Morgunblaðið - 17.02.1989, Side 1
64 SIÐUR B/C
40. tbl. 77. árg.__________________________________FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
George Bush um afganska skæruliða:
Vopnaaðstoð verður
ekki stöðvuð strax
De Cuellar íhugar að hamla gegn
aðdráttum skæruliða frá Pakistan
Washington, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
JAVIER Perez de Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
sagðist í gærkvöldi vera að íhuga hvort fallast bæri á þá
beiðni Sovétmanna að Sameinuðu þjóðirnar kæmu upp útvarð-
arstöðvum til að loka vopnaflutningaleiðum til afganskra
skæruliða frá Pakistan. George Bush Bandarikjaforseti kvaðst
vera tregur til að binda enda á hernaðarstuðning Bandarílq'a-
manna við afganska skæruliða. Hætta væri á að stjórnar-
herinn í Afganistan væri betur settur en þeir vegna mikils
Qölda vopna sem Sovétmenn hefðu skilið eftir í landinu.
De Cuellar sagði á blaðamanna-
fundi að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna tæki ákvörðun um hvort
Sameinuðu þjóðimar ættu að loka
flutningaleiðunum frá Pakistan og
hann hefði ekki rætt þetta við
ráðið. Hann kvaðst ætla að ræða
við James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í næsta
mánuði um áform Bandaríkja-
stjómar varðandi áframhaldandi
aðstoð við afgönsku skæruliðana.
George Bush sagði í samtali við
nokkra fréttamenn í Hvíta húsinu
í gærkvöldi að ekki væri sann-
gjamt að stöðva vopnaflutninga
til andspymuhreyfinganna í Afg-
anistan eftir að Sovétmenn hefðu
skilið eftir vopn handa her lepp-
stjómarinnar. Hann hvatti til þess
að fundin yrði friðsamleg lausn á
vanda Afgana og lét í Ijós þá von
að ekki kæmi til frekari íhlutana
Sovétmanna í innanríkismálefni
Afgana.
ííl
Enn bætist í raðir afganskra flóttamanna í Pakistan
sést maður grafa holu fyrir utan tjald sitt í borginni
Reuter
. Á myndinni
Peshawar.
Islamskir heittrúarmenn og bók Rushdies:
Hótað að granda farþega-
þotnm Breta með sprengjum
Nýju Delí. Bombay. London. Washington.
INDVERSK stjórnvöld juku mjög
varúðarráðstafanir á flugvöllum
í landinu og hófu eftirlit með
irönskum stúdentum í gær vegna
nafnlausra símahótana um að
farþegaþotur breska flugfélags-
ins British Airways á flugleiðum
milli Bretlands og Indlands yrðu
Reuter.
sprengdar í loft upp. Var sagt í
símtalinu að þessu yrði haldið
áfram þar til „Salman Rushdie
yrði rekinn úr fylgsni sínu.“
Rushdie, sem er höfundur hinnar
umdeildu bókar, „Söngvar Satans“,
er sakaður um guðlast af strangtrú-
uðum múslimum og hefur Ajatolla
Reuter
Harðir bardagar í Austur-Beirút
Harðir bardagar brutust enn út í gær milli stríðandi fylkinga krist-
inna manna í Austur-Beirút og nágrenni þrátt fyrir að samið hafí
verið um vopnahlé fyrir atbeina kirkjunnar. Að minnsta kosti 56
manns hafa fallið og 130 særst í þessarí viku í bardögunum, sem
taldir eru vera þeir hörðustu síðan árið 1986. Á myndinni ganga
starfsmenn Rauða krossins fram hjá jarðsprengjum er stutt hlé var
gert á bardögunum í gær.
Khomeini, .erkiklerkur og voldug-
asti maður írans, hvatt til þess að
Rushdie verði drepinn.
Símhringingin barst indverskri
fréttastofu í Bombay, þar sem
Rushdie ólst upp. Sagðist maðurinn
tala í nafni „írönsku varðanna" og
hótaði hann jafnframt að fjórir
þekktir Indveijar, sem gagnrýnt
hafa hótanir Khomeinis, yrðu
drepnir.
Stjómmálamenn á Vesturlöndum
hafa harðlega gagnrýnt morðhótan-
ir Khomeinis og hefur utanríkisráð-
herra Hollands frestað heimsókn til
írans. Útgefandi bókar Rushdies á
Ítalíu hefur frestað um sinn að
gefa hana út og segir að ekki sé
hægt að stofna mannslífum og
eignum útgáfufyrirtækisins í
hættu, í Finnlandi og Frakklandi
bíða útgefendur einnig átekta.
Samtök rithöfunda í Afríku og Asíu
hafa vísað ummælum Khomeinis
um Rushdie á bug. „Við lifum ekki
á miðöldum," sagði aðstoðarfram-
kvæmdastjóri samtakanna, Pa-
lestínumaðurinn Abdel Fettah.
Ózon-raimsókiHr:
Fundugat
álaginu
vesturaf
Grænlandi
Toronto, Kaupmannahöfh. Frá N.
J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins,
og Reuter.
KANADÍSKIR vísindamenn
staðfestu á miðvikudag að
þeir hefðu fundið ský yfir
BafSnslandi, gerð af fros-
inni nitric-sýru, er ætu gat á
ózonlagið sem vemdar jörð-
ina fyrir útQólubláum geisl-
um utan úr geimnum. Áður
hafa fimdist sams konar göt
yfir Suðurskautslandinu og
telja vísindamenn að notkun
efiia sem notuð eru i úða-
brúsa, eigi m.a. þátt í að
mynda götin.
Að sögn Kanadamannanna er
gatið um 19-24 km í þvermál.
Niðurstöður rannsókna þeirra
verða ræddar á þingi vísinda-
manna og sérfræðinga í al-
þjóðarétti sem hefst í Ottawa
í Kanada á næstunni. Þar verð-
ur rætt um möguleikann á al-
þjóðlegum samningi varðandi
mengunarvalda í háloftunum.
Álitið er að skerðist ózonlagið
geti það aukið tíðni húðkrabba,
valdið uppskerubresti og skað-
að líf í hafínu.
Danskir vísindamenn hafa í
vetur stundað rannsóknir af
sama toga frá bækistöð í
Syðri-Straumfirði, auk þess
sem þeir hafa sent upp loft-
belgi frá Scoresbysundi og
Ammassalik á austurströnd-
inni. Engin göt hafa fundist og
virðist allt með felldu. Rann-
sóknir Dana eru liður í víðtækri
áætlun sem Bandaríska geim-
vísindastofnunin (NASA),
Rannsóknastofnun Frakklands
og háskólar.í Róm og Bremen
standa að. Ástand ózonlagsins
verður kannað jrfír Síberíu, Al-
aska, Kanada, Hjaltlandi, Sval-
barða, Bjamareyju og Norður-
Noregi. Áuk belgjanna eru not-
aðar tvær bandarískar flugvél-
ar, svonefndar U-2 njósnavélar,
sem breytt hefur verið í þessu
skyni.
Gagnrýni Svíakonungs vegna selveiða Norðmanna:
Sænskir stj ómmálamenn
taka undir með konungi
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgwibladsins. 1 ■
KARL Gústaf XVI Svfakonung-
ur sagði í viðtali við sænska út-
varpið í gær að hann iðraðist
ekki gagnrýni sinnar á Gro Harl-
em Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, fyrir að stöðva
ekki selveiðar Norðmanna. Hann
sagðist telja nauðsynlegt að fitja
upp á umhverfismálum á ferðum
sinum erlendis. Sænskir stjóm-
málamenn hafa tekið undir um-
mæli konungs.
Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, sem nú er staddur
í opinberri heimsókn í Afríkuríkinu
Zimbabwe, vill ekkert tjá sig um
deilur Norðmanna og Svía vegna
gagnrýni Svíakonungs. Sagðist
hann fyrst verða að sjá ummælin
orðrétt.
Svíakonungur er talsmaður Al-
þjóðanáttúruvemdarráðsins. Hann
sagði í viðtalinu að náttúravemd
væri seint og um síðir farin að
verða mikiivægt málefni í auðugum
ríkjum. „Því meiri umræða þeim
mun betra,“ sagði Karl Gústaf.
Sten Andersson, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, fór í gær til Noregs til
að ræða selveiðideiluna og fleiri
mál við hinn norska starfsbróður
sinn, Thorvald Stoltenberg. Tals-
menn allra stjómmálaflokka í
sænska þinginu hafa lýst yfir
stuðningi við gagnrýni konungs og
málið er enn forsíðuefni dagblaða,
viku eftir að umdeild mynd um
veiðamar var sýnd í sjónvarpinu.
Sjá ennfremur bls. 20: „Heitt
í kolunum . . .“