Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 íném FÓLX ■ LIVERPOOL mætir Hull um næstu helgi í ensku bikarkeppnn- inni í knattspymu. Liðið leikur þó án tveggja sterkra leikmanna, Ian gmi Rush, sem er FráBob meiddur í ökkla og Hennessy Ronnie Whealan íEnglandi sem er f leikbanni. Góðu fréttimar eru þær að Gary GUlespie leikur með -^að nýju en hann hefur misst af síðustu 23 leikjum Liverpool vegna meiðsla. ■ JAN Mölby hefur verið valinn í danska landsliðið í knattspymu fyrir vináttuleik liðsins gegn ítölum. Mölby var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir skömmu, fyrir of hraðan akstur, en Sepp Piontek, þjálfari danska landsliðsins segir að það hafí engin áhrif á fótaburð kappans. ■ GERRY Armstrong hefur sagt af sér sem þjálfari Brighton. Hann missti stjóm á sér í leik vara- liðsins fyrir skömmu og réðist að einum leikmanni í liði andstæðing- an. Hann var kærður og dæmdur • í 200 punda sekt fyrir vikið. í kjöl- far þess ákvað Armstrong að sgja af sér sem þjálfari liðsins. ■ GENGIÐ hefur verið frá ráðn- ingu Ron Atkinsons sem fram- kvæmdastjóra Sheffíeld Wednes- day.Hann tekur við af Peter Eustece, sem var rekinn á mánu- daginn. Of langt mál væri að telja upp öll liðin sem Atkinson hefur stjómað en hann var síðast hjá Atletico Madrid á Spáni en var líklega frægastur fyrir tíma_ sinn -^yneð Manchester United. „Ég vil ekki lofa neinu en vona að úrslitin sýni getu mína,“ sagði Atkinson. ■ SEVILLA, 1. deildarlið á Spáni, hefur óskað eftir því að fá Brasiliumanninn {liði Newcastle, Mirandinha, lánaðan. Jim Smith, framkvæmdastjóri Newcastle, seg- ir það hinsvegar af og frá að Mir- andinha verði lánaður. „Ég er hinsvegar tilbúinn til viðræðna ef þeir vilja kaupa hann,“ sagði Smith. HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN í FRAKKLANDI Guðmundur skárri GUÐMUNDUR Guðmunds- son, sem meiddist í upphitun fyrir leikinn gegn Búlgörum í fyrrakvöld, fór í gœr til hnykkj- ara — „kýrópraktors" — í meðferð. ■ ■ ■ m ■ _ j. Morgunblaðið/Mouchel Vincent J3KOD digurosson átti mjög góðan leik með íslenska liðinu gegn Kúwait í gærkvöldi. Hér skorar hann eitt af níu mörkum sínum i leiknum. Þetta var algjör veisla - segirJakob Sigurðsson, markahæsti maður íslenska liðsins etta var algjör veisla fyrir mig í dag. Það er alltaf gaman fyrir homamenn þegar lið ná svo mörgum hraðaupphlaupum, “ sagði Jakob Sigurðsson, markahæsti maður íslenska liðsins í gærkvöldi, með níu mörk þar af sex eftir hrað- aupphlaup. „Það kom mér á óvart hvað þeir brotnuðu fljótt, það var eins og þeir gæfust upp strax í byrjun seinni hálfleiks. Það jákvæða við leik okkar var að við náðum að halda fullum krafti allan timann sem oft hefur brugðist gegn slakari liðum. Nú var einbeitingin góð allt til loka. Það er gott ef við getum gleymt þessum leik sem fyrst og byijað að undirbúa okkur fyrir Rúmenaleikinn — hann skiptir okk- ur öllu máli. En þessi stóri sigur í kvöld, þó andstæðingurinn hafí ekki verið sterkur, gefur vissulega byr í seglin." Guðmundur sagðist í gær vera betri: „Ég gat ekki beygt mig niður í morgun til að reima skóna, en nú get ég það án vand- ræða,“ sagði hann skömmu fyrir leikinn. „Eg fer aftur til þessa manns á morgun og vona að ég verði enn betri eftir það,“ sagði Guðmundur. Það kemur væntanlega ekki í ljós fyrr en á morgun, laugardag, hvort einhver möguleiki verður á því að hann leiki þá um kvöldið, gegn Rúmenum. Guðmundur hvfldi í leiknum í gær ásamt Hrafni Margeirssyni, markverði, Héðni Gilssyni og Birgi Sigurðssyni. Stærstu sigrar íslands Sigur íslands á Kúvait í gærkvöldi var með stærstu sigrum liðs- ins. Hér má sjá töflu yfír stærstu sigra liðsins frá upphafi. í sviganum sést á hvaða mótum leikirnir hafa verið. 10. 1.1970 ísland—Luxemburg.......................35:12 (23) 25.10.1980 ísland—Færeyjar (NM)...................33:10 (23) 16. 6.1966 ísland—Bandaríkin......................41:19 (22) 17. 3.1972 ísland—Belgía (ÓL).....................31:10 (21) 2. 1.1974 ísland—Bandaríkin......................39:19 (20) 14. 7.1988 ísland—Kína............................39:19 (20) 16. 2.1988 ísland—Kúvait (HM b)...................33:14 (19) 25.10.1984 ísland—Finnland (NM)...................32:13 (19) Þjálfari Rúmena: „Ég er hræddur" jálfari Rúmena, Nicholas Medeff var ánægður eftir sigurinn á Búlgörum í gærkvöldi, og sagði sína menn nú þurfa að hefja undirbúning fyrir leikinn gegn íslendingum annað kvöld. Þegar hann var spurður hvernig honum iitist á þá viðureign sagði hann einfald- lega: „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn get ég aðeins sagt eitt; ég er hræddur." \ Scensku Cylinda þvottavélamar hafa fengið frábtera dóma í neytendaþrófum á kröfuhöröustu mörkudum Evróþu. Þúgeturvalid umframhladnar eda topphlaönarCylinda vélar. Þcertopþ- hlödnu sþara gólfþláss ogekki þarf ad bogra við þvottin Cylinda nafnid er tryggingjyrir JyrstaJlokks vöru og sannkalladri maraþonendingu. Þegar aðeins þct d besta er nógu gott i?n nix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 BADMINTON Opna svissneska meistaramótið: Þórdís og Broddi í 8-liða úrslit í tvenndarleik ÞÓRDÍS Edwald og Broddi Kristjánsson komust f 8-liöa úrslit ítvenndarleik á opna svissneska meistaramótinu í badminton sem hófst í Lausanne í gœr. Broddi komst í 8-manna úrslit í einliðaleik karla. Arangur Þórdísar og Brodda í tvenndarleiknum verður að teljast mjög góður. Þau unnu sviss- neskt par í fyrstu umferð, 15:11, 16:17 og 15:4. Síðan mættu þau finnsku meisturunum og unnu, 15:10 og 15:6. í 8-liða úrslitum áttu þau að mæta dönsku pari, en þeim leik var ekki lokið síðast er fréttist. í einliðaleik karla komst Broddi í 16-manna úrslit, en tapaði þar. Hann sigraði Nikeldorf frá Vestur- Þýskalandi í 1. umferð, 15:7 og 15:4. í 2. umferð vann hann Stenström frá Svíþjóð, 15:0 og 15:9. í 16-manna úrslitum mætti hann svo einum besta leikmanni Svía, Peter Axelson, og tapaði, 9:15 og 5:15. ÞÓRDÍS Edwald og Broddl Krlstjánsson komust ( 8-liAa úrsllt I tvanndarlalk á opna svlssnaska malstaramótlnu f badminton sam fram far I Lausanna. Þórdís tapaði fyrir þýskri stúlku í fyrstu umferð í einliðaleik kvenna, 11:7, 7:11 og 2:11. teáaR FOLK H JOHN Mortimore hefur verið rekinn sem þjálfari hjá portú- galska félaginu Belenenses, eftir aðeins sex mánaða starf. Hann er níundi þjálfarinn sem hefur fengið að taka poka sinn í portúgölsku 1. deildarkeppninni í vetur. ■ FORRAÐAMENN franska félagsins Marseille tilkynntu í gær að búið væri að selja Eric Cantona til Bordeaux. „Það er frábært að hafa fengið þennan snjalla leik- mann til okkar,“ sagði Caude Bez, formaður Bordoeaux. Cantona er 22 ára. H CHRIS Woods leikur í marki Glasgow Rangers á laugardag gegn Stranraer í 4. umferð skosku bikarkeppninnar í knattspymu. Enski landsliðsmarkvörðurinn hef- ur ekkert leikið undanfama þrjá mánuði vegna veikinda — vírus hafði áhrif á jafnvægisskyn hans og sjón. H FIFA, alþjóða knattspymu- sambandið, hefur ákveðið að í framtíðinni fari ekki fram landsleik- ir í Limassol á Kýpur. Þetta var ákveðið eftir að til óláta kom á vellinum eftir leik Kýpur og Skot- lands. Þá ruddust áhorfendur inn á völlinn og gerðu aðsúg að dómara leiksins. H PETER Larsson, sænski landsliðsmaðurinn, sem leikur með Ajax í Hollandi, verður að öllum líkindum frá keppni í þijá mánuði vegna meiðsla í ökkla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.