Morgunblaðið - 05.01.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
Reykjavík, úr Breiðholtinu, úr Graf-
arvogi, úr Arbænum og víðar. Hvað
haldið þið að það kosti að auki þeg-
ar bensínið er hækkað? Það er
stefna sem tekur meira frá heimil-
unum, frá fólkinu sem þarf að fara
í vinnu snemma á morgnana og
fara heim til sín þreytt á kvöldin.
Ég veit um fólk sem getur ekki
notað bílana sína þegar líða fer á
mánuðinn vegna þess að það á ekki
fyrir bensíni á bílana. Þetta er
stefna, auðvitað er þetta stefna.
Þetta er stefna Alþýðubandalagsins
og þeim er að takast mjög vel að
koma sinni stefnu fram og við verð-
um að viðurkenna það að þeir hafa
náð undirtökum. A meðan allt þetta
er í gangi er búið að blinda okkur
með einhvers konar íjárlögum og
hefta hugann með því að ræða um
einstaka liði sem í sjálfu sér skipta
engu í hinu stóra dæmi sem ég er
að tala um. Það er þetta sem við
skulum ekki loka augunum fyrir.
Nei, kæru samþingsmenn. Hér
vantar ekki stefnu. En það finnst
kannski ekki leið á Alþingi til þess
að koma í veg fyrir hana. Við skul-
um vera alveg viss um það, og það
er það sem bjargar okkur, að fólkið
veit að það sjálft þarf að finna leið
til að vetja sig, til að verjast þess-
ari stefnu, finna vöm gegn stefn-
unni sem nú er notuð í árásar-
skyni. (Gripið fram í: Við hvem?)
Við þjóðina, við fólkið, við þau
kaupfélög sem hafa ekki þolað hana
og eru að fara á hausinn og fleiri
og fleiri. Ef hæstv. ráðherra — ég
held að það hafi verið ráðherra sem
greip fram í (gripið fram í), ekki
ráðherra, þá bið ég afsökunar, en
það var verkalýðsforinginn Karl
Steinar sem greip fram í. — Ef
hann finnur ekki leiðina eða finnur
fyrir stefnunni sem er í gangi veit
ég ekki hver leiðir blindan. (Gripið
fram í: Það var krataverkalýðsfor-
ingi.) Samkvæmt sérstakri ósk er
ég minntur á að það var krataverka-
lýðsforingi sem greip fram í og það
skal engan furða því að stefna
þeirra er ein í dag og önnur á morg-
un._ (Gripið fram í: Þú lýgur því.)
Ég verð að segja að ég er ekki
alveg sammála Þorvaldi Garðari
Kristjánssyni, þegar hann segir að
fyrst verði að móta stefnu og síðan
laga fjárlögin að þeirri stefnu. Ég
vil líka segja að það sem er verið
að gera núna, og ég vil að hv. þing-
menn hugsi á. þeirri línu og þess
vegna tala ég svona, er að það er
verið að laga þjóðfélagið að hug-
myndafræði vinstri manna og síðan
á að venja þjóðina við stefnuna sem
út úr því kemur. Það er þetta sem
ég vildi hafa sagt að gefnu tilefni.
Ríkissljórnin er ekki steftiulaus -
hún hefur stórhættulega steftiu
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
Armúla 32
Reuter
Sjórinn sækirá
Á síðustu árum virðist sem ágangur sjávar hafi aukist mjög við
strendur víða um heim og er þessi ágætt dæmi um það. Hún er
af því, sem eftir er af einum kunnasta og glæsilegasta veitinga-
staðnum í Afríkuríkinu Abidjan, „La Vigie“. Stóð hann um ára-
tugaskeið á fallegum stað við ströndina en á skömmum tíma
hafa æstar öldurnar gert hann að engu.
Albert Guðmundsson
og hvað þau geta gert. Samgöngu-
ráðuneytið er líka mjög afdrifaríkt
ráðuneyti vegna þess að það getur
komið í veg fyrir eðlilega þróun
vamamála á íslandi. Menntamálin
hafa sín áhrif, við vitum það, fyrir
utan það sem við áttum okkur ekki
á en það er að undir menntamála-
ráðuneytið heyra ríkisfjölmiðlamir.
Það hefur og komið í ljós hvað eft-
ir annað þegar ég hef komið hér
upp í ræðustólinn að komið er nýtt
og allt annað forsetavald á Alþingi
en var áður. Það er líka valdastaða
og hluti af forsetavaldi þjóðarinnar
á tímum. Við skulum bara sætta
okkur við það en við skulum ekki
vera það blindir að segja að það sé
engin stefna í fjárlögunum. Það er
stefna og hún er vel rekin af
skemmtilegum andstæðingi í pólitík
sem ég hef átt við að etja í langan
tíma og ég met hans hæfileika
vegna þess að þá má ekki vanmeta.
Það er líka stefna að matarskatt-
urinn kom á. Það er sko stefna.
Það er stefna í efnahagsmálum
heimilanna. Það er stefna og
kannski sérstaklega fyrir Reyk-
víkinga þegar verið er að hækka
bensínið. Tugþúsundir manna þurfa
að aka 20-30 km vegalengd fram
og til baka, úr og í vinnu í
- sagði Albert Guðmundsson í þingræðu
Hér fer á eftir kafli úr þing-
ræðu sem Albert Guðmundsson
flutti i desembermánuði:
Það sem kom mér til að koma
hér upp í ræðustólinn er allt annar
hlutur en snertir þó íjárlögin. Pálmi
Jónsson, einn af eldri þingmönnum
þingsins og einn af reyndustu fjár-
lagagerðarmönnum okkar, kvartar
undan stefnuleysi í fjárlögunum og
mér finnst það stóralvarlegt mál.
Mér finnst það stóralvarlegt mál
•vegna þess að í íjárlögunum felst
bæði efnahags- og atvinnustefna
og ef stærsti flokkur þjóðarinnar
sér ekki hvað er að ske er þar um
algjöra pólitíska blindu að ræða og
stórhættulega.
Það er stefnt að hallalausum fjár-
lögum í gríðarlega miklum vanda
sem ríkissjóður er í. Ríkissjóður
hefur áður verið í slíkum halla. Þá
var stefnt að því að leysa þann
vanda á 3-4 árum til þess að það
kæmi létt niður á fólkið í landinu,
og fjárlög voru afgreidd með
minnkandi halla sem endaði í tekju-
afgangi og þetta var hægt á löngum
tíma. En nú birtist í fjárlögum þessa
árs að það skal yfírfæra hallann
hvað sem það kostar frá ríkissjóði
yfír á heimilin. Kallið þið það enga
stefnu? Það er stefna sem er stór-
hættuleg, vegna þess að í henni
felst pólitísk ákvörðun. Það er verið
að flyrtja pólitíkina sem eins konar
uppbót á skattana inn á heimilin.
Hækkandi vörugjald, það er líka
stefna. Það er alvarleg stefna vegna
þess að hækkandi vörugjald og
aukinn fjöldi flokka í álagningar-
grunninum er stefna um minni
kaupmátt almennings. Það er
stefna. Það er stefna um það að
taka ráðstöfunartekjur fólksins og
fyrirtækjanna frá því inn í ríkis-
sjóð, það er stefna. Það er ekki
hægt að segja að ríkisstjómin sé
stefnulaus. Hún hefur stórhættu-
lega stefnu, bæði í efnahags- og
atvinnumálum, vegna þess að við
vitum, við emm áhorfendur að því
daglega, að fyrirtæki loka, fólk er
í stærri hópum en nokkum tíma
hefur þekkst áður svo að ég muni
til að missa atvinnu sína, fyrirtæki
loka og fólk og heimili fara á haus-
inn. Það er árangurinn af stefnu.
Auðvitað er það árangurinn af
stefnu. Hækkandi tekjuskattar.
Haldið þið að það sé ekki stefna?
Þetta er allt í sömu áttina, að skapa
hér öngþveiti og öreiga. Það er stór-
hættuleg stefna sem hefur alltaf
verið andstæð minni lífsskoðun.
Hvað haldið þið að eignarskattamir
á einstaklinga sem eiga 7 milljón
kr. í nettóeign eða hjón sem eiga
14 milljón kr. í nettófasteign þýði?
Ég veit það að þar sem ég bý við
Laufásveginn í Reykjavík em göm-
ul heimili. Þar er annaðhvort gam-
alt fólk, gömul hjón eða ekkjur sem
búa í þessum dým húsum sem vom
utan bæjarins, utan miðbæjarins,
þegar ég var að alast hér upp en
em núna miðbæjarkjami og em
með dýmstu eignum. Þetta fólk
verður öreigar þegar skattamir
koma til greiðslu. Hvað haldið þið
að þetta sé? Þetta er stefna. (Grip-
ið fram í: Sósíalismi.) Auðvitað er
það sósíalismi, en það er stefna því
fólkið er hrætt, fólkið lifir í óvissu
og óöryggi um framtíð sína, um
eignir sínar og atvinnu. Auðvitað
er það stefna, bæði í peningamálum
og efnahagsmálum almennt, og hún
er farin að virka og því skulum við
átta okkur á, að hún er farin að
virka áður en tekjuöflunarfmmvörp
og fjárlögin em samþykkt á Al-
þingi. Hún er farin að virka vegna
þess að fólkið er hrætt. Við skulum
ekki loka augunum fyrir því að við
emm ekki í neinum leikaraskap.
Við emm í alvöru lífsins hér á Al-
þingi og þar em flokkar sem hafa
mismunandi stefnur. Sú stefna sem
ég aðhyllist ekki ræður ríkjum í
dag. Sú stefna sem ég aðhyllist,
að fólkið og fyrirtæki fái að halda
sem méstu eftir af sjálfsaflafé sínu,
er ekki virt í dag. Stefna mín er
ekki í gangi. Stefna hinna sem ég
aðhyllist ekki pólitískt er í fram-
kvæmd. Þeir hafa náð undirtökun-
um og við skulum átta okkur á því
að það er að mínu mati hættuleg
stefna. Það er stefna sem skapar
þennan ótta sem ég gat um, bæði
efnahags- og atvinnulegt óöryggi.
Það er líka stefna að deila fólkinu
og deila til að stjóma. Það er það
sem verið er að gera og þetta er
að takast. Við segjum svo á Alþingi
að engin stefna sé í gangi. Við emm
með alvömna á milli handanna.
Byltingin er að heppnast og við
skulum gera okkur grein fyrir því
að til þess að geta haldið áfram
lengur en 17 ár í ríkisstjóm hefur
Framsóknarflokkurinn afsalað sér
öllum lykilstöðum í þjóðfélaginu.
Hver er þessi lykilaðstaða? Hún er
náttúrlega íjármálaráðuneytið sem
ræður öllum öðmm ráðuneytum.
Ejármálaráðuneytið ræður hvað hin
ráðuneytin em áhrifamikil og sterk
DOMIKD
LEIKFIMI
FJÖGURRA VIKNA NÁMSKEIÐ
HEFJAST 9. JANÚAR.
Hressandi, mýkjandi og styrkjandi leikfimi,
ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira
og einnig fyrir þær sem þjást af vöðvabólgum.
Herratímar í hádeginu.
Góð aðstaða. Ljósalampar, gufuböð og sturtur. Kaffi og
sjónvarp í heimilislegri setustofu.
Innritun og frekari upplýsingar alla virka daga frá kl. 13 -
22 í síma 83295.