Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989
39
Þessir hringdu ..
Þakklæti
Júlíana Þorfínnsdóttir vill koma
á framfæri kveðju og þakklæti til
læknanna Hannesar Finnboga-
sonar, Bjama Þjóðleifssonar og
Hallgrims Guðjónssonar á Land-
spítalanum fyrir góða læknis-
þjónustu. Ennfremur til hjúk-
runarfólks á deild 11A og 13D.
Spurning til sjónvarpsins
H.Þ. hríngdi:
Hveiju þjónar það, þegar sýnt
er áhugavert talað orð í sjón-
varpi, að um leið er spiluð hávaða
músík svo áhrif talaðs orðs fá
ekki notið sín. Hver ber ábyrgð á
þessu og hvenær getum við áhorf-
endur sjónvarpsins átt von á að
þessu linni?
Snjóskófla
Kona hringdi:
Mig langar til að biðja þann sem
var svo hirðusamur að taka til
handargagns stóra snjóskóflu,
hvort hann vildi ekki vera svo
elskulegur að skila henni á homið
á Urðarstekk og Hamarstekk.
Fyrirspurn
6350-7148:
Þegar versta veðrið gekk yfír,
hvað varð þá um kindumar sem
voru settar út í Vestmannaeyjum?
Ég vænti þess að fá svar.
Tapað - fundið
Kona hringdi og sagðist hafa
tapað blárri nælontösku, þegar
hún var að koma frá London 6.
febrúar. Töskuna lagði hún frá
sér á bekk þegar hún kom út úr
tollinum á Keflavíkurflugvelli og
gleymdi henni þar. í töskunni var
heimatilbúið sælgæti, skartgripir
og sjal. Skilvís fínnandi vinsam-
legast hringi í síma 43575.
Afsláttarkort
Afsláttarkort í rútuna frá Guð-
mundi Jónassyni upp'í Bláfjöll
tapaðist. Á kortinu er nafn eigan-
dans, Kjartans og skíðafélagsins
Ármanns. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 73365.
Sjónvarpsvísir
Linda Karlsdóttir hringdi:
Ég vil taka undir með mannin-
um sem skrifaði um Sjónvarpsví-
sinn í Velvakanda. Ég hef ekki
fengið hann í tvo mánuði og þeg-
ar ég fæ hann kemur hann oft
ekki fyrr en um miðjan mánuðinn.
Ég vil fá hann, en hann kemur
að litlu gagni þegar hann berst
svona seint.
Gullhringur
Gullhringur með svartri plötu
tapaðist mánudaginn 6. febrúar.
Þeir staðir sem koma til greina
að hringurinn hafí týnst á eru
utan við Kringluna, göngugatan
í Kringlunni, fyrir utan eða inni
í versluninni Hagkaup, Skeifunni.
Finnandi hringi í síma 30984.
Fundarlaun.
Úrtapaðist
Tíu ára drengur tapaði úrinu
sínu í leikfimi í Miðbæjarskóla 24.
janúar. Skilvís fínnandi vinsam-
legast hringi í síma 12607.
Nytjadýr ekki bara augnayndi
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrlga vilja hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum veQa lýð og láð.
(Jónas Hallgrímsson.)
Vísindarannsóknir eru líka nauð-
synlegar á lífríki hafsins. Skáldinu
hefði fundist nauðsynlegra fyrir
umhverfísvemdarfólkið í Vestur-
Þýskalandi, að láta líta eftir skóg-
unum þar í landi, en banna fólki
að kaupa hreinustu sjávarafurðir í
heimi, og lofa mönnum að veiða
lífsnauðsynjamar úr sjónum.
Vísindin geta best jafnað fæðuöfl-
unina, bæði fyrir menn og dýr.
Nytjadýrin eiga ekki bara að
vera augnayndi fyrir fólk í dýra-
görðum stórborganna. Útflutningur
okkar á sjávarafurðum er ekki
meiri en það, að við getum selt
aflann okkar allan til stórþjóða, sem
skilja það að fólkið þarf það mikið
til lífsviðurværis, að það verður að
fá að borða nytjafiskana ekki síður
en landbúnaðarafurðimar.
Á dögum Jónasar Hallgrímsson-
ar lofaði fólkið guð ef hval rak á
land. Þá stóð hungurvofa í hverri
gátt á útmánuðum. Einokunarversl-
unin frá 1602 hafði verið versta
plága landsmanna. Verslun hafði
verið gefín frjáls nokkm áður og
breytingamar ekki famar að njóta
sín. Nú á dögum er hungrið í heim-
inum aldrei meira og er það mest
og best hungurhagfræði marx-
lenín-stalínismans að kenna, en
umhverfísvemdarfólkið vill ekki sjá
þetta, þó Gorbatstjov sé alltaf að
sýna heiminum fram á það að marx-
isminn sé ómögulegur í fram-
kvæmd. Eins og gamlir kommúnist-
ar segja núna: „Það er ekkert í
marxismanum sem ekki þarf að
breyta.“
Þrátt fyrir þessa reynslu getur
KGB látið fólk undir öllum mögu-
legum nöfnum vinna fyrir sig til
skaða og vandræða í lýðræðisríkj-
unum.
Eg vil ráðleggja þessu fólki, sem
vill dýrunum allt hið besta, að fara
til Inci'ands og sjá með eigin aug-
um, hvemig trúin á heilögu dýrin
þar fer með fólkið. í því landi sér
maður fyrst og fremst betlarana. í
Indlandi getur maður séð fallegasta
hús í heimi, Taj-Mahal, en eftir að
hafa séð það þá færi ég ekki til
Indlands hvað sem í boði væri.
Húsmóðir
fl
I
h
Vidtalstími borgarfulltrúa
'% Sj&lfstæðisflokksius i Reykjavik '%
Borgarfulitrúar Sjálfstæðisflokksins verða
til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laug-
ardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar eru velkomnir.
Laugardaginn 18. febrúar verða til viðtals Hilmar Guðlaugsson, formaður bygg-
inganefndar Reykjavíkur og varaformaður stjórnar verkamannabústaða, og
Þórunn Gestsdóttir, formaður jafnréttisnefndar, varaformaðurferðamálanefndar
og umhverfismálaráðs.
Á morgun verðum við loks búin að þreyja
þorrann og þá kemur góan. Við í Veitingahöll-
inni tökum forskot á sæluna og bjóðum í kvöld-
verð í kvöld og í hádegis- og kvöldverð á
morgun girnilegt og gómsætt góuhlaðborð
fyriraðeins
Og nú er bara að hrista af sér þorradrungann v
og koma í sólskinsskapi í Veitingahöllina og
borða eins og menn geta í sig látið af þessum
kræsingum.
GÓUVEISLIIBORDID
Fískréttir:
k Graflax meö sinnepssósu
'k Skelfisksalat meóglóóuöu brauói
n Heitir sjávarréttir í brauökollum
k Fiskipaella
Kjötféitir:
★ Roast beefmeö remúlaöi ogsteiktum lauk
k Fylltar skinkurúllur meö kartöfiusalati
★ Saxaö nautabujf meö camembertosti
ogrifsberjasultu
k Grísarif meö hrísgrjónum oghvítlauksbrauöi
k Villibráöarkryddaöurpottréttur meö hrásalati
k Ofnsteiktfiylltgrísarúlla meö sykurbrúnuöum
kartöflum, rauökáli og rauövínssósu
X Blandaöur súrmatur í trogi meö rófustöppu
VEITINGAHÖLLIN ER MATARHÖLL FJÖLSKYLDUNNAR
HÚSIVERSLUNARINNAR - SÍMAR 33272 - 685018