Morgunblaðið - 17.02.1989, Page 41

Morgunblaðið - 17.02.1989, Page 41
MORGUNBLAÐH) ÍÞRÓTTIR PÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 (>fc 41 KORFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN Bikarkeppnin: KRmætir Njarðvfk ÍR gegn B-liði Njarð- víkurí undanúrsíitum Liðin sem léku til úrslita í bikarkeppni KKÍ í fyrra, KR og Njarðvik, mætast í und- anúrslitum bikarkeppninnar í næstu viku. Fyrri leikurinn fer fram i íþróttahúsi Hagaskólans þriðjudaginn 21. febrúar en sá síðari í Njarðvík, tveimur dögum síðar. Njarðvíkingar sigruðu KR- inga í úrslitaleiknum í fyrra, 104:103. Fyrri leikur ÍR og UMFN b verður í Njarðvík á þriðjudaginn og sá síðari í Seljaskólanum á fimmtudaginn. í bikarkeppni kvenna mætast annars vegar Haukar og ÍR og hins vegar ÍBK og UMF?J. Ekki hefur verið ákveðið hvenær þessir leikir verða. ÍBK sigraði Hauka f úrsiita- leik bikarkeppni kvenna f fyrra, 76:00. Tindastóll sigraði en KR í undanúrslit ÞRJÚ hundruð áhorfendur sáu besta og skemmtilegasta leikr sem fram hefur farið á Sauðár- króki í vetur, er Tindastólf sigr- aði KR með 10 stiga mun í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í gœrkvöldi. KR sigraði hins veg- ar í fyrri leik liðanna með 13 stiga mun og heldur því áfram í undanúrslit, en Tindastóll er úr leik. Lokatölur urðu 91:81, en í hálfleik höfðu heimamenn sjö stiga forystu, 43:36. Leikurinn var æsispennandi og jafnvel hættulegur „pumpunni" í sumum. Spennan náði hámarki ér mínúta var til leiksloka, heima- menn 10 stigum yfir. Þá brugðu KR-ingar á það ráð að leika langar sóknir, heimamenn léku maður á mann, en yfirvegaður leikur gestanna tryggði þeim sæti í undanúrslitum. Frá Bimi Bjömssyni á Sauöárkróki ISLANDSMOTIÐ Spenna á Akureyri Dýrmæt stig til Grindvíkinga Grindvíkingar nældu sér í tvö dýrmæt stig á Akureyri er þeir unnu Þór í gærkvöldi, 97:89. Grindvíkingar fóru vel af stað og höfðu náð 20 stiga Reynir forskoti um miðjan Einksson fyrri hálfleik og virt- sknfarfrá ist allt stefna í stór- sigur þeirra. En Þórsarar neituðu að gefast upp og með Konráð Óskarsson í broddi fylkingar söxuðu þeir á forskot Grindvíkinga og náðu að minnka muninn í þijú stig, 79:82, þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Þórsara vantaði herslumuninn og Grindvíkingar juku forskot sitt og sigruðu. Konráð Óskarsson var hreint óstöðvandi f sfðari hálfleik og gerði þá 27 stig. Guðmundur Bragason átti mjög góðan leik fyrir Grindvík- inga og gerði 31 stig. Auðvett hjá Valsmönnum Valsmenn unnu fyrirhafnarlítinn sigur á Stúdentum í gær- kvöldi, 64:78. Leikurinn var af- spymuslakur og engu likara en að leikmenn væru að spila körfuknattleik í fyrsta sinn. Hittni var lítil sem engin og Valsmenn, sem berjast um sæti í úrslitakeppninni, fóru niður á saman plan og Stúdent- ar og þá er ekki von á góðu. Hörður Magnússon skrífar HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA Allt eftir bókinni FH sigraði nágranna sína úr Haukum nœsta auðveldlega er liðin mœttust á miðvikudag. Leikurinn endaði 25:16, eftir að FH hafði leitt í leikhlói 11:8. í Digranesi lák Fram við Stjörn- una og fór með sigur af hólmi ídaufum leik, 14:12. Staðan í leikhléi var 9:5 fyrir Fram. Haukastúlkur byijuðu leikinn gegn erkifjendunum úr FH af krafti og höfðu yfirhöndina framan af. Þær náðu þriggja marka for- skoti um miðjan Katrín fyrri hálfleik, en þá Fríöríksen kom góður leikkafli sknfar hjá FH og þær skor- uðu fimm mörk í röð án þess að Haukar næðu að svara fyrir. FH leiddi í leikhléi, 11:8. Haukar skomðu fyrsta markið eftir hlé og minnkuðu muninn í tvö mörk, en síðan var sera allur vindur væri úr þeim og FH-stúlkurnar tóku leikinn í sínar hendur. Á skömmum tíma breyttist staðan úr 14:10 í 21:10 og munaði þar mest um hrað- aupphlaup FH. Sóknir Hauka voru á þessum tíma ráðleysislegar, enda var aðalskytta þeirra Margrét The- ódórsdóttir í strangri gæslu. Leikn- um lauk sem fyrr segir með stór- jsigri FH, 26:15. Mörk FH: Rut Baldursdóttir 8/3, Arndís Ara- dóttir 4/1, Inga Einarsdóttir og Eva Baldura- dóttir 3, Heiða Einarsdóttir, Kristín Péturs- dóttir, Heiða Einaredóttir og Björg Gilsdóttir 2, Berglind og María Sigurðardóttir eitt mark hvor. Mörk Hauka: Margrét Theódóredóttir 6/2, Elva Guðmundsdóttir 4, Þórunn Sigurðardótt- ir og Hrafnhildur Pálsdóttir 2 og Steinunn Þoreteinsdóttir eitt mark. Naumt hjá Fram Leikur Stjömunnar og Fram var fremur tilþrifalítill. Fram byijaði betur, leiddi allan fyrri hálfleik, og varyfir í leikhléi 9:5. Síðari hálfleik- ur var jafnari. Stjömustúlkumar breyttu um vamartaktík og náðu að breyta stöðunni úr 7:12 í 11:12, en herslumuninn vantaði og Fram- liðið seig aftur fram úr og sigraði 14:12. Framliðið spilaði sterka vöm sem hinar ungu Stjömustúlkur komust lítt áleiðis gegn og Kolbrún Jóhannsdóttir var góð í markinu. Reyndar var þetta leikur hinna sterku varna eins og markatalan segir til um. Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdóttir 6/2, Helga Sigmundsdóttir og Ingibjöm Andrés- dóttir 2, Ragnheiður Stephensen, Guðný Gunn- steinsdóttir og Herdís Sigurbergsdóttir eitt mark hver. Mörk Fram: Guðrfður Guðjónsdóttir 5/3, ósk Víðisdóttir 8, Ama Steinsen 2, Ingunn Bemót- usdóttir, Sigrún Blomsterberg, Hafdís Guð- jónsdóttir og Margrét Blöndal eitt mark hver. Valur Inglmundarson gerði 37 stig fyrir Sauðkrækinga. Það var þó ekki nóg til að komast áfram. Þór—UMFG 89 : 97 íþróttahöllin á Akureyri, íslandsmótið í körfuknattleik, fimmtudaginn 16, febrúar 1989. Gangur leiksins: 8:10, 16:32, 27:47, 45:58, 56:74, 69:77, 79:82, 89:97. Stig Þórs: Konráð Óskarsson 33, Eiríkur Sigurðsson 17, Kristján Rafns- son 16, Guðmundur Bjömsson 14, Bjöm Sveinsson 5, Jóhann Sigurðsson 2 og Einar Karlsson 2. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 31, Steinþór Helgason 22, Jón Páll Har- aldsson 14, Hjálmar Hallgrimsson 13, Rúnar Ámason 10, Óli Þór Jóhannsson 3, Eyjólfur Guðlaugsson 2 og Svein- bjöm Sigurðsson 2. Dómarar: Sigurður Valur Halldórsson og Leifur Garðareon. Dæmdu ágæt- lega. Ahorfendur: 67. Guðmundur Bragason UMFG Konráð Óskarsson Þór. Steinþór Helgason, UMFG. Prufu-hitamælar 50 til + 1000 C í einu tæki meö elektrón- ísku verki og Digital sýn- ingu. SfloMmcg)(ui(f’ cJk&0Tjæ®c5)irö VESTURGOTU 16 - SÍMAR 146S0 - 21480 Fyrstú fimm mínútumar var jafnræði með liðunum og þau skipt- ust á að hafa forystuna. Um miðjan fyrri hálfleik tóku heimamenn frumkvæðið í sínar hendur og náðu mest 10 stiga forystu, en KR-ingar léku af harðfylgni og náðu að minnka muninn fyrir hlé. Bæði lið mættu mjög ákveðin til leiks eftir hlé og eftir skamman tíma var munurinn aðeins eitt stig, 67:66. Á þessum tíma var Jóhannes Kristbjömsson mjög atkvæðamikill hjá KR, en hann skoraði 25 stig og þar af 21 í seinni hálfleik. Eftir þetta var allt í jámum, en þegar þijár mínútur voru til leiksloka komst KR þremur stigum yfir. En heimamenn sýndu mjög góðan leik það sem eftir var og fögnuðu góðum sigri — góður fyrirboði fyrir æfinga- leikinn gegn landsliðinu í kvöld á sama stað. Valur Ingimundarson var yfir- burðarmaður á vellinum og Kári Marísson lék sinn besta leik í vet- ur. Eyjólfur Sverrisson og Haraldur Leifsson voru einnig góðir hjá heimamönnum. Jóhannes Kristbjömsson var frá- bær í seinni hálfleik og Guðni Guðnason og Birgir Mikaelsson áttu ágæta spretti hjá KR. Stig UMFT: Valur Ingimundareon 37, Eyjólf- ur Sverrisson 20, Sverrir Sverrisson 10, Har- aldur Leifsson 8, Kári Marisson 7, Bjöm Sig- tryggsson 7, Ágúst Kárason 2. Stig KR: Jóhannes Kristbjömsson 25, Guðni Guðnason 15, Birgir Mikaelsson 14, ívar Webster 13, ólafur Guðmundsson 10, Hörður G. Gunnarsson 4, Matthías Einarsson 3, Böðvar Guðjónsson 2. IS—Valur 64 : 78 íþróttahús Kennaraháskólans, íslands- mótið í körfuknattleik, fimmtudaginn 16. febrúar 1989. Gangur leiksins: 1:2, 5:10, 9:19, 14:24, 18:32, 30:34, 32:40, 32:44, 40:50, 48:53, 48:61, 52:68, 57:70, 62:74, 64:78. Stíg ÍS: Guðmundur Jóhannsson 18, Jón Júlíusson 12, Kristján Oddsson 10, Valdimar Guðlaugsson 10, Bjami Hjarðar 8, Heimir Jónasson 3, Gísli Pálsson 2 og Sólmundur Jónsson 1. Stíg Vals: Tómas Holton 23, Hreinn Þorkelsson 15, Bárður Eyþórsson 12, Ragnar Jónsson 10, Matthías Matthías- son 9, Amór Guðmundsson 4, Ari Gunnarsson 3 og Bjöm Zoega 2. Dómarar: Jón Otti ólafsson og Krist- inn Albertsson. Voru bestu menn vall- arins. Áhorfendur: 3. Morgunblaðið/Rúnar Antonssoo Bojan Tanavskl, júgóslavneski leikmaðurinn sem leikur með Þór í sumar, er kominn til "Akureyi*ar og byijaður að æfa með liðinu. ÍÞRÚmR FOLK I ÞORSTEINN Gunnarsson, markvörður ÍBV, er á förum til Svíþjóðar í nám í fjölmiðlafræði. Hann var í Gautaborg um helgina og æfði þá með Hácken sem Ágúst Már Jónsson og Gunnar Gislason leika með. Forráðamenn Hficken sýndu áhuga á að útvega Þorsteini samning hjá liðinu eða öðru liði í Gautaborg. Þorsteinn fer utan { lok mars. ■ MILAN Djuricic, Júgóslav- inn sem þjálfar knattspymulið Þórs í 1. deild í sumar, er kominn aftur til íslands og fór til Akur- eyrar á mánudaginn. Djuricic kom fyrst til Akureyrar í byijun nóvem- ber og lagði þá línumar fyrir leik- menn og skrifaði formlega undir samning við Þór. Hann er nú al- kominn og stjómar æfingum hjá félaginu. ■ BOJAN Tanavski, júgóslav- neski knattspymumaðurinn sem leikur með Þór í sumar, er byrjaður að æfa með liðinu. Hann hefur ver- ið fyrir norðan í viku og líkar vel. Tanavski er 23 ára framheiji og hefur leikið með unglingalandsliði Júgóslava. Hann lék með 1. deild- arliði Olympia í Ljubljana á síðasta keppnistímabili. ■ PÓLVERJINN Lubanski verður aðalþjálfari á knattspymun- ámskeiði sem islenskum knatt- spymumönnum á aldrinum fjórtán til tuttugu ára stendur til boða að taka þátt í - í Lokeren í Belgiu 29. apríl til 7 maí. Samvinnuferð- ir/Landsýn bjóða upp á þetta nám- skeið og fjöldi þátttakenda frá ís- landi takmarkað við tólf til fimmt- án. Einnig gefst.þjálfuram tæki- færi að auka við þekkingu sína í tengslun við skólann. Apallo hártoppar Nýjar festingar Tilkynningaránýjum festingumá Apallo hártoppana, senda fram- leiðendur fulltrúa ogmodel (þannsem erá myndunum) til að kynna þessar nýjungar, dagana 23.-26. febrúar. HARSNYRTISTOFAN GREIFIM HRINGBRAUT 119 «22077 V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.