Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 11
*
Halldór Ásgeirsson ásamt einu
verka sinna.
er, sem er mjög skiljanlegt og í
hæsta máta eðlilegt. Hrifmestu
verk Halldórs þykja mér ennþá
vera myndir sígildra vinnubragða,
svo sem kemur fram í hinni 17
atriða myndaröð (12) svo og ein-
stökum myndum eins og „Án til-
lits“ (11) og „Við borgarmúrinn"
(17), en i þessum myndum öllum
kemur fram mesta jafnvægið í
framsetningu lita, lína og forma.
í stuttu máli óvenjuleg sýning, sem
gefur góð fyrirheit.
Prestsvígsla
ásunnudag
MAGNÚS Gamalíel Gunnarsson
guðfræðingur hlýtur prests-
vígslu sunnudaginn 5. febrúar
af biskupi íslands, herra Pétri
Sigurgeirssyni. Magnús Gamalíel
hefúr verið ráðinn til hlutastarfs
í prestsþjónustu í söfhuðum ísa-
fjarðarprestakalls og einnig
fræðslufulltrúi við nýstofnaða
fræðsludeild kirkjunnar með
Vestfirði að meginsvæði.
Vígsluvottar verða sr. Baldur
Vilhelmsson, settur prófastur ísa-
fjarðarprófastsdæmis, sr. Bem-
harður Guðmundsson, fræðslustjóri
kirkjunnar, dr. Bjöm Bjömsson,
forseti guðfræðideildar, og sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson, sóknar-
prestur á ísafirði.
Magnús Gamaliel Gunnarsson er
þrítugur að aldri. Foreldrar hans
em Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir
og Gunnar Magnússon, Reylqavík.
Hann lauk guðfræðiprófi_ í janúar-
lok. Kona hans er Þóra Ólafsdóttir
Hjartar fóstra og eiga þau einn son.
Vígslan verður við guðsþjónustu
í Dómkirkjunni í Reykjavík og sem
fýrr segir á sunnudaginn kemur
þann 5. febrúar kl. 11.00.
Sr. Kristinn Ágúst Friðfínnsson
annast altarisþjónustu. Dómkórinn
og Marteinn H. Friðriksson organ-
leikari annast flutning tónlistar.
Allir em velkomnir að vera við-
staddir athöfnina.
Framtals-
aðstoð
Skólamanna
Viðskiptafræðinemar bjóða nú
upp á framtalsaðstoð við hinn
almenna borgara eins og verið
hefúr síðustu árin.
Að þessu sinni em viðskiptafræði-
nemamir til húsa að Bjarkargötu 6
og hafa opið alla daga frá klukkan
14.00 til 22.00.
-U-í
n
TIL
UTLANDA
URVALI
Uffl
PÁSKANA
BÚÐAPEST - VÍN
19. - 26. mars
Verð 68.550 kr.*
miðað v. gistingu í 2ja manna herb..
' Friðrik Friðriksson er fararstjóri í
þessari lystireisu. Bæði Búdapest og Vín
eru afar faUegar borgir, í hópi gamalgró-
inna höfuðborga Evrópu. Þar er menn-
ingarlífið blómlegt og margt sem gleður
auga, eyra og munn. Flogið er til Búda-
pest um Kaupmannahöfn. Frá Búda-
pest er ekið til Vínar. Þaðan er flogið
heim.
Innifalið í verði: Flug, akstur í hóp-
ferðabílum, gisting, hálft fæði og ís-
lensk fararstjórn.
22. mars - 7. apríl
Verð frá 44.550 kr.*
miðað við tvo fullorðna og tvö börn
(2—11 ára) í íbúð.
Ingvar Herbertsson er fararstjóri.
Flogið er til Luxembourgar þar sem gist
er eina nótt áður en flogið er til Kípur.
Meðalhitinn á Kípur í apríl er 23 ° C, þar
er margt að sjá og náttúrufegurð mikil.
Innifalið í verði: Flug, gisting og ís-
lensk fararstjórn.
Við bjóðum einnig styttri ferðir til
Kípur um páskana.
KANARÍEVJAR
15. mars - 5. apríl
Verð frá 58.900 kr.*
miðað v. þrjá í húsi m. 1 svefnherb.
Auður Sæmundsdóttir, Klara Bald-
ursdóttir og Rebekka Kristjánsdóttir
eru fararstjórar.
Innifalið í verði: Flug, gisting og ís-
lensk fararstjórn.
Örfá sæti laus!
BANGKOK, SINGAPORE, PHUKET
16. mars — 5. apríl
Verð 119.000 kr.*
miðað v. gistingu í 2ja manna herb.
Jóhannes Reykdal er fararstjóri. í
Bangkok skoðum við m.a. merkustu
Búddamusterin, Rósagarðinn, risa-
pagóðuna Phra Patom Chide og förum
á fljótandi markað. Frá Bangkok er flog-
ið til Singapore og dvalið þar í nokkra
daga. Ferðinni lýkur með vikudvöl á
Phuket, sem er undurfögur eyja við
vesturströnd Thailands. Á Phuket eru
frábærar baðstrendur, tandurhreinar
og óspilltar.
Innifalið í verði: Flug, gisting, morg-
unverður, skoðunarferðir í Bangkok og
Singapore og íslensk fararstjórn.
KÖRFUBOLTIÍ LOS ANGELES
16. - 28. mars
Verð 76.745 kr.*
miðað v. gistingu í 2ja manna herb.
Einar Bollason körfuboltaþjálfari er
fararstjóri. Flogið er til Los Angeles um
New York. í Los Angeles gefst tækifæri
til að sjá 4 körfuboltaleiki á heimsmæli-
kvarða: Dallas — Lakers, Lakers —
Atlanta, Lakers — Chicago og Clippers
— Dallas.
Innifalið í verði: Flug, gisting og ís-
lensk fararstjóm.
’ Staðgreiðsluverð.
FERDASKRIFSTOFAN ÚRVRL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
YDDA F12.52/SIA