Morgunblaðið - 17.02.1989, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989
„ReynifeIIsætt“
— dálítíl orðsending
eftír Þór Jakobsson
I. Landsveit
Komið hefur til tals að safna í
eina samfellda skrá upplýsingum
um afkomendur Finnboga Þorgils-
sonar (f. 1760) og Helgn Teits-
dóttur (f. 1761), sem bjuggu á
Reynifelli á Rangárvöllum á ár-
unum frá 1790 til 1835. Finnbogi
lést árið 1833, en Helga bjó áfram
á Reynifelli í tvö ár eftir lát Finn-
boga. Hún lést 82 ára gömul 7.
júlí 1843 í Mörk á Landi, en þar
bjó sonur hennar, Jón ríki Finn-
bogason í Mörk.
Foreldrar Finnboga á Reynifelli,
Þorgils Þorgilsson og Guðrún Er-
lendsdóttir, höfðu búið á Reynifelli
í rúmlega 30 ár, frá því um 1760,
svo að ábúð kynslóðanna tveggja á
jörðinni varð því rúm 75 ár. Vísast
hefði Reynifell haldist lengur í ætt-
inni, ef Finnur, yngsti sonur þeirra
Finnboga og Helgu og vinnumaður
á Reynifelli, hefði ekki fallið frá í
blóma lífsins ári áður en móðir hans
varð ekkja.
Um þær mundir sem Helga Teits-
dóttir bregður búi á Reynifelli eru
þrír synir hennar stórbændur í
Landsveit, Teitur í Skarði, Ámi á
Galtalæk og Jón í Mörk, en auk
Finns höfðu dáið ung systkini þeirra
Guðrún, 18 ára, og Höskuldur,
bóndi á Þorleifsstöðum. Um ofan-
greint hef ég fræðst í hinni merku
Rangvellingabók Valgeirs Sigurðs-
sonar.
Margt manna er frá þeim bræðr-
um komið. í Manntali á íslandi árið
1845 er í Skarði Sigríður nefiid,
tveggja ára dóttir Teits og Ingi-
bjargar konu hans, og Sigmundur,
6 ára, af fyrra hjónabandi Teits. A
Galtalæk búa Ámi og Margrét
Jónsdóttir. Þeirra böm eru Jón (28
ára), Finnbogi eldri (24), Ámi (23),
Valgerður (22), Helga (17), Gunnar
(16), Guðbrandur (14), Finnbogi
yngri (9), Lýður (3) og önnur Val-
gerður Amadóttir, fósturdóttir, 15
ára. Böm Jóns og Guðrúnar Einars-
dóttur í Mörk eru Guðrún (17 ára),
Ragnhildur (15), Finnur (12), Hös-
kuldur (11), Jónas (8) og Jóhann
(6).
Sumir afkomenda Teits, Ama og
Jóns em í Rangárvalla- og Ámes-
sýslum, en annars á víð og dreif
um allar jarðir eins og vænta má.
Frá og með miðri 19. öld gekk á
ýmsu í Landsveit eins og kunnugt
er. Heklugos, gróðureyðing, sand-
fok, íjárkláði og fellir kippti fótun-
um undan mörgum, jarðir fóru í
eyði, fjölskyldur tvístruðust. Þar
sem áður hétu Landskógar, heitir
nú Merkurhraun.
Ymsir niðjar Helgu og Finnboga
á Reynifelli og tengdafólk þeirra
em sagðir ættfróðir. Væri gaman,
ef hver þeirra kæmi nú með skerf
í fullsamið niðjatal. Þótt aðrir telji
sig ekki ættfróða og viti lítið um
flarskylda ættingja, væri fengur að
vitneskju þeirra um nánasta skyld-
fólk, t.d. yngstu ættliðina. Vinsam-
legast komið að máli við undirritað-
an (afkomanda Guðrúnar og Jóns
í Mörk!) eða sendið upplýsingar um
„greinar á ættarmeiðnum". Póst-
föng mín em skv. símaskrá eða:
Pósthólf 3329, 123 Reykjavík.
Mér til fulltingis við niðjatal
„Reynifellsættar" verður góðkunn-
ingi minn Sigurgeir Þorgrímsson,
sem er manna ættfróðastur og vel
læs á brengluð setlög sögunnar.
II. Landskógar
Ættfræðiáhugi er við lýði með
þjóðinni, víst meiri jafnvel en endra-
nær. En annað og meira en ætt-
fræði vakir líka fyrir mér með
ákalli þessu, kæm frændur. Ég er
að safna liði. Ég sting upp á því,
að „Reynifellsætt" taki höndum
saman um náttúruvemd og upp-
græðslu í sveit forfeðranna, þeirra
bræðra Teits, Áma og Jóns. Að
vonum yrði unnið í samvinnu við
þá sem stunda landgræðslu í Land-
sveit: fýrst og fremst heimamenn í
Landmannahreppi og Landgræðslu
ríkisins, Skógrækt ríkisins, Skóg-
ræktarfélag Rangæinga og annað
áhugafólk. En takmarkið er að kalla
megi með réttu um miðja næstu
öld Merkurhraun gamla heitinu
Landskógar.
Bið ég þá af „Reynifellsætt" sem
„Fyrirætlun þessi um
endurreisn Merkur á
Landi er að vísu enn
harla svifléttur loft-
kastali á sveimi kring-
um Heklutind, en
„Reynifellsætt“ er hér
með boðið að taka þátt
í draumnum.“
kynnu að hafa áhuga á þess háttar
skemmtilegu og gagnlegu verkefni
að gefa sig fram. Jafnframt skal
þó tekið fram, að vitanlega eru all-
ir velkomnir að slást í hópinn, þótt
hér sé einkum heitið á niðja fyrr-
nefndra bænda á Landi, bræðranna
þriggja í Skarði, á Galtalæk og í
Mörk.
III. Mörk á Landi
Hugmynd hefur verið uppi að
reisa með tíð og tíma og með góðra
manna hjálp menntasetur í Mörk
á Landi, miðstöð fyrir útivist,
fræðslu og rannsóknir, einkum á
sviði náttúruvísinda, vistfræði og
samskipta manns og náttúru, frá
upphafi til okkar daga. Tillögu þess-
ari var lýst í viðtali, sem Hulda
Valtýsdóttir blaðamaður og for-
maður Skógræktarfélags Islands
Bréf það sem hér birtist fylgdi
upplýsingum sem undirritaður fal-
aðist eftir um Palestínumálið frá
félaginu Ísland-Palestína. Þar sem
mér finnst bréfíð ekki síður eiga
erindi við aðra, fékk ég leyfí bréfrit-
ara, Elísar Davíðssonar, til að at-
huga með birtingu á því. Ritstjóri
Mbl. hefur góðfúslega orðið við
þeirri ósk og kann ég honum þakk-
ir fyrir.
Guðmundur Steinsson
Kæri Guðmundur.
Ég þakka þér fyrir kveðju þína.
Hér með sendi ég þér nokkur gögn
um Palestínumálið.
átti við undirritaðan. Birtist það í
Morgunblaðinu sunnudaginn 17.
apríl 1988, ásamt litmyndum úr
hinni fögru Landsveit og korti því
eftir „GOA“ sem hér er endurbirt
til glöggvunar.
Fyrirætiun þessi um endurreisn
Merkur á Landi er að vísu enn harla
Starf okkar Félagsins Island-
Palestína hefur borið lítilsháttar
árangur. Einnig höfum við beitt
okkur beint við stjómmálamenn og
flölmiðla til þess að veita þessu
máli viðeigandi athygli.
Það virðist því miður hlutskipti
okkar íslendinga að drattast á eftir
öðrum þjóðum í afstöðu okkar til
Palestínumálsins. Meðan fréttir
berast daglega af fundum nor-
rænna stjómmálaleiðtoga við odd-
vita Palestínuþjóðarinnar, heyrist
ekki aukatekið orð af munni ut-
anríkiráðherra vors um þetta mál.
Ég hef hvað eftir annað reynt að
fá áheym hjá honum og hjá flokks-
bræðrum hans, en þeir vilja ekki
við mig tala. Hann virðist fyrirlíta
mig og sýnir mér fádæma ókurteisi
án þess að ég hafí nokkum tíma
gefið honum tilefni til. Ég sakna
samstöðu annarra í þessu máli,
ekki síst þegar áhrifamenn á borð
við hann og við ritstjóra Mbl. og
DV reyna að lítilsvirða mig og
Blomberq
gufugleypar
fyrir hringloftun eða út-
blástur.
Einföld uppsetning.
5 litir.
Verðkr. 8.500.-
Góð greiðslukjör.
Einar Farestvett&Co.hf.
BORQARTÚNI28, SÍM116996.
Leið 4 stoppar vlð dymar
svifléttur loftkastali á sveimi kring-
um Heklutind, en „Reynifellsætt"
er hér með boðið að taka þátt í
draumnum — og veruleikanum þeg-
ar að honum kemur smátt og
smátt! Ræðum málið!
væna mig opinberlega um óheil-
indi, já, um svik um málstað gyð-
inga! Eins og málstaður gyðinga
væri að styðja manndráp og kúgun!
Ég get sagt þér það, Guðmund-
ur, að mér líður mjög illa út af
þessu máli. Stundum sef ég illa.
Og get ekki slitið mig frá þessu
máli, því á hveijum degi skjóta ísra-
elsmenn ekki bara fólk, heldur frið-
arvonina. Þeir sá hatri í þjörtu pal-
estínskra barna, sem verður aldrei
afmáð. Þeir breyta óhörðnuðum
ísraelskum unglinga í ótínda morð-
ingja. ísraelsstjóm er glæpamanna-
stjóm, sem verður fyrr eða síðar
að sæta ábyrgð gerða sinna fyrir
glæpi gegn mannkyninu, eins og
nasistar forðum. Bréfín sem ég fæ
frá vinum mínum í ísrael og í Pal-
estínu em neyðaróp. Þetta er fólk
sem leggur mikla fómir fyrir friðinn
og fyrir réttlætið, bæði ísraelskir
gyðingar og Palestínuarabar . . .
Kærar þakkir og kveðjur,
Elias Daviðsson
Blombem
eldavélar - úrvals
vestur-þýskt merki.
5 gerðir — 5 litir.
Hagstætt verð.
Góð greiðslukjör.
________ ffigL'
Einar Farestvett&Co.hf.
BORQARTÚNI28, SÍM119996.
LeM 4 stoppar vU dyraar
I TAKT VIÐ TIMANN
Viltu skara fram úr á hörðum
vinnumarkaði?
Við bjóðum þér upp á hagnýta
kennslu í viðskipta- og tölvu-
greinum, ásamt því helsta sem
gerir þig að hæfum og dugandi
starfskrafti.
M getur valið um morgun- eftir-
miðdags- eða kvöld tímá, eftir því
sem þér hentar.
Að námskeiðinu loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir.
Innritun og allar nánari upp-
lýsingar færðu í símum 68 75 90
og 68 67 90.
Vió erum
viú símann til
kl. 22 í kvöld.
Gísli Þráinsson
„Námskeiöið reyndist yfirgrips-
meira og hagnýtara, en ég átti von á.
Tölvur voru mér lokaður heimur
áður, en nú nýti ég mér þær á alla
kanta í námi, vinnu og fjármálum.
Hópurinn sem ég var í var sam-
hentur og skemmtilegur og kennar-
arnir hressir og góðir
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
IrrrfVifrýT
Höfundurer veðurfiræðingur.
Bréf um Palestínumál