Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 Opið bréf til fríkirkjufólks eftir Margréti Helgadóttur Ágæta fríkirkjufólk. Nú nálgast mikilvægur aðalfund- ur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. Skv. lögum safnaðarins á að halda aðalfundinn fyrir 15. mars og boða til fundarins með þriggja daga fyrir- vara. Ég held, að þessi fundur muni skera úr um það, hvort Fríkirkju- söfnuðurinn í Reykjavík lifir eða deyr. Mér þykir líklegt, að tímasetning væntanlegs aðalfundar sé nú þegar ákveðin, þótt við, safnaðarfólkið, vitum ekki.þann dag né stund. Ég hygg líka að stjómarbrotið í Fríkirkjunni, undir varaformennsku Bertu Kristinsdóttur, sé nú þegar farið að smala fólki til þessa fundar. Spurt hefur verið, hvenær fundur þessi muni verða haldinn, en ekki hefur tekist að fá nein svör. Hvers vegna er þetta leyndar- mál? Aðvitað af því að við, safnað- arfólkið, eigum ekki að fá nægileg- an tíma til þess að undirbúa okkur fyrir fundinn. Margir vinna á kvöld- in og jafnvel á nóttunni og ættu því bágt með að sækja fundinn, aðrir verða kannski staddir erlend- is, þegar að fundi kemur. Flestir þurfa lengri tíma en þijá daga til þess að undirbúa sig. Við stofnuðum Safnaðarfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík hinn 12. nóvember síðastliðinn, ekki til þess að kljúfa Fríkirkjusöfnuðinn, heldur til þess að vinna að heill hans og góðum framgangi. En okkur í safn- aðarfélaginu er neitað um útskrift frá Skýrsluvélum ríkisins, þ.e. skrá um safnaðarmeðlimi Fríkirkjusafn- aðarins. Þá skrá hefur enginn nema „stjóm" safnaðarins. Hvers vegna hefur 5 manna „stjóm“ (upphaflega vom 9 manns kjömir í stjómina) með vantraust fundarins í Gamla Bíói 12. septem- ber 1988, — hvers vegna hefur þetta stjómarbrot ekki sagt af sér? Er þetta fólk ekki búið að vinna Fríkirkjunni nógan skaða? „Margir vinna á kvöldin og jafiivel á nóttunni og ættu því bágt með að sækja fimdinn, aðrir verða kannski staddir erlendis, þegar að fimdi kemur. Flestirþurfe. lengri tima en þrjá daga til þess að und- irbúa sig.“ Safnaðarstarfíð og kirkjusókn undanfama mánuði segja allt, sem segja þarf í því efni. Kirkjusókn nú er nær engin. Sunnudaginn 15. jan- úar síðastliðinn komu 20 manns í Fríkirkjuna, þar með talið starfsfólk og söngflokkur. Á nýársdag komu 10 manns í kirkju, á annan í jólum 7 kirkjugestir (þetta er söfnuður, sem telur um 6.000 manns). I bamamessur mætir yfírleitt ein fjöl- skylda eða í hæsta lagi tvær núna. Hjá sr. Gunnari Bjömssyni voru alltaf á milli 70 og 120 manns í bamamessum og líklega á milli 50 og 100 í almennum guðsþjónustum. Getur verið, að þessi þróum verði Fríkirkjusöfnuðinum til farsældar? Svarið er vitanlega NEI. Laugardaginn 7. janúar birtist í Morgunblaðinu opið bréf til Bertu Kristinsdóttur, varaformanns Fríkirkjusafnaðarins, varðandi safnaðarstarfíð í Fríkirkjunni núna. Hvers vegna hefur hún ekki svarað því, sem þar kom fram? Hvers vegna hafa stuðningsmenn sr. Gunnars ekki fengið að líta í fundargerðarbækur safnaðarins? Hvers vegna er ekki löggiltur end- urskoðandi látinn yfírfara reikninga safnaðarins, sem hefur nær eina milljón króna í tekjur á mánuði? Við hvað eru mennimir hræddir? Nú er nóg komið að sinni. Mætum öll á væntanlegan fund. Það er ekki nóg að vilja vel og standa með okkur, sem ætlum að leiðrétta þau mistök, sem gerð voru þegar sr. Gunnari var sagt upp störfum. Það þarf líka að mæta á fundinn. Hér má enginn safnaðar- meðlimur vera hlutlaus. Þetta er lífsspursmál fyrir Fríkirkjusöfnuðinn í Reykjavík. Höfundur er starfandi í „Satnað- arfélagi Fríkirkjunnar OPIÐ í KVÖLD Lágmarksaldur 20 ár Kr. 600,- Yfírlýsing forsætis- ráðherra um Ut- vegsbankann er forkastanleg Félagsvist kl. 9.00 ________ Gömlu og nýju dansarnir kl. 10.30 S.G.T.___________ Templarahöllin Eiriksgotu 5 - Sinn 20010 Stadur aJJra sem vilja skemmta sér án áfengis. ★ MiðasaJa opnar kl. 8.30 ★ Cóð kvöldverólaun Skála fell KVSkÓ skemmtiríkvöld. #lnlE)irllL'ö- mmm Hvr.moA jS "ont - Aðoongseyrlr kr. 300 eftlr kl. 21:00. TOLvUSKEYTING MEÐ CR0SFIELD eftir Einar Örn Björnsson Eitt af áformum Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra er að leggja Útvegbanka íslands hf. niður og leggja eignir hans og aðstöðu undir Búnaðarbankann og Lands- bankann. Ekki er vitað hvem hljóm- grunn þessi þessi endemis stefna á í stjómarliðinu. Ekki er trúlegt að viðskiptaráð- herra sé ginnkeyptur fyrir því að slík aðför yrði gerð að Útvegs- bankanum. Bankinn var gerður að hlutafélagsbanka með það í huga að víkka starfssvið hans, meðal annars með hlutdeild erlendra banka er fram líða stundir. Útvegs- bankinn hefur síðan eflst til mikils muna og er í ömggri sókn inn í framtíðina, það er því fráleitt að áform foreætisráðherra nái fram aðganga. Útvegsbankinn, áður íslands- banki hf., og Landabankinn eru elstu bankar landsins. Búnaðar- bankinn var stofnaður síðar í tíð Tryggva Þórhallssonar foreætisráð- herra, þessi skipan um aðalbanka landsins hefur haldist síðan. Ósennilegt er að áform foreætisráð- herra fái mikinn hljómgrunn hjá útvegsmönnum eða öðrum sem eru tengdir sjávarútveginum. Síðan eru margir sem vilja að Útvegsbankinn haldi velli í öllu fjölmiðlafárinu er dunið hefur á honum í þeim erfíð- leikum er við blöstu þegar Hafskip hf. lenti í greiðsluþroti. (Undirritað- ur hefur áður skrifað um þau mál.) Það er því enginn grundvöllur fyrir því að Búnaðarbankinn og fyands- bankinn yfírtaki starfsemi Útvegs- bankans hf. Þegar hefur verið lagð- ur góður grunnur að starfsemi hans er víkkar sviðið í íslenskri banka- starfsemi. Það er háttur stjómmálamanna að ráðast að veigamiklum þáttum í íslensku atvinnulífi og reyna með þeiin hætti að hylja sig í reykskýi eigin mistaka. Það er því nauðsyn- legt að allir sem vilja aukið fijáls- ræði og betri fyrirgreiðslu til stuðn- ings höfuðatvinnuvegunum taki höndum saman og hreki flölmiðla- fárið á undanhald og greiði ekki götu þeirra stjómmálamanna sem leynt og ljóst reyna að koma ár sinni fyrir borð, með því að níðast á Útvegsbankanum. Þetta ætti for- sætisráðherra að festa sér vel í minni. Stjómmálamenn vaða um í þjóðfélaginu, þar á meðal „á rauðu ljósi", til að leita uppi það sem þeir segja að fari úrskeiðis og nota það til að upphefja sjálfa sig, en í leið- inni eru þeir að grafa undan íslensku þjóðfélagi og færa allt aft- ur á bak inn í fortíðina. Þetta á við núverandi stjórnarflokka. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hlustar á fjölmiðla- pressuna um skoðanakannanir að hann sé vinsælastur stjómmála- manna. En það er fjölmiðlafárið og Einar Örn Björnsson „Þaö er háttur stjórn- málamanna að ráðast að veigamiklum þáttum í íslensku atvinnulífi og reyna með þeim hætti að hylja sig í reykskýi eigin mistaka.“ meðalmennskan sem spinnur þann vef, en er ekki sú viðmiðun sem mark er á takandi. Þeir stjómmálamenn og aðrir sem hafa skoðanir er þeir telja rétt- ar em þegar til lengdar lætur líkleg- ir til að varða veginn og horfa því til framtíðar. Hrokafull afstaða og ásetningur um að láta óvissutal um allt og ekkert ráða ferðinni er ekki það veganesti sem sæmandi er í mannlegum samskiptum. Ríkisstjómin er andvana fædd og því ekki líkleg til að leysa vanda atvinnulífsins. Hún er aðeins tilraun manna til að sitja á meðan sætt er. En ráðherrastólamir em valtir. Höfundur er bóndi á Mýnesi & Héraði. SPAUG NY hlARNAKVÆM SÖGUSKÝRING ÓMARS ómar Ragnarsson, Helga Möller, Hemmi Gunn, Leynigestur o.fl. LISTAGÓÐUR MATSEÐILL Húsió opnar kl. 19 Miöaveró 3600. Kntunars. 29900. KOSTABOÐ: Aögöngumiöi meö mal og gisting i eina nótt i tveggja manna herbergi með morgunmat 5150 kr. (Gildir jafnt fynr borgartxia sem aðra landsmenn) DANSLEJKUR 2330-03 Helga Möller & Einsdæmi Mióaveró 7'50 MYNDAMÓT HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.