Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 Minning: Lýður Guðmunds- son í Litlu-Sandvík Lýður Guðmundsson í Sandvík er látinn. Með honum er genginn mikill búhöldur sem um langan aldur setti svip sinn á sitt sveitarfélag, forystu- maður, hreppstjóri og oddviti; en umfram allt mikill öðlingsmaður í reynd. Öllu þessu fengum við Halla að kynnast þegar við áttum, því láni að fagna að frú Aldís og Lýður tóku böm okkar til sumardvalar í Litlu Sandvík. Þá hófst vinátta við fólkið í Litlu Sandvík, sem mun standa meðan líf endist. Nú þegar Lýður er allur streyma fram í hugann minningar um heim- sóknimar í Litlu Sandvík, gestrisn- ina, viðmótið og hlýjuna, sem tók á móti okkur, hvemig sem á stóð. Þótt oft væri minnst á veiðiskap- inn vom veraldleg vandamál jafnan til umræðu en alltaf af þeirri sann- gimi að ekki kom til álita að vera á öndverðum meiði. Lýður var kominn á tíræðisaldur þegar hann lézt og þar sem hann hafði dvalið á sjúkrahúsi undanfarið kom fréttin um lát hans ekki á óvart en það bætir ekki söknuðinn og sorg þeirra sem nú syrgja hann látinn. Einlæg samúð fylgir þessum línum frá fjölskyldu okkar til Aldís- ar og annarra ástvina. Megi hugg- arinn mikli vera með ykkur öllum. Halla og Guðmundur Árnason Sjaldan bautasteinar standa brautu nær nema reisi niður að nið. Lýður Guðmundsson í Litlu- Sandvík er til moldar borinn í dag, 91 árs að aldri. Framundir það síðasta hafði hann haft fótavist og gengið í kringum bæinn á hveijum degi ef hann treysti sér ekki norður að Hólhúsi. Hann var vígður þess- um bæ og þessari jörð, fimmti ætt- liðurinn síðan 1790 sem hafði setið hana og skilaði henni í hendur syni sínum, Páli. Allir eiga þeir lang- feðgar mikla sögu í búskap og fé- lagsmálum sveitar sinnar^ Guð- mundur Þorvarðarson gerði Litlu- Sandvík að stórbýli með því að leggja undir hana vesturbæinn í Stóru-Sandvík og kaupa laxveiði- jörðina Kotfeiju. Þeir Lýður byggðu jörðina upp af svo mikilli rausn „að langt bar af öllum býlum sýslunn- ar, bæði íbúð og útihús" eins og Magnús Torfason sýslumaður skrif- aði í minningargrein um Guðmund 1939 en átti við þá feðga báða, því að þeir voru mjög samhentir. — „Það var aldrei erfítt að taka við búskapnum eftir föður minn," sagði Lýður í viðtali við Finn Magnússon fyrir fjórum árum. „Hann var búinn að kenna mér svo mikið, að ég vissi þetta allt saman. Það var allt í lagi með það.“ Foreldrar Lýðs voru Sigríður Lýðsdóttir frá Hlíð í Gnúpveija- hreppi og Guðmundur Þorvarðarson Guðmundssonar Brynjólfssonar, er fyrstur þeirra langfeðga bjó í Litlu- Sandvík, Bjömssonar bónda á Ölf- usvatni. Var Lýður elstur fímm systkina og er Svanhildur nú ein á lífí. Lýður kvæntist 20. maí 1933 Aldísi Pálsdóttur frá Hlíð Lýðssonar og Ragnhildar Einarsdóttur frá Hæli og voru þau hjónin systkina- böm. — „Við vorum búin að þekkj- ast lengi, þegar við giftum okkur," sagði Lýður í fyrmefndu viðtali. „Við þekktumst frá því við vorum krakkar, svo að við vissum alveg hvað við vorum að gera.“ Þau hjón höfðu átt gullbrúðkaup árinu áður en þessi orð voru sögð, svo að Lýð- ur gat litið yfír langan veg í sam- búð þeirra hjóna, sem einkenndist af alúð og samheldni. Aldís og Lýð- ur í Sandvík eða Lýður og Aldís, hvort tveggja er mér jafntamt í munni síðan ég var þar lítill dreng- ur átta sumur í sveit. Böm þeirra hjóna eru: Sigríður, gift Snorra Welding; Páll, kvæntur Elínborgu Guðmundsdóttur; Ragn- hildur, gift Baldri Halldórssyni; Guðmundur; kvæntur Hrafnhildi Sigurgeirsdóttur. Lýður gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum og eru þessi helst: Hann stofnaði Nautgriparæktarfé- lag Sandvíkurhrepps 1927 og var formaður þess til 1945 og var einn af stofnendum Nautgriparæktar- sambands Ámessýslu 1943 og formaður þess fyrstu árin. í stjóm Búnaðarfélags Sandvíkurhrepps 1940—1967 og síðar heiðursfélagi þess. í hreppsnefnd Sandvíkur- hrepps eldra 1942 og oddviti frá 1947, eftir að Selfossbyggð varð að sérstökum hreppi, til 1970. Fyrsti heiðursborgari Sandvíkur- hrepps 18. nóvember 1977. For- maður Flóaáveitufélagsins í 12 ár. Hreppstjóri 1939—1982 og sýslu- nefndarmaður 1947—1974. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1982. Lýður í Sandvík var ræktunar- maður í þess orðs fyllstu og bestu merkingu. Sú hugsjón var honum eðlislæg að honum bæri skylda til að skila jörðinni betri en hann tók við henni og hann bar gæfu til að vera i forystusveit þeirra bænda sem mddu brautina til nútíma bú- skaparhátta. Hjalti Gestsson segir frá því, þegar Lýður varð sextugur, að hann hafí spurt hann í hvaða röð framkvæmdimar hafí orðið í Litlu-Sandvík, og rifja ég það upp af því að svarið segir mikla sögu: Umferðaplægingar, sláttuvélin, Flóaáveitan, jarðræktarlögin, mjólkurbúið, afurðasölulögin, tilbú- inn áburður, ræktunin með stór- virkum vélum, nýjar heyverkunar- aðferðir og ræktaður búsmali, fóðr- aður til afurða. Eggert Ólafsson er ekki alltaf lipur í Búnaðarbálki, en vel hæfír að vitna til þessa erindis um hinn góða búhöld, þegar lýst er ævi- starfi Lýðs í Sandvík: Því meðan ei er ævin búin er gagnleg vinna skemmtilig; en þó ég deyi þreyttur, lúinn þá fæ ég nóg að hvfla mig; nýt ég aðeins míns erfiðis og landið hefur menjar þess. Lýður í Sandvík var miklum mannkostum búinn. Hann hafði lif- andi áhuga á þjóðmálum og fram- faramálum sýslu sinnar og sveitar, var laginh að vinna málum fylgi, enda óvenju rökvís og fundvís á aðalatriði; hann var góður húsbóndi og þau hjón bæði, hjúasæl eins og sagt var. Hann var meðal þeirra, sem fyrstir skildu, að of langur vinnudagur drægi úr afköstum og stytti vinnudaginn um tvo tíma en þó lá meir eftir hvem einstakan að kvöldi en áður. Lýður var alvöru- maður, hann var allra manna skemmtilegastur og hrókur alls fagnaðar í vinahópi. Hann var hlýr maður og raungóður, vinfastur og drengur góður. Árin mín í Sandvík eru meðal kærustu endurminninga minna. Ég man ennþá þegar ég kom þangað fyrsta sinni, man þegar Aldís sagði mér frá láti Bjama afa míns og ég fór út í hestagirðingu og grét við hálsinn á Faxa, man þegar við Jarp- ur vorum að færa matinn niður á Mýri. Ragga gamla er alls staðar nálæg í minningunni eins og í lif- anda lífi, alls staðar þar sem ein- hver þurfti á henni að halda eða hjá blessuðum kúnum, Perlu eða Söndm eða hvað þær hétu nú allar saman. Lýður hafði gott lag á okk- ur strákunum. Öllum kom hann til nokkurs þroska, var sagt um Erling á Sóla. Eins fórst Lýð við okkur. Með uppörvandi orðum og skilningi á hvað hveijum hentaði skipti hann verkum með okkur. Einu sinni man ég að ég vatnaði hestunum óbeð- inn. Við hádegisverðinn hafði Lýður orð á því, að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af hestunum. Ég myndi vatna þeim sjálfviljugur. Og auðvitað reyndi ég að bregðast ekki traustinu og var haldið við efnið með því að Lýður lét mig vita af því á uppörvandi hátt, að hann vissi hvað drengnum og hestunum liði. Þessar línur bera Aldísi, bömum hennar og fjölskyldu samúðarkveðj- ur okkar hjóna og fjölskyldu minnar. Guð blessi minningu Lýðs í Sandvík. Halldór Blöndal Tíminn líður og okkur sem til- heyrum eldri kynslóðinni fínnst hann líða hratt. Ég man þegar ég sá Lýð í Sandvík í fyrsta sinn laust eftir 1930. Hann var þá að ríða til fjalls í eftirsafn á Flóamannaafrétt, vesturleit. Hann kom við á Hæli, en hann ætiaði að gista í Hlíð hjá frændfólki sínu, en daginn eftir átti eftirsafnið að hefjast, en það tók 4 daga. Síðan komu fjallmenn- imir með eftirsafnið í Skaftholts- réttir, en þar yrði því réttað með byggðasafni úr Gnúpveijahreppi, ásamt eftirsafni úr austurleit á Flóamannaafrétti og eftirsafni af Gnúpveijaafrétti. Flest féð sem þama kom saman var úr Suður- sveitunum sem þá voru mjög fjár- margar og tóku eftirsafnarar úr Flóa og Skeiðum féð eða úrgang- inn, eins og í daglegu tali var sagt um utansveitarféð, og ráku það til Dælaréttar, en sú rétt er í Skálm- holtslandi, spölkom vestan Þjórsár- brúarinnar. Mér varð starsýnt á Lýð í Sandvík þetta haust, bæði þegar hann var að ríða til fjalls og ekki síður í skilaréttinni í Skaftholti, þegar þeir höfðu lokið fjallferðinni. Ég sá strax að hann var vaskur maður, grannvaxinn, sviphreinn, en svo ákveðinn í allri framgöngu, að lífsleið hans myndi tæpast ráðast af tilviljanakenndum ákvörðunum. Síðan þetta var em liðin 56 ár og mikil saga hefur gerst, saga um mesta framfaraskeið sem íslenska þjóðin hefur upplifað og þessi grannvaxni og ákveðni ungi bóndi var þar einn í forystusveitinni, hygginn og varfærinn en ákveðinn í að koma sér og sínu fólki burt frá fátækt og basli, sem var þá hlut- skipti þeirra sem minna máttu sín, en markmiðið var þá þegar að koma sveitafólkinu til bjargálna, og sjá fyrir því að laun erfíðisins yrði far- sæld og betra og göfugra líf. Já, í huga mínum er eins og þessi fyrstu fundir okkar Lýðs í Sandvík hafí átt sér stað fyrir fáum ámm en ekki fyrir meira en hálfri öld síðan. Ekki urðu kynni okkar Lýðs náin næstu árin, en nokkur þó, þar sem hann kvæntist frænku minni Aldísi Pálsdóttur frá Hlíð í Gnúpveija- hreppi árið 1933 og bjuggu þau í fyrstu í félagi við foreldra Lýðs, þau Guðmund Þorvarðarson, hrepp- stjóra í Litlu-Sandvík, og konu hans, Sigríði Lýðsdóttur frá Hlíð í Gnúpveijahreppi, en hún var föður- systir Aldísar. Árið 1937 hófu þau Lýður og Aldís sjálfstæðan búrekst- ur á jörðinni, og má segja að þau tækju við blómlegu búi, en hinu má ekki gleyma, að þau ávöxtuðu líka vel það sem þau tóku við og að leiðarlokum hlýtur það að vera samdóma álit allra sem til þekkja, að þeim Lýð og Aldísi hafi lánast að gera Litlu-Sandvík að hinum mesta rausnargarði og menningar- heimili, þar sem margir er þar dvöldu, yngri sem eldri, öðluðust þroska, sem hefur enst þeim vel á lífsleiðinni. Árið 1945 var mér nokkur vandi á höndum að velja mér lífsstarf, þar sem ég gæti hagnýtt þá þekk- ingu í landbúnaði, sem ég hafði afiað mér. Þá var það að Lýður í Sandvík bauð mér ráðunautsstarf við nautgriparæktarsambandið í Ámessýslu, sem var þá tiltölulega nýlega stofnað og starfshættir þess lítt mótaðir, en Lýður var formaður sambandsins. Ég starfaði síðan að þessum málum með Lýð Guðmundssyni og nokkrum öðrum merkisbændum hér í sýslu um aldarfjórðungs skeið, og vil ég fullyrða að árangur af því starfí hafí verið langt umfram mínar glæstustu vonir, og tel ég að hin hyggilega forysta Lýðs hafí átt dijúgan þátt í þeim árangri. Umfram rekstur hins stóra og umsvifamikla bús, sem rekið var í Litlu-Sandvík, þá hlóðust á Lýð margháttuð félagsmálastörf. Þann- ig var hann hreppstjóri Sandvíkur- hrepps um áratuga skeið, oddviti Sandvíkurhrepps í aldarfjórðung og sýslunefndarmaður í nær 30 ár. Ég kynntist vel hans gætilegu og var- fæmu félagsmálastörfum, er við störfuðum saman í allsheijamefnd sýslunnar um 12 ára skeið, og mat ég þar mikils hans hollu ráð og til- litssemi við alla málsaðila í hveiju máli. Lýður var hamingjusamur í sínu efnkalífi. Eins og áður er getið kvæntist hann frænku sinni Aldísi Pálsdóttur frá Hlíð, sem er bæði búkona góð og bráðgáfuð og heim- ili þeirra því sannkallað menningar- heimili. Þau eignuðust 4 efnileg böm sem öll em mesta efnisfólk. Þau em: Sigríður fædd 1935 vinnur hjá Skrifstofuvélum, Reykjavík, gift Snorra Velding starfsmanni hjá t Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlét og útför mannsins míns, AGNARS GUNNLAUGSSONAR Guð blessi ykkur öll. garðyrkjumanns. Þorgerður Kristjánsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts eiginkonu minnar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU HALLGRÍMSDÓTTUR, Foldahrauni 41F, Vestmannaeyjum. Þórarinn Jónsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför PÉTURS STEFÁNSSONAR, framkvæmdastjóra, Blómvangi 13. Aðalheiður Dis Þórðardóttir, Borgþór Pótursson, Elfsabet Ellerup, Bjarnveig Pótursdóttir, Eyjólfur Halldórsson og barnabörn. Reylq'avíkurborg og eiga þau 3 böm; Páll fæddur 1936, bóndi, odd- viti og hreppstjóri í Litlu-Sandvík, kvæntur Elínborgu Guðmundsdótt- ur og eiga þau 4 böm, Ragnhildur fædd 1941, skrifstofustúlka, gift Baldvini Halldórssyni, prentsmiðju- stjóra, Hafnarfirði, og eiga þau 3 böm og Guðmundur, fæddur 1942, rafvirki, á Selfossi, kvæntur Hrafn- hildi Sigurgeirsdóttur ög eiga þau 2 böm. Þá átti Lýður son áður en hann giftist, Svein Valdimar, sem fæddist 1919 og er hann rafvirki í Reykjavík og á hann eina dóttur. Eins og áður er minnst á, þá var trúin á framfarir þeirri kynslóð í blóð borin, sem fæddist fyrir og um síðustu aldamót. Engu varð þá kom- ið á, nema með félagslegu átaki, og þar voru þeir Sandvíkurfeðgar - í forystusveitinni. Flest þurfti að reisa frá gmnni og oft kostaði það áratuga baráttu að hrinda þarfa- málum í framkvæmd. Það sem var bændum einna þyngst í skauti í upphafi aldarinnar var öryggisleys- ið í afurðasölumálum. Með stofnun ijómabúanna var nokkur bót ráðin á þessu máli og mikið átak var gert við stofnun Sláturfélags Suð- urlands 1908, en stóra stökkið í afurðasölumálum var gert með stofnun Mjólkurbús Flóamanna árið 1929. Undanfari þess var þó gerð Flóaveitunnar, sem tók til starfa árið 1927. Með áveituframkvæmd- unum tvöfaldaðist að minnsta kosti afrakstur engjanna í Flóanum og með því varð Flóinn að kostalandi, sem þó hafði sinar takmarkanir vegna erfíðrar nýtingar með nútímatækni í votviðratíð. Eftir heimsstyijöldina síðari varð mikil tæknibylting í íslenskum land- búnaði og þá hófst brátt framræsla mýranna með stórvirkum vélum. Ræktunarsamband Flóa ög Skeiða var stofnað og það hefur stuðlað að uppþurrkun og túnrækt mýrar- fláka, sem áður voru grösug áveitu- engi og nú þrefaldaðist eftirtekjan og hér í Flóanum reis hvert góð- býlið upp við annars hlið eins og allir mega sjá. í allri þessari félagsmálabaráttu var Lýður í Sandvík virkur þátttak- andi, enda naut hann allsstaðar trausts vegna sanngimi og hófsemi og ábyrgrar fjármálastjómar, sem ' bændur þekktu og kunnu að meta. Mörg fleiri verkefni mætti nefna, sem voru Lýð hjartfólgin og hann vann að með miklum dugnaði. Þar ber að sjálfsögðu hæst oddvitastarf- ið, og þar var Lýður vakinn og sof- inn að greiða úr fjölda vandamála, sem tilheyra slíku starfi, og það gerði hann af slíkri vandvirkni og samviskusemi, að hann eignaðist þar hvorki óvini né óvildarmenn, en því fleiri vini og velunnara. Lýði tókst vel samstarfið við hið nýja sveitarfélag sem óx upp við Ölfusár- brúna og milli þessara tveggja sveitarfélaga hefur ætíð verið gott samstarf, og þar átti Lýður stóran hlut í að móta það samstarf í upp- hafí. í sýslunefndinni lét Lýður sig miklu skipta uppbyggingu Þorláks- hafnar, uppbyggingu skólanna á Laugarvatni og byggingu Sjúkra- húss Suðurlands, svo nokkuð sé nefnt. Mér fínnst ánægjulegt nú að leið- arlokum að lita yfir hinn farsæla æviferil Lýðs í Sandvík. Þannig ólst hann upp á góðu og öflugu heimili, var gaeddur góðum gáfum, hlaut góðan undirbúning að sínu lífsstarfi er hann lauk búfræðinámi á Hvann- eyri, hann hlaut góða konu sem lífsförunaut og þau eignuðust góð böm, sem hefur vegnað vel. Og Lýður hlaut traust samferðarmanna sinna til að gegna margháttuðum forystustörfum og auðnaðist að koma mörgum mikilvægum málum álejðis til betri vegar. í Litlu-Sandvík hefur nú í meira en 100 ár sonur tekið við af föður og merkið aldrei látið falla, þó að kynslóðaskipti yrðu, og þannig er það enn í dag. Við hjónin og böm okkar þökkum þeim Sandvíkurhjónum Lýð og Aldísi mikla tryggð og góðsemi í okkar garð um áratugaskeið og óskum Lýði fararheilla á ókunnum stigum á nýrri þroskabraut. Blessuð veri minningin um Lýð Guðmundsson í Sandvík. 4 Hjalti Gestsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.