Morgunblaðið - 30.12.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988
VEÐUR
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Jón Guðbjartsson afhendir Hávarði Olgeirssyni skipstjóra skjöld Slysavarnafélagsins í þakklætis-
skyni fyrir veittan stuðning áhafnarinnar.
Bolungarvík:
Áhöfti Dagrúnar færir Erni gjöf
Bolungarvík.
ÁHÖFN skuttogarans Dagrúnar
færði björgunarsveitinni Erni
hér í Bolungarvík að gjöf eitt
hundrað þúsund krónur sem vott
um það að þeir meti störf sveitar-
innar og að þeir starfs síns vegna
séu meðvitandi um þá nauðsyn
að hér sé til staðar öflug og vel
búin björgunarsveit.
Björgunarsveitin Emir þakkaði
fyrir þessa peningagjöf með því að
heimsækja áhöfnina um borð í skip
þeirra er þeir voru að leggja í
síðustu veiðiferðina fyrir jól og af-
hentu skipstjóranum fyrir hönd
áhafnarinnar platta með skildi
Slysavamafélags íslands og á hann
er letrað „Þökkum veittan stuðn-
ing“.
Fyrir stuttu þurfti björgunar-
sveitin einmitt að sækja slasaðan
sjómann um borð í Dagrúnu þar
sem hún var að veiðum um 30
sjómflur út af Deild. Ekki var um
alvarlegt slys að ræða en flytja
þurfti manninn í land.
Farið var á björgunarbátnum
Gísla Hjalta og tók ferðin um fjóra
tíma frá því að farið var frá Bolung-
arvík og þar til maðurinn var kom-
inn undir læknishendur hér í Bol-
ungarvík.
- Gunnar
I DAG kl. 12.00:
Heimifd: Veóurstofa Islands
(Byggt á veóurspá kl. 16.15 f gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 30. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandssundi er kyrrstæð 990 mb lægð sem
fer minnkandi en við Nýfundnaland er vaxandi 970 mb lægð sem
mun hreyfast allhratt f norðausturótt og fer að hafa áhrif ó veður
hér á landi á morgun. [ kvöld og nótt verður vægt frost á landinu
en veður fer hlýnandi þegar líður á morgundaginn.
SPÁ: Hægviðri og bjart veður um mest allt land f fyrramálið en
þykknar upp með vaxandi suðaustanátt um hádegi. Stinningskaldi
og siydda um vestanvert landið síðdegis. Hlýnandi þegar Ifður á
daginn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Hvöss sunnan og síðan suðvestanátt.
Rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið í öðrum lands-
hlutum. Hiti 6—7 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestanátt, kaldi eða stinningskaldi.
Skúrir sunnan- og vestanlands, en úrkomulaust á Noröur- og Norð-
austurlandi. Hiti 1—2 stig.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 0 alskýjað
Reykjavik +1 haglél
Bergen 7 þokumóða
Helslnki 4 alskýjað
Kaupmannah. 8 þokumóða
Narssarssuaq +19 helðskirt
Nuuk +15 léttskýjað
Osló 2 lágþokublettir
Stokkhólmur 6 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 18 lóttskýjað
Amsterdam 7 þokumóða
Barcelona 11 mistur
Berlln • 10 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 1 þoka
Frankfurt 7 þokumóða
Glasgow 11 rigning
Hamborg 8 þokumóða
Las Palmas 20 rykmistur
London 9 þokumóða
Los Angeles 6 heiðskirt '
Lúxemborg 8 þoka
Madrid 4 þokumóða
Malaga 17 hílfskýjað
Mallorca 16 skýjað
Montreal +18 léttskýjað
New Yorfc 1 lóttskýjað
Ortando 17 þokumóða
Paris 6 alskýjað
Róm 12 þokumóða
San Dlego 6 heiðskírt
Vin 8 helðskirt
Washington +2 skýjað
Winnipeg +23 snjókoma
Ólíklegt að verð-
ið hækki svona ört
- segja forstjórar íslensku fisksölu-
fyrirtækjanna í Bandaríkjunum um
spá The Erkins Seafood Letter
STJÓRNENDUR íslenzku fisksölufyrirtækjanna í Bandaríkjunum
efast um að verðhækkanir á þorskblokk verði jafn örar og The
Erkins Seafood Letter (bandarískt fréttabréf um sölu sjávarafurða)
telur og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu. Þar var talið að verð
á blokkinni færi fljótlega á komandi ári í 1,65 dali. Verð á blokk-
inni hefiir síðustu vikur verið um 1,40 dalir, fór hæst í fyrra í 2 dali,
en féll svo í 1,25. Stjórnendur íslenzku fyrirtækjanna vara við örum
verðhækkunum, sem þeir segja að geti valdið minni neyzlu og endan-
legri tilfærslu kaupenda yfir i aðrar og ódýrari tegundir.
„Spádómar Erkins hafa oft
reynst öfgakenndir, hvort sem hann
spáir upp- eða niðursveiflum, en
auðvitað vona ég að hann hafi eitt-
hvað til síns máls í þetta sinn,“
sagði Magnús Gústafsson forstjóri
Coldwater Seafood, sölufyrirtækis
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
í Bandaríkjunum. „Enn bendir ekk-
ert til að eftirspumin sé að aukast.
Við erum enn með töluvert hærra
verð á flökunum en Kanadamenn
þó þeir hafi hækkað sitt lága verð
eitthvað í áttina til okkar verðs.
Það er því ekki tilefni til að hugsa
um verðbreytingar.
Varðandi blokkina þá halda aðrir
því fram að ef hún hækkar ört
minnki kaup á henni og kaupendur
auki kaup á öðrum tegundum í stað-
inn. Nú er sá tími að reynt er að
halda birgðum i lágmarki, eins og
alltaf um áramót. Menn halda að
sér höndum með innkaup og dreif-
ingaraðildar leitast við að vera með
sem minnstar birgðir. Það er því
ekki fyrr en kemur fram í janúar
sem við sjáum hvort salan verður
lífleg. Einnig verða menn að hafa
í huga að spádómar eru ekki látnir
í askana," sagði Magnús Gústafs-
„Við viljum sjá verðið hækka
áður en við förum að tjá okkur,"
sagði Magnús Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Corp., dótturfyrirtækis Sambands-
ins í Bandaríkjunum. „Vissulega er
stígandi í markaðnum, en hvort hún
skilar okkur eins mikilli hækkun
og spáð er í The Erkins Seafood
Letter vitum við auðvitað ekki enn.
Það má ekki gleyma því að kaup-
endur sjávarafurða spyma auðvitað
fótum gegn verðhækkunum. Birgð-
ir á blokk og flökum fara lækk-
andi, en andspyma kaupenda getur
komið í veg fyrir verðhækkanir þó
salan geti gengið greiðlega. Fari
verðið of hátt, kaupa menn einfald-
lega aðrar ódýrari fisktegundir,"
sagði Magnús.
Hann sagði ennfremur að líðandi
ár yrði eflaust mjög minnisstætt
þeim, sem stunduðu sölu á sjávaraf-
urðum. Fáheyrt verðfall hefði orðið
á afurðunum og af því hefðu allir
borið skarðan hlut frá borði. Þótt
menn kysu hærra afurðaverð en
nú fengist, mætti ekki gleyma því,
að of miklar hækkanir þýddu ein-
faldlega minni neyzlu og tilfærslu
yfir í aðrar tegupdir.
Bann við ósoneyðandi úðabrúsum:
Engin vandkvæði á að
fá hliðstæðar vörur
SALA úðabrúsa sem innihalda ósoneyðandi efiii verður bönnuð frá
og með 1. júní 1990. Að sögn Sigurðar M. Magnússonar, forstöðu-
manns Geislavarna ríkisins og formanns nefiidar er fjallaði um notk-
un ósoneyðandi efna og aðgerðir til að draga úr henni, er hér aðal-
lega um ýmis konar snyrtivarning að ræða en einnig ýmsa aðra
úðavöru sem notuð er í sambandi við bifreiðar og byggingariðnað,
s.s. málning og annað þess háttar.
Sigurður sagði að lítil vandkvæði
ættu að vera á því að fá hliðstæðar
vörur þar sem ekki væru notuð
ósoneyðandi efni. Þessi efni hefðu
verið bönnuð í mörgum löndum um
árabil, s.s. Danmörku, Svíþjóð og
Bandaríkjunum, án þess að það
hefði valdið vandræðum. Þó væru
til undanþágur frá þessum bönnum
t.d. þegar um lyf væri að ræða,
s.s. astmalyf, og sagði hann þau
væntanlega einnig verða undanþeg-
in frá banninu hér á landi.
Kosturinn við úðabrúsana væri
að þarna væri um stóran hluta
heildarnotkunarinnar á ósoneyð-
andi efnum að ræða og einfalt að
takmarka notkun. Hins vegar væri
brýnt að setja reglur á öllum þeim
sviðum sem nefndin hefði lagt til,
s.s. varðandi harðfroðueinangrun
og kæiikerfi.
Heildamotkun ósoneyðandi efna
á íslandi er talin vera um 200 tonn.
Þar af eru rúmlega 70 tonn flutt
inn sem hráefni til notkunar í iðn-
aðai og í framleiðslu og um 130
tonn flutt inn í hálfunnum og full-
unnum varningi. Sigurður M.
Magnússon sagðist telja að það
myndi gerast sjálfkrafa þegar dreg-
ið væri úr framleiðslu á ósoneyð-
andi efnum í öðrum löndum þá
minnkaði sjálfkrafa það magn sem
kæmi inn í landið og hægt og
sígandi yrði síðan dregin úr hráefni-
snotkuninni hérlendis.
í þeirri framkvæmdaáætlun sem
ríkisstjómin hefur samþykkt á
grundvelli tillagna nefndarinnar er
gert ráð fyrir að settar verði reglur
um notkun kælimiðla, sem eyða
ósonlaginu, í kæli- og fiystikerfum.
Verður meginákvæði þeirra að
óheimilt verður að hleypa slíkum
efnum út í andrúmsloftið við við-
hald og eftirlit með kælikerfum.
Er stefnt að því að með þessum og
öðrum aðgerðum megi takast að
draga saman notkun ósoneyðandi
efna í kæli- og frystikerfum um 25%
fyrir 1991, eða um 8,5 tonn. Sam-
svarar það 4,2% af heildarnotkun
ársins 1986.
■ Einnig verða settar reglur um
notkun ósoneyðandi efna í harð-
froðueinangrun og verður notkunin
takmörkuð eftir því sem hægt er,
m.a. með notkun annarra efna en
nú eru notuð. Telur nefndin að með
þessum hætti megi minnka notkun-
ina um allt að 15% fyrir árið 1991.
Þá verða settar reglur um notkun
ósoneyðandi efna í mjúkfroðuein-
angrun og við hreinsun og þvott í
efnalaugum og um notkun halona
í brunavama- og slökkvikerfum.
Hreinsimiðlar eru einnig notaðir i
iðnaði og nemur notkunin um
tveimur tonnum árlega hjá ÍSAL
til hreinsunar á bráðnu áli en stjóm-
endur ÍSAL hafa lýst því yfir að
þeir muni hætta þessari notkun.
Einnig eru notuð 0,5 tonn í raf-
eindaiðnaði en nefndin telur að þá
notkun megi minnka um 50% vegna
nýrra efna sem eru að koma á
markað. Þannig myndi notkun
hreinsimiðla í iðnaði minnka um
samtals 90% fyrir 1991 en það er
um 1% heildamotkunarinnar og um
3,2% hráefnisnotkunarinnar.