Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLADIÐ LÁtJGARDAGUR 4. FEBRÚAR IðSð Hvar voru raddirnar ? LeSklist Jóhanna Kristjónsdóttir Talía, leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýndi í Hlaðvarp- anum Vorið kallar eftir Frank Wede- kind Þýðandi:Hávar Sigtujónsson Leikmynd og búningar: Birna Júlíusdóttir Lýsing: Gunnar Kristján Stein- arsson Tónlist og leikhljóð: Anna Rún Atladóttir og Þorkell Heiðars- son Sýningarstjóri: Kristín Ólafs- dóttir Það er hið mesta fagnaðarefni, að nemendur Menntaskólans við Sund skuli hafa flutt sýningarstað sinn. Jafnvel þótt aðstaða í Hlað- varpanum sé kannski ekki upp á það allra besta er hún hreinasta hátíð miðað við þá afleitu sýning- araðstöðu sem fyrri leikir hafa haft í skólahúsinu sjálfu. Þetta leikrit er ekki nýtt af nálinni, nánar tiltekið 99 ára gam- alt og það mun hafa verið lengi í banni, og ekki sýnt óritskoðað svo skipti áratugum. Ástæðan var sú að margt í verkinu þótti hið versta klám sem ekki mætti bjóða siðsömum Mið-Evrópubúum upp á í þann tíð. Einnig er haft fyrir satt að höfundur hafí verið óánægður með túlkun á þessu verki og væntanlega fleirum og fundist sýningamar yfírdramatís- eraðar og flytjendur hafi ekki skynjað húmorinn í textanum. Vel má skilja að leikritið hafí hneykslað á sinni tíð, en líkast til kallar það á þjálfaðri flytjendur nú til þess að inntak þess komist almennilega til skila. Það snýst um unglinga í litlum bæ í Þýzkal- andi og vangaveltur þeirra um lífíð, tilveruna, skólann, ástina og vináttuna og tvöfeldni hinna full- orðnu og almennan tvískinnung einkum og sér í lagi hvað snertir afstöðu til kynlífs og lífsins til- gang. Og er gott og gilt svo langt. Þórdís Amljótsdóttir leikstýrir menntaskólanemendum og tekið er fram í leikskrá að hún hafí einnig haldið leiklistamámskeið fyrir nemendur í haust. Þórdísi tekst ágætlega upp með staðsetn- ingar, hreyfíngar leikenda eru oft nokkuð góðar og hjá sumum óþvingaðar og sannfærandi. Þýð- ingin hljómaði vel og sviðsmyndin er einföld og hugvitssamlega gerð. Ljósabeiting tókst einnig, en atriðið í kirkjugarðinum, þar sem einhvers konar sprautuverk var í gangi til að gera þetta allt dulúðugt og draugslegt var einum of. Persónur eru margar og sumir leikarar fara með fleiri en eitt hlutverk og nokkrar stúlkur leika hlutverk pilta með misjöfnum ár- angri. Eiríkur Sigurðsson fer með hlutverk Melkíórs sem verður ör- lagavaldur tveggja persóna, án þess að höfundi takist að gera almennilega trúverðugt hver sú hin mikla sök hans er einkum varðandi vininn Moritz, sem frem- ur sjálfsmorð. Eiríkur hefur tekið þátt í sýningum skólans áður og sýnir athygliverð tilþrif. Sama máli gegnir um Halldór Gylfason í hlutverki hins ólánsama Moritzar og Jónína Þórólfsdóttir var alveg piýðileg sem Wendla Bergmann. Mér fannst Fanney Sigurðardóttir farast ágætlega úr hendi að koma fram sem Elsa en tókst ekki eins vel sem frú Gabor. Það atriði var alltof gauragangslegt og það á við um fleiri atriði, svo sem út- fararatriðið og fundinn á kennara- stofunni, hann var ýktur eins og vera ber en gengið var of langt að mínum dómi. Bogi Birgisson náði skemmtilegum tökum á Húsa húsverði. Það má fínna að þessari sýn- ingu og spyija má hvort leikritið í sjálfu sér sé nógu áhugavert. En það sem skiptir máli að þessu sinni var einlægni leikenda og kraftur. Þó svo krafturinn væri full kröftugur. Ljósu punktamir voru nægilega margir til að vera sáttur við þessa menntaskólasýn- ingu. Morgunblaðið/Sverrir Að frumflutningi loknum. F.v. söngkonurnar Marianne Eklöf og Hona Maros, Catherine Williams, kórstjóri, Atli Heimir, Jón Óskar, skáld, og Petri Sakari, hljómsveitarstjóri. Ljóðasínfónía ftnmflutt Tónlist Ragnar Björnsson Sallinen er fyrst og fremst þekktur utan Finnlands sem óperutónskáld og sem slíkur hlot- ið ótvíræða viðurkenningu. Hrein hljómsveitarverk eftir Sallinen eru undirrituðum lítið kunn. Shadows op. 52, sem opnaði tónleikana, vakti forvitni sem Sakari á vafa- laust eftir að svala. „Shadows" er ekki flókið í uppbyggingu en ljóðrænt, er auðheyrilega vaxið upp úr fínnskum jarðvegi og er mjög áheyrilegt án þess þó að vera það minnisstæðasta á tón- leikunum, enda sjálfsagt ekki til þess ætlast. En fímm bassar á móti G sellóum er óeðlilegt hlut- fall og í „unison“-spili verður þetta jafnvægisleysi áberandi, þama vantar fleiri selló. En þetta jafnvægisleysi í hljóm varð undir- ritaður oftar var við og þá einnig hjá blásurunum. Hver ástæðan er var aftur á móti erfíðara að átta sig á, var það staðsetning hljóðfæraleikaranna? T.d. í Beet- hoven píanókonsertinum skám homin tvö sig gjaman út úr sam- hljóminum, vom þau e.t.v. stað- sett of framarlega? Eða var ástæðan önnur? Skiptir kannske miklu máli hvar maður situr í húsinu? Þriðji píanókonsert Beethovens er eitt af tímamótaverkunum í tónsköpun Beethovens, um líkt leyti semur hann Eroicu. Þessi konsert er sá eini af píanókonsert- um hans sem skrifaður er í moll,- c-moll, og minnir um margt á sin- fóníuformið frekar en áður skrif- aða einleikskonserta, þrátt fyrir sína þijá þætti, og teknískt mjög kreQandi einleikshlutverk. Þýskur píanóleikari, Christian Zacharias að nafni, kom í stað íslensks píanóleikara og flutti einleiks- hlutverkið af miklu öryggi og raunar glæsilega. Túlkun hans á konsertinum var e.t.v. á mörkun- um að vera um of rómantísk og skarpari útlínur, sérstaklega í fyrsta og síðasta þætti, hefði und- irritaður kosið, en „músiseraður" var konsertinn frá upphafí til enda og Largo-kaflinn í sinni furðulegu tóntegund E-dúr, miðað við c- moll, var mjög fagurlega mótað- ur. Hljómsveitin og Sakari fylgdu píanóleikaranum vel, þó brá fyrir of lítilli æfíngu og á stöku stað hélt ég að Sakari ætlaði á stund- um að missa af Zacharias. í áætl- un hljómsveitarinnar var að íslenskir píanóleikarar flyttu kon- serta Beethovens. Ástæðan sem kynnt er í efnisskrá fyrir því að Jónas Ingimundarson lék ekki ein- leikshlutverkið nú nægir ekki sem skýring á því að íslendingur sat ekki á píanóbekknum. Sem form- aður verkefnavalsnefndar hefði Jónas.átt að sjá til þess að annar íslendingur kæmi í hans stað, ella að spila konsertinn sjálfur, svo áætlunin héldist. Eftir hlé kom að því sem allir biðu eftir. „Nóttin á herðum okk- ar“, ljóðasinfónía eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Jóns Óskars. Ekki er mögulegt eftir eina hlust- un að skrifa endanlega niðurstöðu um verk sem þetta. Atli hefur orðið mikið vald í meðhöndlun á möguleikum hljómsveitarinnar og leikur sér með litbrigði og hljóma- samsetningar, og dauður má sá áheyrandi vera sem lætur sér leið- ast á meðan Atli hefur orðið. Margt má upp telja um verkið sjálft sem skiptist í ellefu þætti, Prelúdiu, fjögur Millispil, Postlud- ium og fímm ljóð sem sungin eru og sönglesin voru af tveim sænsk- um söngkonum, Marianne Eklöf mezzo og Ilonu Maros, sem sungu ljóðin á íslensku, sem e.t.v. var misráðið, því nokkum tíma tók að átta sig á því, á hvaða tungu- máli sungið var. Verk af þessari gerð þurfa mikla æfingu og þegar um frumflutning er að ræða á íslensku verki er óafsakanlegt annað en að skipuleggja hlutina þannig að æfingaleysi þurfí ekki að koma niður á flutningnum. En hvað um það, „Nóttin á herðum okkar" með töfrum sínum og furðuverkum hreif mig og svo virtist vera um fleiri, ef marka má undirtektir. Framhald Vík- ingslælgarættar Bókmenntir Sigurjón Björnsson Pétur Zophaníasson: Víkingslækjarætt IV. Skuggsjá. Bókabúð Olivers Steins SF. 1988. 432 bls. Á árunum 1931—1936 samdi hinn mikilvirki ættfræðingur Pét- ur Zophaníasson (d. 1946) ætt- fræðiritið Víkingslækjarætt, sem er niðjatal hjónanna Guðríðar Eyj- ólfsdóttur (f. 1688) og Bjama (f. 1679) hreppstjóra og síðast bónda á Víkingslæk á Rangárvöllum Halldórssonar. Af þessu geysi- mikla niðjatali komu út fjögur hefti á árunum 1939—1943 og fímmta heftið 1972. Talsvert var þá eftir óprentað af niðjatalinu. Ný útgáfa af þessu ritverki hófst árið 1983. Þá kom út I. bindi; II. bindi kom árið 1985, III. bindi 1986 og nú birtist IV. bindi. Mun þá eitt bindið, hið fímmta, vera eftir. í fyrstu bindunum þremur var það efni sem áður hafði verið prentað. Fyrstu tvö bindin voru ljósrituð útgáfa hinnar fyrri, en engu að síður allmikið leiðrétt. Þriðja bindið var endurskoðuð út- gáfa og var þá allur textinn settur á ný. Ættforeldrar Víkingslækjar- ættar, Bjami og Guðríður, áttu 17 böm og eru ættir raktar frá 11 þeirra (hér merkt liðir a-1). í þremur fyrstu bindunum var lokið að rekja liðina a-g. Það sem eftir var að prenta og enn lá í handriti var því fjórir liðir: h-liður (Stefán Bjamason), i-liður (Ólafur Bjama- son), k-liður (Gizur Bjamason) og 1-liður (Kristín Bjamadóttir). Sá háttur er nú hafður á að í fjórða bindinu koma i-, k- og 1-liðir, en h-liðurinn er geymdur til síðasta bindis. Er ætlunin að rekja hann til ársins 1980 eða þar um bil. Aðrir liðir em hins vegar einungis raktir fram um 1940 eða eins og Pétur'Zophoníasson gekk frá því. Niðjatalstexti þessarar bókar er 193 bls. En þess ber að gæta að hann er bæði afar samþjappaður og prentaður fremur smáu letri. Niðjatal Ólafs Bjamasonar er sýnu Pétur Zophoníasson lengst, 135 bls., og hefur hann því bersýnilega orðið kynsæll. Aft- ur á móti urðu niðjar Gizurar Bjamasonar mjög fáir og komast þeir fyrir á einni blaðsíðu. Kristín Bjamadóttir átti allmarga afkom- endur og eru þeir taldið á bls. 137-193. Á eftir niðjatalinu fara nokkrar leiðbeiningar sem gerðar hafa ver- ið við fyrstu þijú bindin. Að því búnu kemur geysilegur flöldi mynda af niðjum og mökum þeirra. Eru þær rífur helmingur bókar eða um 230 bls. Þegar Pétur Zophoníasson féll frá var það efni sem er í þessu bindi í drögum. Sonur Péturs, Zophonías, endurskoðaði drögin og hreinritaði þau. Síðan hefur Theódór Ámason yfirfarið það handrit og búið til prentunar. Páll Lýðsson, Sigurður Sigurðarson og Finnbogi Guðmundsson hafa safn- að þeim mikla ijölda mynda sem hér er að fínna og hlýtur það að hafa verið ærin vinna. Sá síðast- taldi hefur jafnframt annast pró- farkalestur. Vel virðist frá þessari bók geng- ið að öllu leyti og er hún mikill fengur ættfræðiunnendum. Sér- staklega verður mikils virði að fá fimmta og síðasta bindið, því að þar mun koma fram allsheijar- nafnaskrá yfír verkið allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.