Morgunblaðið - 04.02.1989, Page 29

Morgunblaðið - 04.02.1989, Page 29
@í!M Hsg’mjra'3 .i> ajn>AoaÁ3HJM aia/javiCTTTaoM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1989 29 Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Bakstur bolludagsins Bolludagur, eins og hann er alltaf kallaður núna, var kallaður flengingardagur, þegar ég var bam, enda fóm öll börn bæjarins á fætur fyrir allar aldir, mddust inn ( nágrannahúsin og flengdu heimilisfólkið í rúmum sínum. Síðar um daginn var farið í sömu hús og borðaðar bollur. Þetta er siður, sem óðum er að hverfa, enda erfitt um vik í nútíma þjóðfélagi. Ég á litla dótturdóttur, sem hefur búið í Danmörku en er núna flutt til íslands. Hún hefur miklar áhyggjur af að bolludagurinn verði ekki eins skemmtilegur hér og í Danmörku. Þar klæða bömin sig í alls konar furðuföt, ganga um hverfið sem þau búa í, standa fyrir utan dyr fólks og syngja vísuna sem birtist hér með mynd- inni. Þessi danski siður hefur lengi verið stundaður á Akureyri og kannski víðar, nema þar standa bömin fyrir utan verslanir bæjar- ins; í Danmörku gefur fólk bömun- um peninga, áður gaf það þeim sælgæti og þar áður var þeim boðið til stofu upp á kakó og boll- ur, strútta og fleira sem tengist bolludeginum þar úti. Núna fínnst öllum þægilegra að gefa peninga og bömin eru ánægð, þau geta þá valið hvaða sælgæti er keypt fyrir ágóðann. Bollur 20 stk. 12 dl hveiti , V2 dl sykur V2 tsk. salt 2 msk. þurrger 150 g mjúkt smjörlíki 2 egg IV2 dl vel heitt vatn úr kranan- um IV2 dl mjólk 1. Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í skál. 2. Skerið smjörllkið í bita og setj- ið út í mjölið. 3. Setjið eggin út í. 4. Blandið saman vel heitu vatni úr krananum og kaldri mjólk. Setjið út I mjölblönduna og hræ- rið vel saman. Mjög áríðandi er að blanda saman heita vatninu og köldu mjólkinni áður en þetta er sett út í. 5. Setjið deigið með skeið á bök- unarpappír, iagið þær örlítið til með höndunum. 6. Setjið heitt vatn í eldhúsva- skinn, leggið plötuna með bollun- um milli barmanna á vaskinum. Leggið hreint stykki eða plast- filmu yfir. Látið lyfta sér í 30—40 mínútur. 7. Hitið bakarofn f 210oC, blást- ursofn í 190°C, setjið plötuna í miðjan ofninn og bakið í 10—15 mínútur. Fylling í bollurnar Þeyttur ijómi, niðurbrytjaðir bananar eða perur, rifíð súkkul- aði, búðingur eða sulta. Athugið: Ef þið setjið súkkulaði ofan á bollumar, er best að bræða það í bakarofni við 70° hita í 7 mínútur. Strúttar 10 dl hveiti 1 tsk. salt 2 tsk. sykur 1 msk. þurrger 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. oregano (má sleppa) 1 dl rifinn feitur mjólkurostur 1 egg 2 msk. matarolía 2 dl vel heitt vatn úr krananum 2 dl köld mjólk 30—40 g smjör mjólkur- eða ijómaostur 1. Setjið hveiti, salt, sykur, þurr- ger, paprikuduft og oregano í skál. 2. Rífið mjólkurostinn fínt og setjið út í mjölið. 3. Blandið saman vel heitu vatni úr krananum og kaldri mjólk, setj- ið matarolíuna og eggið saman við. Hellið út í mjölblönduna og hrærið vel saman. Áríðandi er að blanda heita vatninu og köldu mjólkinni saman áður en það er sett út í mjölið. 4. .Takið deigið úr skálinni, skip- tið í tvennt. Flefjið hvom bita út í jafnkanta plötu 30x20 sm. 5. Takið reglustiku og mælið 5x5 sm reiti. Skerið ekki alveg í gegn en far þarf að myndast í deigið. 6. Setjið smjörklípu á miðju hvers bita. 7. Leggið hinn deigbútinn ofan á. 8. Takið kleinuhjól, skerið í kring um allt deigið, en skerið síðan alveg í gegn þar sem rákimar em, þannig að það myndist jafii- kanta bútar. Bútamir lokast al- veg, þegar skorið er með kleinu- hjóli. 9. Takið skæri og klippið kross ofan í miðju hvers búts. Skerið ekki alveg í gegn. Skurðurinn á að vera í efri hlutanum. 10. Leggið strúttana á bökunar- pappír á bökunarplötu. 11. Setjið heitt vatn í eldhúsvask- inn, setjið plötuna milli barmanna á vaskinum, leggið hreint stykki eða plastfilmu yfir plötuna og lát- ið þetta lyfta sér í 30 mínútur. 12. Hitiðbakarofní210oC, blást- ursofn í 190°C, setjið plötuna í miðjan ofninn og bakið í u.þ.b. 15 mínútur. 13. Kælið örlítið, en losið síðan krossinn örlítið upp. 14. Skerið teninga úr mjólkurost- inum eða búið til kúlur úr ijóma- ostinum. Stingið ostteningi eða ijómaostkúlu í miðju hvers strútts. Fastelavn, er mit navn boller vil jeg have hvls jeg ikke boller fár sá laver jeg bailade Boller op, boller ned boller i min mave hvis jeg‘ingen boller fár sá koramer jeg tllbage. Gnúpveijahreppur: „Aukinn kvóti fyrir nýtt fjós myndi leysa vandann“ - segja hjónin í Minni- Mástungn sem urðu fyrir miklu foktjóni sem ekki fæst bætt Selfossi. „ÞAÐ bætir enginn svona tjón hér á landi og maður er svona að átta sig á hlutunum eftir að þetta gerðist. Við erum að vissu leyti dálítið ráðvillt en viljum stefina að því að fá aukinn kvóta til þess að geta byggt nýtt Qós,“ sögðu hjónin Finnbogi Jóhanns- son og Olga Andreasen í Minni- Mástungu í Gnúpverjahreppi. Þau urðu fyrir því óhappi að þaJkið af Qósinu á bænum fauk í einu lagi íostudaginn 13. jan- úar. Þau hjónin og bömin fjögur vom að heiman þegar þakið fauk en komu heim skömmu eftir að það gerðist. Þakið virðist hafa lyfst af fjósinu í einu lagi og svifíð um 80 metra. Það lenti skammt frá íbúðar- húsinu og braut girðingu umhverfis húsagarðinn og skemmdi heybindi- vél sem stóð við girðinguna. Þegar þau hjónin komu heim var ekki til- takanlega hvasst og Finnbogi segir vind oft hafa mælst 12 vindstig án þess að nokkuð haggaðist. Samkvæmt upplýsinguri? Veður- stofu íslands var þrýstifar þannig á svæðinu að vindhraði yfir bænum getur hafa verið 70-80 hnútar. Að sögn Finnboga mældi vindmælir ofan við Búrfell vindhraða sem sam- svarar 18 vindstigum. Það er því greinilegt að snarpur vindhnútur hefur kippt þakinu af fjósinu. „Svona aðstæður hafa komið upp hjá fleimm og svona lagað á eftir að gerast. Það er umhugsunarefni fyrir bændasamtökin að svona lag- að skuli ekki vera bætt,“ sagði Finn- bogi og bætti við að yfirleitt væm menn ekki með foktryggingar á húsum til sveita. Þau hjónin bentu á að tjón þeirra væri sambærilegt og varð nýlega í Færeyjum. Það sem mögulegt er að bætur komi fyrir, að sögn Finnboga, við aðstæður sem þessar er aukinn kostnaður sem menn verða fyrir vegna búrekstrarins. Einnig er líklegt að bætur komi fyrir það sem ekki er unnt að tryggja sérstak- lega, eins og til dæmis nýju hjólbör- umar sem urðu fyrir þakinu þar sem það lenti. Finnbogi kom nautgripunum, 16 mjólkurkúm auk geldneytis, fyrir á þremur bæjum og þarf að aka 40 kílómetra til mjalta. Þau Finnbogi og Olga hófu bú- skap í Minni-Mástungu fyrir 6 ámm. Þau keyptu jörðina með það í huga að byggja hana upp enda er um stóra kostajörð að ræða. Þau hafa í höndum lánsloforð fyrir end- urbyggingu og viðbótum við íbúðar- húsið þannig að óhappið setur strik Hjónin í Minni-Mástungu, Finnbogi Jóhannsson og Olga Andreasen. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Finnbogi Jóhannsson bóndi i þaklausu Qósinu. í reikninginn. „Við emm með það lítinn kvóta héma að við máttum ekki við neinu og allra síst svona óhagpi," sagði Olga. „Ég tel nauðsynlegt að byggja nýtt fjós því undirstöðumar undir því gamla em ekki nógu góðar og því ekki hagkvæmt að leggja í mik- inn kostnað við að setja þak á það,“ sagði Finnbogi. „Það sem leysir okkar vanda er að fá aukinn kvóta til þess að standa undir byggingu nýs fjóss og hlöðu og þá um leið búskap á jörðinni," sagði Finnbogi. Þau hjónin sögðu að úr allri sveit- inni hefðu komið boð um aðstoð með hvaðeina, hús fyrir skepnumar og fleira. Þetta væri ómetanlegt og þau vildu koma á framfæri þakk- læti til allra hlutaðeigandi. — Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.