Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 21 Pólitískir fang-ar á gangi fyrir utan sjúkrahús i Jóhannesarborg í gær eftir að hafa hætt hungurverkfalli, sem staðið hafði i 24 daga. Suður-Afríkustjórn hafði gefið i skyn að meirihluti pólitiskra fanga í landinu yrðu látnir lausir. Reuter Suður-Afríka: Blökkumannaleiðtogar deila á Winnie Mandela Fangar hætta 24 daga hungurverkfalli EKKERT lát er á deilum um meint ofbeldisverk lífvarðasveitar Winnie Mandela, eiginkonu suður-afriska blökkumannaleiðtogans Nelsons Mandela, sem situr í fangelsi. Leiðtogar Sameinuðu lýðræðis- fylkingarinnar (UDF), lýstu því yfir í gær að athafnir Winnie Mand- ela væru þeim alls óviðkomandi. Forseti Afríska þjóðarráðsins (ANC), Oliver Tambo, sagði hins vegar að enginn ágreiningur væri milli hans og Winnie Mandela og samtökin væru að reyna að finna lausn á deilunni. Tambo fagnaði einnig árangrinum af hungurverk- falli fanga í Jóhannesarborg, en þvi var hætt í gær eftir að Suður- Afríkustjórn hafði gefið í skyn að flestir þeirra þúsund pólitísku fanga, sem verið hafa í haldi í Suður-Afrikuán réttarhalda, yrðu látnir lausir. Lífverðir Winnie Mandela hafa verið sakaðir um að hafa rænt fjór- um unglingum og einn þeirra fannst látinn á mánudag. Lögreglan telur að hann hafi verið myrtur. í yfirlýsingu Sameinuðu lýðræð- isfylkingarinnar, samsteypu nokk- urra hreyfinga sem beijast gegn aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku- stjómar, kemur fram hörð gagnrýni á Winnie Mandela. í henni segir að Mandela sé hér eftir samtökunum alls óviðkomandi og saka þeir hana um að hafa gerst sek um mannrétt- indabrot. Nelson Mandela og Oliver Tambo, forseti Afríska þjóðarráðs- ins, höfðu fyrir nokkru fyrirskipað Winnie Mandela að leysa lífvarða- sveitina upp en því mun ekki hafa sinnt. Tambo sagði að Afríska þjóð- arráðið væri að reyna að finna lausn á deilunni og bætti við að yrði Winnie Mandela handtekin mjmdu samtökin mótmæla því harðlega. Um 300 fangar í Jóhannesarborg ákváðu í gær að binda enda á hung- urverkfall, sem staðið hafði í 24 daga. Lögfræðingar fanganna sögðu að Adriaan Vlok, dómsmála- ráðherra Suður-Afríku, hefði gefið í skyn að meirihluti pólitískra fanga í landinu yrði látinn laus. ORLANE P A R I S ANAGENESE Barátta við tímann Forskot Fiúóarinnar á gangi tímans Kynntí dag frákl. 13-18. SERÍNA KRINGLUNNI ■9BHH Eftirmenntunarnefnd bílgreina auglýsir Rafkerfi IV Rafeindatækni Meginverkefni: Námskeiðinu er skipt í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um rafeindakveikjuna og er markmið þess hluta að gera þátttakendur hæfa til að greina bilanir í hinum ýmsu rafeindakveikjum, Ijósstýrðum, spanstýrðum og segulstýrðum. í seinni hlutanum er fjallað um á bóklegan og verklegan hátt um skynjara, „anolog“rásir, rökrásir og örtölvuna. í lokin eru þessir þættir tengdir saman í heildarkerfi. Kennari verður Þorkell Jónsson. Verður haldið í Iðnskólanum í Reykjavík; hefst 21. febrúar og lýkur 4. mars. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 18.30 til 22.00, og laugardögum frá kl. 9.00 til 14.00. Þátttökugjald er kr. 4.000,- fyrir þá sem greiða í endurmenntunarsjóð. Þátttaka tilkynnist í síma 83011. ^^mmt^^^mm^m^mmmm^^^^^mmfmmmm^mmmmmm^^mmm hÍLÓW LÆKMR M110 KRÓHLR! 2o% af sérpökkuðum 26% GOUDAOSTI. Þetta tilboð stendur aðeins í nokkra daga. Fœst í flestum matvöruverslunum landsins. kr kg AUK/SlA k9d1-395

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.