Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988
23
Reuter
Bylting’arafmælis minnst íKúbu
Sovéskum flugskeytum er hér
ekið framhjá sjö metra háu
minnismerki af byltingarleið-
toganum Che Guevara í Santa
Clara i Kúbu á miðvikudag,
þegar hátíðahöld hófúst í til-
efhi 30 ára afmælis byltingar-
innar í Kúbu. Þúsundir manna
fylgdust með hersýningu i
borginni, en byltingarmenn
undir stjórn Guevara náðu
henni á sitt vald 30. desember
árið 1958 og varð það til þess
að Fulgencio Batista einræðis-
herra flúði land skömmu eftir
miðnætti á nýarsnótt. Hátíða-
höldin standa í viku.
Bandaríska flugmálastj órnin:
Skipt verði um hnoð í
813 Boeing-727 þotum
Seattle. Reuter.
DAVE Duff, talsmaður bandarísku flugTnálastjórnarinnar (FAA)
sagði í gær, að von væri á fyrirskipun i byrjun næsta árs um að
skipt skuli um hnoð í 813 öldruðum þotum af gerðinni Boeing-727.
Akvörðun FAA varðar Boeing-
727-þotur, sem smíðaðar voru fyrir
1971 og enn eru í notkun víða um
heim. Við samsetningu þeirra var
beitt svokallaðri kaldlímingu byrð-
ings. Sú samsetningaraðferð er
frekar talin geta leitt til sprungu-
myndana í skrokknum en svokölluð
heitlíming, sem hafin var 1971.
Duff sagði að ákvörðun af þessu
tagi hefði verið í undirbúningi um
skeið og væri ekki tengd bilun í
Boeing-727-þotu flugfélagsins
Eastern Airlines, sem varð að nauð-
lenda á mánudaginn eftir að stykki
rifnaði úr ytra byrði hennar.
FAA mun rannsaka bilunina í
hinni 22 ára gömlu þotu Eastem.
Er hún var nýk^min í 31 þúsund
feta hæð leiddi smágat á byrðing
hennar til þess að gat rifnaði á ytra
byrðing á ofanverðum skrokk henn-
ar afturundir stéli. Reyndist gatið
25 sentimetra breitt og 50 senti-
metra langt.
Kynþáttaóeirðir í Kína:
Afrískir námsmenn sak-
aðir um að eiga upptökin
Nanking. Peking. Reuter.
REKTOR Hehai-háskólans í Nanking í Kina, Liang Ruiju, sakaði í
gær afríska námsmenn um að hafa átt upptökin að kynþáttaóeirðum
sem brutust út um síðustu helgi. Að minnsta kosti 130 afrískir náms-
menn flúðu frá háskólasvæðinu í kjölfar óeirðanna. Einn þeirra
sagði í viðtali við fréttamann Reuters í gær að flestir vildu náms-
mennimir yfirgefa Kína. í gær gengu 300 múslimskir námsmenn
af Uygur-kynþættinum um götur í Peking og kröfðust aukinna
mannréttinda.
Liang Ruiju kvaðst geta ábyrgst
öryggi þeirra erlendu námsmanna
sem flýðu af háskólasvæðinu. „Þeir
geta yfirgefið Kína að því tilskildu
að sendiráð þeirra veiti þeim farar-
leyfi og þegar viðeigandi ráðstafan-
ir hafa verið gerðar," sagði Liang.
Hann sagði jafnframt að þeim er-
lendu námsmönnum sem hefðu
gerst brotlegir við kínversk lög yrði
refsað.
Liang sagði að nokkrir erlendir
námsmenn hefðu boðið vændiskon-
um til herbergja sinna og brotið
reglur háskólans en samkvæmt
þeim ber kínverskum gestum að
framvísa persónuskilríkjum. Hann
sakaði einnig nokkra afríska náms-
menn um að hafa ráðist á starfs-
fólk háskólans og vegfarendur með
bareflum og múrsteinum síðastlið-
inn laugardag.
Fyrr í þessari viku söfnuðust
mörg þúsund Kínveijar saman og
brutu rúður í svefnálmu erlendra
námsmanna í Hehai-háskólanum.
Þeir gengu einnig fylktu liði um
götur Nanking og gerðu hróp að
blökkum námsmönnum pg kröfðust
þess að þeim yrði hegnt.
í gær fóru um 300 múslimskir
námsmenn af Uygur-kynþætti, sem
er minnihlutahópur í Xinjiang-
héraði í Kína, í ólöglega mótmæla-
göngu í Peking og kröfðust aukinna
mannréttinda til handa minnihluta-
hópum í landinu. Námsmennimir
lýstu einnig andúð sinni á tveimur
kvikmyndum sem kvikmyndagerð-
armenn frá Kína og Hong Kong
standa sameiginlega að. Náms-
mennimir halda því fram að í kvik-
myndunum sé röng mynd dregin
upp af sögu og menningu Uygura.
Reuter
Afrískir námsmenn yfirgefa járnbrautarstöðina i Nanking á mánudag, en þangað höfðu um 130 náms-
menn flúið í kjölfar kynþáttaóeirða um síðustu helgi i þeirri von að ná til sendiráða í Peking.
Bretland:
Flestum finnst tímabært
að Karl verði konungur
London. Reuter.
MEIRIHLUTI Breta telur rétt,
að Elísabet drottning, sem hef-
ur tvö um sextugt, segi af sér
til að sonur hennar, Karl prins,
geti tekið við ríkinu. Kemur
þetta fram i skoðanakönnun,
sem birt var á miðvikudag.
í Gallup-könnuninni, sem birt
var í Daily Telegraph, reyndust
59% hlynnt því, að drottningin
settist í helgan stein til að prinsinn
af Wales gæti tekið við veldis-
sprotanum meðan hann væri enn
á góðum aldri, en hann stendur
nú á fertugu. Elísabet hefur ríkt
í 36 ár eða frá 1952.
I leiðara blaðsins segir hins veg-
ar, að þá skjátlist þegnum hennar
hátignar haldi þeir, að hún ætli
„að láta frá sér það, sem hún tel-
ur sig eiga að gæta allt þar til
yfir lýkur“.
Niðurstöður könnunarinnar
voru í stuttu máli þær, að breska
konungsfjölskyldan er vinsæl en
þykir nokkuð dýr í rekstri. Þá vilja
flestir, að hátignirnar láti meira
til sín taka í umræðum um lands-
ins gagn og nauðsynjar. Voru 82%
hlynnt konungdæminu í núverandi
mynd en 40% fannst útgerðin full-
dýr eins og fyrr sagði, en fjölskyld-
an kostar ríkið um 425 milljónir
ísl. kr. á ári.
Karl prins er vinsælastur en á
hæla honum kemur amma hans,
drottningarmóðirin. Þá er Anna,
systir hans, í þriðja sæti, Díana,
kona hans, í því fjórða og drottn-
ingin í því fimmta.
Þegar spurt var hvaða tilfinn-
ingar fólk bæri til konungsfjöl-
skyldunnar lýsti helmingurinn
þeim með orðinu „virðingu". Að-
eins 2% sögðu „elska“ og enginn
„lotning". Flestum finnst Elísabet
„umhyggjusöm", Karl prins
„greindur vel“, Díana „tolla vel í
tískunni" og Sara, eiginkona
Andrews, „vingjarnleg".
Norðursjór:
Selaveikin hefur drep-
ið 75% af stofhinum
Hiuig. Reuter.
UNDANFARNA sex mánuði
hefur selaveikin svonefiida
eytt um þrem fjórðu af öllum
selum við strendur Hollands,
Danmerkur og Vestur-Þýska-
lands, að sögn hollensks sér-
fræðings. Alls hafa um 17.000
dýr drepist í Norður-Evrópu á
árinu.
Lenie Hart, sem stjómar sel-
aspítala í hollenska þorpinu Piet-
erburen, segir að veikin sé hætt
að heija á seli við strendur Vest-
ur-Þýskalands og Danmerkur og
í rénun við Holland. Hins vegar
sé ekkert lát á henni á ensku
og írsku ströndunum.
Hart segir að nú séu í mesta
lagi 250 selir við hollensku
ströndina en hafi verið um 1000
fyrir ári. Hún telur að það muni
taka 10 - 14 ár fyrir landsela-
stofninn að ná aftur fyrri stærð.
Reuter
Eyðing ósonlagsins könnuð
Þessi flugvél Geimrannsóknastofnunar Bandaríkjanna, NASA,
af gerðinni ER-2 verður notuð við rannsóknir á eyðingu óson-
lagsins yfir norðurhveli jarðar á fyrri hluta næsta árs.
Yasser Arafat boð-
ið til Finnlands
Helsinki. Reuter.
FINNSK stjórnvöld hafa boðið Yasser Arafat, formanni Frelsissamtaka
Palestinu, PLO, i opinbera heimsókn. t tilkynningu frá finnska utanrík-
isráðuneytinu segir að eigi að sfður viðurkenni Finnar ekki ríki Pa-
lestínumanna sem stofiiað var í nóvember.
að fyrirhuguð heimsókn Arafats sé
engin stefnubreyting í finnskum ut-
anríkismálum og muni ekki hafa
áhrif á góð samskipti Finnlands og
ísraels. Hann segir að enn eigi eftir
að ganga frá formsatriðum varðandi
heimsóknina og dagsetning hafi ekki
verið ákveðin. A1 Wazir segir að
líklegt sé að Arafat sæki Finna heim
.í næsta mánuði.
Boðið var sent til Arafats á mið-
vikudag fyrir milligöngu skrifstofu
PLO í Helsinki. Zuheir A1 Wazir,
skrifstofustjóri PLO í Finnlandi,
sagði í finnska sjónvarpinu að svar
hefði borist um hæl frá Arafat, stödd-
um í Bagdað, höfuðborg íraks, þar
sem hann þekktist boðið.
Perttila Torstila, starfsmaður
finnska utanríkisráðuneytisins. segir