Morgunblaðið - 30.12.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 30.12.1988, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 Kveðjuorð: GuðmundurR. Bjama- son frá Aðalvík Guðmundur R. Bjamason var fóstri föður míns og reyndist honum ávallt vel og var mér og systkinum mínum sem góður afi. Við litum á hann sem afa okkar enda þótt við ávörpuðum hann alltaf með skímar- nafni. Ég var það lánsamur að kynnast Guðmundi einnig í starfi þegar ég vann á sumrin hjá Kópavogsbæ árin 1966—1969. Hann varþáverk- stjóri fyrir vinnuflokki hjá bænum. Við strákamir í vinnuflokknum hjá Guðmundi fengum svo sannarlega að vinna því hann lagði mikið upp úr því að skila verkum fljótt og vel. En hann var jafnframt ljúf- menni sem kunni að fá fólk til að hlýða sér þegar á þurfti að halda. Hann hefur ef til vill lært'þessa stjómunaraðferð þegar hann var togarasjómaður á sínum yngri árum og hún gafst honum vel. Hann átti það til að hvessa á okkur augun og segja við okkur að „standa ekki eins og merar yfir dauðu fyli“ ef það kom fyrir að við hölluðum okk- ur fram á skóflumar í pásum við skurðgröftinn. Þessi orð höfðu þann töframátt að við fórum óðar að moka aftur og af enn meiri krafti en áður. Okkur þótti vænt um gamla manninn því hann sýndi það oftar en einu sinni að hann kunni að meta það þegar við unnum vel og þá var glatt á hjalla í vinnu- skúmum blámálaða sem við höfðum fyrir kaffístofu. Þau þrjú sumur sem ég vann undir hans stjóm held ég að hafí orðið mér gott veganesti fyrir framtíðina og ég er þakklátur hon- um fyrir allt sem hann kenndi mér varðandi vinnubrögð og mannleg samskipti. Því Guðmundur var hreinn og beinn í allri framkomu (fyrir utan smástríðni) og tók for- ystuhlutverk sitt alvarlega. Þau hjónin Guðmundur og Pálína hafa búið á Asbraut 19 í Kópavogi í rúm tuttugu ár og hafa ávallt verið gestrisin. Ég veit til þess að föðursystir mín, Magga, sem búsett er í Bandaríkjunum, hefur búið hjá þeim í heimsóknum sínum til Is- lands undanfarin ár. Hún og eigin- maður hennar, Bob Tiedemann, hafa eflaust kosið að dvelja hjá Guðmundi og Pálínu vegna þeirrar hlýju og væntumþykju sem þau hafa notið þar. Oft var gaman að heyra þá Guðmund og Bob tala saman því Guðmundur talaði alltaf íslensku við Bob sem aftur svaraði á ensku vegna þess að hvorugur kunni máls hins en samt virtist komast á fullur skilningur um flesta hluti. Guðmundur var þeim eiginleika gæddur að hafa jákvæð, upplífg- andi áhrif á þá samferðamenn sína. í Hávamálum er að fínna eftirfar- andi vísu: Veiztu ef þú vin átt, þann er þú vel trúir, og vilt þú af honum gott geta, geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara og fínna oft. Þessi heilræði er hveijum einum hollt að hafa í huga er hann kynn- ist manni eins og Guðmundi og það gerðu margir sem kynntust honum trúi ég. Hann naut vinsælda meðal fjöl- skyldu sinnar og vina. Eftirlifandi konu hans, Pálínu Friðriksdóttur frá Aðalvík, og fjöl- skyldunni votta ég samúð mína og minnar fjöjskyldu. Asgeir Valdimarsson Með kveðju frá börnunum hans Valda Þegar ég sest hér niður á jólum og ri§a upp kynni mín við Guð- mund Rósa Bjamason, sem var ekki aðeins fóstri föður míns heldur einnig nágranni á bemskuheimili mínu, leiðbeinandi á mótunarskeiði mínu, sem vinnandi manns, en samt ætíð félagi og jafningi, fínn ég vel hversu mikils er misst. Ég hugga mig við það að Gummi Rósi hafði t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR THORLACIUS, sem andaðist 22. desember, hefur verið jarðsett í kyrrþey að eigin ósk. Gunnlaugur Gunnlaugsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Birna Thorlacius, Margrét Thorlacius, Þórhildur Þorleifsdóttir, Björg Thorlacius, T ryggvi T ryggvason, Ólöf Thorlacius, Haraldur L. Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Konan mín, HELGA S. WOPNFORD, Árborg, Manitoba, Kanada, andaðist 6. desember. Öllum vinum mínum á fslandi sendi ég kveðjur og óskir um gleöi- le9 Sigurður Wopnford. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, PÁLÍNA ÁGÚSTA ARINBJARNARDÓTTIR, Baldursgötu 29, lóst í Borgarspítalanum aðfaranótt 28. desember. Ágústa Friðriksdóttir, Hallgrímur Jónasson, Arinbjörn Friðriksson, Margrót Andrósdóttir, Þórunn Friðriksdóttir, Ólafur Blöndal, Friðrik Þorsteinsson, Þórir Arinbjarnarson og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúð og hlýhug við andlát og jaröarför móð- ur okkar, tengdamóður og ömmu, HERDÍSAR G. KARLSDÓTTUR. Karl Sigurhjartarson, Sigfús Sigurhjartarson og fjölskyldur. lifað vel og lengi, átt starfssama ævi, góða konu, fjórar dætur, fóst- urson, tengdabörn, bamaböm og bamabamaböm. Ég mun ekki hér rekja ætt Guðmundar heldur minn- ast lítillega tengsla fjölskyldu minnar og hans. Það mun hafa verið veturinn 1933—34, sem faðir minn, Valdi- mar Kr. Valdimarsson, kom í vist til móðursystur sinnar, Sigríðar Pálínu Friðriksdóttur, og Guðmund- ar Rósa Bjamasonar eða Pöllu og Gumma. Afí minn, Valdimar Ás- geirsson, hafði drukknað þremur mánuðum áður en faðir minn fædd- ist og amma mín, Jóna Kristín Frið- riksdóttir, hafði látist- úr berklum árið 1933. Faðir minn var á sjöunda ári þegar hann kom til Pöllu og Gumma og átti hjá þeim heimilis- festu allt fram að tvítugu. Síðar stóðu þeir Guðmundur saman að húsbyggingu á Álfhólsvegi 36 í Kópavogi á árunum 1952—54 og bjuggu Palla og Gummi þar til 1963 er þau fluttu á Ásbraut 19 einnig í Kópavogi. Mjög kært var ætíð með föður mínum og Guðmundi, sem reyndist honum hinn besti fóstri. Hús þeirra Pöllu og Gumma hef- ur alla tíð staðið þeim opið, sem þess þurftu með. Ég minnist þess að á Álfhólsveginum bjó hjá þeim amma föður míns, Silfá Pálmadótt- ir. Ég minnist ótalmargra annarra, sem nutu skjóls hjá þeim í lengri eða skemmri tíma. Ég naut þessar- ar umhyggju þegar ég stundaði nám í Háskóla Islands og bjó í nokk- urn tíma hjá þeim á Ásbrautinni. Sú dvöl er mér ætíð ógleymanleg fyrir þær sakir hvé vel var að mér hlúð, en ekki síður fyrir það að hjá þeim fór ég að kynnast betur tíma- leysi lífshlaupsins, skynja hversu lítill munur er hugarheimi manna hvort sem þeir eru ungir eða gaml- ir. Vissulega búa þeir eldri yfir meiri reynslu en lífíð er stundin og staðurinn og alltaf fannst mér Palla og Gummi lifa í nútíðinni, horfa óhikað til framtíðarinnar og bera látlausa umhyggju fyrir mannanna böli. Guðmundur hafði einstakt lag á að meðhöndla alla menn sem jafn- ingja hvort sem þeir voru hærra eða lægra settir en hann í þjóð- félagsstiganum. Það gerði hann þó ætíð án þess að menn tækju eftir því og aldrei minnist ég þess að hann hafí haft orð á þessari fram- komu sinni, honum var þetta í blóð borið. Þetta hef ég sennilega skynj- að fyrst þegar við lentum saman í vinnflokki hjá Kópvogsbæ árið 1967. Ég var 17 ára en Guðmundur 65 ára gamall. Hann hafði um ára- bil starfað sem vaktavinnumaður í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi en venti sínu kvæði í kross og gerð- ist verkstjóri yfir einum af vinnu- flokkum Kópavogsbæjar. Ég hafði unnið hjá bænum árið á undan og verið flokksstjóri í unglingavinn- unni sumarið 1967, en þegar ungl- ingavinnunni lauk gekk ég til liðs við Guðmund, sem þá var að um- bylta og stækka svæði leikskólans við Bjarnhólastíg. Með Guðmundi var ég síðan af og til sumurin 1968, ’69 og ’70. í þessum vinnuflokki var einnig Ás- geir bróðir minn og minnumst við þessara ára ætíð með miklu þakk- læti til Guðmundar. Hann lét okkur vinna eins og þræla en skammaði okkur aldrei. Utan einu sinni þegar við vorum að dröslast með stórt rör fyrir ofan hann á háum bakka inn við Hjallabrekku. Við rótuðum til grúsinni með þeim afleiðingum að stór steinn þeyttist af miklum krafti í ennið á honum. Hann steinlá, stóð síðan upp með stórt gat á enninu, sem fossblæddi úr, krossbölvaði okkur og spurði hvort við ætluðum að drepa hann. Við urðum skít- hræddir og þorðum ekki annað en drífa kallinn á slysavarðstofuna. Hann mætti eldklár í vinnu eftir tvo tíma með sex eða sjö saumspor í enninu. Ekki var meira rætt um það en örið minnti mann ætíð á atvikið. Guðmundur stjómaði með ljúfmennskunni og við unnum fyrir ánægjuna. Hann hafði lag á að etja okkur saman og með því gat hann oftlega aukið afköst okkar og látið okkur ljúka á einum eftirmiðdegi verki, sem auðvelt hefði verið að drolla yfir í dag eða tvo. Verkefnin voru margvísleg svo sem skolplögn, girðingar, frágang- ur bamaheimilalóða og leikvalla, loftborun, fleygun, sprengingar, hellulögn. Krafa Guðmundar var alltaf sú sama, þ.e. að verkið skyldi vanda, það skyldi vera fullkomið, óaðfinnanlegt og skipti þar engu hvort við vorum að leggja skolprör í Lundarbrekkunni, þau var mokað yfír, eða leggja hellur við gosbrunn- inn á Rútstúninu. Ég held að þær Minning: Anton Sigurðsson leigubílstjóri Fæddur 2. október 1919 Dáinn 16. desember 1988 Orðin í pennanum verða mér ósköp fátækleg í sinni, þegar þeim er ætlað að lýsa manni sem var jafn auðugur og Anton Sigurðsson, af lífsgleði, lífsþrótti og jákvæðum lífsviðhorfum. Kynni mín af Antoni voru ekki löng í árum talið, en ef notuð væri önnur mælistika sem mældi það sem miðlað er, gefíð og þann góða dreng- skap og heilindi sem einkenndu þennan hógværa mann, þá munu þau kynni verða mér bæði löng og happadtjúg. Anton Sigurðsson var bam síns tíma, hann var verðugur fulltrúi þeirrar kynslóðar Islendinga sem virtu drengskaparheitið og handa- bandið, en börðu ekki bumbur skark- alans sér til framdráttar. Lífsspeki hans var einföld, en ótrúlega já- kvæð. „Horfum fram á veginn, jafnt á stundum gleði sem sorgar." í þeirri íþrótt sem af mörgum er talin æðst íþrótta, skáklistinni, náði Anton góðum árangri og margar voru þær ánægjustundir sem hann átti við skákborðið með góðum vin- um og starfsfélögum. Um árabil var Anton fremstur meðal jafningja í skáksveit Hreyfils, og ófáar voru ferðir hans til útlanda, að heyja kapp við starfsbræður annarra landa, og var þá gjaman meistaratit- ill í farteskinu á heimleiðinni. Anton Sigurðsson var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Árið 1946 kvæntist hann Huldu Victors- dóttur, mikilli sómakonu sem látin er fyrir fáum árum. Anton og Hulda eignuðust tvær dætur, Önnu Eygló og Ernu Björk, sem báðar eru bú- settar í Reykjavík. Bamabörnin þeirra eru fjögur. Mikill harmur var að Antoni kveðinn við fráfall Huldu, en svo er algóðum Guði fyrir að þakka, að öll él birtir upp um síðir og síðustu árin átti hann yndislegt heimili hjá Pálínu Guðmundsdóttur og bömum hennar á Nesbala 110, Seltjarnarnesi. séu einmitt gott dæmi um vönduð vinnubrögð hans. Stéttin er jafn- slétt í dag og þegar hún var lögð fyrir 20 ámm og ekki hefur þurft að hreyfa neitt. Samskipti við verkfræðinga er eitt af þessum eilífðarvandamálum hjá slíkum vinnuhópum. Gummi náði hinum besta sambandi vð verk- fæðingana, talaði við þá sem menn frekar en menntamenn. Varði verkamennina ef verkfræðingarnir hölluðu á þá og tók sjálfur alla ábyrgð á öllum verkum í vinnu- flokkunum. Ef verkamennirnir höll- uðu á verkfræðingana var sama viðkvæðið, þá varði hann verk- fræðingana við okkur verkamenn- ina. 011 samskipti, ágreiningur um val á efni o.s.frv. urðu eitt ljúfling- slag. Verkfræðingamir, sem áður voru illa þokkaðir fyrir stirfni og ofurvit á verkunum, breyttust í ein- stök lipurmenni. Gummi Rósi verður alltaf í mínum augum hinn fullkomni verk- stjómandi og leiðbeinandi, sem ég hugsa ætíð til þegar ég veg og met leiðir við stjómun og leiðsögn. Hann sýndi mér og sannaði hversu mikill- ar uppskeru mátti vænta af verka- manni, sem hlúð var að, þar sem verkþekking og verkgeta var byggð upp. í umgengni sinni við verkafólk- ið var Guðmundur eins og garð- yrkjumaður, sem hlúir að blómun- um sínum og fær þau til að vaxa og bera ávöxt. Ég vil fyrir mína hönd, systkina minna, Brynjars Magnúsar, Ás- geirs, Kristínar Silvíu, Valdimars Friðriks og Rósu Áslaugar Valdi- mars- og Rósubarna^ tengdadætr- anna, Steinunnar, Ástu, Evu og Karenar Júlíu og tengdasonanna Sigurgeirs og Sigurðar og barna okkar, þakka öll okkar samskipti við Guðmund. Frá Ameríku ber ég kveðju Möggu og Bobs og barna þeirra. Við munum ætíð minnast Gumma fyrir glaðværð hans og græskulaust gaman, kæti hans á mannamótum, elskulegheit við okk- ur öll og endalausan lífskraft, sem hann miðlaði okkur af. Ég hafði hugsað mér að færa Guðmundi koníakspela á þessum jólum, eins og ég hef gert undanfar- in 15 ár enda var hann kominn á löglegan aldur fyrir slíkar gjafir. Úr því verður ekki, því að hann hefur öðlast annars konar sælu en þá sem einn koníakspeli veitir. Ég get aðeins gefið þá gjöf, sem er þessar fábrotnu minningarlínur, sem ég vona að hefðu yljað honum um hjartarætur. Palla, við vitum að missir þinn og söknuður er mikill og við biðjum góðan guð styrkja þig og vernda í sorg þinni. Megi Guðmundur Rósi Bjarnason hvíla í friði. Sigurjón Valdimarsson Ég bið góðan Guð að styrkja ykk- ur öll í þeirri sorg sem nú hefur knúið dyra. Megi hinn ljúfi andblær sem Anton bar með sér hvar sem hann fór og hans jákvæða lífsskoðun verða sá ljósbogi sem lýsir ykkur leiðina gegnum það dimma él, sem nú stendur yfir. Anton hafði oft, seinustu árin, látið að því liggja að sig langaði að dvelja á hlýrri slóðum er haustaði að á íslandi. Hann lét þennan draum sinn rætast nú. 11. nóvember lagði hann upp til fárra vikna dvalar í því landi þar sem sólin skfn svo heitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.