Morgunblaðið - 04.02.1989, Side 47
47
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKUR
Vrli til vamaðar
ValurB.
Jónatansson
skrífar
ÍSLENSKA landsliðið íhand-
knattleik mátti hafa mikið fyrir
þvi að vinna Norðmenn meö
einu marki, 21:20, í síðari
landsleik þjóðanna í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi. Sigurinn
hékk á bláþrœði undir lokin og
má þakka Einari Þorvarðarsyni
sigurinn er hann varði meist-
aralega þrumuskot Norð-
manna er leiktíminn var að
renna út.
Það tók íslensku strákana sjö
mínútur að komast inní leikinn.
A sama tíma gerðu Norðmenn þijú
fyrstu mörkin. íslenska liðið jafti-
aði, 3:3, en Norð-
menn höfðu síðan
frumkvæðið allt þar
til íslendingar náðu
að jafna, 9:9 og
síðan 10:9 fyrir leikhlé. Tíunda
markið var glæsilegt. Geir tók hom,
sendi háan bolta inn í vítateiginn
og þar kom Héðinn á fullri ferð inn
af línunni og blakaði knettinum í
netið.
íslenska liðið hafði frumkvæðið
í síðari hálfleik og munurinn mestur
fjögur mörk, 18:14, er 10 mínútur
vom til leiksloka. En þá fóm leik-
menn að reyna ótímabær skot og
Norðmenn gengu á lagið og jöfn-
uðu, 19:19. Sigurður Gunnarsson
skoraði 20. markið, en Norðmenn
jöfnuðu þegar ein mínúta var eftir.
Kristján skoraði 21. markið - hans
annað mark - þegar 12 sekúndur
vom eftir. Norðmenn fengu svo
tækifæri á að jafna eins og áður
er lýst, en Einar varði meistaralega.
Óagað
Leikur ísienska liðsins var mjög
slakur og er víti til vamaðar fyrir
B-keppnina í Frakklandi sem hefst
eftir aðeins hálfan mánuð. Vömin
var of flöt og lék full aftarlega
FOLK
■ EINAR Þorvarðarson, mark-
vörður landsliðsins, er orðinn leikja-
hæsti leikmaður landsliðsins. Hann
lék sinn 115. landsleik í gærkvöldi.
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði
landsliðsins, hvfldi í gærkvöldi, en
hann hefur leikið 114 landsleiki.
Einar tók við fyrirliðastöðunni.
I BIRGIR Sigurðsson, línu-
maður úr Fram, tók stöðu Þorgils
Óttars, í landsliðinu og átti hann
að fá tækifæri til að spreyta sig.
Svo varð þó ekki - hann kom aldrei
inn á í leiknum.
UNORÐMENN léku sinn fímmta
landsleik á sex dögum í gærkvöldi.
Þeir léku þrjá leiki í Damnörku
áður en þeir komu hingað til lands.
UFIMMTÁN landsliðsmenn fengu
skráðan landsleik í gærkvöldi. Tveir
þeirra fengu ekki að koma inn á.
Birgir og Guðjón Árnason, FH.
■ ÁTTA leikmenn íslenska
landsliðsins fóm ekki inn í búnings-
klefa í leikhléi. Þeir notuðu
tækifærið og vom að leika sér með
knetti inn á vellinum.
■ PÁJLL Ólaísson fékk að leika
síðustu 2.30 mín. í leiknum gegn
Norðmönnum.
■ HÉÐINN Gilsson fékk að sjá
rauða spjaldið í gærkvöldi, eftir að
hafa verið rekin af leikvelli í þriðja
sinn. Hann var útilokaður frá leikn-
um þegar sex mín. vom til leiksloka.
■ KRISTJÁN Arason skoraði
aðeins tvö mörk í gærkvöldi. Hann
skoraði fyrsta mark íslenska liðsins
úr vítakasti eftir sjö mín. og síðan
skoraði hann sigurmarkið, 21:20,
með gegnumbroti.
■ NORÐMENN skomðu þrettán
mörk með langskotum - fram hjá
lélegri vöm íslenska liðsins.
Morgunblaðið/Bjami
Valdlmar Qrfmsson átti góða spretti gegn Norðmönnum - skoraði t.d. þijú mörk S röð rétt eftir að hann kom inn á S
fyrri hálfleik.
Vömin
höfuð-
veric-
urinn
- sagðiGunnar
ÞórJónsson
Leikur íslenska liðsins var of
gloppóttur, en óneitanlega
komu góðir kafla í leik liðsins.
Það var greinilegt að strákamir
mættu of sigurvissir tii leiks.
Þeir sofnuðu oft í vöminni og
fengu á sig ódýr mörk. Vamar-
leikurinn var höfuðverkurinn hjá
okkur," sagði Gunnar Þór Jóns-
son, formaður landsliðsnefiidar
HSI eftir leikinn.
Gunnar sagði að það hafí
komið fram að Norðmennimir
hafí verið búnir að lesa sóknar-
leik íslenska liðsins vel. „Þeir
náðu oft að stöðva sóknarað-
gerðir okkar í færðingu. Það
munaði mikið - bæði í vöm og
sókn, að Alfreð Gíslason lék
ekki með. Jú, hann verður orðinn
góður fyrir B-keppnina í Frakkl-
andi.
Það verður að lagfæra ýmis-
legt fyrir B-keppnina. Róðurinn
þar verður erfiður og baráttan
um sæti verður erfíð. Við beij-
umst við sterkar þjóðir — eins
og V-Þjóðveija, Rúmena, Norð-
menn og Svisslendinga.
þannig að Norðmenn fengu of mik-
ið svigrúm fyrir framan, enda
skorðu þeir 70 prósent marka sinna
með langskotum. Sóknarleikurinn
var hugmyndasnauður og óagaður.
Norðmönnum hefur farið mikið
fram og ef svo heldur áfram sem
horfír eiga þeir eftir að verða okkur
skeinuhættir. Það má fastlega bú-
ast við því að ísland og Noregur
leiki saman í milliriðli í Frakklandi
þannig að þeir em sýnd veiði en
ekki gefin.
Island - Noregur
21 : 20
Laugardal8höll, vináttulandsleikur f
handknattleik, föstudaginn'3. febrúar
1989.
Gangur leiksins: 0:3, 3:3, 3:5, 5:7,
6:8, 9:9, 10:9, 11:9, 12:10, 13:11,
13:13, 14:14, 18:14, 19:16, 19:19,
20:20, 21:20.
isiand: Héðinn Gilsson 6, Sigurður
Gunnársson 4, Valdimar Grfmsson 4,
Guðmundur Guðmundsson 2, Kristján
Arason 2/1, Jakob Sigurðsson 1, Júlfus
Jónasson 1, Sigurður Sveinsson 1/1,
Geir Sveinsson, Bjarki Sigurðsson,
Páll Ólafsson, Birgir Sigurðsson, Guð-
jón Ámason.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 9,
Guðmundur Hrafnkelsson.
Utan vallar: 10 mfnútur.
Noregur: Rune Erland 9/4, Bent Svele
3, öystein Havang 3, Roger Kjendalen
2, Karl Erik Böhn 2, Dag Vidar Han-
stad 1, Kaare Rannekleiv 1, Ole Gustav
Gjekstad, Kjetil Larsen, Egil Opperud,
Knut Ame Iversen.
Varin skot: Espen Karlsen 5/2, Fred-
rik Brabakken 5.
Utan vallar: 10 mfnútur.
Áhorfendur: 1.200.
Dimarar: Ole Christiansen og Per
Jörgensen frá Danmörku. Voru slakir.
Héðlnnbestur
Besti leikmaður íslands í vöm
og sókn var Héðinn Gilsson. Valdi-
mar átti einnig góðan kafla eftir
að hann fékk tækifæri undir lok
fyrri hálfieiks og skroaði þá þijú
mörk í röð. Geir og Kristján stóðu
sig vel í vöminni, en í sókninni áttu
þeir slakan dag. Guðmundur Guð-
mundsson og Sigurður Gunnarsson
gerðu mikilvæg mörk. Sigurður
Sveinsson, Júlíus, Bjarki og Jakob
fiindu sig ekki. Einar var töluvert
frá sínu besta, en var mikilvægur
í lokin.
Það þýðir þó ekki að hengja haus
nú þegar alvaran framundan. Ég
er sannfærður um að íslenska liðið
á eftir að ná sér á strik þegar á
hólminn er komið og láti þessa leiki
sér að kenningu verða.
Þorsteinn
Pálsson í
Jóhann Óli Guðmundsson, for-
stjóri Securitas, var endurkjör-
inn formaður Knattspymufélagsins
Víkings á aðalfundi Víkinga í fyrra-
kvöld. Stefán Eggertsson, verk-
fræðingur, Eysteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Plasprents, og
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Strákamir mæta
Belgíumönnum
Islenska landsliðið, skipað leik-
mönnum undir 21 árs aldri,
leikur gegn Belgíumönnum í for-
keppni Heimsmeistarakeppni 21
árs landsiiða, sem fer fram á
Spáni 1989.
Sigurvegarinn úr leikjum ís-
lands og Belgíu leika siðan við
Sviss eða Kýpur um farseðilinn
til Spánar. Jón Hjaltalín Magnús-
son, formaður Handknattleiks-
sambands íslands, sagði ( stuttu
spjalli við Morgunblaðið í gær, að
búið væri að semja við Belgíu-
menn um að báðir leikimir fari
fram hér á landi - 25. og 27.
mars.
Héðinn með sex mörk
Héðinn Gilson skoraði flest
mörk íslenska landsliðsins, eða
sex. Hann var með 66.6% skotnýt-
ingu - skaut níu sinnum. Þá tapaði
hann knettinum tvisvar.
Valdimar Grímsson skoraði fjög-
ur mörk úr fimm skotum. Það gerði
Sigurður Gunnarsson einnig, en
hann tapaði knettinum einu sinni.
Guðmundur Guðmundsson náði
100% nýtingu - skoraði tvö mörk
úr tveimur skotum. Bæði mörkin
skoraði hann eftir hraðupphlaup.
Kristján Arason var með lélega
nýtingu. Hann skoraði tvö mörk úr
sex skotum og tapaði knettinum
tvisvar.
Jakob Sigurðsson skoraði eitt
mark úr tveimur skotum og það
gerði Júlíus Jónasson einnig, en
hann tapaði knettinum einu sinni.
Sigurður Sveinsson skoraði eitt
mark úr þremur skotum.
íslenska liðið skoraði 21 mark
úr ijörtíu 0g ejnnj sókn.
Tíu Afríkuríki leita
aðstoðar hjá HSÍ
- vegna námskeiðahalds í Uganda
Handknattleikssambandi ís-
lands hefur borist bréf frá
Afríku þar sem tíu Afríkuríki
bjóða HSÍ að halda dómaranám-
skeið í Uganda í mars. Verður
námskeiðið haldið í sambandi við
stórt handknattleiksmót sem þar
fer fram á sama tíma.
Á síðasta ári fóru þeir Hilmar
Bjömsson og Viðar Símonarson
til Nígeríu og Tansaníu á vegum
Þróunarsamvinnustofnunnar ís-
lands og héldu þar handknatt-
leiksnámskeið. Mikil ánægja var
með þessi námskeið og í fram-
haldi að því hafa Afríkuþjóðimar
leitað til íslands aftur.
Englendingar og Skotar hafa
einnig beðið HSÍ að gangast fyrir
dómaranámskeiði í handknattleik
í Bretlandi á síðari hluta þessa árs.
Að sögn Jóns Hjaltalíns Magn-
ússonar, formanns HSÍ, er vilji
fyrir því hjá stjóm HSÍ að aðstoða
þessar þjóðir við uppbyggingu
handknattleiksins. „Þetta er þó
allt háð því hvort Þróunarsam-
vinnustofiiunin íslands styrki
þessi verkefni," sagði Jón.
Landslið Lúxemborgar
keppir hérá landi í maí
LANDSLIÐ Lúxemborgar í
handknattleik kemur hingað til
lands til æfinga og keppni í vor.
Lúxemborgarar dvelja hér í eina
viku. Gengið hefur verið frá
því að liðið leikur gegn Valsmönn-
um og KR-ingum. Þá mætir það
sennilega unglingalandsliðinu, og
væntanlega fleiri félagsliðum.
Landsliðsþjálfari Lúxemborgar
var staddur hér á landi um síðustu
helgi, fylgdist með leikjum íslands
og Tékkóslóvakíu auk þess sem
hann undirbjó ferð sína hingað í vor.
Unnið er að því að auka vinsæld-
ir handknattleiksins í Lúxemborg,
og hafði þjálfarinn á orði að hann
vildi taka Island sér til fyrirmynd-
ar. Landið væri fámennt, eins og
Lúxemborg, og undravert væri hve
sterku liði Islendingar tefldu fram.