landsins, fyrst með út-
gáfu rítana „Vötn og Veiði" og
síðan með bæklingi í samvinnu
við Flugleiðir. Þá kemur senn
handbók á markaðinn á vegum
Fijáls framtaks með lýsingum og
upplýsingum um hundmð veiði-
vatna. Þetta er allt í áttina, en
betur má ef duga skal. Allir sem
málið varðar verða að taka á hon-
um stóra sínum. Og það strax,
meðan meðbyrinn blæs.
Glæsilegar enskar «g amerískar bæknr til jolagjafa )
Bókabuð Steinars, Bergstadastræti 7.