Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989 Reykjavík, úr Breiðholtinu, úr Graf- arvogi, úr Arbænum og víðar. Hvað haldið þið að það kosti að auki þeg- ar bensínið er hækkað? Það er stefna sem tekur meira frá heimil- unum, frá fólkinu sem þarf að fara í vinnu snemma á morgnana og fara heim til sín þreytt á kvöldin. Ég veit um fólk sem getur ekki notað bílana sína þegar líða fer á mánuðinn vegna þess að það á ekki fyrir bensíni á bílana. Þetta er stefna, auðvitað er þetta stefna. Þetta er stefna Alþýðubandalagsins og þeim er að takast mjög vel að koma sinni stefnu fram og við verð- um að viðurkenna það að þeir hafa náð undirtökum. A meðan allt þetta er í gangi er búið að blinda okkur með einhvers konar íjárlögum og hefta hugann með því að ræða um einstaka liði sem í sjálfu sér skipta engu í hinu stóra dæmi sem ég er að tala um. Það er þetta sem við skulum ekki loka augunum fyrir. Nei, kæru samþingsmenn. Hér vantar ekki stefnu. En það finnst kannski ekki leið á Alþingi til þess að koma í veg fyrir hana. Við skul- um vera alveg viss um það, og það er það sem bjargar okkur, að fólkið veit að það sjálft þarf að finna leið til að vetja sig, til að verjast þess- ari stefnu, finna vöm gegn stefn- unni sem nú er notuð í árásar- skyni. (Gripið fram í: Við hvem?) Við þjóðina, við fólkið, við þau kaupfélög sem hafa ekki þolað hana og eru að fara á hausinn og fleiri og fleiri. Ef hæstv. ráðherra — ég held að það hafi verið ráðherra sem greip fram í (gripið fram í), ekki ráðherra, þá bið ég afsökunar, en það var verkalýðsforinginn Karl Steinar sem greip fram í. — Ef hann finnur ekki leiðina eða finnur fyrir stefnunni sem er í gangi veit ég ekki hver leiðir blindan. (Gripið fram í: Það var krataverkalýðsfor- ingi.) Samkvæmt sérstakri ósk er ég minntur á að það var krataverka- lýðsforingi sem greip fram í og það skal engan furða því að stefna þeirra er ein í dag og önnur á morg- un._ (Gripið fram í: Þú lýgur því.) Ég verð að segja að ég er ekki alveg sammála Þorvaldi Garðari Kristjánssyni, þegar hann segir að fyrst verði að móta stefnu og síðan laga fjárlögin að þeirri stefnu. Ég vil líka segja að það sem er verið að gera núna, og ég vil að hv. þing- menn hugsi á. þeirri línu og þess vegna tala ég svona, er að það er verið að laga þjóðfélagið að hug- myndafræði vinstri manna og síðan á að venja þjóðina við stefnuna sem út úr því kemur. Það er þetta sem ég vildi hafa sagt að gefnu tilefni. Ríkissljórnin er ekki steftiulaus - hún hefur stórhættulega steftiu JÚDÓDEILD ÁRMANNS Armúla 32 Reuter Sjórinn sækirá Á síðustu árum virðist sem ágangur sjávar hafi aukist mjög við strendur víða um heim og er þessi ágætt dæmi um það. Hún er af því, sem eftir er af einum kunnasta og glæsilegasta veitinga- staðnum í Afríkuríkinu Abidjan, „La Vigie“. Stóð hann um ára- tugaskeið á fallegum stað við ströndina en á skömmum tíma hafa æstar öldurnar gert hann að engu. Albert Guðmundsson og hvað þau geta gert. Samgöngu- ráðuneytið er líka mjög afdrifaríkt ráðuneyti vegna þess að það getur komið í veg fyrir eðlilega þróun vamamála á íslandi. Menntamálin hafa sín áhrif, við vitum það, fyrir utan það sem við áttum okkur ekki á en það er að undir menntamála- ráðuneytið heyra ríkisfjölmiðlamir. Það hefur og komið í ljós hvað eft- ir annað þegar ég hef komið hér upp í ræðustólinn að komið er nýtt og allt annað forsetavald á Alþingi en var áður. Það er líka valdastaða og hluti af forsetavaldi þjóðarinnar á tímum. Við skulum bara sætta okkur við það en við skulum ekki vera það blindir að segja að það sé engin stefna í fjárlögunum. Það er stefna og hún er vel rekin af skemmtilegum andstæðingi í pólitík sem ég hef átt við að etja í langan tíma og ég met hans hæfileika vegna þess að þá má ekki vanmeta. Það er líka stefna að matarskatt- urinn kom á. Það er sko stefna. Það er stefna í efnahagsmálum heimilanna. Það er stefna og kannski sérstaklega fyrir Reyk- víkinga þegar verið er að hækka bensínið. Tugþúsundir manna þurfa að aka 20-30 km vegalengd fram og til baka, úr og í vinnu í - sagði Albert Guðmundsson í þingræðu Hér fer á eftir kafli úr þing- ræðu sem Albert Guðmundsson flutti i desembermánuði: Það sem kom mér til að koma hér upp í ræðustólinn er allt annar hlutur en snertir þó íjárlögin. Pálmi Jónsson, einn af eldri þingmönnum þingsins og einn af reyndustu fjár- lagagerðarmönnum okkar, kvartar undan stefnuleysi í fjárlögunum og mér finnst það stóralvarlegt mál. Mér finnst það stóralvarlegt mál •vegna þess að í íjárlögunum felst bæði efnahags- og atvinnustefna og ef stærsti flokkur þjóðarinnar sér ekki hvað er að ske er þar um algjöra pólitíska blindu að ræða og stórhættulega. Það er stefnt að hallalausum fjár- lögum í gríðarlega miklum vanda sem ríkissjóður er í. Ríkissjóður hefur áður verið í slíkum halla. Þá var stefnt að því að leysa þann vanda á 3-4 árum til þess að það kæmi létt niður á fólkið í landinu, og fjárlög voru afgreidd með minnkandi halla sem endaði í tekju- afgangi og þetta var hægt á löngum tíma. En nú birtist í fjárlögum þessa árs að það skal yfírfæra hallann hvað sem það kostar frá ríkissjóði yfír á heimilin. Kallið þið það enga stefnu? Það er stefna sem er stór- hættuleg, vegna þess að í henni felst pólitísk ákvörðun. Það er verið að flyrtja pólitíkina sem eins konar uppbót á skattana inn á heimilin. Hækkandi vörugjald, það er líka stefna. Það er alvarleg stefna vegna þess að hækkandi vörugjald og aukinn fjöldi flokka í álagningar- grunninum er stefna um minni kaupmátt almennings. Það er stefna. Það er stefna um það að taka ráðstöfunartekjur fólksins og fyrirtækjanna frá því inn í ríkis- sjóð, það er stefna. Það er ekki hægt að segja að ríkisstjómin sé stefnulaus. Hún hefur stórhættu- lega stefnu, bæði í efnahags- og atvinnumálum, vegna þess að við vitum, við emm áhorfendur að því daglega, að fyrirtæki loka, fólk er í stærri hópum en nokkum tíma hefur þekkst áður svo að ég muni til að missa atvinnu sína, fyrirtæki loka og fólk og heimili fara á haus- inn. Það er árangurinn af stefnu. Auðvitað er það árangurinn af stefnu. Hækkandi tekjuskattar. Haldið þið að það sé ekki stefna? Þetta er allt í sömu áttina, að skapa hér öngþveiti og öreiga. Það er stór- hættuleg stefna sem hefur alltaf verið andstæð minni lífsskoðun. Hvað haldið þið að eignarskattamir á einstaklinga sem eiga 7 milljón kr. í nettóeign eða hjón sem eiga 14 milljón kr. í nettófasteign þýði? Ég veit það að þar sem ég bý við Laufásveginn í Reykjavík em göm- ul heimili. Þar er annaðhvort gam- alt fólk, gömul hjón eða ekkjur sem búa í þessum dým húsum sem vom utan bæjarins, utan miðbæjarins, þegar ég var að alast hér upp en em núna miðbæjarkjami og em með dýmstu eignum. Þetta fólk verður öreigar þegar skattamir koma til greiðslu. Hvað haldið þið að þetta sé? Þetta er stefna. (Grip- ið fram í: Sósíalismi.) Auðvitað er það sósíalismi, en það er stefna því fólkið er hrætt, fólkið lifir í óvissu og óöryggi um framtíð sína, um eignir sínar og atvinnu. Auðvitað er það stefna, bæði í peningamálum og efnahagsmálum almennt, og hún er farin að virka og því skulum við átta okkur á, að hún er farin að virka áður en tekjuöflunarfmmvörp og fjárlögin em samþykkt á Al- þingi. Hún er farin að virka vegna þess að fólkið er hrætt. Við skulum ekki loka augunum fyrir því að við emm ekki í neinum leikaraskap. Við emm í alvöru lífsins hér á Al- þingi og þar em flokkar sem hafa mismunandi stefnur. Sú stefna sem ég aðhyllist ekki ræður ríkjum í dag. Sú stefna sem ég aðhyllist, að fólkið og fyrirtæki fái að halda sem méstu eftir af sjálfsaflafé sínu, er ekki virt í dag. Stefna mín er ekki í gangi. Stefna hinna sem ég aðhyllist ekki pólitískt er í fram- kvæmd. Þeir hafa náð undirtökun- um og við skulum átta okkur á því að það er að mínu mati hættuleg stefna. Það er stefna sem skapar þennan ótta sem ég gat um, bæði efnahags- og atvinnulegt óöryggi. Það er líka stefna að deila fólkinu og deila til að stjóma. Það er það sem verið er að gera og þetta er að takast. Við segjum svo á Alþingi að engin stefna sé í gangi. Við emm með alvömna á milli handanna. Byltingin er að heppnast og við skulum gera okkur grein fyrir því að til þess að geta haldið áfram lengur en 17 ár í ríkisstjóm hefur Framsóknarflokkurinn afsalað sér öllum lykilstöðum í þjóðfélaginu. Hver er þessi lykilaðstaða? Hún er náttúrlega íjármálaráðuneytið sem ræður öllum öðmm ráðuneytum. Ejármálaráðuneytið ræður hvað hin ráðuneytin em áhrifamikil og sterk DOMIKD LEIKFIMI FJÖGURRA VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 9. JANÚAR. Hressandi, mýkjandi og styrkjandi leikfimi, ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira og einnig fyrir þær sem þjást af vöðvabólgum. Herratímar í hádeginu. Góð aðstaða. Ljósalampar, gufuböð og sturtur. Kaffi og sjónvarp í heimilislegri setustofu. Innritun og frekari upplýsingar alla virka daga frá kl. 13 - 22 í síma 83295.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.