Morgunblaðið - 17.02.1989, Side 44
SJÓVÁ-ALMENNAR
Nýtt félaf: með sterkar nrtur
EINKAREIKNINGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUMg
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Hækkun bílatrygginga:
Tillaga um 25,8%
-hækkun iðgjalda
IÐGJALD af tryggingTi lítils fólksbíls hækkar úr 23.101 krónu í 29.060
kr. eða um 25,8%, ef Tryggingaeftirlit riksins gerir ekki athugasemd-
ir við tillögur tryggingafélaganna um hækkanir á bifreiðatryggingum
fyrir næsta tryggingatímabil, sem hefst 1. mars. Inn i þessum tölum
er Abyrgðartrygging með 50% afslætti, framrúðutrygging og slysa-
trygging ökumanns.
Að beiðni Tryggingaeftirlitsins
skila tryggingafélögin nú hvert fyrir
sig tillögum að bifreiðaiðgjöldum
fyrir næsta ár, en hingað til hefur
Samstarfsnefnd tryggingafélaganna
gert tillögur um hækkanir á iðgjöld-
um til Tryggingaeftirlitsins. Sam-
starfsnefndin hefur hins vegar látið
vinna könnun á hækkunarþörfinni
- «g samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins eru tillögur tryggingafélag-
anna í samræmi við fliðurstöðu henn-
ar. Viðmælendur Morgunblaðsins
hjá tryggingafélögunum sögðu einn-
ig að samkeppni félaganna kæmi
fram með ýmsum öðrum hætti en
með undirboðum. Þar mætti nefna
þjónustu þegar um tjón væri að
ræða, reglur um afslætti, iðgjalds-
laus ár, fleiri en einn gjalddaga á
iðgjöldum og annað.
Samkvæmt könnuninni þarf
„ ®9Syrgðartrygging ökutækis að
hækka um 20% að meðaltali, en
hækkunin er nokkuð mismunandi
eftir iðgjaldaflokkum, húftrygging
og framrúðutrygging um 24% hvor
um sig og slysatrygging ökumanns
og farþega um 34% eða úr 3.200
krónum í 4.300 krónur. í flestu til-
liti samsvara þessar hækkanir breyt-
ingum á tjónavisitölu á milli áranna,
nema hvað slysatryggingu öku-
manns og farþega varðar. Þar má
rekja 16% til verðlagshækkunar milli
áranna. Mismuninn má rekja til leið-
réttingar á grunni iðgjaldsins, sem
þykir nauðsynlegur að fenginni
reynslu, en ár er liðið frá því þessi
trygging var tekin upp.
Tillögur um hækkun ábyrgðar-
tryggingar er talsvert mismunandi
eftir stærð og gerð biffeiðar. Þannig
hækkar ábyrgðartrygging af litlum
fólksbíl um 24%, af millistærð um
16% og af stórum bíl um 24%.
Ábyrgðartrygging á leigubifreiðum
hækkar um 30% og á bílaleigubif-
reiðum um 10%. Ábyrgðartrygging
á vörubifreiðum til atvinnureksturs
hækkar um 30% og sama gildir um
sendibifreiðar verði tillögumar sam-
þykktar.
Hótel Ork auglýst
tíl sölu í næstu víku
Framkvæmdasjóður íslands fékk
með fógetaúrskurði full yfirráð
yfir Hótel Örk í gær. Aðilar, sem
leigt höfðu hótelið af Hótel Örk
hf. og Helga Þór Jónssyni, voru,
með fógetaaðgerð sviptir yfir-
ráðtun yfir hótelinu og að henni
lokinni lýsti fógeti þvi yfir að
Framkvæmdasjóður hefði öll
yfirráð yfir fasteigninni. Að sögn
Hróbjarts Jónatanssonar lög-
manns Framkvæmdasjóðs verð-
ur hótelið auglýst til sölu í næstu
viku.
uppboðinu gerði Framkvæmdasjóð-
ur athugasemdir við samning Helga
við Hótel Örk hf. og taldi sig ekki
bundinn af þeim samningi.
Sigurður Hall og lögmaður hans
samþykktu fógetaaðgerðina í gær
og gekk hún því greiðlega fyrir sig.
Hróbjartur Jónatansson lögmaður
Framkvæmdasjóðs sagði að áður
en hóteiið yrði selt þyrfti að sinna
viðhaldi og koma húsinu 5 gott horf.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/RAX
Eyrún á strandstað við Keflavík.
Strandaði við Keflavíkurslipp
Vélbáturinn Eyrún ÁR 66 strandaði skammt
vestan við Keflavíkurslipp síðdegis i gær, en
báturinn hafði verið sjósettur skömmu áður. Vél
Eyrúnar stöðvaðist stuttu eftir að báturinn var
kominn á flot og rak hann stjómlaust upp í
grýtta Qöruna. Tveir menn vora á bátnum og
sakaði þá ekki. Eyrún er 24 tonna nýuppgerður
trébátur og var verið að byggja hvalbak á hann
í Keflavik.
Þegar blaðamenn Morgunblaðsins voru á strand-
stað í gærkvöldi var Eyrún á þurru, en óvíst um
björgunarmöguleika vegna slæmrar veðurspár í nótt
er leið. Undir miðnætti var björgunarskipið Goðinn
á leið á strandstað, en ætlunin var að freista þess
að draga Eyrúnu út á flóðinu í nótt. Háflæði var
um klukkan 5 í nótt, en Veðurstofan spáði suðaust-
an roki fram eftir nóttu áður en vindáttin sneri sér
til suðvesturs, en sú átt er mun hagstæðari á strand-
stað með tilliti til björgunaraðgerða. Enginn sjór var
kominn í Eyrúnu um miðnætti í nótt.
Hundruð manna án vínnu
í nokkrum sjávarplássum
Með þessum aðgerðum sagði
Hróbjartur Jónatansson að yfirráð-
um Hótels Arkar hf. og Helga Þórs
Jónssonar yfir hótelinu væri lokið.
Hótel Örk var slegið Framkvæmda-
sjóði á uppboði 6. október síðastlið-
inn fyrir 200 milljónir króna.
Skömmu áður en það gerðist hafði
Helgi Þór Jónsson framleigt hótelið
til Hótels Arkar hf., sem hann var
aðalhluthafi í. Hótel Örk hf. leigði
nokkru síðar Sigurði Hall og konu
hans veitingaaðstöðuna í hótelinu
og hótelið allt um síðustu helgi. Á
ATVINNUÁSTAND er alvar-
legt í nokkrum sjávarplássanna.
Morgunblaðið hafði samband
við atvinnuleysisskráningu á
nokkrum þeirra staða þar sem
ástandið er einna verst og
reyndust alls um 700 manns
vera atvinnulausir. Á Stöðvar-
firði eru til dæmis 70 atvinnu-
lausir og er það tæplega 50%
atvinnuleysi. Á Akranesi eru
180 atvinnulausir og 140 í
Keflavík. 70 eru án vinnu á
Stokkseyri, Hvammstanga og
Ólafsfirði, 65 i Siglufirði, 50 í
Ölfushreppi, 40 á Fáskrúðsfirði
og Breiðdalsvík og 32 á Pat-
reksfirði.
Öllu starfsfólki Hraðfrystihúss
Stöðvarfjarðar var sagt upp störf-
um 1. desember og í janúar bætt-
ust 20 starfsmenn saltfiskverkun-
arinnar Færabaks á atvinnuleysis-
skrána, að sögn Bjöms Hafþórs
Guðmundssonar sveitarstjóra.
Atvinnuleysið á Akranesi er
aðallega vegna lokunar þriggja
fyrirtækja, Akrapijóns, Hensons
og Hafamarins. „Við munum
leggja töluvert í sölumar til að
koma Hafeminum í gang aftur,"
sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri. í
Keflavík unnu flestir þeirra sem
nú em atvinnulausir í fiski og hjá
Ragnarsbakaríi en Guðfinnur Sig-
urvinsson bæjarstjóri sagði að 100
fengju vinnu við loðnufrystingu
næsta mánuðinn. Á Stokkseyri
lagar loðnufrystingin einnig
ástandið því þar vom flestir þeirra
70 atvinnulausu að fá vinnu við
loðnufrystinguna.
Á Hvammstanga er búið að
segja upp öllu starfsfólki rælq'u-
vinnslunnar, 20—25 manns, vegna
hráefnisskorts, en fyrir vom 70 á
atvinnuleysisskrá.
Sorppökkunarstöðin:
Fleiri staðir athugaðir
BORG ARYFIRV ÖLD eru að
kanna fleiri möguleika á stað-
setningu fyrirhugaðrar sorp-
pökkunarstöðvar. Kom þetta
fram í máli Davíðs Oddssonar,
borgarstjóra, á fundi borgar-
stjóraar i gærkvöldi. Sagði
hann að meðal annars hefðu
átt sér stað viðræður við bæjar-
yfirvöld í Hafiiarfirði um að
stöðinni yrði komið upp f landi
þess bæjarfélags.
Borgarstjóri sagði það vilyrði,
sem borgarráð hefði gefið Sorp-
eyðingu höfuðbórgarsvæðisins
varðandi lóð undir sorppökkun í
Hádegismóum austan við Árbæ,
vera háð margvíslegum skilyrð-
um, m.a. að Hollustuvemd ríkisins
og Náttúruvemdarráð tækju já-
kvætt í þessa starfsemi. Hins veg-
ar hefði nokkuð borið á óróleika
í nálægum íbúðarhverfum og
væri þar oft ónógri kynningu um
að kenna. Borgaryfírvöld teldu því
að efla þyrfti kynningu á þessari
starfsemi og jafnframt huga að
öðmm kostum hvað varðar stað-
setningu.