Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 39
"ti =:'íl/í.í::i: i: i.'m-í-í (tu • a ' > *- f-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988
Sesselja K. Halldórs-
dóttir - Minning
Fædd 4. ágúst 1908
Dáin 15. desember 1988
Enginn stöðvar tímans þunga nið.“
Þessar ljóðlínur komu í huga
minn, er tengdamóðir mín kvaddi
þennan heim að kvöldi 15. desem-
ber. Það var svo óvænt í undirbún-
ingi jólanna, en minnir okkur óþægi-
lega á að bilið milli lífs og dauða
er aðeins eitt fótmál.
Sesselja Kristín, eins og hún hét
fullu nafni, bjó síðustu árin á
Grænumörk III á fallegu heimili sem
hún hafði búið sér og prýtt með
handavinnu sinni.
Hún hafði gaman af fallegum
hlutum og vildi hafa snyrtilegt í
kring um sig og bar heimili hennar
ævinlega vott um það. Það var gott
að koma til hennar og Magnúsar í
Smáratúnið, alltaf tekið fagnandi á
móti öllum og var gestrisni þar í
fyrirrúmi.
Fyrr á árum stundaði Sesselja
saumaskap og voru ófáar flíkumar
sem hún saumaði á böm og bama-
böm.
Yfirleitt féll henni ekki verk úr
hendi, og með heimilisstörfunum
prjónaði hún t.d. lopapeysur um
tíma.
Sesselja vildi alltaf hafa reglu á
hlutunum og ekki framkvæma neitt
á síðustu stundu, hún var því búin
að senda jólakort og jólagjafir fyrir
þessi jól.
Það verður tómlegra við jólaborð-
ið þegar amma í Grænumörk eins
og hún var oft kölluð verður ekki
með okkur, og jólatréð á heimili
hennar verður ekki skreytt.
En elfur tímans heldur áfram, og
við munum geyma minningu um
góða móður, tengdamóður og
ömmu.
Með hverri stundu hin stríða röst
að störa fossinum sogar
en vinarins hönd er viss og föst
vitinn á ströndu logar.
Tíminn steðjar sem streymi á
stýrum í Jesú nafni
þótt bátur sé smár og báran há
þá brosir hans land fyrir stafni.
(Sálmur)
Mig langar að þakka tengdamóð-
ur minni fyrir þau ár sem við vorum
samferða. Eg trúi því að vinir taki
á móti henni og lýsi henni á strönd-
inni.
Guð geymi og blessi minningu
hennar.
Erla
Þegar mér barst sú fregn að
morgni 16. desember sl. að Sesselja
Halldórsdóttir móðursystir mín
hefði orðið bráðkvödd kvöldið áður,
kom það mér vissulega mjög á
óvart. Þó að aldurinn væri orðinn
nokkuð hár og þrekið farið að
minnka, var langt frá því að mér
dytti í hug, þegar ég sá hana síðast,
að hún stæði nánast við dauðans
dyr. Hún var alltaf svo hress á að
hitta og leit vel út, að maður gerði
sér ekki grein fyrir því að þar færi
háöldruð kona. Það var helst fótasár
sem þjakaði hana nú síðustu ár og
nú í haust lá hún á Sjúkrahúsi Suð-
urlands í tæpa tvo mánuði af þeim
sökum, en var komin heim aftur og
allt virtist harla gott. En enginn
veit sína ævina fyrr en öll er.
Sesselja, eða Dedda eins og mér
og öðru frændfólki hennar var tamt
að kalla hana, fæddist 4. ágúst
1908 í Reykjavík. Hún var elsta
barn foreldra sinna, þeirra Guðrúnar
Nikulásdóttur og Halldórs Þor-
steinssonar, sem þar bjuggu þá.
Með þeim flutti hún fljótlega að
Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum
og þaðan að Kirkjulandi í Austur-
Landeyjum. Árið 1920 fluttist fjöl-
skyldan svo í vesturbæinn á
Skíðbakka í sömu sveit, þar sem
Halldór og Guðrún bjuggu svo allan
sinn búskap eftir það.
Eins og algengt var með böm og
unglinga á þeim ámm fór Sesselja
fljótlega að hjálpa til við bústörfin,
bæði utan húss og innan, og sem
elsta bams kom það einnig í hennar
hlut að liðsinna yngri systkinum
sínum, en þau vom Elín, Lilja Stein-
unn (d. 1982) og Kjartan (d. 1964).
Innan við tvítugt fór Sesselja að
vinna að heiman, „í vist“ eins og
það var kallað, og einnig vann hún
um tíma á saumastofu í Vestmanna-
eyjum. Einn vetur lærði hún kjóla-
saum hjá móðursystur sinni, Helgu
Nikulásdóttur í Reykjavík. Eftir það
stundaði hún alla tíð saumaskap.
Auk þess að sauma allt sem fyöl-
skyldan þurfti, vann hún mikið fyr-
ir aðra.
Árið 1935 urðu þáttaskil í lífi
hennar, en það ár giftist hún Magn-
úsi Jónassyni í Hólmahjáleigu, mikl-
um öðlings- og gæðamanni. Það
sama ár hófu þau búskap í Hólma-
hjáleigu í féagi við bróður Magnús-
ar, Guðmund Jónasson. Þar bjuggu
þau í 10 ár, en árið 1945 bmgðu
þau búi og fluttu til Selfoss. Þau
byggðu sér hús í Smáratúni 13 og
bjuggu þar allan sinn búskap eftir
það. Magnús Jónasson lést árið
1983. Sesselja bjó í tvö ár í Smárat-
úninu, eftir það, en árið 1985 flutt-
ist hún í íbúð fyrir aldraða á Grænu-
mörk 3 á Selfossi. Þar átti hún sitt
heimili síðan og sá um sig sjálf,
nema hvað synir hennar, tengdad-
ætur og barnaböm litu til hennar
og sáu um að hana vanhagaði ekki
um neitt.
Það var töluvert átak fyrir Sess-
elju að flytja úr gamla húsinu sínu,
en hún tók þá ákvörðun vegna þess,
að það var erfitt fyrir hana að búa
þar ein og sjálfstæð vildi hún vera.
I Grænumörk fékk hún litla og
skemmtilega íbúð og veitti þar gest-
um og gangandi af sinni alkunnu
rausn til síðustu stundar.
Sesselja og Magnús eignuðust
þijá syni; Jónas, kvæntur Aðal-
björgu Haraldsdóttur, Halldór,
kvæntur Erlu G. Kristjánsdóttur,
og Ragnar Reynir, kvæntur Guð-
leifu Sveinsdóttur. Einnig ólu þau
upp frá unga aldri Ragnheiði Jónas-
dóttur. Hún er gift Pálmari Vig-
mundssyni. Bamabömin urðu sex,
eitt er látið, og barnabamabömin
em orðin níu.
Eg á margar minningar úr
Smáratúninu og allar góðar. Þar
fann maður sig alltaf velkominn.
Það sannaðist á Sesselju og Magn-
úsi að þar sem hjartarými er nóg,
er nóg húsrými.
Veturinn 1954—1955 var ég í
skóla á Selfossi. Þá tóku Dedda og
Maggi mig inn á heimili sitt, þó þau
hefðu ekkert pláss nema stoftma til
að láta mig sofa í. Enda synirnir
þá allir enn heima. Þar var gott að
vera, enda ég tekin sem ein af fjöl-
skyldunni. Ef mig vantaði einhveija
flík, pils eða buxur, þá saumaði
Dedda það bara, „ekkert mál“.
Löngu seinna vom tveir synir
okkar Eyvindar einnig í skóla á
Selfossi, sinn veturinn hvor, og vom
þá einnig í Smáratúni 13 og hlutu
sama atlætið og ég áður. Fyrir þetta
og miklu fleira, sem of langt mál
er upp að telja hér, viljum við öll
.fjölskyldan þakka að leiðarlokum.
Aðstandendum votta ég innilega
samúð.
Sesselju frænku minni þakka ég
samfylgdina og bið henni blessunar
guðs.
Guðrún Aradóttir
Hún amma er dáin, við barna-
bömin hennar eigum erfítt með að
trúa því. Þegar enginn aðdragandi
er, þá vill áfallið verða þungt, og
við sem eftir lifum eigum erfíðara
með að sætta okkur við orðinn hlut.
Hún amma var okkur bamabörn-
unum alveg einstök, og þá ekki síður
hann Magnús afí, en hann lést 1983.
Heimilið þeirra í Smáratúninu var
okkur alltaf opið, og þangað áttum
við ófá sporin, bæði í æsku og eftir
að við komumst á fullorðinsár.
Ávallt var hún amma heima, og
ekki vorum við fyrr sest við eldhús-
borðið hennar, en hún var búin að
hlaða borðið krásum. Það var eng-
inn lengi svangur við borðið hennar
ömmu, og þar leystust líka vanda-
málin, sem borin voru undir hana,
fljótlega.
Að vita af henni ömmu heima
veitti okkur krökkunum mikla ör-
yggiskennd, þá vom foreldrarnir
jafnvel í vinnu, þá kom sér vel að
hafa huggarann sinn á vísum stað,
og plástur til taks til að setja á sárin.
Ámma var elst af sínum systkin-
um, tvö þeirra eru nú látin, Kjartan
og Steinunn Kristín. Þau bjuggu öll
í Rangárvallasýslu og ekki hefur
alltaf verið auðvelt að halda góðu
sambandi við þau fyrstu árin eftir
að amma og afí fluttu á Selfoss.
En fyölskylduböndin voru sterk, og
aldrei rofnaði sambandið milli
þeirra.
Eins var það með fjölskylduna
hennar, frá því við krakkamir
mundum eftir okkur hefur fyölskyld-
an komið saman á jóladag, og eytt
deginum saman, hver einustu jól.
Fyrstu árin í Smáratúninu, siðan
fóru bræðumir að halda þetta jóla-
boð til skiptis, þetta er einstæð hefð,
sem enginn vill leggja niður, því
komum við öll saman á jóladag,
synir hennar ömmu, barnaböm,
bamabamaböm og makar, þetta er
orðinn stór hópur.
Elsku ömmu verður sárt saknað,
en hún skildi eftir sig góðar minn-
ingar. Nú þegar lífsgöngu hennar
er lokið og við vitum að vel verður
á móti henni tekið, biðjum við henni
Guðs blessunar.
Minningin um ömmu varðveitist
með okkur. Hún var okkur ástkær
Minning:
Jörundur Þórðarson
frá Ingjaldshóli
Fæddur 10. ágúst 1901
Dáinn 19. desember 1988.
Jörundur Þórðarson frá Ingjalds-
hóli lést þann 19. desember sl. á
Landspítalanum í Reykjavík. Með
honum er fallinn frá litríkur og eftir-
minnilegur persónuleiki, sem alla tíð
setti svip á samtíð sína hvert sem
hann fór. Hann hafði ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum, var
opinskár og sagði meiningu sína
umbúðalaust, hver sem í hlut átti,
var oft óvæginn í samskiptum, en
réttsýnn, fastur fyrir og hélt fast
fram rétti sínum. Hann var reynslu-
ríkur maður.
Það var tekið eftir Jörundi Þórðar-
syni hvar sem hann fór, sterkbyggð-
ur, svipmikill og upplitsdjarfur mað-
ur, sem lét ekki bugast þótt við erfíð-
leika væri að etja. Hann var land-
námsmaður í eðli sínu.
Jörundur fæddist í Hömluholtum
í Eyjahreppi. Foreldrar hans voru
hjónin Guðmundur Þórður Jónsson
frá Bíldhóli og Herdís Kristjáns-
dóttir frá Þverá í Eyjahreppi. Hann
ólst upp að mestu leyti í Miðgörðum
S Kolbeinsstaðahreppi. Á uppvaxt-
arárum hans var lífsbaráttan hörð á
þessum slóðum og ekki dekrað við
bömin. Jörundur var sterkbyggður,
hefur það komið honum til góða
strax í fyrstu æsku. Skólagangan
var aðeins í þijá mánuði veturihn
áður en hann fermdist. En hann var
fróðleiksfús og eftirtektarsamur og
nam jafnóðum af skóla lífsins og það
fylgdi honum alla ævi að fylgjast
með nýjungum og afla sér upplýs-
inga um það sem var að gerast í
þjóðlífínu hveiju sinni. Hann hafði
t.d. mikinn áhuga á lögfræði og afl-
aði sér ótrúlegrar þekkingar í þeirri
grein, sem kom honum að gagni í
lífsbaráttunni. Leituðu margir samt-
íðarmenn til hans um ráð og aðstoð
í ýmsum samskiptum.
Jörundur fót 15 ára að heiman,
fyrst sem vinnumaður til Jóns Magn-
ússonar bónda í Ystu-Görðum, Kol-
beinsstaðahreppi. Síðan fer hann til
sjós, er m.a. níu vertíðir í Vest-
mannaeyjum, á síldveiðum frá Siglu-
fírði, stundaði sjóróðra á Skálum á
Langanesi, gerðist þar meðeigandi
í útgerð og stundaði sjó á eigin bát
í tvö sumur.
Þann 9. júní 1928 urðu tímamót
í lífi hans. Þá giftist hann Maríu
Óladóttur frá Miðhrauni í Mikla-
holtshreppi. Hófu þau búskap þar. Á
þessum árum var kreppa á Islandi
og erfítt að fá jarðnæði fyrir fólk
sem var að hefja búskap. Þetta urðu
þau að reyna, Jörundur og Maria,
en þau voru ung og hraust og trúðu
á framtíðina og tóku því sem að
höndum bar og fluttu sig til eftir
því sem jarðnæði losnaði. Þau
bjuggu í Amartungu í Staðarsveit,
á Bíldhóli á Skógarströnd, á EUiða
í Staðarsveit, Vaðstakksheiði í Nes-
hreppi o g síðast á Ingjaldshóli í sömu
sveit, en þar bjuggu þau lengst og
á Elliða. Á þessum ámm eignuðust
þau 7 börn, 4 drengi og 3 stúlkur,
allt hraust og vel gefið fólk, sem
hefur komist vel áfram í lífinu.
Eins og sjá má af þessari stuttu
lýsingu á æviferli þeirra hjóna,
Maríu og Jörundar, hefur þurft sterk
bein og trú á lífið til að koma upp
stómm bamahópi og standa í sífelld-
um búferlaflutningum milli jarða á
tímum kreppu og erfiðleika, láta
aldrei bugast — til þessa þurfti
mannkostafólk, sem þau sannarlega
vom María og Jömndur. Lífsreynsla
Jömndar kom nú að góðu gagni.
Hann hafði stundað öll störf til sjós
og lands, tekið þátt í mótun íslensks
atvinnulífs, var næmur og útsjónar-
góður. Hann var ræktunarmaður,
hafði glöggt búmannsauga. Sauðfé
hans þótti bera af fyrir vænleika.
Hann hafði yndi af hestum og átti
margar góðar stundir á hestbaki.
Jömndur hafði mikinn áhuga á
félagsmálum, tók virkan þátt í ung-
mennafélagshreyfingunni og lét til
sín taka í búnaðarfélögum öll sín
búskaparár.
Jömndur var glaður í góðum fé-
lagsskap. Hann spilaði á harmóniku,
eignaðist það hljóðfæri 10 ára gam-
all og spilaði fyrir dansi á heimaslóð-
um og á Siglufírði, þegar hann
dvaldist þar við síldveiðar.
María Óladóttir var góðum kost-
um búin, harðdugleg og útsjónar-
söm. Hún sýndi ótrúlegt þrek við
erfiðar aðstæður og búferlaflutn-
inga. Það hvíldi á hennar herðum
að annast heimilið og öll börnin við
þessar aðstæður. Bjartsýni hennar
«!' -
39
amma og ómetanlegur vinur, við
getum aldrei að fullu þakkað það.
Guð blessi ömmu okkar.
Sesselja Margrét,
Jóna Bára,
Ásdís Ema.
Hún Dedda amma er dáin. Þessi
fregn kom mjög snöggt því að við
þessu höfðum við ekki búist. Þó að
hún væri orðn 80 ára þá var hún
alltaf svo hraust og glöð og laus
við sjúkdóma sem hijá oft fullorðið
fólk.
Amma var miklu meira en bara
venjuleg amma. Hún hafði mjög
sterk og mótandi áhrif á okkur. Nú
minnumst við hennar og afa í Smár-
atúninu en þangað komum við oft
í æsku, nánast á hveijum degi. Þar
fórum við niður í kjallara að smíða,
en þar var ýmislegt skemmtilegt '
gert. Þegar við komum upp úr kjall-
aranum þá fengum við brúnköku
hjá ömmu og það var engin kaka
jafn góð og kakan hennar. Þar var
okkur einnig kennt að lesa og skrifa
og grunnur lagður að skólagöngu
okkar. Þau höfðu ávallt tíma fyrir
okkur og gáfu stóran hlut af sjálfum
sér. Amma fylgdist af kostgæfni
með skólagöngu okkar, allt frá
bamæsku til lokastundar. Frá henni
fengum við stöðuga hvatningu og
hrós. Árið 1985 flutti amma úr
Smáratúninu í Grænumörk þar sem
hún bjó til æviloka. Þangað var
ekki síður gaman að koma og eigum
við þaðan margar góðar minningar.
Eftir samræður við hana leið okkur
alltaf vel og oft var einnig gaman
að hlusta á hana ræða við aðra
nákomna ættingja.
Það er stórt skarð sem nú hefur
myndast og verður seint fyllt að
nýju. En minningamar um þessa
sérstaklega vel gerðu og góðu konu
munu ávallt lifa innra með okkur.
Söknuðurinn er mikill að geta aldrei
framar farið í heimsókn til ömmu í
Grænumörk og notið skemmtilegs
og hlýlegs viðmóts henriar, því af
hennar fundi komum við alltaf
ánægð.
Erfitt er að kveðja ömmu, en nú
er hún komin til afa og horfínna
vina.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fýrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem).
Við þökkum henni samfylgdina.
Sveinn og Hrönn.
og óbilandi trú á lífíð bugaðist aldr-
ei. Hún fann ávallt ráð sem dugðu.
Hún var hlédræg, en þeir sem kynnt-
ust henni fundu hlýjuna og styrkinn
sem í henni bjó.
Þann 17. febrúar 1962 fórst fiski-
skipið mb. Stuðlaberg NS 102 með
allri áhöfn. Tveir synir Maríu og
Jörundar fórust, Jón Hildibert skip-
stjóri og Kristján vélstjóri, ennfrem-
ur tengdasonur þeirra, maður Ester-
ar dóttur þeirra, Karl Jónsson, 2.
vélstjóri. Allt voru þetta ungir og
hraustir efnismenn með mikla
framtíðardrauma. Þetta var mikið
áfall fyrir þau hjón og fjölskyldur
þeirra, sem skildi eftir sig sár sem
aldrei greri til fulls.
Árið 1968 hættu þau Jörundur
og María búskap á Ingjaldshóli og
fluttu til Reykjavíkur. Þar stundaði
Jörundur verkamannavinnu í nokkur
ár, lengst af hjá Ölgerð Egils Skal-
lagrímssonar. María lést í desember
1972.
Eg kynntist Jörundi Þórðarsyni
og fjölskyldu hans vel það árabil sem
þau áttu heima á Vaðstakksheiði og
Ingjaldshóli. Það var eftirminnilegt
að kynnast þessu harðduglega fólki
og viðhorfum þess til tilverunnar.
Lífsreynsla Jörundar Þórðarsonar
var ótrúlega fjölþætt. Frásögn hans
af mönnum og málefnum var lifandi
og sterk, það var hans lífsmáti.
Ég flyt börnum og öðrum ástvin-
um Jörundar innilegar samúðar-
kveðjur frá okkur hjónum. Minning-
in um Jörund Þórðarson frá Ingj-
aldshóli mun lifa.
Alexander Stefánsson