Morgunblaðið - 30.12.1988, Side 50

Morgunblaðið - 30.12.1988, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Um hlutgengi, afrek, „minnihlutagreinar“ og lýðræði Morgunblaðið/Árni Sæberg Elnar Vllhjálmsson9 íþróttamaður ársins 1988 ÞÓ nokkur umræða hefur ver- ið um kjör íþróttamanns árs- ins að þessu sinni, ekki síst á síðum DV, og hefur umræð- an úti í þjóðfélaginu verið heldur líflegri en oft áður ekki síst vegna sífelldra skrifa íþróttafréttamanna DV sem hafa leynt og Ijóst ætlað ein- um manni titilinn að þessu sinni. Umræðuefnið hefur verið hvort ákveðinn fatlaður íþróttamaður sé jafn gjald- gengur og ófatlaðir íþrótta- menn. Sitt sýnist hverjum um það, ekki síður í röðum íþrótt- afréttamanna en annars staðar. En sem samtök, hafa íþróttafréttamenn þegar dæmt umræddan íþrótta- mann gjaldgengan, það er með því að hann komst á lista yfir þá tíu íþróttamenn sem flest hlutu atkvæði íþrótta- fréttamanna í kjörinu í fyrra. Þar með var umræddur íþróttamaður orðinn gjald- gengur, en annað mál er hvernig einstakir íþrótta- fréttamenn meta hver hefur unnið mesta og besta afrekið. Hér er ekki ætlunin að kryfja hvort Haukur Gunnarsson hafí átt að hreppa tignina fremur en Einar Vilhjálmsson. Eða hvort einhver þriðji aðili hefði átt að skjóta báðum aftur fyrir sig. Þessir tveir íþróttakappar eru báðir í fremstu röð í heiminum í grein- um sínum og flokkum. Það sem hér er gert að umræðuefni er hins vegar vægast sagt ósæmileg- ar tilfæringar íþróttafréttamanna DV til þess að fá sinn mann kjör- inn, s.s. Hauk, með blaðaskrifum fyrir kjörið og ótrúlegan hroka þeirra í kjölfar kjörsins, þar sem skoðanir kollega þeirra voru virtar að vettugi. Þeir einir vissu best. Lítum aðeins nánar á málið: Mat á afrekl Íþróttamaður ársins var kjörinn miðvikudaginn 28. desember, en ballið byrjaði í DV 17. desember í íþróttapistli, að þessu sinni eftir Jón Öm Guðbjartsson. Þar fjallar hann á almennum nótum um það hvort erfítt sé að leggja mat á afrek íþróttamanns. Vitnar hann í orð formanns Samtaka íþrótta- fréttamanna sem voru á þá lund að íþróttafréttamönnum væri vandi á höndum þegar bera þyrfti saman afrek fatlaðra íþrótta- manna og ófatlaðara. Báðir eru þó sarnmála um að allir íþrótta- menn eigi að vera jafnréttháir. En svo kljkkir JÖG þannig út: -„Þótt við íslendingar séum mjög stoltir af mörgum frábærum íþróttamönnum okkar tel ég að fáir, eða jafn vel engir, standi framar en þessi kappi sem vann hug og hjarta íslensku þjóðarinnar með afrekum sínum í Seoul. Mér þykir því þessi spuming krefjandi: Er erfítt að leggja mat á afrek íþróttamanns sem hefur vaxið að styrk, nær besta árangri í heimin- um í sínum flokki, leggur hart að sér, er reglusamur og þekktur að prúðmennsku ofan í kaupið." Með allri virðingu fyrir Hauki þá verður að spytja kreíjandi á móti hvað hafí vakað fyrir JÖG með svona „hugvekju" á þessum tíma. Tveir hlutir liggja þó ljósir fyrir. Númer eitt, að með svona skrifum getur JÖG mótað mjög almenningsálitið og númer tvö þá ber svona lagað keim af því að hann sé að reyna að hafa áhrif á þá kollega sína sem kunna að vera í vafa um hver sé kjörinn til titilsins að þessu sinni. „Glæsllegust" afrek Síðan er margt skrafað næstu daga, en næst dró til tíðinda sjálf- an kjördaginn, 28. desember, er íþróttafréttamaður DV, Stefán Kristjánsson, birtir viðtal við Hauk Gunnarsson undir stórri fyrirsögn: „Hlýt að standa jafn- fætis ófötluðum". Fljótlega í við- talinu tekur SK orðið og stað- hæfín „Haukur er eins og allir vita fatlaður íþróttamaður en vann engu að síður glæsilegustu afrek íslendinga á, þessu ári á íþróttasviðinu." Haukur er mikill afreksmaður í íþróttum, en það hlýtur að vera matsatriði hvaða afrek eru „glæsilegust". Annað hvort hvarflar það ekki að SK að einhverjir kunni að vera á annarri skoðun, eða að hann afgreiðir annarra skoðanir sem duft og ösku. Hvort heldur er, mætti SK íhuga það gaumgæfílega. Enn má spyija „krefjandi": Hvað vakir fyrir SK að birta við- tal við einn helsta kandídatinn á sjálfum kjördeginum? í fyrsta lagi var hugsanlegt að Haukur hreppti titilinn og þar með væri DV búið að ná fréttinni á undan öllum. í öðru lagi, að ef Haukur hreppti ekki titilinn þá mætti hafa þau not af viðtalinu að brýna fyrir almenningsálitinu að DV hefði stutt Hauk. Þ.e.a.s. ef almenn- ingsálitinu væri á annað borð of- boðið. „Minnihlutagrain“ Ekki var nú ballið búið þótt kjörið færi fram með eðlilegum hætti, heldur var í DV í gær, daginn eftir kjörið, langur lestur eftir Víði Sigurðsson undir fyrir- sögninni: „Hveijir eru hlutgeng- ir?“ Þar er að finna einhvers kon- ar hugvekju um það hvað sé hlut- geng íþrótt og hvað ekki. Gengur það svo langt að gert er lítið úr spjótkasti, það kallað „minni- hlutagrein" „sem sést vel á því að hún var ekki á dagsskrá Grand Prix mótanna í ár“ eins og Víðir orðar það. Víðir ætti að vita betur en að blaðra svona, því fyrir þessu liggja ósköp einfaldar ástæður. Það er keppt í á fjórða tug greina í fijálsum íþróttum og það er lífsins ómögulegt að koma öllum fyrir á 2 til 3 tíma móti. Þess vegna er keppt í þeim annað hvert ár. Þannig var keppt í kúluvarpi og sleggjukasti í ár, þar á undan í spjótkasti og sleggjukasti. Og á næsta ári aftur í spjótkasti og kringlukasti. Svona hefur þetta alltaf verið. Áður hafði Víðir látið frá sér undurfurðulega . setningu:„....en fyrirfram virtist sem almenningur væri ekki í vafa um að styttan eftirsótta myndi falla honum (Hauki innsk.gg) í skaut.“ Starfs- menn á íþróttafréttadeild Morg- unblaðsins hafa aðra sögu að segja, þeir urðu varir við mikil skoðanaskipti um það hver ætti að fá styttuna og á hvaða forsend- um. Það sést kannski best á því, að 19 kjörmenn Samtaka íþrótta- fréttamanna greiddu þannig at- kvæði að Einar Vilhjálmsson bar sigur úr býtum, Bjami Friðriksson varð annar og Haukur þriðji. Munaði ekki mörgum stigum á þeim. Lýðræði Það er því alveg á hreinu, að Haukur er fullkomlega hlutgeng- ur. Menn voru bara ekki sammála um Hauk. Ekki sammála DV þrátt fyrir allt moldrokið. í ljósi þessa eru lokaorð Víðis í umræddri grein með ólíkindum: „Með því að setja Hauk í þriðja sæti í kjörinu.sem lýst var í gær, hafa Samtök Iþróttafréttamanna sýnt viðleitni til þess að viðurkenna hlutgengi fatlaðra íþróttamanna - en því miður bám þeir ekki gæfu til þess að stíga skrefíð til fulls". Nú er það skiljanlegt að menn vilji að eigin vilji nái fram að ganga, en þegar kosið er um einn mann í nafni samtaka þá er verið að ræða um lýðræði. Menn sem geta ekki sætt sig við lýðræði eiga ekkert erindi í svona samtökum. Menn verða að hafa þroska til að sætta sig við að skoðanir þeirra og vilji er ekki endilega vilji meiri hlutans. Og að segja að viðleitni hafí verið sýnd til þess að viður- kenna o.s.frv. er enn og aftur blaður, hlutgengi Hauks og ann- arra fatlaðra íþróttamanna var staðfest með kjöri Hauks í hóp tíu efstu í kjöri um íþróttamann ársins í fyrra og í þriðja sæti nú. Allt snakk um hvort fatlaðir eru gjaldgengir eða ekki er tíma- skekkja. AF INNLENDUM VETTVANGI Guðmundur Guðjónsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.