Morgunblaðið - 30.12.1988, Síða 12

Morgunblaðið - 30.12.1988, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 Landnemabyggðin Markerville (Tindastóll) í Kanada 100 ára eftir Baldur Hafstað Markerville heitir lítill bær í Al- bertafylki vestur undir Klettafjöllum í Kanada og tengist í hugum margra Islendinga nafni Stephans G. Step- hanssonar (1853—1927) en hann bjó um 6 km frá þorpinu. Þama var alís- lensk en lítil landnemabyggð. Mar- kerville er um 40 km suðvestur af bænum Red Deer, miðja vegu milli borganna Calgary og Edmonton. Um mánaðamótin júlí—ágúst í sumar var mikið um dýrðir í Markerville. Gaml- ir íbúar og ættingjar þeirra streymdu þangað til að halda upp á 100 ára afmæli þessa íslenska staðar og byggðarinnar í kring. Við sama tæki- færi var gamalt ijómabú á staðnum formlega opnað sem minjasafn. Frá því fyrir aldamót og fram um 1970 var tjómabúið aflgjafí byggðarinnar og þekkt fyrir vandaða vöru. íbúar Markerville urðu um 100 þegar mest var. Nú hefur þeim fækkað, og byggðin í kring er ekki lengur alís- lensk. Allmargir íslendingar búa þó enn í nálægum bæjum (Innisfail og Red Deer), og þeir elstu tala ágæta íslensku þó fæddir séu vestra. Á hundrað ára hátíðinni var af- hjúpaður minnisvarði framan við Fensali, samkomuhús staðarins, mjólkurbrúsi með byggstráum upp úr, tákn um helstu atvinnugreinar í sveitinni. Á brúsann eru áletraðar í enskri þýðingu síðustu ljóðlínumar úr kvæði Stephans G., „Kveld“. Það var reyndar gaman og óvænt að finna svona fyrir nálægð Stephans G. í hátíðarræðum vitnuðu ráðherrar Albertafylkis og annað stórmenni í skáldið (að vísu á ensku) eins og góðan kunningja. Hátíðahöldin voru forkunnarvel undirbúin og fóru fram með sóma. Auk hátíðarávarpa, messugjörðar og þessháttar var boðið upp á ýmislegt af léttara taginu, svo sem skrúð- göngu í norður-amerískum stfl og loftbelgja- og blöðrusýningar. Og ekki munaði staðarbúa um að steikja nautakjöt handa þeim 1200 gestum sem hátíðina sóttu með hjólhýsin sín. Frá Edmonton kom blandaður kór Vestur-íslendinga og íslandsvina (Saga Singers) og söng með leikræn- um tilburðum og gerði stormandi lukku. Langflest lögin voru íslensk, sungin við íslenska texta. Dálítið þurfti að rigna þegar kórinn byijaði, en þegar hann kom að laginu „Ó, blessuð vertu sumarsól" fór sólin að skína. Seinna kvöldið fór fram flug- eldasýning í grenjandi rigningu en þá hafði plasti verið dreift milli manna svo að enginn vöknaði til muna. Undirrituðum hlotnaðist sá heiður að ávarpa samkomugesti og sitja framarlega í kirkjunni við mes- sugjörðina, við hlið Rósu Benedikts- son, dóttur Stephans G. Fleiri en einn höfðu orð á þvt við mig að gaman hefði nú verið að fá Vigdísi Finn- bogadóttur á hátíðina og tók ég heils hugar undir það. En atvikin leyfðu það ekki að forseti okkar heimsækti þessa litlu og „afskekktu" íslending- anýlendu á aldarafmælinu. Hins veg- ar standa vonir til að Vigdís forseti vitji Vestur-íslendinga næsta sumar í höfuðstað Nýja-íslands á Gimli við Winnipegvatn i Manitoba. Sá sem veg og vanda hafði af undirbúningi hátíðahaldanna og stjómaði þeim var formaður íslend- ingafélagsins, Kris Johnson. Kris er fyrrverandi stórbóndi í nágrenni Markerville. Hann og kona hans, Kay, hafa tekið á móti mörgum gest- um frá íslandi, m.a. stórum bænda- hópum. Síðastliðinn vetur sá Kris um að undirbúa þjóðræknisþing íslend- inga í Vesturheimi sem haldið var í nágrannabænum Innisfail. Stephan G. stóra nafnið Það var árið 1888, fyrir 100 árum, að nokkrir íbúar Norður-Dakóta í Bandaríkjunum tóku sig upp og leit- uðu nýrra heimkynna eftir mikla þurrka á heimaslóðum. Stephan G. og Helga Jónsdóttir kona hans komu árið eftir með flölskyldu sinni og fleiri frændum og vinum og námu „Um miðjan síðasta áratug var hafíst handa um að gera hús Steph- ans G. að safni til að heiðra minningu hans, m.a. fyrir tilstilli o g stuðning íslenskra bænda. Þá var húsið í niðurníðslu enda hafði enginn búið þar um all- langt skeið. Stjórn Al- bertafylkis keypti húsið og hefíir nú látið gera það upp í þeirri mynd sem hafði á seinni dög- um Stephans — og ekk- ert sparað til.“ Rjómabúið í Markerville. Það hefúr nú verið gert að minjasafni. i ffjj i j; I 1 WízíFfzffiy'í'-í:- ^ w i ; & <>•. $,/- m ;. íf Saga Singers frá Edmonton. Lengst til hægri er Kris Johnson, formaður íslendingafélagsins i Markerville og nágrenni. Rósa Benediktsson og dóttir hennar, íris Helga. land í hæðóttu landslagi við Medic- ine-ána skammt frá þeim íslending- um sem fyrir voru. Stephan vildi vera við ána, m.a. vegna veiðinnar. Fegurð landsins og útsýnið af hæð- unum hefur ráðið nokkru um stað- arvalið. í góðu skyggni sést vel til Klettafjalla þótt þau séu í allt að 150 km fjarlægð. Land það sem Kletta- fjallaskáldið valdi sér er fijósamt en þó ekki eins vel fallið til akuryrkju og sumt annað land í nágrenninu. Stephan stundaði alhliða búskap, bjó við ær, kýr, hænsni og svín, og gerði athyglisverðar tilraunir með kom- rækt. Hann byggði hús í áföngum, eftir því sem fjölgaði í kotinu og efni leyfðu. Þau Stephan og Helga voru frændsystkin og æskuvinir. Þau gift- ust í Wisconsin fáeinum árum eftir að þau fluttust vestur um haf og eignuðust átta böm á árunum 1879—1900. Þau misstu ungan son á Dakótaárunum sem Stephan minn- ist í því fagra ljóði, „Kveðið eftir drenginn rninn". Arið 1909 varð son- urinn Gestur fyrir eldingu, 16 ára. Hann var efnilegur og hneigður til skáidskapar. Nóttina eftir slysið kvað Stephan um hann ljóðið „Gestur" sem margir hafa hrifist af. Ein dætra þeirra hjóna hét Stephaný Guðbjörg og bjó handan árinnar. Árið 1940, á útfarardegi móður sinnar, fórst Step- aný f bflslysi. Hún var á leið tii erfí- diykkjunnar þegar bflinn fór út af brúnni skammt neðan við bæinn. Þetta gerðist þrettán árum eftir andl- át Stephans. Þau hvfla nú öll í fjöl- skyldugrafreit handan Medicinárinn- ar. Sá reitur var í landareign Sigur- laugar systur Stephans. Sonur henn- ar, Stephan, var fyrstur lagður þar til hinstu hvflu, tvítugur að aldri, árið 1905. Ástæðan fyrir því að þess- ar fjölskyldur sameinuðust um graf- reit í stað þess að hljóta legstað í lúterska kirkjugarðinum skammt frá Markerville var trúarlegs eðlis. Gegnt grafreitnum stendur hvítmálað hús niður við ána. Það er Hólaskóli sem reistur var árið 1904. Fyrir þann tfma (allt frá árinu 1892) hafði bamaskólinn staðið á Flagg- hóli, rétt við heimili Stephans. Kenn- arar dvöldu löngum þar á bæ og var það haft í flimtingum að þeir hefðu stundum lært meiri íslensku en nem- endumir ensku. í gamla skólahúsinu orti Stephan ljóðabálkinn A ferð og flugi sem birtist í bókarformi árið 1900. Þar kom fram mörg af ein- kennum Stephans, t.d. óvægni hans í garð klerka og kirkju (deilur um trúar- og menningarleg efni áttu nokkum þátt í að hann yfirgaf Da- kóta). Langt er frá að logn léki um líf Stephans. Hörðust varð atlagan gegn honum eftir að Vígslóði birtist árið 1920, en þá var Stephan kominn undir sjötugt. í Vígslóða beitir hann allri sinni orku og hugviti til að sýna fram á fáránleika stríðsreksturs og útlistar hvemig kirkja, peningamenn og pólitíkusar ginna menn út í stríð. Kvæðin voru ort í fyrri heimsstyijöld og mörg þeirra birt jafnóðum í blöð- um og tímaritum. Vissulega þurfti kjark til að tala eins og Stepan gerði þama. Handritið að bókinni skildi hann eftir á íslandi árið 1917 með þeim ummælum að það skyldi ekki birt fyrr en að loknu stríði. Margir Vestur-íslendingar, einkum þeir sem misst höfðu ástvini í stríðinu, sættu sig ekki við Vígslóða. Ráðist var harkalega á Stephan í íslenskum blöðum vestanhafs. Mönnum sveið hin miskunnarlausa afstaða hans þar sem engum var hlfft. Lesendum til fróðleiks skulu birt tvö erindi úr síðasta kvæðinu í Vígslóða, „Fjall- konan til hermanna sem heim koma“. Mér hiynja tár um kinnar, mér hrekkur ljóð af vör! Við heimkomuna ykkar úr slíkri mæðufór með skarð i hveijum skildi, með bróðurblóð á hjör. Minn frið til þeirra er féllu. Þú kyrrð og kös þá geym! Og Kains-merki leyndu undir blóðstorkunni á þeim. - En að fá minni-menn sem heimtast aftur heim er hugarraun mér þyngst. Var von að einhver)um sámaði? En Stephan svaraði hverri árás af einurð og festu. Og alltaf átti hann stuðningsmenn og skoðanabræður meðal Vestur-íslendinga. Má þar nefna dr. Rögnvald Pétursson unit- araprest í Winnipeg sem átti mestan þátt allra í útgáfu á verkum Step- hans. Þegar frá leið lægði öldumar. Síðustu árin var Stephan kærkominn gestur á málþingum landa sinna vestra. Það voru Islendingar í Vest- urheimi sem létu gera minnisvarða á leiði hans og var hann afhjúpaður árið 1936 að viðstöddu fjölmenni. Geta má þess að Stephan hafði sjálf- ur gert ráðstafanir til að fá uppdrátt að „vörðu" að heiman. Þar átti að- eins að standa: „Hér var Stephan G. grafínn". Einar Jónsson gerði fleiri en einn uppdrátt í þessu skyni. Ekki voru þeir þó notaðir þegar til þess kom að gera minnisvarðann. Það var austurrískur Kanadamaður sem fenginn var tii að reisa varðann sem stendur á leiðinu. Og áletrunin er ekki sú einfalda setning sem Step- han hafði hugsað sér. Stephan var alltaf vinsæll í byggð sinni og gegndi þar ýmsum skyldum, t.d. viðvíkjandi ijómabúinu, skólan- um og lestrafélaginu; einnig annaðist hann manntal og fleiri störf fyrir stjómvöld. Fred Olesen, gamall Mar- kervillebúi, tjáði mér að Stephan hefði verið „á skólaborðinu", þ.e. í skólanefndinni (á ensku: school bo- ard), þegar hann sem strákur hefði brotið glugga i gamla skólahúsinu í hita boltaleiksins. Drengurinn var kallaður fyrir Stephan sem brást reiður við og hélt nokkra tölu yfír honum. Síðan tók Stephan utan um hann og sagði: „Komdu, við skulum sjá hvort Helga á ekki eitthvað gott handa okkur.“ Helga bakaði öðrum kon'um betur, en að sögn Regínu Johnson, systur Freds, vildi hún ekki láta uppskriftimar af hendi. Regína Johnson var góðvinkona Rósu, dóttur Stephans, og heima- gangur á bænum. Ekki leýnir sér eyfirski hreimurinn í rödd hennar. Hún er þó fædd vestra; móðir henn- ar var nýskírð er hún kom til Vestur- heims. Regína les „fyrir utan gler- augu“. Það er til marks um ást þessa fólks á íslandi að á banabeðinu tók móðir Regínu af henni loforð um að fara til íslands og var stofnaður sér- stakur sjóður í fjölskyldunni til að af því gæti orðið. Greinilegt er að Regína og aðrir sveitungar höfðu miklar mætur á Helgu, konu Step- hans. Hún þótti dugnaðarforkur, góðlynd og hnyttin í tilsvörum. Eitt sinn var hún spurð í fremur neikvæð- um tón hvort ekki væri neitt skálda- blóð í sonum hennar. „Nei, en þeir eru engir asnar fyrir því.“ Stephanshúsið Um miðjan síðasta áratug var hafíst handa um að gera hús Stephans G. að safni til að heiðra minningu hans, m.a. fyrir tilstilli og stuðning íslenskra bænda. Þá var húsið í niðumíðslu enda hafði enginn búið þar um alllangt skeið. Stjóm Albertafylkis keypti húsið og hefur nú látið gera það upp í þeirri mynd sem hafði á seinni dögum Stephans — og ekkert sparað til. Jafnvel húsbúnaður er að mestu sá sami og var; sumt þurfti að sækja um langan veg, m.a. til Winnepeg þar sem t.d. skrifborð Stephans var varðveitt. Skammt neðan við bæinn hefur verið reist starfsmannaíbúð og skýli til gestamóttöku, og í garðinum geta ferðalangar eldað sér mat á hlóðum. Fimm fastir starfsmenn vinna í Stephanshúsi yflr sumartímann og fræða gesti um skáldið og einnig almennt um líf og starf á landnemabæ um aldamótin. Þúsundir gesta koma þangað á hveiju sumri og fer stöðugt fjölgandi. í skólum fylkisins er nú á hveiju ári efnt til ljóðasamkeppni sem ber nafn Stephans. Albertastjóm hefur gengist fyrir að stutt útgáfu á ritum um skáldið og nokkrum ljóðaþýðingum. Þannig spyrst það út smátt og smátt að Albertabúar hafi átt stórskáld. Þetta hlýtur að vera okkur íslendingum gleðiefni. Það fyrsta sem athygli vekur þegar komið er að húsi Stephans G. er liturinn: bleikur og grænn! Þesi litadýrð bendir til að Stephan (eða Helga!) hafí að vissu leyti verið sundurgerðarmaður eða framúrstefnumaður. Skreytingar á framhlið hússins benda til hins sama, en bak við fínlegan útskurð og þiljur leynist bjálkahús. Ekki er annað að sjá en húsið hafi, eftir að það var ftillbyggt, verið meira en meðalbóndabær. Vinnuherbergi skáldsins er t.d. óvenjulega fallegt, með útskoti sem veit að veröndinni við framhlið hússins. Bækur Stephans voru á sínum tíma gefnar til Manitóbaháskóla, en nú vilja Albertamenn gjaman fá þær aftur á sinn stað. Nokkur amerísk tímarit eru enn í herberginu, m.a. „The independent", „The Statesman" og „Soviet Russia". Ég rek einnig augun í danskt tímarit, „Verden og vi“, og tjáði Rósa mér að faðir sinn hefði fengið það hjá dönskum bræðrum sem unnu við „smjörgerðarútibúið" í Markerville. Húsbúnaðurinn hefur -lengstum verið fábrotinn. Sagt er að kennarar sem dvöldu í húsi skáldsins skólatímann hafí gjaman skilið eftir eitt og annað sem kom í góðar þarfír, dúka og annan borðbúnað til dæmis. Snemma mun hljóðfæri hafa komið í húsið, fyrst orgel, síðan píanó. „Pabbi hafði ánægju af hljóðfæraslætti,“ segir Rósa. Blessuð sértu sveitin mín Rósa minnist heimsókna merkra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.