Morgunblaðið - 04.02.1989, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989
Námskeið í stoftiun
og rekstri fyrirtælga
Eingöngu ætlað konum
NÁMSKEIÐ í stofnun og rekstri fyrirtœkja fyrir konur verður hald-
ið í samvinnu Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. og Iðntæknistofaun-
ar fslands dagana 10. og 11. febrúar og dagana 17. og 18. febrúar.
Iðntæknistofhun íslands hefur undanfarin ár haldið þessi námskeið
og hafa rúmlega 200 konur sótt þau.
Námskeiðið er ætlað konum sem
reka fyrirtæki, taka þátt í rekstri
fyrirtækja, hyggjast stofha fyrir-
tæki eða þeim, sem hafa áhuga á
og vilja firæðast um rekstur fyrir-
tækja. Fram til þessa hefur nám-
skeiðið eingöngu verið haldið í
Reykjavík. Konur úti á landsbyggð-
inni hafa því ekki fengið tækifæri
til að sækja námskeiðið nema með
því að koma til Reykjavíkur.
Markmiðið með námskeiðunum
er að gera konum kleift að kynnast
þeim atriðum, sem skipta máli í
sambandi við stofnun og rekstur
fyrirtækja. Námskeiðið er 26 timar
og verður haldið fostudag og laug-
ardag, fimm tímar á föstudegi og
átta tímar á laugardegi tvær helgar
í röð. Námskeiðið hefur verið lengt
um ellefu tima frá'því sem áður var.
Námskeiðsefnirtu hefur verið
skipt niður í sjö þætti: Stofnandi
og stjómun, stofnun fyrirtækis,
markaðssetning, flármál, skipu-
lagning, heimsókn úr atvinnulífinu
og framtíðarsýn fyrirtækisins.
Kennarar verða starfsmenn Iðn-
tæknistofnunar íslands, en einnig
munu starfsmenn Iðnþróunarfélags
EyjaQarðar hf. aðstoða við kennsl-
una og í heimsókn koma lögfræð-
ingar, endurskoðandi og atvinnu-
rekandi á svæðinu.
Reynsla ITÍ og annarra nám-
skeiðshaldara á Norðurlöndunum
sýnir að konur taka miklu frekar
þátt í námskeiðum, sem sérstaklega
em ætluð þeim. Helstu ástæður
munu vera þær að konur eiga auð-
veldara með að tjá sig innan um
aðrar konur heldur en í blönduðum
hópi. Konur leggja aðrar áherslur
á Qölskyldutengsl og böm, sem
hefur áhrif á umræður. Konur
leggja áherslu á eflingu sjálfs-
trausts og tengsl við aðrar konur
með svipuð framtíðaráform. Konur
ræða um viðskiptahugmyndir sínar
á opinskárri hátt en karlar og kon-
umar em vandvirkari, segir í frétt
frá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar
hf., en það mun bjóða upp á rekstr-
arráðgjöf til handa þeim konum,
sem þess óska eftir að námskeiði
lýkur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hótel Varðborg hefur nú skipt um eigendur og verður opnað eftir
gagngerar endurbætur undir heitinu Hótel Norðurland um miðian
apríl.
Hótel Varðborg seld
Hótel Norðurland opnað um miðjan apríl
Ferðaskrifstofa Akureyrar og Flugfélag Norðurlands, auk nokk-
urra fleiri fyrirtækja og einstaklinga á Akureyri, hafa keypt
Hótel Varðborg af Góðtemplarareglunni á Akureyri sem rekið
hefiir hótelið undanfarna áratugi. Kaupverð fékkst ekki upp gef-
ið, en nýir eigendur stefiia að því að opna nýtt hótel um miðjan
apríl næstkomandi undir nafiiinu Hótel Norðurland.
Um það bil hálfur mánuður er
nú liðinn frá því að fyrst var farið
að ræða kaupin. Gengið var frá
þeim í fyrradag, en formlega verð-
ur ekki gengið frá stofnun hlutafé-
lags um reksturinn fyrr en í næstu
Sölustofhun lagmetis:
Sovétmenn kaupa fyrir
250 mílljónir á árinu
viku. Hótel Varðborg hefur nú
þegar verið lokað og hafin er vinna
við gagngerar endurbætur á hús-
næðinu, að sögn Gísla Jónssonar,
framkvæmdastjóra Ferðaskrif-
stofu Akureyrar. „Við höfum í
hyggju að eyða bæði tíma og fjár-
munum í að gera hótelið að góðu
ferðamannahóteli. Hótelið býður
upp á þijátíu herbergi, þar af tíu
með snyrtingu og baði. Breytingar
verða gerðar á gestamóttöku og
matsala verður fyrst og fremst
fyrir hópa á Hótel Norðurlandi,“
sagði Gísli. Ekki hefur verið geng-
ið frá rekstrarformi hótelsins, en
áfram mun Ferðaskrifstofa Akur-
eyrar sjá um að taka niður pantan-
ir og gefa upplýsingar, eins og
verið hefur til þessa.
Leikklúbburmn Saga:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Theódór S. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sölustofiiunar lagmetis, og Sergey Bylym, viðskiptafúlltrúi
' Sovrybflot, undirrituðu sölusamninga á Akureyri í gær fyrir yfirstandandi ár og er þetta í fyrsta skip-
tið sem samningar eru undirritaðir á Akureyri. Lengst tíl hægri stendur Kristján Jónsson, en hann
framleiðir hátt i 50% af því sem fer frá íslandi inn á Sovétmarkað. Lengst til vinstri er Gísli Már Ólafs-
son, skrifstofústjóri hjá K. Jónssyni, sem þátt tók i samningaviðræðunum.
Samningar undir-
ritaðir á Akur-
eyri í gær
S AMNINGAR hafa náðst við Sov-
étmenn um kaup þeirra á lag-
meti frá íslandi fyrir fimm millj-
ónir doilara á árinu 1989 eða sem
svarar til 250 milljóna islenskra
króna. Hækkunin frá því i fyrra
nemur 2,8% og upp í 8% eftir
tegundum. Minnst varð hækkun-
in á síldartegundum, en mest á
þorsklifúr. Samkvæmt ramma-
samningi þjóðanna ber Sovét-
mönnum að kaupa lagmeti frá
íslandi fyrir minnst Qórar millj-
ónir dollara og mest fyrir fimm
og hálfa milljón dollara.
Samningaviðræður hófust á milli
Sovrybflot og Sölustofnunar lag-
metis í desembermánuði. Þá héldu
þeir Theódór Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvarinnar,
og Gísli Már Ólafsson, skrifstofu-
sljóri hjá K. Jónssyni á Akureyri,
til Sovétríkjanna. Viðræðunum var
sfðan fram haldið í Reykjavík f jan-
úarmánuði. Samningar tókust um
magn og verð og voru samningar
undirritaðir á Akureyri f gær.
Samningurinn tekur til fímm
framleiðsluvara, sem sjö fyrirtæki
í lagmetisiðnaði framleiða, en alls
eru á landinu tíu lagmetisfýrirtæki.
Um 60% af þeirri framleiðslu, sem
fer á Sovétmarkað, er frá Norður-
landi. Gaffalbitar koma frá K. Jóns-
8yni og KASK á Homafírði.
Kiyddsfldarflökin eru framleidd hjá
K. Jónssyni og Lifrarsamlagi Vest-
mannaeyja. Léttreykt síldarflök
koma frá Norðurstjömunni í Hafn-
arfírði. Reykt sfldarflök koma frá
Egilssfld á Siglufírði og niðursoðin
þorsk- og ufsalifur koma frá Lifrar-
samlagi Vestmannaeyja, Norður-
stjömunni í Hafnarfirði, Pólstjöm-
unni á Dalvík og frá Hik sf. á
Húsavík fari svo að það fyrirtæki
starfí áfram.
Rúmlega 20% af heildarlagmetis-
iðnaðinum hér á landi fer á markað
í Sovétríkjunum. Undir venjulegum
kringumstæðum er vestur-þýski
markaðurinn stærstur, um það bil
35%. Að sögn Theódórs hefur sá
markaður hinsvegar minnkað á
síðustu vikum og mánuðum um 90%
vegna andstöðu við hvalveiðar ís-
lendinga. Tuttugu og sex ár eru
nú liðin frá því að Sovétmenn hófu
að kaupa af íslendingum lagmeti
og var samningurinn í fyrra sá
stærsti sem gerður hefur verið frá
upphafi. Hann hljóðaði upp á sex
milljónir dollara. Theódór sagði að
nýi samningurinn nú væri því sá
næststærsti.
Theódór sagðist vera mjög
ánægður með þennan nýgerða
samning og í sama streng tók við-
skiptafulltrúi Sovrybflot, Sergey
Bylym, sem undirritaði samninginn
fyrir hönd Sovétmanna. Bylym
sagði verðið mjög sanngjamt og
að sérstök ánægja ríkti með gæði
þeirra lagmetisvara, sem kæmu frá
Islandi.
Tekur þátt í
sanmorrænu
leikverki
Unglingaleikhópnum Sögu á
Akureyri hefúr verið boðin þátt-
taka í samnorrænu leikverki. Saga
tók þátt i þessu sama verkefni,
er nefiidist Fenris, er því var
hrundið af stað árið 1985. Nú
hefúr verið ákveðið að endurtaka
þetta undir heitinu Fenris II og
er áætluð leikferð um öll Norður-
löndin frá júni til loka júli. Loka-
sýningin verður á Akureyri.
Leikritið er allt unnið í sameiningu
af unglingaleikhópum frá öllum þjóð-
unum og fjallar það um sex systk-
ini, sem fara að leita að því sjöunda,
sem hefur verið rænt. Ýmsar hættur
verða á vegi þeirra svo sem eldgos
og hraun auk þess sem draugamir
úr þjóðsögum okkar íslendinga koma
við sögu.
Leikklúbburinn Saga hefur starfað
í tólf ár og er ei'ni unglingaleik-
hópurinn á landinu. Saga er jafn-
framt aðili að Bandalagi íslenskra
leikfélaga. Einnig hefur Saga verið
í samstarfi við vestur-þýska leiklista-
miðstöð, sem kom kom til Akureyrar
sumarið 1987 og sett'i þar upp götu-
leikhús ásamt meðlimum í Sögu.
Götuleikhúsið var á vegum Banda-
lags íslenskra leikfélaga. Nú er áætl-
að að setja upp einþáttunginn
„Skemmtiferð á vígvöllinn" undir
leikstjóm Araórs Benónýssonar, leik-
hússtjóra Leikfélags Akureyrar.
Stefnt er að frumsýningu um miðjan
marsmánuð-