Morgunblaðið - 04.02.1989, Side 20
20
r ' MORGUNBEAÐIÐ’ 'LAUtfAJlD'AGUR ‘4. FEBRÚA!R ’Í989
Fylgstmeð embættistökunni
Carlos Andres Perez sór á fimmtudag embættiseið
forseta Venesúela. Perez sem er 66 ára að aldri er
sjöundi forseti landsins frá því það var lýst lýðveldi
árið 1958. Um 2.000 manns fylgdust með athöfn-
inni þ.á m. fulltrúar 24 erlendra ríkja. Á myndinni
sjást þeir Felipe Gonzales, forsætisráðherra Spánar,
og Fidel Castro Kúbúleiðtogi en fulltrúi Bandaríkja-
stjómar var varaforseti landsins Dan Quayle. Hann
notaði tækifærið og ræddi við Gonzales, Jose As-
cona, forseta Hondúras, og Jose Samey, forseta
Brasilíu og mun umræðuefnið einkum hafa verið
erlend skuldasöfiiun ríkja Mið- og Suður-Ameríku.
Quayle lýsti yfír því við komuna til Venesúela að
hann hygðist ekki ræða við þá Castro og Daníel
Ortega, forseta Nicaragua og gagnrýndi Jimmy
Carter, fyrmrn Bandaríkjaforseta, sem var viðstadd-
ur athöfnina, harðlega fyrir að hafa rætt við þann
síðamefnda.
Jarðskjálftinn í Armeníu:
Fimm börn send á banda-
rískt sjúkrahús í Þýskalandi
Washington. Reuter.
FIMM börn, sem slösuðust alvar-
lega í jarðskjálftanum í Armeníu
í Sovétríkjunum, voru send með
flugvél á bandarískt hersjúkra-
hús í Vestur-Þýskalandi á
fimmtudag, að sögn utanríkis-
ráðuneytisins.
Talsmaður ráðuneytisins, Charl-
es Redman, sagði, að flogið yrði
með 30 böm til viðbótar frá Sov-
étríkjunum í næstu viku, og væri
þetta í fyrsta sinn, sem til slíkra
flutninga hefði komið, síðan í síðari
heimsstyrjöldinni.
Það era bandárísk, sovésk og
vestur-þýsk stjómvöld, sem staðið
hafa sameiginlega að þessu verki-
efni, auk alþjóðlegu hjálparsamtak-
anna „Verkefni von“.
Redman sagði að þau böm, sem
misst hefðu útlimi og væra mjög
veik, þörfnuðust sérstakrar umönn-
unar. Þau era á aldrinum tveggja
til sautján ára
Flogið var með bömin fímm frá
Moskvu til Frankfurt og þaðan vora
þau flutt í bandaríska hersjúkrahús-
ið í Wiesbaden, þar sem þau dvelj-
ast, þar til öraggt verður um heilsu
þeirra. Eftir það mun „Verkefni
von“ koma þeim, svo og bömunum
30, fyrir á sjúkrahúsum f Banda-
ríkjunum.
Þúsundir manna létu lífíð í jarð-
skjálftanum, sem skók Armeníu 7.
desember síðastliðinn, og hundrað
þúsunda urðu heimilislaus.
Alfredo Stroessner veit úr sessi:
Valdaskeiðínu lauk
eins og það hófst
Asuncion. Reuter.
ALFREDO Stroessner, forseti
Paraguay, sem steypt var í fyrri-
nótt, hafði haldið um stjórnvöl-
inn i 34 ár. Enginn ráðamaður
hefúr verið jafii lengi við völd á
Vesturlöndum. Hann komst til
valda 1954 með sama hætti og
hann missti völdin, með herbylt-
ingu. Batt hann þá enda á 27 ára
tímabil, sem einkenndist af
stjórnleysi og upplausn, en 22
forsetar sátu á þeim tima, flestir
mjög stutt. Hermt er að Stroessn-
er hafi verið farinn að sýna
merki aldurs upp á síðkastið og
að hann hafi verið hættur að
átta sig á landsmálunum. Hann
er sagður hafa haft yndi af þvi
að tefla skák við vini sína, meðal
annars þá sem nú hafii mátað
hann.
Hinn 14. febrúar í fyrra, eða
fyrir tæpu ári, var Stroessner end-
urkjörinn forseti Paraguay í átt-
unda sinn. Hann var frambjóðandi
Colorado-flokksins, sem fylgir
stefnu ný-fasisma. Stjómarand-
stæðingar kvörtuðu jafnan undan
því sem þeir kölluðu ólýðræðislega
stjómarhætti Stroessners og sögðu
að landsmönnum hefðu aldrei verið
tryggð lágmarks réttindi.
Stroessner hefur sætt harðri
gagnrýni utan frá fyrir að fótum-
troða mannréttindi og fyrir meðferð
sína á pólitískum andófsmönnum.
Ekki hvað sízt sætti hann gagnrýni
fyrir að skjóta skjólshúsi yfír
stríðsglæpamanninn Jósef Mengele,
sem bar viðumefnið engill dauðans,
en hann stjómaði tilraunum og af-
tökum á Gyðingum í hinum ill-
ræmdu útrýmingarbúðum nasista f
Auschwitz. Mengele flýði til
Paraguay eftir stríð en hann er
talinn bera ábyrgð á aftökum á um
400 þúsund Gyðingum.
Stroessner var hermaður að at-
vinnu og þótti hörkutól því hann
braut m.a. tvær byltingartilraunir
á bak aftur á fyrstu stjómaráram
sínum. Hann fæddist 3. nóvember
árið 1912 í borginni Encamacion.
Faðir hans Hugo var vestur-þýzkur
bjórgerðarmaður er flutti frá Bæj-
aralandi til Paraguay um aldamót-
in. Hann giftist inn í auðuga para-
gæska fjölskyldu og varð vellríkur
á timburframleiðslu.
Að loknu námi í heimaborg sinni
hélt Stroessner til framhaldsnáms
í Rio de Janeiro en gekk síðan í
háskóla hersins í Asuncion. Hann
hlaut tign yfírlautinants árið 1932.
En sól hans reis hratt því hann var
Reuter
Andres Rodrignez, hershöfðingi.
gerður að höfuðsmanni fyrir fram-
göngu sína í stríði Paraguay og
Bólívu um Chaco-hásléttuna á áran-
um 1932-35. Og árið 1951 var hann
gerður að yfirmanni alls heralfa
landsins, aðeins 38 ára gamall.
Hlé varð reyndar á hermennsku
Stroessners því hann var rekinn í
útlegð árið 1948 af Higinio Morin-
igo, einræðisherra, sem stóð stugg-
ur af stjómmálaafskiptum hans.
Stroessner sneri fljótt aftur á laun
og leyndist meðal bænda unz hann
tók við starfi yfirmanns heraflans.
Sagðist hann hafa haft gott af vist-
inni meðal bænda og gerði það að
einu helzta stefnumáli sínu að bæta
kjör þeirra og vinna bug á atvinnu-
leysi í þeirra röðum.
Árið 1967 lét Stroessner breyta
stjómarskránni þann veg að hann
gæti látið endurkjósa sig sem for-
seta eins oft og honum þóknaðist.
Hann bjó engan undir að taka við
af sér. Hafði hann jafnan fjölmenn-
an og öflugan lífvörð um sig og
ferðaðist um í skotheldum bíl. Stro-
essner lifði meinlætalífi, að sögn
stjómarerindreka. Hann var sagður
þurfa aðeins fjögurra stunda svefn
og var mættur til vinnu klukkan
fimm á hveijum morgni. Á kvöldin
las hann hemaðarsögu.
Kona Stroessner, Eligia Mora,
er fyrram kennari. Saman áttu þau
synina Gustavo Adolfo og Alfredo
Hugo og dótturina Gracielu Concep-
cion. Yngri sonurinn, Alfredo Hugo,
er giftur dóttur Andres Rodriguez,
hershöfðinga, sem rændi Stroessner
völdum í fyrrakvöld.
Kanadamaður af íslenskum ættum, Sir William Stephenson, látinn;
Var einn fremsti njósnafor-
ingi Bandamanna í stríðinu
KANADAMAÐURINN Sir William Stephenson lést á fimmtudag á
Bermúda-eyjum, 93 ára að aldri. Sir William var yfirmaður allrar
starfsemi bresku leyniþjónustunnar i Vesturheimi á striðsárunum
og átti heiðurinn af þvi að náin samvinna tókst um þau mál milli
Breta og Bandaríkjamanna áður en þeir sfðarnefiidu hófu þátttöku
í heimstyijöldinni siðari. Saga Stephensons kom út á íslensku 1963
nndir nafninn „Dularfulli Kanadamaðiirinn11 og 1976 kom Út þekkt-
ur reyfari, „A man called Intrepid"
henson var islenskur í móðurætt.
William Stephenson hætti námi
sextán ára gamall en hafði áður
öðlast góða undirstöðukunnáttu í
stærðfræði. í fyrri heimsstyijöld
gerðist hann orrustuflugmaður,
skaut niður 26 óvinaflugvélar og
hlaut orður fyrir afrek sin. Að styij-
öldinni lokinni hagnaðist hann vel
í viðskiptum og fann auk þess upp
tæki til að senda ljósmyndir þráð-
laust. Um hríð var Stephenson
heimsmeistari í léttþungavikt
áhugamanna í hnefaleik.
Árið 1940 réðu Hitler og fylgis-
menn hans yfír meginhluta Vest-
, sem byggðist á ferli hans. Step-
ur-Evrópu, að Bretlandi undan-
skildu. Engar Iíkur virtust á því
að Bandaríkjamenn hæfu þátttöku
í stríðinu við hlið Breta; einang-
runarstefna var enn rfkjandi í
landinu. Talið var nauðsynlegt að
auka áróður fyrir málstað Banda-
manna í Bandarfkjunum.
Winston Churchill, forsætisráð-
herra Bretlands, fól Stephenson að
stjóma þessu verkefni og starfsemi
leyniþjónustu breska heimsveldis-
ins í Norður- og Suður-Ameríku.
Skyldu Stephenson, sem hafði að-
seturrí New York, og starfsmenn
hans m.a. láta Bandaríkjamönnum
f té breskar uppfinningar í vísind-
um, þjálfa njósnara til starfa í
Evrópu, reyna að leysa dulmál
óvinaþjóða og fylgjast með skipa-
ferðum til og frá álfunni.
Talið var mögulegt að Bretland
félli fyrir heijum Hitlers og Bretar
yrðu að beijast gegn nasistum í
Evrópu frá stöðvum í Norður-
Ameríku, með stuðningi skæraliða-
flokka í Bretlandi sjálfu. Eitt af
verkefnum Stephensons var að láta
þjálfa menn til skæruhemaðar og
var í því skyni komið á fót æfínga-
búðum í auðnum Kanada. Margir
þessara manna voru síðan sendir
til hemámssvæða Þjóðveija. Alls
munu um 1000 manns hafa starfað
fyrir Stephenson í Bandaríkjunum
og 2000 samanlagt í Kanada og
Rómönsku Ameríku.
Njósnaafrekum Stephensons var
að verulegu leyti haldið leyndum
fram yfír 1970 og bar lítið á honum
í heimi Qölmiðla. Þess ber þó að
geta að hinn frægi höfundur James
Bond-sagnanna, Ian Fleming, er
var leyniþjónustumaður á stríðsár-
unum, var mikill aðdáandi Stephen-
sons. Sagði hann Stephenson hafa
verið „einn helsta leyniþjónustu-
manninn í síðasta stríði.“ Aríð 1945
gegndi Stephenson lykilhlutverki
varðandi rannsókn Gouzenko-
málsins svonefnda. Sovéski njósn-
arinn Igor Gouzenko gaf sig þá
Kanadamönnum á vald og urðu
upplýsingar hans til þess að land-
ráð visindamannsins Klaus Fuchs,
sem afhenti Sovétmönnum kjamor-
kuleyndarmál, vora síðar afhjúpuð.
1987 var tekið blaðaviðtal við
Stephenson í tilefhi útkomu hinnar
umdeildu bókar „Njósnaveiðar-
ans.“ Þá sagði hann m.a. að hann
væri sannfærður um að fyrrum
yfírmaður bresku leyniþjónustunn-
Reuter
Sir William Stephenson. Móðir
hans, Guðfinna, var af islensku
bergi brotin. Stephenson missti
foreldra sína barnungur og var
þá tekinn i fóstur af Islending-
um, Stephenson-hjónunum i
Winnipeg, er síðan ættleiddu
hann.
ar, Sir Roger Hollis, hefði verið
sovéskur gagnnjósnari.