Morgunblaðið - 17.02.1989, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989
Komdu kaffistofunni á hreint.
Duni kaffibarinn sparar þér bæði
tíma og fyrirhöfn.
Getur staðið á
borði eða hangið
uppá vegg.
En það besta er:
Ekkert uppvask.
FAIMIMIR HF
Bíldshöfða 14 s: 67 2511
Allt
í röð og reglu
- án þess að vaska upp!
Næsta námskeid
hefst 21. febrúar
r Æk. ]
-j
ÞOLAUKANDI OG VAXTAMOTAND! ÆFINGAR
Byrjendur i og II og framhald i
FRAMHALDSFLOKKAR I OG II
Lokaðir flokkar
ROLEGIR TÍMAR
Fyrir eldri konur og þær, sem þurfa að fara varlega
'É
KERFI MEGRUNARFLOKKAR ^ Fjórum sinnum í viku
H
FYRIR UNGAR OG HRESSAR
Teygja:þrek-jazz. Eidfjörugir tímar með léttri jazz-sveiflu
„LOW IMPACK" - STRANGIR TIMAR
Hægar en erfiðar æfingar, ekkert hopp en mikil hreyfing
SKOLAFOLK
Hörku púl og svitatímar
HÍ11 -
kútinn slffii *
ATH!
Nú eru einnig timar
á laugardögum
ít+7
unðii siiotn
Baiu 09 0*
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988
Israel:
Þingmenn ræða
við leiðtoga Pal-
estínumanna
Jerúsalem. Reuter.
Yossi Beilin, aðstoðarQármálaráðherra ísraels og helsti ráðgjaS
Shimons Peres, Qármálaráðherra, og nokkrir þingmenn Verka-
mannaflokksins áttu fund með leiðtogum Palestínumanna á Vestur-
bakkanum í Jerúsalem á miðvikudag. ísraelskir þingmenn og leið-
togar Palestínumanna, hliðhollir Frelsissamtökum Palestínumanna
(PLO), hafa hist alls þrisvar sinnum á laun á þessu ári. Á þriðjudag
ræddu þeir samskipti Palestínumanna og ísraela á hóteli í miðborg
Jerúsalem og töldu þeir víst að um fleiri fúndi yrði að ræða.
Faisal al-Husseini, einn helsti
fylgismaður PLO á herteknu svæð-
unum sem var látinn laus úr fang-
elsi í ísrael fyrir tveimur vikum
eftir 18 mánaða varðhald án réttar-
halda, var einn af sjö Palestínu-
mönnum sem tóku þátt í viðræðun-
um. „Við ræddum almennt um
ástandið á herteknu svæðunum en
komumst ekki að neinu samkomu-
lagi,“ sagði Husseini. Hann sagðist
ennfremur trúa því að leiðtogar
PLO væru hlynntir viðræðum hans
við þingmenn Verkamannaflokksin.
Helsti ráðgjafi Yitzhaks Shamirs
sagði hins vegar í gær að fundimir
væru með öllu tilgangslausir.
Flokksbræður Yitzhaks Shamirs
forsætisráðherra úr Líkúd-flokkn-
um gagnrýndu þingmenn Verka-
mannaflokksins harðlega fyrir að
eiga fundi með Palestínumönnum.
„Þessir menn eru algjörlega valda-
lausir. . .Við vitum ekki hver þessi
Faisal Husseini er sem þingmenn
og aðrir biðla til í skjóli nætur,"
sagði Yossi Ahimeir, skrifstofustjóri
Yitzhaks Shamirs forsætisráðherra.
„Ég er viss um að í náinni framtíð
verða fundir ísraelskra stjómmála-
manna og leiðtoga Palestínumanna
frá Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu, sem hliðhollir eru PLO-
samtökunum, tíðari og yfirgrips-
meiri,“ sagði Yair Tsaban, þing-
maður vinstriflokksins Mapam.
Ríkisstjóm ísraels hefur bannað
öll samskipti við PLO en leitast við
að koma á sambandi við leiðtoga
Palestínumanna á herteknu svæð-
unum.
Ariel Sharon, viðskipta- og iðn-
aðarráðherra ísraels, sagði á þing-
inu á þriðjudag að komnir væru
siðferðislegir brestir í ísraelsku
þjóðina og að hún horfði þegjandi
á, þegar verið væri að stofna sjálf-
stætt ríki Palestínumanna.
Andrei Sakharov í Kanada:
Bíður útnefiiingar
vísindaakademíunnar
Winnipeg. Reuter.
SOVÉSKI mannréttíndafrömuð-
urinn Andrei Sakharov sagði í
fyrradag, að hanu ætlaði því
aðeins að bjóða sig fram í kosn-
ingunum í Sovétríkjunum í mars,
að sovéska vísindaakademían út-
nefiidi hann.
Sakharov, sem nú er staddur í
Kanada, sagði, að vísindaakadem-
ían ætlaði að halda sérstakan fund
í mars til að ræða betur ákvörðun-
ina frá 18. janúar um að Sakharov
yrði ekki einn af 25 mönnum, sem
akademían hefur rétt til á sovéska
fulltrúaþinginu. Olli þessi afstaða
mikilli óánægju meðal vísinda- og
menntamanna en kjósendur í
Moskvu og nokkrum öðrum kjör-
dæmum vildu þá fá Sakharov sem
sinn frambjóðanda.
Sakharov kvaðst hins vegar vera
búinn að gera upp hug sinn og
væri ákveðinn í að fara ekki í fram-
boð nema útnefningin kæmi frá
vísindaakademíunni.
Sakharov og Jelena, kona hans,
Reuter
í Kanadaferðinni tók Sakharov
meðal annars við heiðursdokt-
orstitli við háskólann í Ottawa.
voru í gær í Winnipeg þar sem
hann tók þátt í umræðum og veitti
viðtöku einnar milljón króna viður-
kenningu fyrir störf að mannúðar-
og mannréttindamálum.
Kosningarnar á Sri Lanka:
Premadasa ber hæni hlut
Colombo. Reuter.
Sameinaði þjóðarflokkurinn og Ranasunghe Premadasa forseti nnnn
öruggan sigur í þingkosningum, sem fram fóru á Sri Lanka á miðviku-
dag, þeim blóðugustu, sem um getur í landinu. Bar hann hærri hlut i
110 kjördæmum af 225 og fékk að auki 15 landskjörna þingmenn.
Að minnsta kosti 400 manns voru
drepnir meðan á kosningabaráttunni
stóð og þar af 40 á kjördegi. Premad-
asa forseti, sem hefur heitið því að
koma á röð og regiu í landinu, hvatti
í gær til þjóðarsáttar og sagði, að
landsmenn hefðu sýnt það í kosning-
unum, að þeir væru andhverfír öllu
ofbeldi. Helsti stjómarandstöðu-
flokkurinn, Frelsisflokkur Sri Lanka
undir forystu Siríma Bandaranaike,
fyrrum forsætisráðherra, fékk 67
þingsæti alls.
Preamadasa sagði í kosningabar-
áttunni, að hann vildi efna til við-
ræðna við tamfla á norðausturhluta
eyjarinnar og liðsmenn Frelsisfylk-
ingar alþýðu en þeir hafa aðallega
látið að sér kveða í suðurhluta lands-
ins. Stefna þeir að þvi að koma á
kommúnisma á Sri Lanka og eru
taldir bera meginábyrgð á mann-
drápunum að undanfömu. Hafa fáir
mikla trú á, að viðræður við þá eða
tamflska aðskilnaðarsinna geti boríð
árangur.