Morgunblaðið - 30.12.1988, Page 35

Morgunblaðið - 30.12.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 35 Sigurður Ámunda- son - Minning Fæddur 12. mars 1924 Dáinn 5. nóvember 1988 Sigurður fæddist í Dalkoti í Kirkjuhvammshreppi í V-Húna- vatnssýslu. Foreldrar Sigurðar voru Ásta Margrét Sigfúsdóttir og Ámundi Jónsson. Sigurður var 11 af 14 systkinum. I Dalkoti ólst hann upp til 10 ára aldurs, þá fluttist fjölskyldan til Hvammstanga. Erfitt var á upp- vaxtarárunum, mikil fátækt og erf- ið vinna. Er aldur leyfði keypti hann vörubíl og vann við vegavinnu, snjómokstur og sveitaflutninga. Sumarið 1950 fer hann í vega- vinnu suður í Mýrasýslu þar sem hann kynnist eftirlifandi konu sinni, Sjöfn Halldórsdóttur. Þau fóru að búa á Hvammstanga í febrúar 1951 og giftu sig 7. febrú- ar 1953. Sigurður var með skepnur til drýginda fyrir heimilið. Það var mjög lítið um atvinnu á þessum árum. Vorið 1959 fluttu þau suður í Mýrasýslu að Hrafnkelsstöðum í Hraunhreppi. Þau bjuggu þar í tvö ár, en þá fluttu þau að Þverholtum, þar sem þau byggðu allt upp. Sig- urður átti dóttur með Sesselju Hannesdóttur 1944, Ástu Margréti. Olst hún upp hjá föður sínum. Þau hjónin áttu saman níu böm, Hall- dór, Árilíus, Ingu Lilju, Hrafnhildi, Ámunda, Hilmar, Ásdísi, Jóhönnu og Ingibjörgu. Eru þau öll gift. Sigurður var stórbóndi. Hann var með fjörutíu mjólkandi kýr, um fjögur hundrað fjár og mikið af hrossum. Hann var mikill ræktunarmaður og hrossaunnandi og það sést best á því að hann þurfti ekki nema að koma í fjós til að sjá hvaða kýr var arðbær og sama var um kindur. Hann keypti tvö folöld að Hind- isvík, hest og hryssu. Hesturinn var hinn landskunni Glóblesi 700 og er mikið af góðum hrossum út af hon- um komið. Vorið 1981 fluttu þau hjónin í Borgames, vegna heilsu Sigurðar. Þegar Sigurður var'um tvítugt var tekið úr honum annað nýrað og ágerðust veikindin ár frá ári og fylgdu margar og erfiðar sjúkrahúslegur. En hann átti góða konu og bömin stóðu með honum í veikindunum. Ég kynntist Sigurði 1976 og auðvitað var það í gegnum hross. Sigurður hafði mjög gaman af hrossaviðskiptum. Hann var fljótur að sjá ef hestur var með galla. Sigurður var stórbrotinn maður í mínum augum. Gunnar Fjeldsted Elsku tengdapabbi er dáinn. Hann sem var alltaf kletturinn og alltaf svo traustur og gott að leita til, bæði í gleði og sorg. Hópurinn hans er stór, hann átti tíu böm og bamabörnin fylla næstum þriðja tuginn. Það var oft glatt á hjalla þegar hópurinn var saman kominn hjá afa og ömmu. Elsku tengdamamma, Guð styrki þig og styðji. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengiim, - hvað getur grætt oss þá Oss þykir sárt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt sem Guði er frá (Sálmur) Guðrún Minning: Sigríður Jóns- dóttir frá Kvíum Fædd 20. maí 1892 Dáin 24. desember 1988 Að morgni aðfangadags fékk ég fréttimar um að amma væri dáin. Ég hafði heimsótt hana á Þorláks- messu á spítalann á Akranesi og varð mér þá ljóst að hún ætti ekki mjög langt eftir Iifað. En amma hafði verið em næstum til dauða- dags, hún fylgdist vel með því sem var að gerast í kringum hana og ekki bar það við að hún gleymdi afmælisdögum afkomenda sinna eða vina. Þegar ég heimsótti hana á spítalann var hún vön að traktera mig, eins og hún orðaði það, á alls kyns góðgæti og við sátum þar og spjölluðum um heima og geima, það var alls staðar heimilislegt þar sem amma var, sama þótt það væri á sjúkrahúsi. Það var alltaf gaman að spjalla við ömmu, hún var svo skýr og mundi allt svo vel og sagði skemmtilega frá. Stundum sagði hún mér frá gömlum tíma og við létum okkur hverfa aftur-til alda- mótanna þegar hún var að vaxa upp i Reykjavík. Amma mundi vel eftir mönnum og atburðum frá öld- inni sem leið þegar Reykjavík var ekki annað en smáþorp og hún lýsti fyrir mér litríkum persónum sem settu svip sinn á mannlífið í höfuð- borginni á þessupi árum. Þær vora ekki litlar breytingamar á þjóð- félaginu sem amma hafði upplifað á sinni löngu ævi. Amma fæddist og ólst upp í Litlu-Brekku á Grímsstaðaholtinu í Reykjavík. Torfbærinn hennar stóð þar allt fram til 1980 innan um steinhús nútímans og þegar hún heimsótti Reykjavík voram við vön að fara þangað í sunnudagsbíltúr að skoða gamla bæinn hennar. For- eldrar ömmu vora Jón Jónsson sjó- maður frá Skutulsey á Mýram og Þórdís Halldóra Hallgrímsdóttir frá Smiðjuhóli á Mýram. Systkini ömmu vora Guðrún og Oddbjörg Jónsdætur og Helgi Jónsson, en þau era nú öll látin. Árið 1925 giftist amma afa, Ólafi Eggertssyni frá Kvíum í Þverárhlíð, en á Kvíum bjuggu þau allan sinn búskap- artíma. Amma lifði afa, en hann dó í mars 1981. Það var alltaf jafn gott að heimsækja ömmu heim til Kvía, hún lét sig ekki muna um það þótt komin væri á tíræðisaldur að baka kökur til að eiga í boxi handa öllum bamabama- og bamabama- bamaskaranum. Amma var vinsæl bæði meðal smáfólksins og hinna eldri. Stundum hafði amma haft á því orð að bráðum færi hún nú að fara, dauðanum lfldi hún við ferðalag sem hún ætti eftir að leggja upp í. En það var alltaf eitthvað til að lifa svolítið lengur fyrir, nýtt bama- bamabam á leiðinni eða skím á næsta leyti. Amma fylgdist líka vel með öllum afkomendunum sínum og hún lét sér ekki muna um að skrifa mér reglulega þótt ég væri komin yfir hálfan hnöttinn, en sjálf hafði hún aldrei ferðast út fyrir landsteinana. Hún kvartaði heldur aldrei, það var orðinn siður hjá henni að harka alltaf af sér ef hún varð veik og láta lítið fyrir sér hafa. Nú þegar amma er dáin verður mér hugsað til baka til allra skemmtilegu stundanna sem við áttum saman og ég hugga mig við það að minningin um þær heldur áfram að vera til þótt amma sé farin. « Sigríður Ragnarsdóttir Hera Björg Emils- dóttir - Kveðjuorð og íslendingar þekkja hvað best. Heimkoman skyldi verða rétt fyrir jólin en hún varð með öðram hætti, en vonir stóðu til. Anton Sigurðsson lést á Majorka þann 16. desember 1988. Sú helfrétt kom sem reiðar- slag á okkur öll. Það var mér mikil gæfa að kynn- ast Antoni tengdaföður mínum og ganga síðar að eiga Önnur dóttur hans. Hún er um margt lík föður sínum. Mesta gæfan í lífi okkar sam- an er lítið afabarn, sem hann, sem betur fer fékk að kynnast. Margan manninn hef ég hitt og átt tal við sem þekktu Anton. Aldrei hef ég heyrt styggðaryrði í hans garð. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst honum. Hallsteinn Sverrisson í dag kveðjum við vin okkar, Anton Sigurðsson, hinstu kveðju. í miðjum jólaundirbúningnum barst okkur sú harmafregn að Anton væri allur. Sú fregn kom okkur al- gjörlega í opna skjöldu og svartnæt- tið fyllti hjörtu okkar. Anton var maður léttur í lund, hlýr og traustur sem á farsælli ævi hafði tekið sér margt fyrir hendur. Það er því með sorg í hjarta sem við kveðjum mætan mann og þökk- um fyrir þá gæfu að hafa fengið að kynnast Ántoni Sigurðssyni. Kristin, Friðbert, Njáll og Jóhann Grímur. Fædd 29. desember 1984 Dáin 19. desember 1988 Einn daginn í desember birti ekki. Þann sama dag fréttum við að Hera Björg hefði lent í alvarlegu bílslysi. Stóran skugga bar yfir bama- hópinn og af sinni bamslegu ein- lægni báðu litlu vinimir hennar Guð að lækna hana. Það var áfall þegar þau vora ekki bænheyrð en nú trúa þau því að Hera Björg sé engitl hjá honum Guði og henni líði alltaf vel. Við munum hlúa að minningunni um litlu ljóshærðu stelpuna okkar sem var svo oft mikið niðri fyrir að segja frá upplifunum sínum. Stelpunni sem þótti svo vænt um Áma Elvar bróður sinn og gætti þess að ekki væri gert á hluta hans þó að hún væri bara litla systir. Við viljum muna eftir gleði henn- ar og tilhlökkun yfir jólunum og afmælinu framundan og trúa því að sú gleði ríki þar sem hún er nú. Elsku Ámi Elvar, duglegi strák- urinn okkar. Þó að ekkert komi í staðinn fyrir Heru Björg munum við öll leggjast á eitt við að veita þér huggun og styrk. Láru, Emil og öðram aðstand- endum Heru Bjargar vottum við okkar dýpstu samúð. Börn og starfsfólk á Staðarborg t Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐGEIR ÞORVALDSSON, Æsufelli 2, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. desember kl. 15.00. Þorbjörg Edda Guðgeirsdóttir, Kristinn Ómar Kristinsson, Baldur Guðgeirsson, Björg Kristinsdóttir, Iðunn Guðgeirsdóttir, Guðmundur L. Þórsson og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EMILS ÁSGEIRSSONAR bónda, Gröf, Hrunamannahreppi, fer fram frá Hrunakirkju 4. janúar kl. 14.00. Bílferð verður frá Umferöarmiöstööinni í Reykjavík kl. 11.30 með viðkomu i Fossnesti. Eyrún Guðjónsdóttir, Guðjón Emilsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Guðrún Emilsdóttir, Guðmundur Pálsson, Áshildur Emilsdóttir, Þorsteinn J. Jónsson og barnabörn. Símar 35408 og 83033 GAMLIBÆRINN Sóleyjargata o.fl. N0RÐURBÆR Laugarásvegur 39-75 Dyngjuvegur SUÐURBÆR Austurgerði o.fl. Safamýri 57-95 SELTJNES Tjarnarstiguro.fi. K0PAV0GUR Kársnesbraut 77-139 o.fl. Hlíðarvegur 138-149

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.