Morgunblaðið - 30.12.1988, Side 27

Morgunblaðið - 30.12.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 Morgunblaðið/Ámi Sæberír Davíð Oddsson afhendir Jóhönnu Bogadóttur áletraðan stein með skjald- armerki borgannnar, sem fylgir nafhbótinni borgarlistamaður Reykjavíkur. legur liður í þeirri viðleitni að koma hér á af meiri alvöru at- vinnumennsku í listsköpun," sagði Sigurður. „Strax og atvinnu- mennska kemst á í ríkari mæli er hægt að gera strangari kröfur til listamanna. Ég held að það sé ef til vill þörf á að draga skýrari mörk milli virðingarverðrar áhugamennsku og atvinnu- mennsku. Að fá styrk af þessu tagi er manni sjálfiim hvatning til að gera meiri kröfur til eigin verka." Sigurður sagði að á rúmu ári, sem liðið er frá því hann byrjaði að fá starfslaunin, hefði hann lok- ið um helmingi þeirra verkefna, sem hann hefði sótt um að fá laun til. Jóhanna Bogadóttir, borgar- listamaður, sagðist vona að hún myndi reynast þess megnug að vinna vel fyrir launum sínum. „Það eru mikil viðbrigði að þurfa ekki að hafa áhyggjur af fjár- hagnum og að hafa aðra mögu- leika til að skipuleggja vinnu sína,“ sagði Jóhanna. Jóhanna sagðist myndu halda sínu striki í myndlistinni á kom- andi ári og reyna að nota tímann vel. Hún mun halda stóra sýningu á Kjarvalsstöðum í nóvember næstkomandi, þar sem borgarbú- um gefst kostur á að sjá afrakst- ur vinnu hennar, en hún hélt einn- ig nýverið vinnustofusýningu. af þessu tagi, sem hér á landi væri að fá. „Þau eru mjög gleði- fin Davið Oddsson, Jóhanna Boga- Morgunblaðið/Bjarni , veitir heiðursverðlaunum úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright viðtöku íturlu Friðrikssonar. St AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁSGEJR SVERRISSON 30 ár liðin frá valdatöku kommúnista á Kúbu: U mbótakenningum liafiiað í nafiii hugmyndafræðimiar ÞANN 1. janúar verða 30 ár liðin frá því að kommúnistar komust til valda á Kúbu en þá höfðu skæruliðar undir stjórn Fidels Cast- ros barist í tvö ár gegn hersveitum einræðisherrans Fulgencios Batista, sem naut stuðnings Bandaríkjamanna. Rúmu ári síðar tóku Kúbveijar upp stjórnmálasamband við Sovétmenn og allt frá því hefúr Castro verið einn dyggasti bandamaður ráðamanna í Kreml. Ýmsir sérfræðingar um málefrii Kúbu telja að mikilvægi landsins fyrir Sovétmenn hafi farið minnkandi þegar litið sé til þeirra jákvæðu breytinga sem orðið hafa á samskiptum risaveld- anna. Aðrir benda á að umbótastefha Mikhails S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga höfði sýnilega ekki til Castros. Ekkert bendi til þess að hann hyggist falla frá þeim afdráttarlausu kennisetningum sem einkenna kommúniska hugmyndafræði. Gera megi ráð fyrir því að einangrun landsins fari vaxandi af þessum sökum samhliða þvi sem kröfur almennings um umbætur á sviði efriahagsmála verði sífellt háværari. Erlendir sendimenn sem fréttamaður Reuters-fréttastofunnar ræddi við í Havana kváðust ekki telja að samskipti Sovétrflq'anna og Kúbu hefðu farið versnandi þó svo greini- legt væri að ríkin væru ekki jafn samstíga og áður á hinum hug- myndafræðilega vett- vangi. Þetta kynni þó að breytast ef umbóta- stefnan sem kennd er við glasnost og per- estrojku skilaði tilætluð- um árangri í Sovétríkj- Erlendum fyrirmyndum hafhað Talsmenn kúbanska kommúnistaflokksins hafa lagt á það áherslu að sérhver bylting í nafni sósíalismans sé einstök og því þurfi Kúbveijar ekki að leita fyrirmynda erlendis. Benda þeir á að Castro Aðdáandi Fidels Castros Kúbuleiðtoga heldur mynd af honum á lofti i miðborg Havana. hafí í aprflmánuði árið 1986 hafíð eigin umbótaherferð og sagt að „leiðrétta" þyrfti það sem úrskeið- is hefði farið. Einn heimildarmað- ur Jteuíere-fréttastofunnar sagði að kúbverskir embættismenn við- urkenndu að gera þyrfti víðtækar breytingar á hinu miðstýrða efna- hagskerfi landsins. Á hinn bóginn væri greinilegt að þeim yrði fre- stað svo lengi sem þess væri nokk- ur kostur þrátt fyrir að efnahags- ástandið færi sifellt versnandi. Castro hefði sjálfur lýst yfír því að „nýjar umbætur" í kommúnist- aríkjunum gætu haft hættur í för með sér auk þess sem honum væri umhugað um að sýnast sjálf- stæður og óháður. Nýverið sagði Castro að byltingin mjmdi Iíða undir lok ef horfið yrði frá grund- velli kenninga Marx og Lenfns og teknar upp „hagsfjómaraðferðir í anda kapítalismans". Duldist eng- um að með þessu var hann að vísa til umbótaáætlunar Gor- batsjovs. Misskipting auðsins var mikil í stjómartíð Fulgencios Batista og um þriðjungur þjóðarinnar leið skort. Kúbverskir kommúnistar segja að mikið hafí áunnist á þeim 30 ámm sem liðin eru frá því Castro og menn hans bmtust til valda. Ungbamadauði sé nú minni en í Bandaríkjunum, ólæsi hafi verið útrýmt og meðalævi manna sé nú 74 ár samanborið við um 50 ár á sjötta áratugnum. Á þessu hefur verið klifað á undanfömum ámm og alþýða manna hefur ver- ið hvött til að færa fómir í nafni byltingarinnar sigursælu. Dvínandi byltingarmóður Erlendir embættismenn og sér- fræðingar segja hins vegar greini- legt að byltingarmóðurinn hafi dvínað í bijóstum manna. Líkt og í flestöllum kommúnískum ríkjum er vömskortur landlægur á Kúbu og yfírlýsingar ráðamanna um að honum muni brátt linna hafa reynst orðin tóm. Dagblöð á Kúbu hafa kvartað undan því að gróða- hyggja hafí heltekið alþýðu manna og að eiginhagsmunir séu teknir fram yfír hagsmuni ríkiss- ins. Vömskortinum fylgir mikil ásókn í erlendan gjaldeyrir ,eink- um dollara, með tilheyrandi svart- markaðsbraski. Erlendir ferða- menn eiga greiðan aðgang að sérstökum gjaldeyrisverslunum þar sem unnt er að fá keypt allt það sem hugurinn gimist. í versl- unum þeim sem ætlaðar em al- menningi blasa við hálftómar hill- ur. Kjöt, fisk og ávexti er hvergi að fá, sykri og hrísgijónum er pakkað inn í brúnan umbúða- pappír og helstu munaðarvömm- ar em niðursoðinn dósamatur frá Búlgaríu. Ferðamenn fá sérstaka matseðla á veitingastöðum og haldi menn dollaraseðli á lofti ganga þeir ævinlega fyrir. Mis- mununin er að sögn kunnugra hrópleg og þrátt fyrir að Castro hafí þráfaldlega ítrekað nauðsyn þess að útflutningur verði aukinn til að unnt sé að afla gjaldeyris verða kröfur um aukið vömfram- boð sífellt háværari. Castro hefur iðulega fordæmt þessi sjónarmið í ræðum sínum og sagt þau smá- borgaraleg. Kúbveijar binda hins vegar miklar vonir við ferða- mannaiðnaðinn þó svo embættis- menn viðurkenni að þeir telji þessa hákapftalísku atvinnugrein miður geðslega. í ár komu um 180.000 erlendir ferðamenn til Kúbu en gert er ráð fyrir þvf að ferðamannastraumurinn muni tífaldast fram til næstu aldamóta. Almenningur á Kúbu getur hins vegar ekki ferðast til útlanda. Þeirra forréttinda njóta embættis- menn, íþróttamenn, læknar og kennarar sem em að „sinna skyldustörfum sfnum í nafni al- þjóðahyggjunnar". Erlendir sendimenn segja að meirihluti manna á Kúbu sé ekki ósáttur við sjálft stjómkerfíð. Kubveijar kunni almennt að meta framfarir á sviði félagsmála og þær umbætur sem gerðar hafí verið á menntakerfinu. Það sjón- armið njóti hins vegar vaxandi fylgis að umbætur á sviði efna- hagsmála verði ekki umflúnar og segja kunnugir að almenningur bindi miklar vonir við þær breyt- ingar sem átt hafi sér stað í Sov- étríkjunum. Stórfelld efnahags- og hemaðaraðstoð Viðmælendur fréttamanna Re- uters í Havana vom almennt þeirrar skoðunar að Kúba væri ekki lengur jafn mikilvæg varð- stöð fyrir Sovétríkin og á ámm áður. Bæði hefðu samskipti risa- veldanna tekið algjörum stakka- skiptum auk þess sem sífellt meiri áhersla væri nú lögð á smíði há- þróaðra langdrægra vopnakerfa. Sovéskur sendimaður í Havana sagði umræður um hemaðarlegt mikilvægi Kúbu „fráleitar" þegar litið væri til þeirrar þróunar sem átt hefði sér stað á sviði vígbúnað- armála. Samskipti þessara ríkja á hemaðarsviðinu em engn að sfður mikil og öldungis ótvíræð. Á Kúbu em að jafnaði um 3.000 sovéskir ráðgjafar og tæknifræðingar auk nokkur hundmð hermanna. Vopn, herskip og omstuþotur fá stjóm- völd að gjöf frá Sovétríkjunum og er talið að samtals nemi and- virði vopnasendinganna á þessum áratug um 180 milljörðum ísl. kr. Að auki fá Kúbveijar efnahagsað- stoð frá Sovétmönnum sem talin er nema um 220 milljörðum fsl. kr. á ári hveiju. Þótt Fidel Castro hafi sýnilega mjög ákveðnar efa- semdir um gildi perestrojku hlýtur hann að fagna því að endurskipu- lagningin í Sovétríkjunum hefur enn sem komið er ekki tekið til efnahagsaðstoðar Kremlveija við þau ríki sem þeir hafa velþóknun á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.