Morgunblaðið - 17.02.1989, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐÍÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989
Hryðjuverkið yfír Lockerbie:
Sprengjan var falin
inni í útvarpstæki
Lockerbie, Montreal. Reuter.
SPRENGJAN, sem sprakk um borð í Jumbo-þotu frá Pan American-
flugfélaginu yfir Skotlandi i desember, var falin inni í sambyggðu
útvarps- og segulbandstæki. Skýrði breska lögreglan frá þessu í
gær en með vélinni fórust 270 manns. Þátttakendur í ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna i Montreal um flugöryggi voru sammála um
að auka eftirlit í flughöfnum um allan heim.
15 manns farast í gassprengingu
Reuter
FIMMTÁN manns að minnsta kosti létust þegar
mikil sprenging varð í fimm hæða háu húsi i
gamla bænum i Toulon i Frakklandi í fyrra-
kvöld. 36 manns slösuðust og i gærmorgun voru
enn fimm manneskjur innilokaðar i rústunum.
Augljóst þykir, að gasleki hafi valdið sprenging-
unni. Húsið, sem var tveggja alda gamalt, hrundi
til grunna í sprengingunni og svo öflug var
hún, að vegfarendur á nálægum götum ruku
um koll og gluggarúður brotnuðu vítt um kring.
Selveiðideilan:
Heitt í kolunum milli
Svía og Norðmanna
Kaupmannahftfri. Frá NJ. Bruun, fréttaritara Morgiublaftsins.
DEILAN um selveiðar Norðmanna hefúr nú snúist upp í eins konar
strið á milli þeirra og Svia eftir að Svíakonungur sá ástæðu til að
hnýta í Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs. í Sviþjóð
hafa sumir krafist þess, að fólk sniðgangi allt, sem norskt er, hverju
nafni sem nefiiist, og norska sendiráðinu og ræðismannsskrifstof-
unni í Stokkhólmi hafa borist margar hótanir. Kunnir dýralæknar
hafa hins vegar lýst yfir, að selir drepist strax við fyrsta högg á
hnakkann og þvi sé harla óliklegt, að nokkur sé fieginn lifandi.
Sænskir stjómmálamenn og þeir,
sem vita hvað Svíkonungur má láta
út úr sér opinberlega, eru nú önnum
kafnir við að gera sem minnst úr
yfirlýsingum Karls Gústafs XVI um
selveiðamar og Brundtland, forsæt-
isráðherra Noregs. Haft er eftir
stjórhlagafræðingi, að vissulega
hafi konungurinn gengið of langt
og Sten Anderson, utanríkisráð-
herra Svía, segir, að yfirlýsingar
hans hátignar hafi verið ákaflega
heimskulegar. Þær hafa hins vegar
orðið til að vekja enn meiri athygli
á selveiðideilunni en ella.
Brundtland sagði í gær á norska
þinginu, að nýskipuð rannsóknar-
nefnd myndi skoða selveiðimyndina,
kanna allar skýrslur selveiðieftir-
litsmanna frá 1982 og segja síðan
sitt álit á því hvort reglumar hefðu
verið brotnar. Bjame Mörk Eidem
sjávarútvegsráðherra tók einnig til
máls og vísaði því á bug, að hann
bæri einhveija ábyrgð á uppákom-
unni.
, Seiir eru rotaðir eins og það er
kallað eða drepnir þannig, að þeir
eru slegnir í hnakkann með sljórri
kylfu, og er það nú haft eftir kunn-
um dýralæknum, að þeir drepist
strax við fyrsta högg. Af myndinni
er ekki hægt að ráða hvort selimir
eru lífs eða liðnir en vegna þess,
að það er flengst með þá eftir ísnum
getur áhorfandinn ímyndað sér, að
eitthvert lífsmark leynist með þeim.
Stærsta blað á Norðurlöndum,
Expressen í Svíþjóð, hefur hafið
undirskriftasöfnun og hvetur les-
endur til að senda norska forsætis-
ráðherranum bréf og krefjast þess,
að selveiðunum verði hætt. í mörg-
um sænskum blöðum hefur þess
einnig verið krafist, að Brundtland
John Orr, sem stýrði rannsókn
á flugslysinu í Lockerbie, sagði, að
sprengjan hefði líklega komið um
borð í Frankfurt en þaðan var ferð-
inni heitið til New York með við-
komu í London. Um hefði verið að
ræða svokallað plastsprengiefni og
hefði rannsóknin leitt í ljós, að
sprengjan hefði verið inni í sam-
byggðu útvarps- og segulbands-
tæki.
ísraelskur embættismaður sagði
á þriðjudag, að vestrænar leyni-
þjónustur væru þegar vissar um,
að Alþýðufylkingin fyrir frelsun
Palestínu undir forystu Ahmeds
Jibrils hefði staðið að ódæðinu og
haft um það samvinnu við írönsk
segj af sér og aðrir heimta, að allt,
sem norskt er, verði sniðgengið,
listir, menning, íþróttir, ferðalög,
bensín og margt fleira. Bamabóka-
höfundurinn Astrid Lindgren hefur
komið sinni eigin áskorun á fram-
færi við Brundtland og síðustu daga
hafa norska sendiherranum, ræðis-
manninum og útsölustöðum norska
ríkisolíufélagsins Statoil borist
margar hótanir.
Rannsóknamefndin hefur erfitt
verk með höndum því eins og fyrr
segir upplýsir myndin ekkert um
það hvort selimir eru lifandi eða
dauðir. Höfundur hennar, Odd
Lindberg, segist nefnilega ekki ætla
að birta nein fleiri gögn fyrr en
norska sjávarútvegsráðuneytið biðj-
ist opinberlega afsökunar á því að
hafa ekki tekið mark á skýrslunni
hans á sínum tíma.
öfgasamtök, sem nú tækju þátt í
valdabaráttunni þar.
Á ráðstefnu, sem Sameinuðu
þjóðimar héldu í Montreal um flug-
öryggi, vom þátttakendur sammála
um að efla eftirlit í flughöfnöm í
því skyni að koma í veg fyrir
hiyðjuverk. Paul Channon, sam-
gönguráðherra Bretlands, sagði á
ráðstefnunni þegar fréttir höfðu
borist um rannsóknina á Lockerbie-
slysinu, að hugsanlegt væri meðal
annars að banna farþegum að hafa
útvörp og önnur slík tæki með sér
um borð í flugvélar.
Fimmtug kona
áformar að
hlaupa eftir
endilöngum
Kína-múmum
Houston, Texas. Reuter.
FYRRIJM fegurðardrottn-
ing frá Arkansas, Sally M.
Purdue, hefúr talið
kínversk stjórnvöld á að
leyfa sér að hlaupa eftir
endilöngum Kínamúmum.
Purdue, sem er fímmtug að
aldri, vonast til, að þetta 2500
kílómetra langa hlaup sitt
verði kínverskum og banda-
rískum konum á öllum aldri
hvatning til dáða. „Það gleddi
mig sannarlega, ef hlaupið
yrði til að auka tiltrú fólks á
sjálft sig, á hvaða aldri sem
það er,“ sagði hún „Og þá hef
ég ekki síst í huga konur á
mínu reki. Ég undrast það,
hversu margir í hópi jafnaldra
minna sætta sig við, að lífið
sé sama sem búið og tilgangs-
laust sé að eiga sér drauma
eða stefna að einhveiju
marki.“
Purdue ætlar að fara 40
kílómetra á dag og verður tvo
og hálfan mánuð á leiðinni.
Hún leggur af stað 27. ágúst.
Færeyjar:
Niðurskurður
á flárlögunum
Kaupmannahöfri. Frá Níls Jftrgen Bruun,
fréttaritara Morgunbladsins.
STEFNT er að umtalsverðum
sparnaði í færeysku fiárlögunum
fyrir þetta ár, að því er fram kem-
ur í Qárlagafrumvarpi þvf, sem
landstjórnin hefúr lagt fyrir lög-
þingið.
Samkvæmt frumvarpinu á niður-
skurður útgjalda að nema 104 millj-
ónum danskra króna (um 730 millj.
ísl. kr.). Miðað við fjárlagafrum-
varpið, sem áður hafði verið lagt
fram, reiknar landstjómin einnig
með, að landssjóður fái 95 millj. d.
kr. tekjuauka. Þó er ékki ætlunin
að hækka skatta.
Tekjur og gjöld samkvæmt §ár-
lagafrumvarpinu eru 3,1 milljarður
d. kr. (um 21 milljarður ísl. kr.).
Markmiðið með niðurskurðinum og
áætluðum tekjuauka, alls um 200
millj. d. kr. (1400 millj. ísl. kr.), er
að takmarka vöxt opinberra út-
gjalda, bæta greiðslustöðu landssjóðs
og treysta efnahagslífíð.
Reuter
Kyndugur dauðdagi
Ixigreglumaður f New York virðir fyrir sér fætur innbrotsþjófs
sem týndi lífi þegar hann reyndi að bijóta sér leið inn á veitinga-
stað í borginni. Ekki vildi betur til en að innbrotsþjófúrinn festist
f loftræstikerfinu og kafiiaði. Eigandi veitingahússins var að
vonum skelfingu lostinn þegar hann sá fætur stigamannsins hanga
neðan úr loftopinu þegar hann kom til vinnu næsta dag.
Grænlendingar bjóða
EB 4.000 tonna kvóta
fyrir 57 milljónir króna
Lagt til aö tilboðinu verði tekið
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fr
Grænlendingar hafa boðið
Evrópubandalaginu (EB) 4.000
tonna aukakvóta á þorski í ár
umfram þau 12.000 tonn, sem
samningar eru um milli þeirra
og EB. Framkvæmdastjórn EB
leggur til við sjávarútvegsráð-
herra bandalagsþjóðanna, að
þeir samþykki tilboðið.
Þrátt fyrir samninga EB og
Grænlendinga um að skip frá
bandalagsríkjunum megi árlega
veiða allt að 12.000 tonnum af
þorski í grænlenskri lögsögu, hefur
grænlenska landsstjómin ekki
heimilað svo miklar veiðar til þessa.
í fyrra fékk EB aðeins 4.000 tonna
þorskkvóta í sinn hlut, sem að vísu
var hækkaður í 7.000 tonn sl. haust.
uritara Morgunblaðsins.
í ár ætla Grænlendingar að heim-
ila EB-skipum að veiða allt að
16.000 tonn af þorski, ef samningar
takast um 4.000 tonna aukakvót-
ann. Fyrir hann vilja Grænlending-
ar fá eina milljón ECU (þ.e. evróp-
skar mynteiningar) sem er jafnvirði
57 milljóna ísl. króna. Vegna fisk-
veiðisamningsins í heild greiðir EB
Grænlendingum á ári 26,5 milljónir
ECU, þ.e. 1.510 milljónir ísl. kr..
Búist er við því, að sjávarútvegs-
ráðherramir verði ekki á einu máli
um að greiða það verð, sem Græn-
lendingar hafa sett upp fyrir 4.000
tonnin, þ.e. rúmlega 14 krónur á
kílóið af óséðum þorski í sjó. Við-
miðunarverð á þorski í ár er um
70 kr. kílóið á EB-mörkuðum.