Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Valesa / Valensa?
Til Velvakanda.
Maður er nefndur Lech Val-
e(n)sa. Útvarps- og sjónvarpsmenn
kalla hann Valensa, öll dagblöðin
skrifa hann Valesa. Þetta hefur
viðgengist í marga mánuði og ég
hef beðið eftir að samræming tak-
ist milli þessara aðila, þ.e. að það
skuli notað sem réttara reynist.
En ekkert breytist, sjónvarps- og
útvarpsmenn kalla hann áfram
Valensa og dagblöðin halda sig
stöðugt við Valesa. Vegna þess að
Lech Vale(n)sa verður sennilega
einna mest umtalaða persónan í
heiminum næstu árin finnst mér
tími til kominn að fá botn í þetta
og helst að fá að vita ástæður fyr-
ir því að svona er haldið áfram.
Sjónvarps- og útvarpsmenn lesa
aldrei dagblöð, annars rækju þeir
augun í að þar er Valesa en ekki
Valensa og ólíklegt er að starfs-
menn dagblaða hlusti nokkum
tímann á útvarp eða horfí á sjón-
varp, því þá myndi Valensa-nafnið
fara í taugamar á þeim.
Hvemig getur þetta haldið
áfram? Það getur ekki verið um
nema tvær lausnir a ræða. 1) Að
báðum aðilum sé skítsama um hvort
við fáum nafn mannsins rétt eða
rangt eða 2) að aðilar hafí ákveðið
að blaðamenn skyldu kalla hann
Valesa en sjónvarps- og útvarps-
fréttamenn kalli hann Valensa, en
það er þó ótrúlegt.
Vinsamlegast látið okkur vita
hvemig í þessu liggur og hvers
vegna þetta er ekki leiðrétt. Nafn
pólsku þjóðarhetjunnar verður
áreiðanlega í heimsfréttum í fram-
tíðinni, öllum frelsis-unnandi mönn-
um til gleði en vonandi ekki íslensk-
um ijölmiðlum til vamms og vand-
ræða.
Ólafíir Halldórsson
Mahesh Yogi
Námskeið
Innhverf íhugun (Transcendental Med-
itation) - margrannsökuð sjálfsþroska-
aðferð. Kynning á áhrifum Innhverfrar
íhugunar á opnum fundi í Norræna
húsinu fimmtud. 5. jan. kl. 20.30.
íslenska íhugunarfélagið - sími 98-34178.
Fráleitur eignarskattur
Til Velvakanda.
Saga ríkisfjármála undanfama
áratugi geymir því miður mörg
dæmi um fljótræðislegar kollsteyp-
ur stjómvalda. Oft hefur hagfræði-
leg ráðgjöf brugðist (sorgleg dæmi
má t.d. finna í nýútkominni bók
Jakobs Asgeirssonar. Þjóð í hafti),
efnahagsráðgjafar orðið uppvísir að
háðuglegum reiknisskekkjum
(dæmi: þar gleymdist að reikna með
tekjumissi Ríkissjóðs vegna sam-
dráttar í haust) eða stjómmálamenn
enga hugsun lagt í afleiðingar
gerða sinna.
Dæmi um það síðastnefnda er
nýleg þreföldum eignarskatts. Eng-
in vitræn umræða fór fram um
þessa skattahækkun meðal hag-
fræðinga, á Alþingi eða í fjölmiðl-
um. Örstutt hugleiðing hefði þó leitt
í ljós hrapallegar afleiðingar þessar-
ar skattheimtu. Nokkur dæmi:
1. Leigusali húsnæðis leigir íbúð
að verðmæti kr. 5 millj. Þrjú þró-
sent eignarskattur af þeirri upphæð
nemur 150.000 kr. á ári. Hann
þarf því 12.500 kr. viðbótarleigu-
tekjur á mánuði til að standa undir
hinni nýju skattheimtu. Ofan á
þetta bætist að sjálfsögðu öll gjöld
og viðhaldskostnaður, sem leggst á
húsnæði, ijármagnskostnaður og
eigin telqur. Óhófleg skattheimta
tekur þannig fyrir allt framboð á
sanngjömu leiguhúsnæði og stuðlar
að svokallaðri okurleigu.
2. Mörg bestu atvinnufýrirtæki
landsins eru rekin með 2—4% hagn-
aði þessi misserin. Með 3% eignar-
skattheimtu er verðmætaaukningin
að engu gerð og raunverulegur
hagvöxtur enginn.
3. Með 3% eignarskatti og boðuð-
um skatti á fjármagnstekjur er gerð
atlaga að spamaði landsmanna,
stuðlað að eyðslusemi, flutningi
fjármuna til útlanda og erlendri
skuldasöfnun.
Oft heyrist viðkvæðið, að rétt-
mætt sé að eignir manna séu skatt-
lagðar röggsamlega til að jafna kjör
og standa undir samneyslunni. Þá
gleymist oft að eignin var skattlögð
við upphaf sitt sem tekjur. Hitt er
þó gremjulegra, að eignir vilja gufa
upp, þegar á að skattleggja þær.
Þetta fékk sósíalistastjómin
franska að reyna. Eignarskattur
hennar var í anda fjármálaráðherra
íslands, en reyndist gagnslaus til
tekjuöflunar og dýr í framkvæmd
og því afnuminn af sömu stjóm.
Er von til þess að sami sannleikur-
inn opinberist okkar ráðherra? Það
er með öllu óvíst. Hitt er þó enn
meira áhyggjuefni, að stjómarand-
staðan, hagfræðingamir og fjöl-
miðlamir tóku ekki eftir því að
neitt óvenjulegt væri að gerast.
Meðaljón
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17
Dregið var í jólahappdrætti
Blindrafélagsins 19. desember.
Vinningsnúmer eru:
2059, 3999, 8962 (Tandon tölva m/hörðum disk).
8445 (Yashica Kd. 1700 E. videoupptökuvél).
1619, 2131, 6212, 7110 (vöruúttekt).
4421 (innanlandsflugferð).
346, 1087, 1110, 1495, 2657, 2688, 2901, 3168,
3316, 3339, 5163, 5925, 6034, 6195, 6675, 6745,
7187, 7289, 9902, 9946 (leikföng).
Upplýsingar um vinningsnúmer uppþvottaburs-
tanna er að fá á skrifstofu félagsins.
Sími 687333.
Þökkum veittan stuðning.
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17.
Þessir hringdu . .
varpið er annars vegar. Þáttur
Hermanns Gunnarssonar bjargaði
kvöldinu því hann stóð vissulega
fyrir sínu. Er ekki hægt að fá
Hermann til að velja kvikmyndir
fyrir sjónvarpið? Ég myndi treysta
honum til þess. Yfírmenn sjón-
varpsins verða að ráða bót á þessu
því kvikmyndimar eru og verða
þýðingarmesta efnið í sjónvarp-
mu.
Gott áramótaskaup
Dísa hringdi:
„Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir
gott áramótaskaup. Það var gam-
an að sjá loks ný andlit í skaupinu
í stað fólks sem þar hefur verið
ár eftir ár og flestir era orðnir
leiðir á. Ég var hins vegar ekki
ánægð með kvikmyndina um
Nonna og Manna því andi Nonna-
bókanna var þar alls ekki til stað-
ar. Þama var komin allt önnur
saga en myndin var að vísu fram-
bærileg."
Lélegar kvikmyndir
Kona hringdi:
„Ég var að passa böm á gaml-
árskvöld og ætlaði að stytta mér
stundir við að horfa á sjónvarpið.
Myndin sem boðið var uppá var
hörmulega léleg og er það því
miður ekkert nýmæli þegar sjón-
Gleraugu
Gleraugu töpuðust í Fellahverfi
á nýjársnótt. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
43518.
Hanskar
Hanskar gleymdust á þorláks-
messu í Frímerkjamistöðinni,
Skólavörðustíg 21 a, og getur eig-
andinn vitjað þeirra þar.“
Veski
Svart veski og hanski töpuðust
á Kleppsvegi fyrir skömmu.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 38423.
Barnaskór
Ljósblár bamaskór tapaðist á
leiðinni frá Háteigsvegi niður á
Lækjartorg sl. föstudag. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 24216.
BALLET KLASSISKUR BALLET
Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar.
Nemendur mæti á sömu tímum og áður.
Innritun og upplýsingar í sima 72154.
Pélag íslenskra listdansara.
BRLLETSKÓLISIGRÍÐRR RRmRRn
SKÚLAGÖTU 32-34 óéú
GYLMIR/SI.