Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
27
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Fimni þúsund fermetra
iðnaðarhúsnæði eyði-
lagðist í eldsvoðanum
Gúmmívinnustofan á Réttar-
hálsi, ásamt viðbyggingu, brann
til kaldra kola í gærdag. Alls
varð um 5.000 fermetra iðnaðar-
pláss eldinum að bráð og segir
Viðar Halldórsson framkvæmda-
stjóri Gúmmívinnustofúnnar að
tjón fyrirtækisins vegna eldsvoð-
ans sé ekki undir 200 milljónum
króna. í viðbyggingunni við
Gúmmívinnustofiina höfðu sex
önnur fyrirtæki aðstöðu, aðal-
lega fyrir lager. Kristinn O. Guð-
mundsson forstjóri Húsatrygg-
inga Reykjavíkur segir að tjónið
á fasteignunum báðum sé nokkur
hundruð milljónir króna.
Tilkynnt var um eldinn um kl.
15 í gærdag. Ekki er ljóst með
hvaða hætti eldsupptök urðu en eld-
urinn kom fyrst upp í sólningar-
deild Gúmmívinnustofunnar í suð-
austurhomi byggingarinnar. Allt
tiltækt lið slökkviliðsins var kallað
út ásamt liðsauka frá Reykjavíkur-
flugvelli og Hafnarfírði. Slökkviliðið
náði hinsvegar ekki tökum á eldin-
um og rúmum klukkutíma eftir að
slökkvistarf hófst logaði Gúmmí-
vinnustofan stafnanna á milli. Mik-
inn reyk lagði af eldinum undan
vindi í norðaustur í átt að Vestur-
landsvegi.
Milli Gúmmívinnustofunnar og
fyrrgreindrar viðbyggingar er
steinveggur. Eldurinn komst hins-
vegar þar á milli eftir þökum hús-
anna og um tveimur tímum eftir
að slökkvistarf hófst var viðbygg-
ingin einnig alelda. Strax og ljóst
varð að eldurinn næði í viðbygging-
una var hafíst handa við að bera
út vörur úr henni. Tókst þannig að
bjarga nokkrum verðmætum.
Uppúr kl. 19 var slökkviliðið
búið að ná stjóm á eldinum. Er
Morgunblaðið fór í prentun í nótt
logaði enn í glæðum víða í báðum
byggingunum og búist var við að
slökkvistarf stæði framundir morg-
un. /
Starfsemi í Gúmmívinnustofunni
var í fullum gangi er eldurinn kom
upp og áttu sumir starfsmannanna
fótum fjör að launa svo hratt
breiddist eldurinn út. Aðeins einn
þeirra slasaðist hinsvegar en ekki
alvarlega. Hlaut hann brunasár á
höndum og andliti.
Viðar Halldórsson framkvæmda-
stjóri Gúmmívinnustofunnar lá
veikur heima er eldurinn kom upp.
Hann dreif sig þó strax á staðinn
til að fylgjast með slökkvistarfínu.
Hann segir að þessi eldsvoði sé
ægilegur skellur fyrir fyrirtækið.
Stund milli stríða.
istíogæstasti
ir hér á landi
Aðeins litlu tókst að bjarga úr húsunum. Nær adlt varð eldinum að bráð. Morgunbiaðia/Ámi Sæberg
Mikið tjón fyrirtækj-
anna í viðbyggingunni
kom upp sprungu tveir gaskútar
sem hertu mjög á eldinum. Einnig
var óhemjumagn af eldfimum efn-
um til staðar í byggingunni en eng-
ir milliveggir til að hindra út-
breiðslu eldsins.
„Strax og við hófum slökkvistarf
ákváðum við að vinna eftir þeirri
áætlun að reyna að einangra eldinn
við austurhluta hússins," segir
Hrólfur. „Við sendum því menn upp
á þakið og létum þá ijúfa það á
tveimur stöðum, við eldjaðarinn og
síðan tíu metrum vestar. Við ætluð-
um að með fyrra gatinu myndi hiti
og eldur tjúka upp en síðan næðum
við að stöðva útbreiðsluna í seinna
gatinu. Eldurinn breiddist hinsveg-
ar svo hratt út að við vorum á stöð-
ugu undanhaldi eftir þakinu. Attu
slökkviliðsmenn stundum fótum fjör
að launa. Hitinn var svo mikill að
jámbitar í þakinu voru famir að
gefa sig um það leyti sem við kom-
um upp.“
Hrólfur nefnir einnig að slökkvi-
liðið hafí verið gagnrýnt fyrir að
opna gafldyr á suðurhlið hússins til
að komast að eldinum. Hann segir
að þessi gagnrýni standist ekki þar
sem allur austurgaflinn var orðinn
alelda er það var gert og eldurinn
hafði því nægt súrefni fyrir.
Hvað viðbygginguna varðar eða
húsið fyrir neðan Gúmmívinnustof-
una segir Hrólfur að þar á milli
hafi verið eldvarnarveggur, en hann
hafí ekki gert gagn. „Eldvamar-
veggurinn náði ekki upp í gegn um
þakið og þess vegna gat eldurinn
breiðst yfir í neðra húsið um þakið.
Auk þess vom dyr á veggnum sem
ekki vom eldvamarhurðir í,“ sagði
Hrólfur.
Eldurinn viiðist hafa læst sig í
neðri hæð hússins með því að fara
úr glugga efri hæðar inn um glugga
á neðri hæð. „Við vomm gmnlaus-
ir um að slíkt gæti gerst. Svona
nokkuð höfum við hreinlega aldrei
séð, en þetta sýnir þó hve gífurlegt
afl var þarna í hain,“ sagði Hrólfur.
Hann sagði að ljóst væri eftir
þennan bmna að rannsaka þyrfti
hvaða eldvamarkröfur hafi verið
gerðar um húsið, til dæmis varð-
andi eldvamarveggi. Þá segir Hrólf-
ur auðsætt að endurskoða þurfi eld-
varnir alls staðar í borginni, þar sem
einhver hætta sé á stórbmna ef
eldur verður laus. Varðandi tækja-
kost slökkviliðsins kvaðst hann ekki
vera reiðubúinn til að tjá sig um
hann að öðm leyti en því, að vel
hsfi komið í ljós nú hve nauðsyn-
legt sé að hafa yfir stómm tankbíl
að ráða. „Við þurfum mikinn tíma
til að koma tækjum og slöngum
fyrir og ná í vatn, stór tankbíll
gæti brúað það bil. En þessi bmni
var slíkur að kannski hefði ekkert
dugað nema slökkvibátar eins og
notaðir em við olíuborpalla, sem
dæla um 90 þúsund lítrum á
mínútu,“ sagði Hrólfur.
Hann vísaði á bug gagnrýni á
að ekki hefði strax verið beitt kröft-
um slökkviliðsins að því að veija
viðbyggingu við hús Gúmmívinnu-
stofunnar. Það hefði verið með öllu
óveijandi að reyna ekki til þrautar
að ráða niðurlögum eldsins og all-
sendis óvíst að tekist hefði að veija
viðbygginguna þótt öllum kröftum
hefði verið beint að því í upphafi.
í viðbyggingunni á Réttarhálsi
2, sem varð eldinum að bráð í gær,
vom sex fyrirtæki með starfsemi.
Þau em Glóbus hf., Rekstrarvömr,
Kæling hf., J. Þorláksson og Norð-
mann hf., Blómamiðstöðin hf. og
Drangafell hf. Að sögn þeirra for-
ráðamanna þessara fyrirtækja sem
Morgunblaðinu tókst að ná tali af
í gærkvöldi reyndist ekki unnt að
meta tjónið í gær en ljóst er að það
er vemlegt.
Kristján Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Rekstrarvara hf.,
sagði tjónið verulegt, allur skrif-
stofubúnaður væri gjörónýtur svo
og innréttingar og töluverður hluti
lagersins. Þó tókst að bjarga hluta
af lagemum. Kristján sagði það
sína sannfæringu að ef slökkviliðið
hefði tekið tillit til óska húsráðenda
um tilhögun slökkvistarfsins hefði
verið hægt að forða því að e'.durinn
kæmist í viðbygginguna. „Það var
illa að slökkvistarfínu staðið," sagði
Kristján Einarsson.
Ámi Gestsson, stjómarformaður
Glóbus hf., sagði þá hafa orðið fyr-
ir talsverðu tjóni. Allur heildsölulag-
erinn hefði bmnnið og innréttingar,
lyftarar og önnur tæki væm gjör-
eyðilögð.
Sveinn Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Blómamiðstöðvarinn-
ar hf., sagði ómögulegt að segja til
um hversu mikið þeirra tjón væri.
Blómamiðstöðin hefði verið síðust
til að lenda í eldinum og vegna
reyks hefði ekki verið hægt að gera
sér neina grein fyrir tjóninu í gær-
kvöldi, en ljóst væri að það væri
geysimikið.
Jón Torfason, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Kælingar hf., sagðist
ekkert vilja tjá sig um málið að svo
stöddu. Ekki tókst að ná sambandi
við forsvarsmenn J. Þorláksonar og
Norðmanns og Drangafells hf. í
gærkvöldi.