Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 „ Kallarhu pig sölumann! " ©1987 UnivefMl Prcsa Syndtcate ixftr 1254 Sendið inn til mín skrána yfir trúnaðarmennina í fyrirtæk- inu... Með morgunkaffinu Þegar maðurinn minn kom heim frá að endurnýja happ- drættismiðann kom hann með 1.200 kr. Hann fann peninga- veski. Sauðfé aðstoðar við uppgræðslu landsins Til Velvakanda. Löngum hefur verið vitnað í ís- lendingabók Ara fróða, þegar rætt er um uppblástur og landeyðingu á Islandi. Þar segir, að í upphafi byggðar hafi landið verið viði vaxið milli fjalls og fjöru. Trúlega er það birkikjarr og birkiskógar ásamt víði, sem klætt hafa landið miklu víðar en sést í dag. Hver eru þá eyðingaröflin, sem unnið hafa það tjón á landinu, sem raun ber vitni? Þótt oft sé jm það deilt má nefna náttúruhamfanr. svo sem eldgos, langvarandi þurrka og vinda, einkum þar sem lyngmóar eru ríkjandi gróður. Einnig viðar- högg til eldunar allt fram á þessa öld og beit búfjársins allt árið um kring. Miklar umræður manna á milli og í ijölmiðlum, hafa verið líflegar um þetta vandamál. Þótt umræðan hafi oftast verið af hinu góða, þá hefur þar líka gætt nokk- urrar vanþekkingar og áróðurs, sem einkum hefur beinst að sauðfjárbú- skap. Það er t.d. hæpið að 670 vetrarfóðraðar ær í upprekstrar- landi Reykjavíkur og Kópavogs, geti verið miklir skaðvaldar gróð- urs. Ólafur Dýrmundsson, sem er sér- fræðingur um beitarþol, hefur bent á, að vel gróið land hafl gott af hóflegri beit. Ingvi Þorsteinsson mag., sem hefur mikla þekkingu á gróðurfari í landinu telur nauðsyn- legt að hlífa afréttum í uppblásturs- hættu við beit, því víða sé nægilegt gróið land í heimahögum. í þessu sambandi ætla ég að minnast á merkilega tilraun, sem átti sér stað hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti á 6. og 7. áratugnum. Það var mik- il gróðurvana eyðimörk í Hrauninu ofan og norðan við bæinn, þar sem fyrr á öldum var blómleg byggð. Verstur var svo nefndur Gári, vik- ur- og moldarflæmi nyrst á svæð- inu. Þessi flæmi, sem skipta þús. hektara voru tekin til uppgræðslu af miklum krafti og kom þar við sögu áburðarflugvél og önnur stór- virk tæki. A þessum árum var ennþá etið dilkakjöt í ríkum mæli og tíðkaðist sumarslátrun vegna kjötskorts. Þama í eyðimörkinni var sumarbeit fyrir meiri hluta fjárins, sem voru 1.500 vetrarfóðraðar kindur á bú- inu, þegar flest var. Páll Sveinsson landgræðslustjóri sá, að fénaðurinn hjálpaði mikið til við uppgræðsluna með því að troða og festa fræið í lausan jarðveginn og greru þessi flæmi upp með beitinni á fáum árum. Páll var stórvirkur í búskapn- um eins og öðrum verkefnum, sem hann tók sér fyrir hendur. Fjárbúið var lagt niður fyrir 1970, þegar kjötsala minnkaði. 700 kindur voru reyndar fluttar að Gunnarsholti frá Vestmannaeyjum í gosinu 1973 og var þá aftur rekið fjárbú í nokkur ár. Höfundur þessarar greinar var lengi starfsmaður Landgræðslunn- ar og heimilisfastur í Gunnarsholti til ársins 1970. Ég tel nú eftir mína reynslu af þessum málum, að einn aðal skaðvaldurinn að landeyðingu, séu langvarandi þurrkar seini part vetrar og fram á sumar, rakaleysið losar jarðveginn og gerir gróðurinn mjög veikan. Við slíkar aðstæður er ofbeit hættuleg. Ég minnist árs- ins 1954. Þá var um vorið hafist handa við að girða Hólssand um 35 km. girðingu ofan við hina fögru byggð í Öxarfirði. Þetta verkefni var að miklu leyti undirbúið af Runólfi Sveinssyni sandgræðslu- stjóra, en hann lézt í febrúar sama ár. Ég var sendur norður til aðstoð- ar verkstjóranum Þórarni í Kross- dal. Miklir þurrkar voru ríkjandi um vorið og fram á sumar og æddi þá sandurinn hamslaus undan vind- inum, stundum 50—60 m á sólar- hring og eyddi öllum gróðri ásamt þéttvöxnum birkirunnum. Þórarinn tók þá skjóta ákvörðun og flutti girðingarstæðið norðar en mælt hafði verið fyrir. Árið eftir kom skipsfarmur af borðviði frá Finn- landi til Kópaskers. Timburgarðar voru reistir í kílómetra vís. Sand- garðar mynduðust og sáð var í garðana melfræi og síðar dönskum túnvingli þar á- milli. Á nokkrum árum vannst fullkominn sigur á eyðingunni. Efstu borðin náðust síðar upp að hluta og voru endur- notuð suður á Landeyjarsandi. Mér komu í hug birkirunnarnir við Hólssand, er ég hlýddi á daginn og veginn, erindi flutt af Andrési Amalds, fyrmefndum sérfræðingi, hjá Landgræðslunni í gróðurvemd. Hann er að heyra mikill áhugamað- ur um skógrækt og nefndi í sinni ræðu að æskufólk sé farið að safna birkifræi og stefna beri að því að endurheimta sem mest af þeim 95%, sem glatast hafa af björkinni frá landnámi. Þetta er fögur hug- sjón og má alveg vinna að þessu í framtíðinni. í baráttunni við eyðing- aröflin hefur melfræið unnið krafta- verk og vert er að huga að lúpínu. Ég vil að endingu benda fólki á bókina Græðum ísland, sem gefin er út af Landgræðslu ríkisins á liðnu ári í tilefni 80 ára afmælis Land- græðslunnar. Bókin er mjög vönduð en ódýr, full af fróðleik og skemmti- leg lesning. Ritstjóri bókarinnar, sem er 236 bls. er Andrés Arnalds. Sveinbjöm Benediktsson HÖGNI HREKKVÍSI „'PAfZF HAUN ENDILBGA /4P KOMA ME-& TR.OAAAA A f?AMNi ?! Víkverji skrifar Athygli Víkverja var vakin á því að ekki var rétt með farið hér í þættinum þegar sagt var að bensín hefði hvergi verið hægt að fá í höfuðborginni á meðan raf- magnslaust var á sunnudaginn. Tvær stöðvar Skeljungs við Miklu- braut vom opnar. Þar em dísilraf- stöðvar, sem sjá stöðvunum fýrir rafmagni. Þar var allt upplýst og mikið að gera þegar rafmagnsleys- ið hrjáði íbúa borgarinnar að öðm leyti. XXX Ilenskar getraunir hafa undan- farið vakið athygli á aukaleikj- um á sérstökum seðli tengdum B-keppninni í handknattleik, sem nú stendur yfir í Frakklandi. Allt gott er um þessa nýbreytni að ræða, en fyrsta auglýsingin um þetta efni fannst Víkveija dagsins hins vegar vægast sagt ógeðfelld. Á mánudag birtist mynd af lands- liðsfyrirliðanum í auglýsingu í DV, þar sem höfuðið var klippt frá skrokknum en búið var að koma annarri slíkri mynd undir hendi viðkomandi Á miðvikudag var komin ný út- gáfa af auglýsingunni. Höfuðið sat nú á sínum stað á búknum, en prenttæknin hafði verið notuð til að koma því einnig fyrir undir hendinni. Orðin „Notum höfuðið" em notuð til að vekja athygli lesan- dans á auglýsingunni og finnst Víkverja að auglýsandinn hafi gert það í síðari auglýsingunni. XXX Höfuð þeirra, sem unnu auglýs- ingu um spariskírteini ríkis- sjóðs em hins vegar ónotuð enn. I Auglýsingin sýndi tvo menn að tafli. Og í texta voru öðmm lögð í munn þessi orð: „Ég lék mínum sterkasta leiki fyrir 25 ámm“. Vaxandi þágufallsnotkun er einum of hröð fyrir smekk Víkvetja dags- ins. Annað í auglýsingunni er svo vitleysa því bæði snýr skákborðið, sem mennimir sitja við, öfugt og þar að auki er skákmönnunum vit- laust raðað upp. Má vera að svona della gangi einhvers staðar, en vonandi hefur ríkissjóður ekki borgað of mikið fyrir þetta hugsun- arleysi. Nema að þetta sé þaulhugsuð vit- | leysa, eins og maðurinn sagði, og auglýsingin aðeins áminning til Víkveija um það, að í spilinu við ríkið sé alltaf vitlaust gefið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.